Fréttablaðið - 28.04.2004, Blaðsíða 4
4 28. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
Er nauðsynlegt að samþykkja
frumvarp um eignarhald á fjöl-
miðlum á þessu þingi?
Spurning dagsins í dag:
Á að afnema afnotagjöld
Ríkisútvarpsins?
Niðurstöður gærdagsins
á www.frett.is
74%
26%
Nei
Já
Kjörkassinn
Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun
visir.is
Rúmlega helmingur lyfja í viðmiðunarverðskrá:
Hækkun innan við 1.000 krónur
LYFJAMÁL Verð á lyfjum í viðmið-
unarverðskrá sambærilegra
lyfja hækkar í 55% tilvika um
minna en eitt þúsund krónur. Í
mörgum tilvikum leiða breyt-
ingar á reglugerð um lyfja-
kostnað, sem taka gildi 1. maí
nk., til þess að greiðslur sjúk-
linga lækka umtalsvert, sam-
kvæmt greinargerð lyfjadeildar
Tryggingastofnunar.
Skýringin á þessu er sú að
þrjátíu daga greiðslutakmörkun
er afnumin í flokki maga- og
geðdeyfðarlyfja, sem þýðir að
sjúklingar greiða aðeins eitt
sjúklingagjald í stað þriggja
áður. Með þessari breytingu
lækka greiðslur sjúklinga í
mörgum tilvikum umtalsvert
eftir 1. maí.
Samkvæmt greinargerðinni
eru 132 lyfjapakkningar í við-
miðunarverðskránni. Þar af eru
34 lyf með óbreytt verð, það er
þau sem mynda viðmiðunar-
verðið, og 39 til viðbótar þar
sem verðbreytingin er innan við
1.000 krónur. Bent er á að ef
sjúklingur notar lyf sem er dýr-
ara en lægsta verð sambærilegs
lyfs sé sá möguleiki fyrir hendi
að læknir skipti í ódýrasta lyfið.
Þannig haldist greiðsla sjúk-
lings óbreytt og í sumum tilfell-
um geti hún lækkað. ■
Vinstriflokkarnir
gætu myndað stjórn
Vinstrihreyfingin – grænt framboð og Samfylkingin bæta við sig fylgi
samkvæmt nýrri skoðanakönnun og gætu myndað stjórn saman. Sjálf-
stæðisflokkurinn tapar níu prósentustigum frá síðustu könnun.
KÖNNUN Samfylkingin og Vinstri-
hreyfingin – grænt framboð ynnu
meirihluta þingsæta ef kosið yrði í
dag og niðurstöðurnar í samræmi
við nýja skoðanakönnun Frétta-
blaðsins. Samkvæmt henni fengi
Samfylkingin 35,3% atkvæða og 23
þingmenn en Vinstri grænir 15,3%
atkvæða og níu þingmenn. Saman-
lagt eru það 32 þingsæti af 63 og því
hefðu vinstriflokkarnir meirihluta á
þingi til að mynda stjórn. Samfylk-
ing hefur nú tuttugu þingmenn og
Vinstri grænir fimm.
Samkvæmt könnuninni tapa báð-
ir stjórnarflokkarnir fylgi frá kosn-
ingum fyrir tæpu ári en miklu mun-
ar á afdrifum þeirra frá síðustu
skoðanakönnun Fréttablaðsins.
Sjálfstæðisflokkurinn tapar miklu
fylgi frá könnun sem var gerð í lok
síðasta mánaðar. Þá mældist fylgi
hans rúm 40% en samkvæmt nýju
könnuninni fengi hann 31,6% at-
kvæða og tuttugu þingsæti, tapaði
tveimur þingmönnum frá kosning-
um. Fram-
sóknarflokkur
bætir tæpum
þremur pró-
sentum við
sig frá síð-
ustu könnun
og fengi
12,7% at-
kvæða en
t a p a ð i
f j ó r u m
þ i n g -
m ö n n -
um frá
kosning-
u m ,
fengi átta í stað tólf. Þetta fylgi
stjórnarflokkanna dugar til 28 þing-
sæta samanlagt og vantar fjögur
upp á að stjórnin haldi velli.
Frjálslyndi flokkurinn fengi
4,9% þingsæta samkvæmt könnun-
inni og þrjá þingmenn en hefur
fjóra í dag.
Næsti þingmaður inn væri tíundi
þingmaður Vinstri grænna, sem
næði kjöri á kostnað 23. þingmanns
Samfylkingar.
Athygli vekur í könnuninni að
minna munar á fylgi Framsóknar-
flokks eftir landshlutum en áður,
samkvæmt henni njóta framsóknar-
menn ellefu prósenta fylgis á höf-
uðborgarsvæðinu en fimmtán pró-
senta fylgis á landsbyggðinni.
800 manns voru spurðir:
Hvaða lista myndir þú kjósa ef
gengið yrði til þingkosninga nú?
56,3 prósent aðspurðra tóku af-
stöðu. brynjólfur@frettabladid.is
Sala á Landsvirkjun:
Rætt við
ráðherra
BORGARMÁL Borgarráð samþykkti í
gær að fela borgarstjóra að leita
viðræðna við iðnaðarráðherra
vegna þess markmiðs að Reykja-
víkurborg losi sig út úr eignar-
haldi og ábyrgðum á raforku-
framleiðslu Landsvirkjunar. Sam-
þykktin var samhljóða og einnig
var ályktað að það ferli ætti að
hefja hið fyrsta.
Vika er síðan skýrsla og tillög-
ur Orkustefnunefndar borgarinn-
ar voru kynntar og gagnrýnir F-
listinn harðlega seinagang nefnd-
arinnar en 14 mánuðir eru síðan
listinn mótmælti óbeinni þáttöku
Reykjavíkurborgar í Kárahnjúka-
verkefninu gegnum Landsvirkj-
un. Telur F-listinn að erfitt verði
að losa hlut borgarinnar nú þegar
borgin er í ábyrgðum gagnvart
verkefninu. Þar sé um stórfelld og
óafsakanleg mistök að ræða enda
búið að binda hendur borgarinnar
næstu árin og íbúar á höfuðborg-
arsvæðinu verði áfram í fjárhags-
legri ábyrgð fyrir lántökum
vegna virkjunarinnar. ■
Fást í útibúum Íslandsbanka um land allt og hjá Íslandsbanka-Eignastýringu, Kirkjusandi.
Hægt er að panta bækurnar hjá Þjónustuveri Íslandsbanka í síma 440 4000.
Einnig eru bækurnar til sölu í bókabúðum Pennans-Eymundsson, hjá Máli og Menningu
og hjá Bóksölu stúdenta.
Frábærar bækur frá Íslandsbanka-Eignastýringu
45 daga fangelsi:
Átti
gasdrifna
skammbyssu
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur maður
var dæmdur í 45 daga fangelsi í
Héraðsdómi Reykjavíkur í gær
fyrir vopnalagabrot, fíkniefnabrot
og umferðarlagabrot.
Maðurinn er sakfelldur fyrir að
eiga gasdrifna skammbyssu, sem
lögreglan fann í bíl hans, án tilskil-
ins leyfis. Hann var tekinn þrisvar
með alls rúmlega tuttugu grömm
af amfetamíni og lítilræði af
maríjúana. Þá ók hann bíl án þess
að hafa ökuskírteini meðferðis. ■
Íslenska kvikmyndasamsteypan:
Hefur óskað eftir
gjaldþrotaskiptum
GJALDÞROT „Þetta eru hálfleikstöl-
ur og nú set ég enn meiri orku í
seinni hálfleikinn,“
segir Friðrik Þór Frið-
riksson, kvikmynda-
leikstjóri og einn eig-
enda Íslensku kvik-
myndasamsteypunn-
ar. Óskað hefur verið
formlega eftir gjald-
þrotaskiptum á fyrir-
tækinu þar sem ekki
tókst að afla þess fjár-
magns sem nauðsyn-
legt var til nauða-
samninga.
„Ég er að vissu leyti
ánægður að þessu er lok-
ið og hægt að loka bókinni. Ég er
með mörg önnur verkefni á minni
könnu sem ég sé alfarið um sjálfur
og nú tekur við að koma þeim
verkefnum á koppinn.
Þessi kvikmyndabransi
er víðast hvar með
þessum hætti, að dýfur
koma reglulega og sum-
ar of djúpar. Það er alla-
vega ljóst að ég skuld-
set sjálfan mig ekki
með þessum sama hætti
og ég gerði með kvik-
myndasamsteypuna.“
Gjaldþrotabeiðnin
hefur ekki áhrif á önnur
þau verkefni sem Friðrik
vinnur að nema að litlu
leyti og því má áfram bú-
ast við að sjá myndir hans á hvíta
tjaldinu í framtíðinni. ■
Viðbrögð
við könnun
Ríkisstjórnin kolfallin
Þessi könnun erharður áfellis-
dómur yfir ríkis-
stjórninni og ekki
má á milli sjá hvor
fær harkalegri út-
reið, Sjálfstæðis-
flokkur eða Framsóknarflokkur,
enda eru þeir jafn sekir í þeim
vondu málum sem þeir eru að
steypa yfir þjóðina um þessar
mundir,“ segir Össur Skarphéð-
insson, formaður Samfylkingar.
„Ánægjulegast er auðvitað að
samkvæmt þessari könnun er
ríkisstjórnin kolfallin.“
Getum ágætlega við unað
Mér sýnist útkoman bág hjástjórnarflokkunum en
ágæt hjá okkur og
Samfylkingunni,“
segir Steingrímur
J. Sigfússon, for-
maður Vinstri
grænna. Hann
segir flokk sinn
vera að mælast hæst yfir kjör-
fylgi og hann geti ágætlega við
það unað. „Við höfum heilmik-
inn hljómgrunn og ætlum okkur
að innleysa hann næst þegar
kosið verður og vonandi verður
það sem fyrst.“
Hrökkvum ekkert við
Já, við erum oft á þessu róli íykkar könnunum og auðvitað
hefðum við þegið
að hafa þessa tölu
hærri,“ segir Val-
gerður Sverris-
dóttir, iðnaðar- og
v i ð s k i p t a r á ð -
herra. Hún segir
það svo með Framsóknarflokk-
inn að hann mælist almennt ekki
hár í könnunum en þegar komi
til kosninga sé annað uppi á ten-
ingnum. „Því hrökkvum við ekk-
ert við þó við fáum ekki sérstak-
lega góðar kannanir.“
Þjóðinni ofboðið
Þetta ber keim af þeirri um-ræðu sem er núna í þjóðfé-
laginu og ég held
að þjóðinni of-
bjóði framferði
stjórnvalda í fjöl-
miðlamálinu. Þótt
Davíð Oddsson sé
að hætta sem for-
sætisráðherra þarf hann ekki að
láta svona,“ segir Guðjón A.
Kristjánsson, formaður Frjáls-
lynda flokksins.
Einhliða fréttir
Að mínu mati endurspeglarþetta þann
fréttaflutning sem
hefur verið af fjöl-
miðlafrumvarp-
inu. Hann hefur
verið mjög ein-
hliða og því koma
þesar tölur ekki á óvart,“ segir
Sigurður Kári Kristjánsson,
þingmaður Sjálfstæðisflokks.
Aukinn viðskiptahalli:
Erlend
neysla vex
EINKANEYSLA Heildarvelta í
greiðslukortaviðskiptum jókst um
tæp þrettán prósent á fyrsta fjórð-
ungi þessa árs samanborið við sama
tímabil í fyrra. Slíkt þykir benda til
aukningar einkaneyslu. KB banki
segir innbyrðis breytingar hafa orð-
ið milli greiðslumiðla milli ára,
þannig að heildarvelta kreditkorta,
debetkorta og ávísana hafi ekki auk-
ist milli ára. Bankinn efast ekki um
að einkaneysla sé að aukast þótt
ekki megi draga þá ályktun af þess-
um tölum. Hins vegar stingi í augu
aukning erlendra færslna um 25
prósent, sem bendi til aukningar
viðskiptahallans. ■
LYFJAVERÐ
Í mörgum tilvikum leiða breytingar á reglu-
gerð um lyfjakostnað til þess að greiðslur
sjúklinga lækka umtalsvert, samkvæmt
nýrri greinargerð lyfjadeildar Trygginga-
stofnunar.
4,
7%
11
,8
%12,7%
31,6%
4,9%
FYLGI FLOKKANNA
Hvaða lista myndir þú kjósa ef gengið yrði til þingkosninga nú?
B D F S U
15,3%
35,3%
32
,1
%
40
,8
% Nú
19. mars
Kosningar 2003
10
,1
%
7,
4% 8,
8%
31
,0
%
33
,7
%
17
,7
%
ENGINN BILBUGUR
Friðrik er áfram með mörg
verkefni í vinnslu.