Fréttablaðið - 14.06.2004, Blaðsíða 25
Michael Pollock, fyrrum Utan-
garðsmaður, virðist vera í miklu
stuði um þessar mundir því World
Citizen er önnur af tveimur plöt-
um sem hann gaf út á dögunum.
Hér er hann einn á ferð og að
mestu á rólegu trúbadornótunum,
kyrjandi söngva með sinni sér-
stöku röddu. Af og til breytir
hann þó út af vananum og fer út í
hrátt rokk, eins og í lögunum
Squeeze, Desert/Dream Vision og
titillaginu World Citizen. Áhrifa
frá gömlum hetjum á borð við
Bob Dylan og Neil Young gætir
víða á plötunni og sérstaklega
virðist Young vera Pollock hug-
leikinn.
Pollock hittir mun betur í mark
með kassagítarinn í hendi. Þar
eru bestu lög Great Spirit, Lost &
Found og Dreaming. Ekki má
heldur gleyma enskri útgáfu hans
á gamla Megasarlaginu Lóa Lóa
þar sem saxófónninn fær að njóta
sín á skemmtilegan hátt. Rolling
Stones-lagið No Expectations
kemur einnig vel út í flutningi
Pollocks. Plötunni lýkur síðan
með kórsöng á trúarlegu nótun-
um, sem er fínn endahnykkur á
ágætis plötu.
Textar Pollocks fjalla að mestu
um ástina og trúna auk þess sem
deilt er á stríðsrekstur. Gæti
plötutitillinn alveg eins vísað í
þau átök sem nú eiga sér stað í
Írak. Pollock er heimsborgari og
þegar komið er illa fram við aðra
í heiminum þjáist hann með þeim.
Freyr Bjarnason
[ TÓNLIST ]
UMFJÖLLUN
Lóa og
saxófónninn
MICHAEL POLLOCK
WORLD CITIZEN
MÁNUDAGUR 14. júní 2004
■ TÓNLIST
Með Avis kemst þú lengra
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú
leggur af stað – Það borgar sig
Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Innifalið í verði er ótakmarkaður akstur, trygging, vsk. og
flugvallargjald. (Verð miðast við lágmarksleigu 7 daga).
Ekkert bókunargjald - Gildir til 31. mars 2005.
Verð háð breytingu á gengi.
Benidorm kr. 1.900,- á dag m.v. A flokk
Alicante kr. 1.900,- á dag m.v. A flokk
Costa del Sol kr. 2.100,- á dag m.v. A flokk
www.avis.is
Við
gerum
betur
Spánn
AVIS Knarrarvogi 2 - 104 Reykjavík - Sími 591 4000 Fax 591 4040 - Netfang avis@avis.is
Munið Visa
afsláttinn
Lars Ulrich, trommari væntan-
legra Íslandsvina í Metallicu, er
sestur aftur við settið eftir veik-
indi og spilaði meðal annars á tón-
leikum sveitarinnar í Þýskalandi
síðastliðinn þriðjudag.
Ulrich segir að of mikið rokk
og ról hafi valdið veikindum sín-
um. Urðu þau til þess að hann
missti af tónleikum sveitarinnar í
Bretlandi og dvaldi þess í stað á
sjúkrahúsi í Þýskalandi. Þeir Joey
Jordison, trommuleikari Slipknot,
Dave Lombardo, trommari Slayer,
og Flemming Larsen, tæknilegur
aðstoðarmaður Ulrichs, hlupu í
skarðið fyrir hann á tónleikunum.
Í yfirlýsingu á heimasíðu
Metallicu segist Ulrich hafa verið
undir miklu álagi undanfarna
mánuði og það hafi komið niður á
heilsu hans. „Eftir að hafa rokkað
grimmt síðustu sex mánuði víðs
vegar um heiminn held ég að ald-
ur minn hafi farið að segja dálítið
til sín,“ sagði Ulrich. Um aðstoð-
artrommuleikara sína hafði hann
þetta að segja: „Ég vildi óska að
ég hefði séð tónleikana. Eða
kannski var bara best að ég gerði
það ekki.“ ■
METALLICA
Lars Ulrich, lengst til hægri, hefur lagt hart
að sér á tónleikaferðinni með Metallica.
Ulrich rokkaði yfir sig