Fréttablaðið - 28.04.2004, Side 32
24 28. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
25 26 27 28 29 30 1
APRÍL
Miðvikudagur
Maður er bara með plötu áplötuspilara og svo er maður
með mixer og kannski eitthvert
hljóð sem maður leikur sér að,“
segir plötusnúðurinn Gísli Galdur
þegar hann er beðinn um að lýsa
því hvað „scratch“ er. „Í rauninni
snýst þetta um að taka upp hljóð
og snúa því á alla kanta með því
að nota mixerinn.“
Scratch hefur verið þýtt sem
plötuklór eða skífuskank. Sagan
segir að plötuklórið hafi verið
fundið upp árið 1975 þegar Grand
Wizard Theodore, sem þá var
ungur piltur í New York, stöðvaði
plötu á plötuspilaranum sínum
með hendinni til þess að heyra
hvað amma hans var að segja
honum.
Hún var að biðja hann um að
lækka í tónlistinni. En svo þegar
hann hreyfði hendina aðeins og
plötuna með, þá spratt fram nýtt
hljóð og „scratchið“ varð til.
Gísli lítur á það nánast sem
köllun sína að kynna þessa tækni
fyrir fólki. Í kvöld ætlar hann að
sýna, á svonefndu Tímakvöldi í
Klink og Bank, heimildarmynd
frá árinu 2001 sem heitir einfald-
lega Scratch. Í þeirri mynd er
saga plötuklórsins rakin frá upp-
hafi og fram yfir aldamótin.
Þetta þykir mögnuð mynd sem
meðal annars var tilnefnd til
verðlauna á Sundance-kvik-
myndahátíðinni.
„Þessi mynd er um þetta fyrir-
bæri og söguna. Þarna eru viðtöl
við stærstu plötusnúðana í heim-
inum og þeir spurðir hvenær þeir
fóru að spá í þetta. Þeir eru mikl-
ir pælarar allir og það er farið í
alls konar afbrigði og mis-
munandi stíl í þessum geira.“
Gísli segist hafa notað þetta í
ýmsum hljómsveitum, og þá
hreinlega sem eitt af hljóð-
færunum.
„Þessu svipar í raun og veru
mjög til slagverkshljóðfæra. Í
myndinni er einmitt sýnt hvernig
hægt er að heimfæra slag-
verksnótur yfir á scratch, og ég
veit um gaur sem er byrjaður að
skrifa út nótur fyrir scratch.“
Eftir myndina ætlar Gísli að
mæta á svæðið með græjur sínar
og gefa sýnidæmi af plötuklóri.
„Ég ætla bara að sýna fólki
hvernig þetta er og jafnvel leyfa
því að prófa.“ ■
■ TÓNLIST
Pælir í plötuklóri
Háskólabíó við Hagatorg I Sími 545 2500 I sinfonia@sinfonia.is I www.sinfonia.is
AÐALSTYRKTARAÐILI
SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR
ÍSLANDS
M
Á
T
T
U
R
IN
N
&
D
Ý
R
Ð
IN
Richard Strauss ::: Metamorphosen
Ludwig van Beethoven ::: Sinfónía nr. 9
FIMMTUDAGINN 29. APRÍL KL. 19:30 UPPSELT
FÖSTUDAGINN 30. APRÍL KL. 19:30 UPPSELT
Hljómsveitarstjóri ::: Rumon Gamba
Söngvarar ::: Elín Ósk Óskarsdóttir, Alina Dubik, Kolbeinn Ketilsson
og Kristinn Sigmundsson ásamt Óperukórnum í Reykjavík
Kórstjóri ::: Garðar Cortes
Rauð #6
Samverustund Vinafélagsins í Sunnusal Hótels Sögu á fimmtudagskvöld kl. 18.00.
Fyrirlestur Árna Heimis Ingólfssonar um tónleikana hefst. kl. 18.30.
9. SINFÓNÍA BEETHOVENS
Dáðasta tónverk allra tíma
Þessi sýning er helguð minn-ingu föður míns, sem lést á
hrottalegan hátt á Reykjanes-
brautinni 14. nóvember,“ segir
Hulda Halldórsdóttir, sem er með
sýningu í gamla Kaupfélagshús-
inu við Strandgötu í Hafnarfirði.
„Ég er það tengd föður mínum
að áhrifa hans gætir víða á
sýningunni.“
Hulda hefur sýnt víða á undan-
förum árum, og ekki bara í hefð-
bundnum listasölum. Í fyrra vakti
athygli þegar hún tjaldaði fyrir
utan Kjarvalsstaði og hélt þar
sýningu á verkum sínum.
„Oft er ekki auðhlaupið að því
að komast að í sýningarsölum.
Þess vegna verður maður bara að
finna sér leið sjálfur ef maður
ætlar að halda áfram.“
Í þetta skiptið hefur hún komið
sér fyrir með verk sín við hliðina
á menningarmiðstöðinni Hafnar-
borg í Hafnarfirði.
„Hérna var golfbúð áður, en nú
er þetta tómt og þess vegna fékk
ég leyfi frá eigandanum til að
leika mér eins og ég vildi. En
þetta er mjög skemmtilegt hús-
næði, kjörinn sýningarsalur og
meira að segja með súlum.“
Á sýningunni eru tólf verk, öll
hvítmáluð og unnin úr ýmsu efni.
Hulda segir sýningargesti marga
hverja hafa sýnt sterk viðbrögð,
en treystir sér engan veginn til að
skilgreina verk sín nánar.
„Fólk verður að upplifa þetta
sjálft. Það er tilfinningin inni í
manni sem bankar upp á þegar
maður verður fyrir áhrifum.“
Sýningin er á annarri hæð að
Strandgötu 26–28. Hún verður
opin alla daga klukkan 13–20, en
síðasti sýningardagur er 1. maí.
■
■ ■ KVIKMYNDIR
21.00 Heimildarmyndin Scratch
(2001) verður sýnd á Tímakvöldi í Klink
og Bank. Í myndinni er fjallað um
plötuklór og plötuspilaralist og þróun
þeirra. Á eftir myndinni mun Gísli Gald-
ur plötusnúður ræða um þessa sérstöku
gerð tónlistarsköpunar og gefa sýni-
dæmi.
■ ■ TÓNLEIKAR
20.00 Karlakórinn Þrestir heldur
árlega vortónleika sína í Hafnarborg í
Hafnarfirði. Þetta eru aðrir tónleikarnir af
fjórum þetta árið. Stjórnandi Þrasta er
Jón Kristinn Cortez og undirleikari
Jónas Þórir og einsöng með kórnum
syngur Jóhann Sigurðarson.
20.00 Óperudeild Nýja söngskól-
ans „Hjartansmál“ sýnir óperuna Hvar
er Fígaró? í tónlistarhúsinu Ými við
Skógarhlíð. Þessi uppsetning er sam-
bland af óperum þriggja tónskálda, þeir-
ra Giovanni Paisiello, Gioacchino Rossini
og W.A. Mozart, um Fígaró. Stjórnandi
og leikstjóri er Guðbjörn Guðbjörns-
son. Píanóleikari er Julian Hewlet.
20.00 Skagfirska söngsveitin í
Reykjavík heldur tónleika í Ytri-Njarð-
víkurkirkju. Stjórnandi er Björgvin Þ.
Valdimarsson og undirleikari er Dagný
Björgvinsdóttir. Einsöngvarar eru þau
Kristín R. Sigurðardóttir, Ragna S. Bjarna-
dóttir, Magnús Sigurjónsson og Baldvin
Júlíusson.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Lína Langsokkur eftir Astrid
Lindgren á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
20.15 Leikhópurinn Á senunni
sýnir á litla sviði Borgarleikhússins
sýninguna Paris at night, sem byggð er
á ljóðum eftir Jacques Prévert.
GÍSLI GALDUR
Ætlar að kynna plötuklór og aðra plötusnúðalist á Tímakvöldi í Klink og Bank í kvöld.
Meðal annars verður sýnd heimildarmyndin Scratch.
HULDA Á SÝNINGU SINNI
Sýningu Huldu Halldórsdóttur að Strandgötu 26–28 í Hafnarfirði lýkur á laugardaginn.
■ MYNDLIST
Tilfinningar banka upp á