Fréttablaðið - 28.04.2004, Síða 11
11MIÐVIKUDAGUR 28. apríl 2004
Lögfræðistofa Reykjavíkur
UPPGJÖR Fyrstu tvö uppgjör fyrir-
tækja á aðallista Kauphallar Ís-
lands ollu vonbrigðum. Nýherji og
Straumur fjárfestingarbanki hafa
birt uppgjör. Miklar væntingar
voru gerðar til uppgjörs Straums
enda vitað um mikinn gengis-
hagnað á skráðum eignum félags-
ins. Hagnaður fyrstu þriggja
mánaða eftir skatta var tveir
milljarðar króna, en greiningar-
deildir bankanna höfðu vænst enn
betri afkomu eða milli 2,5 og
þriggja milljarða.
Tap varð hins vegar af rekstri
Nýherja upp á tæpar 32 milljónir.
Greiningardeild KB banka segir
uppgjör félagsins verulega undir
væntingum. Greiningardeildin
gerði ráð fyrir að hagnaður fyrir
afskriftir og fjármunaliði yrði 75
milljónir, en raunin varð fimm
milljóna hagnaður. Í tilkynningu
Nýherja eru helstu skýringar
lakari afkomu sagðar að sala hefði
farið hægar af stað á árinu en ráð
var fyrir gert og kostnaður vegna
nýrra hugbúnaðarverkefna sem
enn væru ekki farin að skila
tekjum. ■
15 þúsund króna sekt:
Vildi komast
hjá gjöldum
DÓMSMÁL Rúmlega tvítugur mað-
ur sem reyndi að komast hjá að
borga tæplega þrjú þúsund krón-
ur í aðflutningsgjöld var dæmd-
ur í Héraðsdómi Reykjavíkur til
að greiða 15 þúsund krónur í
sekt. Var hann dæmdur bæði
fyrir skjalafals og tollalagabrot.
Breytti maðurinn heildar-
verði hlutanna sem hann keypti á
um þrettán þúsund krónur í
þrettán hundruð krónur. Vörurn-
ar, sem maðurinn keypti í gegn-
um bandaríska vefsíðu, voru
gerðar upptækar. ■
BORIN Á KJÖRSTAÐ
Kosningar fóru fram í Indlandi í fyrradag,
fjölmennasta lýðræðisríki heims.
Blóðugar kosningar:
Sex felldir á
kjörstöðum
INDLAND, AP Þrír slösuðust í tveim-
ur sprengjuárásum á kjörstaði í
indverska hluta Kasmír en það
þótti vel sloppið þegar Indverjar
greiddu atkvæði í þriðju umferð
þingkosninga. Annars staðar voru
árásirnar blóðugri og kostuðu sex
einstaklinga lífið. 33 hafa látið
lífið síðan kosningarnar hófust
fyrir viku.
Atal Bihari Vajpayee forsætis-
ráðherra kvaðst sigurviss og bjóst
við að halda starfi sínu næstu
fimm árin. Rahul Gandhi, hvers
faðir, amma og langafi voru
forsætisráðherrar, var í framboði
ásamt móður sinni í einu helsta
vígi Congressflokksins. ■
Tveir jeppar ultu:
Ökumaður-
inn dottaði
UMFERÐARÓHAPP Jeppi sem var að
draga bilaðan jeppa á kerru fór út
af veginum og valt á Borgarfjarð-
arbraut við Árból, skammt frá
Hvanneyri, um klukkan fjögur að-
faranótt þriðjudags. Jeppinn lenti
í lausamöl í vegkantinum með
þeim afleiðingum að kerran fór út
af veginum og jeppinn sem var
bilaður kastaðist af henni. Þá kom
slinkur á jeppann sem dró
kerruna og hann valt út af.
Fjórir voru í bílnum og sluppu
þeir með minniháttar áverka,
enda allir í bílbeltum. Báðir jepp-
arnir eru mikið skemmdir og voru
þeir dregnir á brott með kranabíl.
Að sögn lögreglu er talið að öku-
maðurinn hafi dottað. ■
Ástralía:
Framdi 80
kynferðisbrot
KYNFERÐISBROT Fertugur karl-
maður hefur verið ákærður fyrir
alls 80 kynferðisbrot á ungum
dreng í norðurhluta landsins. Áttu
brotin sér stað á tímabilinu
1993–1998 en drengurinn er 19
ára í dag. Telur lögregla sig hafa
nægar sannanir til að dæma
manninn mörgum sinnum til lífs-
tíðarfangelsis en réttarhöld yfir
manninum hefjast í næstu viku. ■
Fyrstu uppgjör ársins:
Vonbrigði á markaðnum
MIKLAR KRÖFUR
Þórður Már Jóhannesson, forstjóri
Straums fjárfestingabanka, skilaði
góðum hagnaði af starfsemi bankans
fyrstu þrjá mánuði ársins. Mikil bjart-
sýni var um afkomuna og urðu sumir
fyrir vonbrigðum með hana.