Fréttablaðið - 28.04.2004, Side 30

Fréttablaðið - 28.04.2004, Side 30
Fyrir síðustu helgi gaf popp-sveit Íslands, Írafár, út sinn fyrsta DVD-disk. Eða það er að segja ef ekki er talinn með fylgi- diskur sem gefinn var út með sér- útgáfu fyrstu plötu sveitarinnar, Allt sem ég sé. „Þarna er nú meira og minna allt sem hefur komið út sjónrænt með hljómsveitinni Írafár,“ segir Vignir Snær Vigfússon, gítarleik- ari og lagahöfundur, um diskinn sem ber einfaldlega nafn sveitar- innar. „Öll myndböndin, gerð myndbandanna „Fáum aldrei nóg“ og „Allt sem ég sé“, og útgáfutónleikarnir okkar sem við héldum fyrir jólin. Svo er líka þátturinn sem var tekinn upp við gerð síðustu plötu.“ Þátturinn sem Vignir talar um er heimildarmyndin sem fjallaði um gerð síðustu plötu, Nýtt upp- haf, sem seldist í þúsundum ein- taka fyrir síðustu jól. Þar er meðal annars fylgst með sveitinni við upptökur í Orlando, þangað sem sveitin fór til þess að skipta um vinnuumhverfi. „Það fór myndatökumaður með okkur þessar tvær vikur og fylgd- ist með,“ segir Vignir, og viður- kennir að hafa verið mjög meðvit- aður um myndavélina á meðan myndatökumaðurinn ráfaði í kringum þau. „Við leigðum okkur hús og það var voðalega þægilegt að vinna. Maður var svo sem orð- inn vanur myndatökumanninum undir lokin. En Guð, hvað ég myndi ekki vilja vera stjarna í raunveruleikasjónvarpsþætti.“ Írafár eru frekar róleg í einka- lífinu og Vignir segist halda að þau séu frekar eðlileg. Það er því lítið um skandala í heimilda- rmyndinni. Í mesta lagi drukkið te og svo talið í lagið. Vignir segir DVD-diskinn lík- legast vera einu eiginlegu útgáfu hljómsveitarinnar á árinu en hún hefur ákveðið að vera ekki með í jólaslagnum í ár. Hann á þó von á því að Írafár sleppi tveimur nýj- um lögum á safnplötuna Svona er sumarið 2004. „Við erum að byrja á prufuupptökum, ég er einmitt að því þessa stundina. Við ætlum að reyna að klára þessi lög fyrir júní,“ segir Vignir að lokum. Tónleikarnir voru sérstaklega hljóðblandaðir í 5.1 Dolby Digital fyrir útgáfuna. ■ 22 28. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR Pondus eftir Frode Øverli Tónlist ÍRAFÁR ■ Allt sjónrænt efni sem tengist sveitinni Írafár er nú fáanlegt á einum DVD-diski. Allt sem sést... með Írafár ÍRAFÁR Írafár tók sig svo saman og hljóðritaði talrás ofan í seinni heimildarmyndina. Eigum við að skella okkur á pöbbinn, Haraldur? Pöbbinn... neeei... ég er sko að horfa á Glæsta nágranna í sjónvarpinu sko... Ég verð víst bara að segja sannleikann... ÉG ER EKKI ÓLÉTT!! GÆRAN! Hún hefur dregið þá á asnaeyrunum allan tímann! Vesalings Steve og Danny og hann þarna litli feiti með tréfótinn! Það er sko ekki auðvelt að vera karlmaður! Sumir okkar REYNA það samt, Haraldur! Þú sagðir að ÉG væri faðir barnsins sem þú gengur með, en nú segist Steve vera faðirinn... Dína? Hver er faðirinn, ég eða Danny? Eða litli durgurinn þarna með tréfótinn? Svaraðu, Dína!

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.