Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.04.2004, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 28.04.2004, Qupperneq 8
8 28. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR ■ Bandaríkin Bjartsýnin minnkar: Svartsýnni á atvinnuástand VÍSITALA Væntingavísitala Gallups lækkaði í apríl eftir stöðuga hækkun undanfarna mánuði. Vísi- talan stóð í 120,2 stigum í apríl og hafði lækkað um tólf stig milli mánaða. Vísitalan er samsett úr nokkrum undirvísitölum þar sem mæld eru mat á núverandi ástandi og væntingum til næstu sex mánaða. Könnuð eru við- horf og væntingar til efnahagslífs og atvinnu- ástands. Allar undirvísitölur lækkuðu milli mánaða. Mat á atvinnuástandi lækkar mest. Vísitalan hefur hækkað frá áramót- um, þar til nú. Hún náði hæsta gildi síðan í maí í fyrra í mars síðastliðnum. Sé hins vegar tekið tillit til árstíð- arleiðréttingar hefur vísitalan farið lækkandi frá áramótum. Greining Íslands- banka veltir upp hugsan- legum ástæðum lækkun- ar nú. Að undanförnu hafi dregið úr atvinnu- leysi en samt sem áður séu fleiri svartsýnir en bjartsýnir á atvinnu- ástandið. Hugsanlega geti verið um einhverja óánægju vegna kjara- samninga að ræða. Greiningardeildin bend- ir á aðra hugsanlega skýringu á lækkun vísi- tölunnar eða lækkandi gengi krónunnar, en Íslandsbanki segir sterka fylgni milli gengis krónunnar og vísitölunnar. ■ Samið um lóðaskipti og uppbyggingu Nýr samningur ríkis og borgar um lóðaskipti gerir ráð fyrir byggingarréttindum Landspítala og Háskóla Íslands við Hringbraut. Nefnd um uppbyggingu Landspítala - háskólasjúkrahúss leggur til að vinnu við deiliskipulag lóðarinnar verði lokið á fyrri hluta árs 2006. HEILBRIGÐISMÁL Tekist hefur samn- ingur milli Reykjavíkurborgar og ríkisins um nýtingu lóða við Hring- braut til uppbyggingar Landspítala - háskólasjúkrahúss. Samningurinn tryggir sjúkrahúsinu og Háskóla Íslands byggingarréttindi meðal annars á Umferðarmiðstöðvar- reitnum svonefnda. Þórólfur Árna- son borgarstjóri og Jón Kristjáns- son heilbrigðisráðherra undirrit- uðu samning þessa efnis í gær. Samkvæmt honum er spítalanum heimilað að reisa meira magn bygg- inga á svæðinu við Hringbraut heldur en orðið hefði samkvæmt eldri samningi, að færslu Hring- brautarinnar afstaðinni. Lóðir Landspítala í Fossvogi munu aftur falla undir Reykjavík- urborg, að öðru leyti en því að aðal- byggingu spítalans verður afmörk- uð lóð, svo og húsum LSH milli Álands og Bústaðavegar. „Það er ánægjulegt að þessi þáttur skuli vera búinn,“ sagði Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra í gær. „Þarna er búið að vinna grund- vallaratriði sem þurfa að vera í lagi, áður en menn halda lengra. Gengið hefur verið frá lausum end- um við borgina, sem gefur mögu- leika á að stíga næstu skref varð- andi forgangsröðum, fjármögnun- arleiðir og loks ákvörðun um hvenær hafist yrði handa.“ Samkvæmt áfangaskýrslu sem nefnd um framtíðaruppbyggingu Landspítala - háskólasjúkrahúss skilaði til heilbrigðisráðherra í gær er gert ráð fyrir mikilli uppbygg- ingu spítalans á svæðinu við Hring- braut. Jafnframt er gert ráð fyrir að stofnanir Háskóla Íslands, sem tengjast honum verði á Hringbraut- arsvæðinu. Tillögur nefndarinnar að forgangsröðun gera ráð fyrir því að byrjað verði á framkvæmdum við slysa- og bráðaþjónustu spítal- ans. Næsti áfangi yrði uppbygging rannsóknarstofnana. Í þriðja for- gangi yrði uppbygging dag- og göngudeilda spítalans og loks upp- bygging legudeilda og endurgerð þeirra sem áfram nýtast við Hring- braut. Í skýrslu nefndarinnar er gerð tímaáætlun undirbúnings og fram- kvæmda. Lagt er til að hönnunar- samkeppni fari fram um skipulag Landspítalalóðar og grunngerð nýbygginga. Í skýrslunni er lögð áhersla á gott umferðaraðgengi að Hring- brautarsvæðinu. Reykjavíkurborg mun á sinn kostnað, en í samráði við LSH og HÍ, tryggja gott aðgengi milli svæða. Þannig tekur borgin þátt í nauðsynlegri uppbyggingu bílastæða og bílastæðahúsa innan lóða Landspítala og mun verja til þess samtals 500 milljónum króna á verðlagi í maí 2003. Mikið skipulagsstarf fer nú fram innan Landspítala - háskólasjúkrahúss. Á vegum heil- brigðisráðuneytisins vinnur nefnd undir stjórn Jónínu Bjartmarz að því að marka spítalanum skýrari stöðu í heilbrigðisþjónustunni, en verið hefur. Samtímis vinnur svokölluð stýrinefnd að stjórnun vinnu notenda við undirbúning byggingu nýs spítala við Hring- braut. jss@frettabladid.is Þriggja mánaða fangelsi: Maður stal óútfylltum lyfseðlum DÓMSMÁL Maður á fertugsaldri var dæmdur í þriggja mánaða fang- elsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa stolið óútfylltum lyf- seðlum, sérlyfjaskrá, stimplum, tveimur fartölvum. tölvudiskum og fleiru af skrifstofu á Land- spítalanum. Tæplega tvítugur maður var dæmdur í þriggja mánaða fang- elsi skilorðsbunið fyrir að hafa tekið við þýfinu og fundið kaup- anda að annarri tölvunni. Sá eldri rauf skilorð með broti sínu. ■ BUSH VEX ÁSMEGIN Fleiri Bandaríkjamenn eru sáttir við frammistöðu George W. Bush sem Bandaríkjaforseta nú en í byrjun mánaðarins samkvæmt nýrri skoðanakönnun, þrátt fyrir blóðug átök í Írak. 48% eru sátt við frammistöðu hans en 43% ósátt. Einungis 36% telja Bush hafa skýra stefnu um að ljúka þátttöku Bandaríkjanna í Írak. KLERKUR KÆRÐUR FYRIR MORÐ Kaþólskur prestur í Ohio á sjö- tugsaldri hefur verið ákærður fyrir morðið á nunnu sem fannst látin fyrir 24 árum síðan, hún hafði verið stungin 30 sinnum. Málið var tekið aftur til rann- sóknar eftir að kona hélt því fram að kaþólskir prestar hefðu misnotað sig kynferðislega. EIGNARHALD „Þingvellir eru auðvit- að kirkjujörð,“ segir sr. Þórhallur Heimisson, prestur í Hafnarfjarð- arkirkju. Ríkisstjórnin lítur svo á að Þingvellir séu í eigu ríkisins en ekki þjóðkirkjunnar, að því er fram kemur í greinargerð með lagafrumvarpi forsætisráðherra um þjóðgarðinn. „Þegar Þingvallabær var reist- ur árið 1930 þá var meðal annars notað fé úr kirkjujarðasjóði til að byggja húsnæðið,“ segir sr. Þór- hallur. Hann bendir á að þó sam- vinna hafi verið milli ríkis og kirkju um rekstur Þingvalla á undanförnum áratugum hafi aldrei verið gengið frá samning- um um eignarhald á jörðinni. „Þetta mál hefur aldrei verið klárað þannig að kirkjan á í raun- inni enn þessa jörð og þennan stað. Það sama á við um prests- setrið sem er prestssetur en ekki sumarbústaður forsætisráðherra eða ríkisstjórnarinnar eins og ráðamenn vilja vera láta.“ Þórhallur segir að kirkjan hafi ítrekað óskað eftir viðræðum við ríkisvaldið um þetta mál en fengið dræmar undirtektir. ■ – hefur þú séð DV í dag? Íbúar á Baldursgötu flýja Malagafangann GADDAFÍ Í EVRÓPU Moammar Gaddafí Líbíuleiðtogi fór mikinn þegar hann mætti í höfuðstöðvar fram- kvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Hann veifaði til stuðningsmanna sinna fyrir framan höfuðstöðvarnar en lést ekki taka eftir mótmælendum sem kölluðu hann morðingja. Þegar inn var komið afhenti Romano Prodi, forseti fram- kvæmdastjórnarinnar, honum box með myntum Evrópusambandsins. Gaddafí spurði í gríni hversu verðmætar þær væru en Prodi sagði þær sannast sagna lítils virði, andvirði tæpra 2000 króna. Breskir skólar: Trúleysi í námskrá LONDON, AP Gera má trúleysi jafn hátt undir höfði og helstu trúar- brögðum í trúarbragðafræðslu í breskum grunnskólum sam- kvæmt nýrri samþykkt stjórn- valda. Kenna verður börnum í öllum bekkjum breskra grunnskóla trú- arbragðafræði. Höfuðáhersla er lögð á kristna trú en einnig verður að kenna börnum um önnur helstu trúarbrögð heimsins. Nú er í fyrsta skipti gert ráð fyrir að kynna megi lífsskoðanir trúleys- ingja fyrir nemendum en ákvörð- un um það er í hendi skólastjórna á hverjum stað. ■ SÉRA ÞÓRHALLUR HEIMISSON „Þetta er borðleggjandi mál sem fulltrúar ríkis og kirkju þurfa að ræða,“ segir sr. Þórhallur um þær deilur sem upp eru komnar um eignarhald á Þingvöllum. Deilt um eignarhald á Þingvöllum: Ekki sumarbústaður forsætisráðherra SAMKOMULAG Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra og Þórólfur Árnason borgarstjóri undirrituðu samninginn fyrir hönd borgar og ríkis. Apríl 125,8 Maí 136,8 Júní 117,9 Júlí 112,6 Ág. 115,3 Sep. 116,8 Okt. 125,2 Nóv. 120,9 Des. 104,2 Jan. 123,7 Feb. 127,5 Mars 132,9 Apríl 120,6 SVARTSÝNI UM VINNU Þrátt fyrir að atvinnu- leysi fari minnkandi, þá eykst svartsýnin vegna atvinnuástand- sins í væntingavísitölu Gallups.

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.