Fréttablaðið - 28.04.2004, Síða 27
19MIÐVIKUDAGUR 28. apríl 2004
Þegar Bjarki Bragason skráðisig í hollvinafélag þýsku menn-
ingarstofnunarinnar Goethe-
Zentrum var honum fagnað sér-
staklega. Peter Weiss, forstöðu-
maður Goethe-Zentrum, afhenti
honum bæði blómvönd og bóka-
gjöf. Það hittist nefnilega svo á að
Bjarki varð meðlimur númer 2000
í hollvinafélaginu, sem annast
rekstur stofnunarinnar.
Sex ár eru síðan Goethe-stofnun-
inni hér á landi var lokað, en jafn-
skjótt var opnuð ný Goethe-miðstöð
sem tók við hlutverki stofnunarinnar.
„Þetta var einkavæðing. Við
sem vinnum hér erum ekki lengur
starfsmenn þýska sambandsríkis-
ins með launum og eftirlaunum,
heldur erum við starfsmenn Holl-
vinafélagsins,“ segir Peter Weiss.
„Fyrir notendur breyttist hins
vegar ekkert. Við erum með sama
gamla bókasafnið og sömu dag-
skrána, kvikmyndasýningar og
fleira.“
Þeir sem voru með bókasafns-
skírteini frá gömlu Goethe-stofn-
uninni héldu gamla númerinu
sínu, en síðan hafa bæst við tæp-
lega 700 manns, allt áhugafólk um
þýska menningu og tungu. ■
Félögum Goethes
fjölgar
!!"#$%%!# %&'%#()*+,'%%%--%%'./
0,& ,1%%!1%#'2
!"
4 5+
%
%
% 4 6%
% 4
%
%
%
4 7 0 %
%
"
%
%
#
$"89
.$:;<'=$:;
%":=;;;
#3%"-"'
%%4'567789:9
$56778;::
0-<#2
&
>
%
" %
%
% /
+
%
%
0
%
% % % Unnsteinn Kristinn Hermanns-son, kúabóndi í Laxárdal, er
að byggja sér nýtt fjós. Hann býst
við að flytja inn um mánaðamótin.
Nýja byggingin er með legubása
fyrir fjörutíu og átta kýr auk
kálfastíu og sjúkrabása.
Unnsteinn tók við kúnum á
Leiðólfsstöðum 1997 af foreldrum
sínum. Sama ár byggði hann sér
nýtt íbúðarhús á jörðinni og býr
hann nú á Leiðólfsstöðum II.
„Ég ætla að flytja inn um mán-
aðamótin. Það verður þvílíkur
munur að komast í nýja fjósið,“
segir Unnsteinn, sem mun færa
sig mun nær nútíma búskap við
flutninginn. „Það verður mjalta-
gryfja í nýju byggingunni þar
sem ég get mjólkað tíu kýr í einu.
Í dag tekur það mig um fjóra tíma
að mjólka og gefa en þegar allt
verður farið að ganga sinn vana-
gang í nýja fjósinu kem ég til með
að klára mjaltirnar á einum tíma.“
Nokkrir verktakar hafa unnið
tæknivinnu við verkið og vinir og
vandamenn hafa einnig eitthvað
hjálpað til. En mestmegnis hefur
Unnsteinn haft hjá sér einn smið.
Nú þegar sér fyrir endann á
vinnu þeirra standa þeir stoltir
eftir. „Mér voru veitt verðlaun
fyrir að vera bjartsýnismaður
ársins á síðasta þorrablóti enda
er þetta fyrsta fjósið sem byggt
er í Laxárdalnum í tuttugu ár. Ef
maður dettur ekki í það þegar
þetta er tilbúið þá er eitthvað að
manni,“ segir Unnsteinn og glott-
ir þegar hann er inntur eftir
þeirri hefð að halda reisugill þeg-
ar bygging rís. ■
Búskapur
UNNSTEINN KRISTINN
HERMANNSSON
■ er að reisa nýtt fjós og ætlar
að fá sér í staupinu við verklok.
Fyrsta fjósið í Laxárdal í tuttugu ár
BYLTING
Það verður bylting
fyrir Unnstein að
komast í nýja fjósið.
Goethe-miðstöðin
■ Tvö þúsund manns hafa nú skráð sig í
hollvinafélag þýsku menningarstofnunar-
innar Goethe Zentrum. Um þessar mundir
eru um það bil 400 þeirra virkir í félaginu.
SKIPVERJAR TÝS Á KOLBEINSEY
Skipverjar á varðskipinu Tý réðust til uppgöngu á Kolbeinsey fyrir stuttu þegar varðskipið
átti leið þar fram hjá. Kolbeinsey, sem er nyrsti hluti Íslands fer stöðugt minnkandi og
brotnar sífellt af henni norðan- og austanverðri. Eftir að alþjóðlegar samþykktir tókust um
að miða 200 mílna lögsögu við Kolbeinsey, þrátt fyrir að eyjan sökkvi í sæ,
hafa Íslendingar hætt að reyna að halda eyjunni við með steypu.
FÉKK BLÓMVÖND OG BÓKAGJÖF
Bjarki Bragason, meðlimur númer 2000 í
Hollvinafélagi Goethe-Zentrum,
fékk blómvönd og bókagjöf frá
Peter Weiss forstöðumanni.