Fréttablaðið - 28.04.2004, Page 33
MIÐIKUDAGUR 28. apríl 2004
GÆÐAVARA – BETRA VERÐ!
JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
Alþingi
hafnaði
friðarfána
Í gær ók sjúkrabíll á milli ýmissastofnana á höfuðborgarsvæðinu
með hvítan fána sem tákn friðar.
Fáninn var fluttur á sjúkrabörum
inn á stofnanirnar þar sem hann var
afhentur sem gjöf.
Þarna var á ferðinni myndlistar-
neminn Bjarki Bragason, sem und-
anfarnar vikur hefur tekið þátt í
námskeiði um umhverfislist í Lista-
háskóla Íslands.
„Hann fór um allt, meðal annars
í Stjórnarráðið og Alþingi,“ segir
Bryndís Snæbjörnsdóttir myndlist-
arkona, sem hefur haft umsjón með
þessu námskeiði.
„Hann lenti reyndar í því að þeir
höfnuðu þessari gjöf á Alþingi.
Hann stóð lengi vel í áköfum sam-
ræðum með hálfar sjúkrabörur út
um dyrnar á Alþingi. En þeir sögð-
ust ekki þiggja gjafir nema hringt
væri á undan.“
Í dag og á morgun ætla fleiri
nemendur af þessu námskeiði að
halda áfram að fremja umhverfis-
list, sem þau hafa verið að undirbúa
á námskeiði Bryndísar í Lista-
háskólanum.
Ítalski skiptineminn Gabriele
Porta ætlar til dæmis að vinna lítið
verk við húshorn á Bergþórugötu í
dag.
Annar nemandi, Kristjan
Zaklynsky, hefur „fundið út hvar
draugar eiga heima hér í borg og
hefur sett upp lítið skilti öðrum til
viðvörunar“.
Einnig verður María Antal með
hljóðverk í Kringlunni og á morgun
ætlar Karl Bergmann Ómarsson að
búa til innsetningu í Hljómskála-
garðinum, sem hann hefur „átt í eró-
tísku sambandi við“ undanfarið. ■
BJARKI MEÐ HVÍTA FÁNANN
Nemendur í námskeiði um umhverfislist
verða á ferð víða um Reykjavík nú í vikunni,
þar sem þau ætla að setja svip á bæinn.
■ ■ LEIKLIST
20.30 Leikfélag Sauðárkróks sýnir
gamanleikinn Síldin kemur og síldin fer
eftir þær systur Iðunni og Kristínu Steins-
dætur. Sýnt er í Bifröst á Sauðárkróki.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.15 Jörgen Weibull, prófessor
við Boston University heldur erindi um
hvort hagfræði sé vísindi og prófanir
hagfræðikenninga með tilraunum í
Odda, stofu 101.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
■ MYNDLIST