Fréttablaðið - 23.03.2004, Qupperneq 35
ÞRIÐJUDAGUR 23. mars 2004 35
BIG FISH kl. 10.10 CHEAPER BY THE DOZEN kl. 6
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30 B. i. 16 ára
LOST IN TRANSLATION kl. 5.40 og 8 SÝND kl. 8 og 10.30 B. i. 16 ára
Frábær gamanmynd frá
leikstjórum
There’s
Something
About Mary
og Shallow
Hal
KÖTTURINN
MEÐ HATTINN
Ekki eiga við
hattinn hans!
SCHOOL OF ROCK kl. 6, 8 og 10.15
MONSTER kl. 8 og 10.15 B. i. 16 ára
HHH1/2 kvikmyndir.com
SÝND kl. 8 B.i. 14SÝND kl. 6, 7, 9 og 10 SÝND kl. 6, 8 &10 B.i. 16
Rafmagnaður
erótískur tryllir í
anda „Kiss the
Girls“ og „Double
Jeopardy“.
HHHH kvikmyndir.is
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30 B. i. 16 ára
SÝND kl. 6 isl. texti
,,Hreint útsagt
frábær
skemmtun!”
- Fréttablaðið
,,Þetta er besta
myndin í bíó í dag
- ekki spurning”
- Fréttablaðið
Fréttiraf fólki
www.markisur.com • markisur@simnet.is
s. 567 7773 á daginn - gsm 893 6337 kvöld og helgar
Scarlett ætlar
aldrei að sýna allt
FÓLK Leikkonan unga Scarlett Jo-
hansson, sem heillaði heims-
byggðina með frammistöðu sinni í
Lost in Translation, hefur heitið
því að koma aldrei nakin fram í
kvikmynd.
Scarlett, sem er 19 ára, segist
trúa því að hún myndi stofna vel-
gengni sinni í hættu með því að
striplast á hvíta tjaldinu. „Ég hef
engan áhuga á því að koma
allsnakin fram í neinni mynd.
Maður á aldrei að sýna allt. Ég
myndi ekki einu sinni íhuga það
þó að myndin væri erótísk.“
Scarlett vann til BAFTA-verð-
launanna fyrir leik sinn í Lost in
Translation en þar sýndi hún á sér
rassinn í gegnum gagnsæjar nær-
buxur. Hún segist hafa verið mjög
óróleg yfir þessu atriði og hafi
ekki slakað almennilega á fyrr en
leikstjórinn, Sofia Coppola, hafi
sjálf farið í nærbuxurnar og sýnt
henni að þær væru ekki of djarf-
ar.
„Þegar upp er staðið er ég
ánægð með að hafa gert þetta,“
segir Scarlett í viðtali við Sunday
Telegraph. „Jafnvel þó að þetta
hafi ekki látið mig líta út eins og
mjög góða stúlku.“ ■
Dómari í Kaliforníu hefur felltniður ákærur á hendur leik-
aranum Paul Reubens, sem er
betur þekktur
sem Pee-Wee
Herman. Leik-
arinn var kærð-
ur árið 2002
fyrir að eiga
barnaklám í
fórum sínum
en myndirnar fundust við húsleit
á heimili hans árið áður. Reubens
hefur ætíð haldið fram sakleysi
sínu og varið sig með því að
myndirnar, sem sýndu börn í
kynferðislegum stellingum, væru
hluti af listasafni sínu.
Britney Spears hefur þurft aðfresta tónleikaferðalagi sínu
um Bandaríkin
eftir að hún sneri
sig á hné þegar
hún var að syngja
á sviði á fimmtu-
daginn. Hún varð
því að fresta tón-
leikum sem fyrir-
hugaðir voru í
Chicago á föstu-
daginn og tals-
menn hennar hafa
sagt aðdáendum hennar að búast
ekki við henni á næstunni enda
muni hún ekki troða upp aftur
fyrr en læknar gefa henni grænt
ljós. Britney hefur þegar beðið
aðdáendur sína afsökunar og tón-
leikahaldarinn í Chicago reynir
nú að semja um sárabótatónleika
í apríl en vonir standa til að söng-
konan verði orðin fær í flestan
sjó upp úr miðjum aprílmánuði.
Hollywoodmógúlarnir hafa séðsig tilneydda til að bjóða
Pierce Brosnan að leika njósnara
hennar hátign-
ar, James
Bond, í
fimmtu mynd
sinni um kapp-
ann eftir að
aðdáendur
leikarans hót-
uðu að snið-
ganga næstu
Bond-mynd ef
annar leikari
fengi hlut-
verkið. Brosn-
an lék Bond
síðast árið
2002 í Die
Another Day
og framleið-
endur mynda-
bálksins höfðu
hug á að
skipta gamla
manninum út
og fá hinn fun-
heita Colin Farrell til að taka við
rullunni. Menn taka hins vegar
litla áhættu í þessum bransa og
því láku yfirmenn kvikmynda-
versins því viljandi út að þeir
væru að hugsa um að láta Brosn-
an hætta til þess að kanna við-
brögð aðdáenda Bonds. Viðbrögð-
in létu ekki á sér standa og múg-
urinn hótaði öllu illu. „Við gerð-
um okkur enga grein fyrir því
hversu Pierce á stóran og dyggan
hóp aðdáenda. Við náðum skila-
boðunum alveg og hann mun
halda áfram að leika Bond,“ segir
ónefndur stjóri hjá MGM.
SCARLETT JOHANSSON
Er lítið fyrir að afklæðast fyrir framan
myndatökuvélar en er þó sátt við að hafa
látið skína í rasskinnarnar í Lost in
Translation.
Foreldrar
Verjum tíma með börnunum okkar
Hver stund er dýrmæt