Fréttablaðið - 14.06.2004, Blaðsíða 14
14. júní 2004 MÁNUDAGUR
Unnið að aðalskipulagi Þingvallasveitar:
Nokkur fjölgun
sumarhúsa hugsanleg
ÞINGVALLASVEIT Ákveðið hefur verið
að stækka ekki sumarhúsabyggð við
Þingvallavatn. Hins vegar verður
unnið að því að tengja betur saman
þær byggðir sem fyrir eru og gæti
það haft í för með sér nokkra fjölgun
sumarhúsa, að sögn Sveins A.
Sæland, oddvita Bláskógabyggðar.
Unnið er að aðalskipulagi Þing-
vallasveitar og fundaði sveitar-
stjórn sérstaklega um hana á Þing-
völlum í vikunni. Lokið hefur verið
drögum að skipulagi sem sent
verður til umsagnar hjá opinberum
stofnunum, að sögn Sveins.
„Við tókum ákvörðun um að ýta
frekar undir það að svæðið er ákaf-
lega viðkvæmt og því hugsum við
okkur ekki að stækka núverandi
sumarbústaðabyggð,“ segir Sveinn.
„Við munum þó leitast við að sam-
ræma og lagfæra skipulag á
nokkrum svæðum þar sem okkur
finnst réttlætanlegt að tengja betur
saman þær byggðir sem fyrir eru.
Það gæti þýtt einhverja fjölgun á
sumarhúsum.“
Að sögn Sveins verður farið
mjög hóflega í alla uppbyggingu.
„Þetta er spurning um ákveðið rétt-
lætismál gagnvart landeigendum
sem hafa farið sér hægt í gegnum
tíðina,“ segir Sveinn. „Þeir vilja
kannski ekki sitja hjá núna þegar
verið er að fara í gegnum aðal-
skipulagið.“ ■
Bækurnar Hlutabréf og eignastýring og Verðmætasta eignin eru vandaðar útskriftargjafir. Í þeim
er fjallað á aðgengilegan hátt um fjármál og leiðir til að spara, byggja upp eignir og tryggja fjárhagslegt
öryggi. Bækurnar eru tilvaldar fyrir hugsandi fólk og fást í útibúum Íslandsbanka og í Þjónustuveri
Íslandsbanka í síma 440 4000. Einnig eru þær til sölu í helstu bókabúðum.
Verðmæt útskriftargjöf
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Íslenskur þorskur auglýstur í Evrópu:
Ísland fyrirmynd í
sjálfbærri nýtingu
LÍNUVEIÐAR Verður í framtíðinni
nauðsynlegt að sökkva sér ofan í
bækur til að finna þorsk? Þetta er
fyrirsögn í heilsíðuauglýsingu næst-
stærstu verslunarkeðju heims, Car-
refour. Auglýsingin birtist í Sviss,
Frakklandi, Belgíu og á Spáni föstu-
daginn 4. júní.
Neðar í auglýsingunni stendur að
Carrefour, sem rekur 6.067 verslan-
ir í 29 löndum, vilji taka virkan þátt
í ábyrgum fiskveiðum. Til þess að
koma í veg fyrir ofveiði á einni upp-
áhaldsfisktegund heims, þorski, hafi
Carrefour sett í framkvæmd áætlun
sem miði að því að vernda stofninn.
Það selji íslenskan þorsk frá frá fyr-
irtækjum sem stundi sjálfbæra
veiðiaðferð, línuveiðar. Landið sé til
fyrirmyndar.
Árni M. Mathiesen sjávarútvegs-
ráðherra segir auglýsinguna gríðar-
lega mikla viðurkenningu á störfum
og stefnu sjávarútvegsins. „Verið er
að undirstrika það að fólk kunni að
meta ábyrga fiskveiðistjórnun.
Þetta ætti að vera okkur hvatning til
að halda áfram á þessum grunni.“ ■
SUMARBÚSTAÐUR VIÐ
ÞINGVALLAVATN
Nýtt aðalskipulag gæti haft í för með sér
nokkra fjölgun sumarhúsa í Þingvallasveit.
AUGLÝSING CARREFOUR
„Samstarfsaðilar Carrefour á Íslandi stunda
einungis línuveiðar. Ísland er fyrirmyndar-
land í sjálfbærri nýtingu sjávarafurða. Sú
tækni sýnir lífríkinu virðingu og kemur í
veg fyrir ofveiði á takmörkuðum auðlind-
um. Við skulum ganga saman til framtíðar
og styðja sjálfbærar veiðar,“ segir í laus-
legri þýðingu Sigríðar Snævarr, sendiherra
í París, á auglýsingunni.