Fréttablaðið - 14.06.2004, Blaðsíða 11

Fréttablaðið - 14.06.2004, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 14. júní 2004                                 ! "#   $       %   &  )  #   *++) ), #  ++) )-   #  ++) ). # /# ++)        0  1"   /  0     2 #  "#  &   /# !#  #  "##   #  3       4$   /      "  5  1$/      4$  #           . # +6+7            !   " #  $  %  #                                             „Orkuveita Reykjavíkur vinnur í sátt við náttúruna á öllum sviðum. Stuðlað er að góðri nýtingu náttúruauðlinda, fegrun lands og umhverfis.“ Orkuveita Reykjavíkur býður þér í heimsókn á Hengilssvæðið! Í tilefni fyrirhugaðra virkjunarframkvæmda á Hellisheiði hefur Orkuveita Reykjavíkur opnað kynningarmiðstöð í Skíðaskálanum í Hveradölum. Áætlað er að fyrsta áfanga Hellisheiðarvirkjunar ljúki árið 2006, en fullbúin virkjun verður tekin í notkun 2015. Að mörgu er að huga við framkvæmdirnar og hefur Orkuveita Reykjavíkur tekið saman nytsamlegar upplýsingar um virkjunina og virkjunar- svæðið. Á Hengilssvæðinu fer saman vistvæn orkunýting Orkuveitu Reykjavíkur og útivist fjölskyldunnar. Opið virka daga frá kl. 10:00–17:00. Nánari upplýsingar í síma: 617-6784. ORKAN Í HENGLINUM HELLISHEIÐARVIRKJUN Í MÁLI OG MYNDUM F í t o n / S Í A F I 0 0 9 8 9 6 ÓHAPP Í ÁRTÚNSBREKKU Lítil jeppabifreið valt á hliðina við mislæg gatnamót Miklubrautar og Sæbrautar neðst í Ár- túnsbrekku. Óhappið varð með þeim hætti að bifreiðinni var ekið utan í steyptan kant í einni af slaufum gatnamótanna með þeim afleiðingum að hún valt á hliðina. Ekki urðu slys á fólki. Bandaríkjamenn ekki óhultir í Sádi-Arabíu: Mannræningja ákaft leitað RIYADH, AP Yfirvöld í Sádi-Arabíu leituðu í gær ákaft að bandarískum ríkisborgara sem rænt var um helg- ina. Maðurinn, Paul M. Johnson, er talinn vera í haldi hryðjuverkahóps á vegum al Kaída sem þegar hefur lýst yfir ábyrgð sinni á morði á öðr- um Bandaríkjamanni sem drepinn var í höfuðborginni Riyadh um helgina. Greint var frá því í gær að lík af manni, sem væri hugsanlega Vesturlandabúi, hefði fundist fyrir utan herstöð í höfuðborginni í gær en lögregluyfirvöld neituðu þeim fréttum. Í yfirlýsingu frá al Kaída kemur fram að samtökin hyggist koma eins fram við gísla sína og banda- rískir hermenn hafi komið fram við íraska fanga. Það þykir benda til að gíslarnir verði látnir sæta margvís- legu harðræði, þ. á m. kynferðis- legu. ■ ÖRLÖG MANNSINS ÓKUNN Þessi ljósmynd og mynd af nafnspjaldi Pauls M. Johnson birtst á íslamskri vefsíðu á laugardaginn ásamt yfirlýsinigu frá al Kaída þess efnis að samtökin væru með Bandaríkjamann í haldi. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.