Fréttablaðið - 28.04.2004, Page 26
Ætli ég fari ekki bara upp íhesthús með tertur og kaffi,“
segir María Lovísa fatahönnuður
en hún nær 49 ára aldrinum í dag.
„Ég er mikil hestakona og er með
hesta upp í Andvara. Þangað hef
ég boðið til mín fólki áður. Það er
alltaf gaman að fá vini og fjöl-
skyldu til sín í heimsókn og það er
viss sjarmi yfir því að gæða sér á
glóðvolgum vöfflum upp í hest-
húsi.“
María Lovísa hélt upp á tuttugu
ára afmæli verslunar sinnar í
fyrra og segist vera mikil afmæl-
iskona. „Mér finnst sérstaklega
gaman að halda upp á stórafmæli.
Fertugsafmælið mitt hélt ég í
Þrastarheimilinu í Hafnarfirði,
bauð um hundrað manns og sló
upp balli með hljómsveit. Ég er
ekki byrjuð að skipuleggja fimm-
tugsafmælið á næsta ári en mér
þætti viðeigandi að slá bara upp
hlöðuballi í tilefni dagsins.“
María Lovísa hefur hannað
ófáa afmæliskjólana í gegnum tíð-
ina. „Konur leggja mikla áherslu á
að klæðast fallegum dressum þeg-
ar þær eiga stórafmæli,“ segir
María Lovísa, sem hefur saumað
kjóla á fjölmargar þekktar konur í
samfélaginu, leikkonur, stjórn-
málakonur og forsetafrúr. „Af
afmæliskjólunum er mér þó
minnisstæðastur kjóll sem ég
hannaði á konu sem var að fara að
halda upp á áttræðisafmælið sitt.“
María hefur einnig hannað
afmæliskjóla á sjálfa sig. „Ef ég
ætti að hanna afmæliskjól í ár
yrði hann svartur og hvítur en
stórafmælið mitt er ekki fyrr en á
næsta ári og tískan breytist svo
ört að það er ómögulegt að segja
til um hvernig næsti afmæliskjóll
mun líta út.“ ■
Þennan dag árið 1945 voruítalski einræðisherrann og leið-
togi fasistaflokksins þar í landi,
Benito Mussolini, og hjákona hans
Clara Peacci tekin af lífi. Ítalskir
andófsmenn handtóku parið og
myrtu þau þegar Mussolini og
Peacci voru á flótta á leið til Sviss.
Hinn 61 árs fyrrum einræðis-
herra Ítalíu hafði verið gerður að
táknrænum valdahafa þýsku lepp-
stjórnarinnar á Norður Ítalíu við
stríðslok. Þegar bandamenn
fikruðu sig upp Ítalíuskagann og
ósigur Öxulveldanna varð augljós
íhugaði Mussolini endalok sín.
Mussolini vildi ekki falla í hendur
Breta eða Bandaríkjamanna og vit-
andi það að kommúnistaflokkur-
inn, sem hafði barist við leifar
landlausra fasista og leynisamtaka
í norðri, myndi meðhöndla hann
sem glæpamann, ákvað hann að
gera tilraun til að flýja til Sviss
sem var hlutlaust land í stríðinu.
Hann og Clara Peacci höfðu það að
svissnesku landamærunum en þar
dulbjuggu þau sig með því að
klæðast herklæðum og vonuðust
þannig til að geta smeygt sér inn í
Austurríki með þýskum hermönn-
um. Ekki heppnaðist dulbúningur-
inn betur en svo að andófsmenn
komu auga á Mussolini og Petacci.
Andófsmennirnir skutu þau og lík
þeirra voru flutt til Mílanó þar sem
þau voru hengd upp á hvolf þannig
að almenningur gæti sýnt þeim
óvirðingu. ■
■ Þetta gerðist
1789 Áhöfnin á herskipinu Bounty gerir
uppreisn og skilur William Bligh
skipstjóra og 18 áhafnarmeðlimi
eftir á reki í Suður-Kyrrahafinu.
1947 Landkönnuðurinn Thor Heyerdahl
leggur upp í 4.300 mílna siglingu,
á fleka, frá Perú til Pólinesíu.
1967 Cassius Clay (Mohammed Ali)
neitar að ganga í bandaríska her-
inn af trúarlegum ástæðum.
1969 Charles de Gaulle, forseti Frakk-
lands, lætur af embætti.
1990 Broadway-söngleikurinn A Chorus
Line hættir eftir 6.137 sýningar.
1996 Bill Clinton, forseti Bandaríkjanna,
ber vitni í Whitewater-málinu.
2000 Fimm manns farast þegar maður,
sem virtist knúinn kynþátta-
fordómum, hóf skotárás í úthverfi
Pittsburgh.
AFTAKA
Lík Mussolini og Peacci voru hengd upp í
Mílanó til merkis um að Mussolini væri
sannanlega allur og stríðinu lokið.
18 28. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ Nýjar bækur
■ Afmæli
Júlíus Brjánsson, leikari og hestamaður,
er 53 ára.
Margrét J. Pálmadóttir kórstjóri er 48
ára.
Gunnar Karlsson myndlistarmaður er
45 ára.
Andrés Magnússon blaðamaður
er 39 ára.
■ Andlát
Bjarni Hans Gunnarsson, Teigaseli 5,
Reykjavík, lést laugardaginn 24. apríl.
Guðfinna Helgadóttir frá Ey, Njálsgerði
10, Hvolsvelli, lést laugardaginn 24. apríl.
Guðmann Heiðmar lést sunnudaginn
25. apríl.
Hreggviður Daníelsson frá Bjargshóli,
Miðfirði, Vestur-Húnavatnssýslu, síðast til
heimilis á Ásbraut 9, Kópavogi, lést
laugardaginn 24. apríl.
Ingiríður Elísabet Ólafsdóttir, Breiða-
gerði 9, Reykjavík, lést laugardaginn 24.
apríl.
Jóhanna Sveinsdóttir sjúkraliði, lést
laugardaginn 17. apríl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Jónína Margrét Jónsdóttir frá Fjalli,
Öldustíg 8, Sauðárkróki, lést föstudaginn
23. apríl.
María Bjarnason frá Bakka, síðast til
heimils að dvalarheimilinu Skálahlíð,
Siglufirði, lést sunnudaginn 25. apríl.
Lilja Bernódusdóttir lést laugardaginn
24. apríl.
Pálmi Sævar Þórðarson matsveinn, lést
laugardaginn 24. apríl.
■ Jarðarfarir
10.30 Guðrún Magnúsdóttir, Skúlagötu
72, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Dómkirkjunni í Reykjavík.
15.00 Guðrún S. Steingrímsdóttir,
verður jarðsungin frá Neskirkju.
RITIÐ – Tímarit Hugvísindastofn-
unar er komið út. Efni Ritsins er
fjölbreytt að vanda en megin-
þema heftisins að þessu sinni er
Dauðinn. Álfrún Gunnlaugsdóttir
fjallar um frásagnir þeirra sem
lifðu af vist í fangabúðum nas-
ista, m.a. um bók Leifs Muller, Ís-
lendings sem var tvö ár í Sach-
senhausen og gaf út bók um
reynslu sína strax árið 1945.
Úlfhildur Dagsdóttir skrifar um
uppvakninga sem minni í nútíma-
menningu og tengsl þess við önn-
ur menningarfyrirbæri, eins og
t.d. pönkið. Jens Lohfert Jørgen-
sen glímir við dauðann í verkum
danska rithöfundarins J. P. Jacob-
sen út frá kenningum franska
hugsuðarins Maurice Blanchot og
veltir því fyrir sér hvort hlutverk
skáldskaparins sé ekki öðrum
þræði að tákngera dauðann, þ.e.
tjá það tóm sem dauðinn er.
Guðni Elísson tekur til umfjöllun-
ar ljóðlist Steinunnar Sigurðar-
dóttur í tvöföldu ljósi langrar
hefðar tregaljóða í vestrænum
bókmenntum og þess uppbrots á
hefðinni sem felst í nýrri stöðu
konunnar sem skálds en ekki
lengur þess tákns sem skáldið af
karlkyni yrkir um.
Ritið fæst í flestum bókaverslun-
um. Einnig er hægt að nálgast
það hjá Hugvísindastofnun.
28. apríl
1945
BENITO MUSSOLINI
■ Ítalski einræðisherrann og fasistinn
var tekinn af lífi þennan dag árið 1945
ásamt hjákonu sinni Clöru Peacci.
Afmæli
MARÍA LOVÍSA
■ Fatahönnuður er 49 ára í dag. Í tilefni
dagsins ætlar hún að baka vöfflur og
bjóða vinunum upp í hesthús.
JAY LENO
Sjónvarpsmaðurinn og grínarinn Jay Leno
er 54 ára í dag.
28. apríl
Ég hef nánast allan minn starfs-feril tekið þátt í að byggja upp
eitthvað nýtt og verið í stjórnun-
arstöðu þar sem miklar breyting-
ar eru í gangi,“ segir Hrönn Pét-
ursdóttir, sem nýlega hefur verið
ráðin starfsmanna- og kynningar-
stjóri Fjarðaáls sem fyrirhugar að
reisa álver í Reyðarfirði.
„Þetta hefur iðulega verið í ein-
hverri starfsemi þar sem starfs-
mannaþróun og menntun starf-
manna hefur verið mikilvægur
þáttur þannig að þetta er ekki
ókunnugur heimur fyrir mér. Mér
fannst þetta verkefni líka vera
spennandi strax í upphafi.“
Hrönn verður búsett í Fjarða-
byggð og segist vera að leita sér
að húsnæði. „Ég ólst upp út á
landi, bæði á Ólafsfirði og Akur-
eyri, þannig að mér er ekki ókunn-
ugt að búa utan Reykjavíkur,“
segir hún og hlær. Þar að auki hef-
ur hún undanfarin ár unnið á Snæ-
fellsnesi við undirbúningsvinnu í
tengslum við stofnun nýs fram-
haldsskóla.
„Ég bý ein, en mun gera Aust-
urland að minni fjölskyldu. Það er
mjög mikið um að vera fyrir aust-
an. Fólk er mjög samhuga um
hvað þetta er stórt verkefni og
hvað það er mikilvægt að hlutir
gangi vel fyrir sig.“
Þar sem hún hefur ekki enn
tekið til starfa er eðlilega erfitt að
meta hvernig starfið mun reyn-
ast. „Það verður mikilvægt að
leggja sérstaka áherslu á hvaða
áhrif Fjarðaál hefur á svæðið. Það
munu verða miklir fólksflutning-
ar á mjög stuttum tíma. Við verð-
um bara að reyna að sjá til að allt
gangi sem best fyrir sig.“ ■
Tímamót
HRÖNN PÉTURSDÓTTIR
■ Nýr starfsmanna- og kynningarstjóri
Fjarðaáls.
Spennandi tímar
framundan
HRÖNN PÉTURSDÓTTIR
Mikið undirbúningsstarf er óunnið
áður en Fjarðaál tekur til starfa 2007.
Sjálf hefur hún störf 4. maí.
Stórafmæliskjólar og hlöðuball
Mussolini tekinn af lífi
MARÍA LOVÍSA
Segir afmæliskjólinn í ár vera svart-
hvítan en hannar þó ekki kjól á sjál-
fa sig nema á stórafmælum og bíð-
ur því spennt til næsta árs.