Fréttablaðið - 28.04.2004, Qupperneq 1
● landsleikur við letta í kvöld
Ásgeir Sigurvinsson:
▲
SÍÐA 20
Gera betur en í
síðasta leik
● 49 ára í dag
María Lovísa:
▲
SÍÐA 18
Hannar kjólinn fyrir
50 ára afmælið
● verður með í fame í sumar
Gunnlaugur Egilsson:
▲
SÍÐA 30
Dansar um
allan heim
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 515 7500
MIÐVIKUDAGUR
ÍSLAND MÆTIR LETTLANDI
Íslenska landsliðið í knattspyrnu mætir
Lettum í vináttulandsleik í Ríga klukkan
17. Lettar eru með mjög öflugt lið og
leika í úrslitakeppni Evrópukeppninnar í
Portúgal í sumar. Landsleikurinn verður
sýndur beint á Sýn.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
SUMAR OG SÓL og hægviðri. Stöku
skúrir á Norðausturlandi, annars bjart og
fallegt. Sannkölluð sumarblíða. Sjá síðu 6.
28. apríl 2004 – 115. tölublað – 4. árgangur
ATVINNUÖRYGGI STARFSMANNA
Í HÆTTU Norðurljós undirbúa málsókn
gegn ríkinu. Atvinnuöryggi starfsmanna í
hættu. Formaður Verslunarmannafélags
Reykjavíkur segir það áhyggjuefni. Sjá síðu 2
VINSTRISTJÓRN MÖGULEG Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð og Samfylking-
in bæta við sig fylgi samkvæmt nýjustu
skoðanakönnun Fréttablaðsins og gætu
myndað stjórn saman. Sjálfstæðisflokkurinn
hrapar. Sjá síðu 4
SAMIÐ UM LÓÐASKIPTI Nýr samn-
ingur ríkis og borgar um lóðaskipti gerir ráð
fyrir byggingarréttindum Landspítala og Há-
skólans við Hringbraut. Sjá síðu 8
KATLA KOMIN Á STEYPIRINN
Katla er komin á steypirinn ef miðað er við
söguna en tæplega 80 ár eru síðan gos
varð síðast í Mýrdalsjökli. Íbúar sofa rólegir.
Sjá síðu 10
Gunni Helga:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Tvær fasteignir
sem borguðu sig
● fjármál
53%66%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 20
Sjónvarp 28
Fiskur og franskar:
Breskari en
drottningin
LONDON, AP Það er ekkert breskara
en fiskur og franskar, nema ef
vera kynni Yorkshire-búðingur.
Þetta er niðurstaða breskrar
könnunar um hvað Bretum finnist
gera Breta að Bretum. Sjálf
drottningin, Elísabet önnur, má
sætta sig við að vera í þriðja sæti
og hefur naumlega betur en hinn
hefðbundni breski morgunmatur
sem aðrir jarðarbúar hafa margir
hverjir átt í mestu vandræðum
með að borða.
Þrátt fyrir gömlu goðsögnina
um að breskur matur sé óætur er
matur í þremur af fimm efstu
sætunum og tedrykkja er í tíunda
sæti yfir fyrirbæri sem gera
Breta að Bretum, rétt á eftir mál-
verkum málarans Constable og
Marks&Spencer-búðunum. ■
Enski boltinn og Skjár einn:
Beðið eftir
flauti lög-
fræðinga
VIÐSKIPTI „Við bíðum bara eftir að
lögmenn FATR flauti til leiks,“ seg-
ir Magnús Ragnarsson, fram-
kvæmdastjóri Skjás eins. „Þá
stökkvum við upp í flugvél.“ Skjár
einn er tilbúinn til þess að ganga
frá samningum um ensku deildar-
keppnina. Magnús segir að við-
semjendurnir þurfi að klára 93
samninga samhliða og menn bíði
bara rólegir eftir því að kallið komi.
Til stóð að ganga frá samning-
um fyrir lok mánaðarins. Magnús
segir að þeir viti ekki hvenær
nákvæmlega hægt verði að undir-
rita, en Skjár einn sé tilbúinn
þegar þar að komi. ■UNNIÐ Í AUSTURSTRÆTI Strætið hefur verið lokað fyrir allri umferð bifreiða í heila viku meðan skipt er um hellulagnir en þær voru
farnar að síga og láta á sjá vegna umferðar. Gera hefur þurft við djúp hjólför og er vonast til að viðgerð ljúki að viku liðinni svo hægt
verði að beina bílaumferð að nýju um strætið. Svipað slit er á stöku stað á Laugavegi en þar eru hellusteinar einnig notaðir við götu-
lagningu.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
KÖNNUN Rúmlega þrír af hverjum
fimm landsmönnum eru andvígir
ríkisstjórninni samkvæmt nýrri
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
61% þeirra sem taka afstöðu
segjast andvíg stjórninni en 39%
eru henni fylgjandi. Stuðningur
við stjórnina hefur farið lækk-
andi í þremur síðustu könnunum
Fréttablaðsins, sem teknar hafa
verið eftir að könnun í ágúst í
fyrra sýndi 58% stuðning við
stjórnina. Þriðjungur þeirra sem
þá studdu stjórnina hafa snúið
baki við henni samkvæmt nýju
könnuninni.
„Þetta er minnsti stuðningur
við ríkisstjórn sem ég hef séð
mjög lengi. Ég man ekki eftir
svona niðurstöðum síðan í Við-
eyjarstjórninni. Þá, sérstaklega
á fyrri hluta kjörtímabilsins, var
ríkisstjórnin með tölur á þessu
bili,“ segir Ólafur Þ. Harðarson,
prófessor í stjórnmálafræði við
Háskóla Íslands, og vísar til
upphafsára ríkisstjórnar-
samstarfs Sjálfstæðisflokks og
Alþýðuflokks sem sátu saman
við stjórnvölinn á árunum
1991–1995.
Ólafur segir algengustu niður-
stöður um stuðning við ríkis-
stjórnina undanfarin ár vera þær
að um 60% styðji stjórnina, tölur
að undanförnu um að helmingur
styðji stjórnina séu því lágar og
niðurstaðan nú með því lægsta í
mörg ár. Hann segir alltaf hugsan-
legt að um mæliskekkju sé að
ræða en ef marka má niðurstöð-
urnar telur hann líklegustu
skýringuna á litlum stuðningi við
stjórnina vera það umrót sem hef-
ur verið að undanförnu. „Fjöl-
miðlafrumvarpið og deilur um
dómsmálaráðherra eru það sem
kemur fyrst upp í hugann. Það eru
mál sem hafa verið erfið fyrir rík-
isstjórnina.“
Skoðanakönnunin var fram-
kvæmd að kvöldi mánudags. 800
manns voru spurðir: „Ertu fylgj-
andi eða andvíg(ur) ríkisstjórn-
inni?“ 83,7% tóku afstöðu, 12,9%
voru óákveðin og 3,4% neituðu að
svara. Aðspurðir skiptust jafnt
milli kynja og hlutfallslega milli
landshluta.
brynjolfur@frettabladid.is
FJÖLMIÐLAFRUMVARP „Við munum
væntanlega fjalla um frumvarpið
þegar og ef til þess kemur að við
fáum það til umsagnar. Þá verður
meðal annars skoðað að þarna er
bæði verið að banna ákveðnum
aðilum algerlega að eiga hlut í
fyrirtækjum og brjóta upp fyrir-
tæki sem þegar eru til staðar.
Þetta eru hlutir sem við munum
vitaskuld velta fyrir okkur,“ segir
Ari Edwald, framkvæmdastjóri
Samtaka atvinnulífsins, um frum-
varp forsætisráðherra um eignar-
hald á fjölmiðlum.
Ari telur eðlilegt að Alþingi fjalli
um það hvaða reglur eigi að gilda á
þessu sviði, enda mikið mál fyrir
íslenskt samfélag hvernig fjöl-
miðlamarkaðurinn þróist.
„Það blasir við að ef takmark-
að verður hverjir megi eiga út-
varpsmiðla þá verður það brýnna
en áður að jafna samkeppnis-
stöðuna á útvarpsmarkaðnum.
Það verður ekki til heilbrigður
rekstrargrundvöllur á því sviði
ef ríkisfyrirtæki starfar á mark-
aðnum með þeim hætti sem Rík-
isútvarpið hefur gert. RÚV getur
niðurgreitt sína starfsemi með
skattfé og það skapast ekki eðli-
leg rekstrarskilyrði við þær að-
stæður. Þess vegna finnst okkur
hugmyndir um að efla ríkisrekst-
ur á þessu sviði láta mjög undar-
lega í eyrum,“ segir Ari. ■
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins hefur
efasemdir um fjölmiðlafrumvarp:
Skapar óheilbrigðan
rekstrargrundvöll
ARI EDWALD
Framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
segir að ef takmarkað verður hverjir megi
eiga útvarpsmiðla þá verður það brýnna
en áður að jafna samkeppnisstöðuna
á útvarpsmarkaðnum.
Minnsti stuðningur
við ríkisstjórn í áratug
Innan við 40 prósent landsmanna styðja ríkisstjórnina samkvæmt nýrri skoðanakönnun Frétta-
blaðsins. Minnsti stuðningur við ríkisstjórn frá því á árum Viðeyjarstjórnarinnar segir
prófessor í stjórnmálafræði. Stuðningur við stjórnina hefur minnkað um þriðjung frá í ágúst.