Fréttablaðið - 28.04.2004, Qupperneq 6
6 28. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ Lögreglufréttir
GENGI GJALDMIÐLA
* Bandarískar vísitölur kl. 17.
Veistusvarið?
1Hverju köstuðu enskir mótmælendur íhægri öfgamanninum Jean-Marie Le
Pen síðustu helgi?
2Hvað er talið að hryðjuverkahópursem jórdönsk stjórnvöld handtóku hafi
ætlað að myrða marga?
3Hvaða bandarísku leikkonu hafasamtök samkynhneigðra kvenna í San
Francisco veitt viðurkenningu?
Svörin eru á bls. 31
LÍKFUNDUR Rannsókn lögreglu á láti
Vaidasar Jucevicius, sem fannst
miðvikudaginn 11. febrúar í höfn-
inni við netagerðarbryggjuna í Nes-
kaupstað, er lokið og hefur málið
verið sent ríkissaksóknara.
Að sögn Arnars Jenssonar, að-
stoðaryfirlögregluþjóns hjá ríkis-
lögreglustjóra, var niðurstaða rann-
sóknarinnar sú að engar frekari að-
gerðir verða gagnvart fólki búsettu
í Litháen og hefur þeim anga rann-
sóknarinnar verið hætt. Þá segir
hann niðurstöður á tæknilegum
rannsóknum styðja þau sönnunar-
gögn og þær grunsemdir sem rann-
sóknin beindist strax að. Niðurstöð-
ur DNA-rannsókna styðja dánar-
stað Juceviciusar og þá lýsingu sem
sakborningar hafa gefið. Ekkert
nýtt hefur komið fram sem breytir
framvindu málsins.
Nokkrir aðrir en þeir Grétar
Sigurðarson, Jónas Ingi Ragnars-
son og Tomas Malakauskas eru
taldir tengjast málinu minnihátt-
ar. Er það ríkissaksóknara að
ákveða hverjir verða ákærðir í
málinu. Þar sem fyrirspurnir og
aðgerðir lögreglunnar í Litháen
og hér á landi leiddu ekki til nið-
urstöðu er málið sent sem ein-
stakt tilvik til ríkissaksóknara. ■
Bætur skipta engu
Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður segir bótaskyldu sem ríkið kann
að baka sér með lögfestingu takmarkana á eignarhaldi fjölmiðla léttvægar í
samanburði við þá aðför sem gerð sé að grundvallarmannréttindum.
FJÖLMIÐLAR „Skaðabætur í þessu
máli skipta engu, þetta er miklu
stærra og flóknara mál en svo.
Þarna er vegið að tjáningarfrels-
inu, atvinnurétti og eignarréttar-
ákvæðum,“ segir Ragnar Aðal-
steinsson hæstaréttarlögmaður.
Hann segir að stefnt hafi í fá-
tæklega fjölmiðlaflóru á Íslandi
með Morgunblaðinu og Ríkis-
útvarpinu en fjölbreytni hafi
skapast með tilkomu þeirra miðla
sem nú tilheyra Norðurljósum.
Umræða ráða-
manna hafi hins
vegar um langa
hríð öll beinst að
einu fyrirtæki,
Baugi, bæði
áður en það
eignaðist Frétta-
blaðið, DV og
ljósvakamiðla
Norðurljósa og
eftir. Það sé því ekki flókið að
sýna fram á að fjölmiðla-
frumvarpinu sé beint gegn Baugi.
„Þetta frumvarp er algjörlega
sniðið að þessu eina fyrirtæki,
sem að minnsta kosti forsætis-
ráðherra og dómsmálaráðherra er
afar illa við af einhverjum ástæð-
um. Það má meðal annars sanna
með því að benda á að dómsmála-
ráðherra hefur sagt að sá eða þeir
sem ekki styðja frumvarpið á
þingi skipi sér í lið með Baugs-
mönnum og séu þar með að verja
Baug. Ef hægt er að færa sönnur
á það fyrir dómi að þetta frum-
varp sem síðar verður að lögum,
sé þannig til orðið, þá myndu dóm-
stólar ekki knýja fram markmið
laganna, vegna þess að svona lög
eru í andstöðu við grunnreglur
íslenskrar stjórnskipunar. Þetta
hefur í fræðiritum verið kallað
valdníðsla af hálfu löggjafar-
valdsins,“ segir Ragnar Aðal-
steinsson hæstaréttarlögmaður.
Ragnar segir að með frum-
varpinu sé vegið að tjáningar-
frelsinu, því eftir standi færri
fjölmiðlar og umræðan verði eins-
leitari á ný.
„Það virðist vera markmiðið með
frumvarpinu því það getur aldrei
haft í för með sér aukna fjölbreytni
á sviði fjölmiðla. Það hefur enginn
haldið því fram að innan sam-
steypunnar sem frumvarpið beinist
gegn, séu hættulegir fjölmiðlar, ef
undan er skilinn forsætisráðherra.
Hann segir jafnan að öll gagnrýni í
garð ríkisstjórnarinnar jafngildi
árásum,“ segir Ragnar Aðalsteins-
son og bætir við að atvinnufrelsinu
sé með frumvarpi forsætisráðherra
stefnt í hættu.
„Hví skyldi einhver hætta á það
að fara út í fjölmiðlun hér eftir
þegar hann má vita að þegar hann
segir eitthvað sem hentar ekki
stjórnarherrunum hverju sinni þá
verða bara sett lög sem útiloka
hann,“ segir Ragnar Aðalsteinsson.
Ragnar vildi taka sérstaklega
fram að lögmannsstofa hans hefði
í gegnum tíðina unnið einstök lög-
fræðiverkefni fyrir fyrirtæki
sem tengjast fjölmiðlasamsteypu
Norðurljósa.
the@frettabladid.is
Frjálshyggjufélagið:
Mótmælir
frumvarpinu
FJÖLMIÐLAFRUMVARPIÐ „Ríkisstjórn-
in er að fara inn á afar hættulega
braut með frumvarpi sínu,“ segir
í fréttatilkynningu frá Frjáls-
hyggjufélaginu þar sem félagið
vill koma á framfæri eindregnum
mótmælum gegn fjölmiðla-
frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þá
segir að í frumvarpinu felist mikil
skerðing á tjáningar- og atvinnu-
frelsi.
Félagið vill benda á að alger-
lega ótækt sé að gera greinarmun
á tjáningarfrelsi og eignarhaldi á
fjölmiðlum. Því til að boða skoð-
anir þurfi alltaf einhvers konar
fjölmiðla. Eina sem andstæðingar
fréttaflutnings einstakra fjöl-
miðla geta farið fram á er frelsi il
að boða skoðanir sínar sjálfir með
sínum hætti. ■
Samtök auglýsenda:
Ósátt við
vinnubrögð
FJÖLMIÐLAFRUMVARP Stjórn Sam-
taka auglýsenda er ósátt við það
að stjórnvöld skuli ekki hafa
kynnt sér sjónarmið auglýsenda
þegar unnið var að skýrslu um
eignarhald á fjölmiðlum og lögð
drög að frumvarpi sama efnis.
Í yfirlýsingu frá stjórninni
kemur fram að samtökin telji það
óviðunandi að auglýsendur, sem
séu annar meginviðskiptavina-
hópur fjölmiðlanna, skuli hunsað-
ir. Stjórn samtakanna segist vera
á móti of mikilli samþjöppun á
fjölmiðlamarkaði þar sem hún
hljóti fyrr eða síðar að leiða til
hærra verðs fyrir auglýsinga-
pláss og minni samkeppni. Jafn-
framt er stjórnin hlynnt því að
markaðsráðandi fyrirtæki í
öðrum rekstri eigi ekki hlut í fjöl-
miðlum þar sem það geti leitt til
þess að auglýsendum verði mis-
munað. ■
icelandair.is/vildarklubbur
Tvöfaldir
Vildarpunktar
til 1. maí
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
24
12
5
0
4/
20
04
Til viðbótar koma veltutengdir Vildarpunktar kortsins
LÖGREGLAN HEFUR LOKIÐ RANNSÓKN
Niðurstöður úr tæknilegum rannsóknum
hafa stutt sönnunargögn og lýsingu
sakborninga.
Líkfundarmálið er komið til ríkissaksóknara:
Rannsókn í Litháen
hefur verið hætt
Gera vel við bílinn:
12 milljóna
bílastæði
BANDARÍKIN, AP Bílastæði eru fjarri
því ókeypis í dýrari hverfum
Bostonborgar í Bandaríkjunum.
Nýlega seldist bílastæði fyrir met-
fé, andvirði rúmra tólf milljóna
króna. Upphæðin er þó fjarri því sú
hæsta sem hefur verið greidd fyrir
bílastæði í Bandaríkjunum. Í New
York fara bílastæði fyrir rúmar 18
milljónir króna og í San Francisco
mega menn búast við að borga 15
milljónir fyrir bílastæði.
Richard Phipps, eigandi fast-
eignasölu í Boston, segir verð bíla-
stæðanna jafnvel valda fasteigna-
sölum undrun þegar það er orðið
dýrara en þriggja herbergja íbúð. ■
Bandaríkjadalur 73.45 -0.41%
Sterlingspund 131.52 0.11%
Dönsk króna 11.74 0.03%
Evra 87.32 0.02%
Gengisvísitala krónu 123,29 0,02%
Kauphöll Íslands
Fjöldi viðskipta 274
Velta 2.904 milljónir
ICEX-15 2.728 0,41%
Mestu viðskiptin
Pharmaco hf. 116.215
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 52.375
Landsbanki Íslands hf. 51.854
Mesta hækkun
Tryggingamiðstöðin hf. 9,87%
Pharmaco hf. 2,14%
Marel hf. 1,00%
Mesta lækkun
Nýherji hf. -5,06%
AFL fjárfestingarfélag hf. -2,12%
SÍF hf. -1,59%
Erlendar vísitölur
DJ * 10.513,8 0,7%
Nasdaq * 2.041,9 0,2%
FTSE 4.575,7 0,1%
DAX 4.134,1 0,2%
NK50 1.511,9 0,2%
S&P * 1.143,9 0,7%
VOÐASKOT Lögreglan á Selfossi
bíður þess að fá niðurstöður
krufningar vegna voðaskotsins
sem varð Ásgeiri Jónsteinssyni
að bana þegar hann og tíu ára
vinur hans léku sér með skamm-
byssu við Gesthús á Selfossi í
mars. Að sögn Ólafs Helga Kjart-
anssonar er þáttur byssueigand-
ans til skoðunar hjá embættinu.
VEGIÐ AÐ GRUNDVALLARRRÉTTINDUM
Ragnar Aðalsteinsson hæstaréttarlögmaður segir að með fjölmiðlafrumvarpi forsætis-
ráðherra sé vegið að tjáningarfrelsi og eignarrétti. Auk þess sé atvinnufrelsi stefnt í voða.
„Þetta hefur
í fræðiritum
verið kallað
valdníðsla af
hálfu löggjaf-
arvaldsins.