Fréttablaðið - 22.06.2004, Side 1
▲
SÍÐA 23
● 41 árs í dag
Guðrún Gunnarsdóttir:
▲
SÍÐA 20
Pantaði gott veður
á afmælisdaginn
Michael Schumacher:
▲
SÍÐA 30
Millilenti á
Íslandi
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
JARÐVEGSEYÐING Í KÍNA Fenli
Zheng, rannsóknarprófessor við Jarðvegs-
verndarstofnunina í Yangling í Kína, flytur
hádegisfyrirlestur í Norræna húsinu í
Reykjavík í dag klukkan 12.00. Zheng mun
fjalla um landhnignun og varnir gegn jarð-
vegseyðingu í Kína. Landvernd og Land-
græðslan boða til þessa fyrirlestrar.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
BJART Í DAG víða á landinu. Vindur
verður hægur og frekar hlýtt. Sjá bls. 6
22. júní 2004 – 168. tölublað – 4. árgangur
ÓLÍKLEGT AÐ
LOÐNUSTOFNINN
SÉ HRUNINN Fiski-
fræðingur hjá Hafró tel-
ur ekki tímabært að
fullyrða um afdrif
loðnustofnsins. Hlýnun
sjávar þurfi ekki að hafa hrun stofnsins í för
með sér. Sjá síðu 4
HÚSNÆÐISVERÐ Í JAFNVÆGI Fast-
eignir hafa hækkað mikið bæði hérlendis og
í nágrannalöndunum. Hættan á snöggri leið-
réttingu er mikil, til að mynda í Bretlandi. Hér
hefur hækkunin unnið upp slaka sem hafði
myndast og fylgt launaþróun. Verð fasteigna
er því í jafnvægi við laun. Sjá síðu 2
FÓLKIÐ SEM TALAR Á LAUGAR-
DAG Baráttan fyrir forsetakosningarnar
næstu helgi er komin á skrið eftir hæga
byrjun. Fólk naut veðurblíðunnar á Austur-
velli í gær þegar blaðamann Fréttablaðsins
bar að garði. Margir voru tilbúnir að segja
skoðun sína á forsetakosningunum og
sýndist sitt hverjum. Sjá síðu 6
LÆKKAR EKKI AÐ RÁÐI Fram-
kvæmdastjóri Bændasamtakanna segir ekki
hægt að treysta því að matvælaverð lækki að
ráði þó að opnað verði fyrir innflutning er-
lendra afurða. Það muni aldrei lækka jafn
mikið og tölur OECD gefi til kynna. Sjá síðu 8
Sa
m
kv
æ
m
t f
jö
lm
i›l
ak
ön
nu
n
Ga
llu
ps
m
ar
s
'0
4
48%65%
Kvikmyndir 26
Tónlist 26
Leikhús 26
Myndlist 26
Íþróttir 22
Sjónvarp 28
LAUN Kvæntir menn í Bandaríkjun-
um eru með um ellefu prósent
hærri laun en þeir sem ekki eru
kvæntir, að því er fram kemur í
Sjónarhóli, tímariti KPMG. Muninn
er ekki hægt að skýra með mis-
munandi menntun eða starfsaldri
þar sem tekið var tillit til slíkra
þátta.
Laun fráskildra manna eru
lægri en kvæntra og hærri en laun
þeirra manna sem aldrei hafa verið
kvæntir. Nokkrar tilgátur hafa ver-
ið lagðar fram um af hverju þessi
launamunur stafar en þó er enn
ekki vitað um skýringu þess að
hjónaband er mönnum til fjár.
Í greininni er ýmsu velt upp
eins og hvort hjónaband geri karl-
menn að betri mönnum og hvort
framleiðni manna aukist við það að
kvænast. Þá er ein tilgátan sú að at-
vinnuveitendur og væntanlegar
eiginkonur sækist eftir svipuðum
eiginleikum í fari manna; vilji að
þeir séu áreiðanlegir, viðbragðs-
góðir, ráðagóðir og jafnvel viðráð-
anlegir. ■
Gerir hjónaband karlmenn að betri mönnum?
Kvæntir menn með hærri laun
ÍRAK Fjórir bandarískir landgöngu-
liðar voru felldir úr launsátri í
borginni Ramadi vestur af Bagdad
í Írak í gær og einn hermaður féll
í sprengjuárás í höfuðborginni.
Mannræningjar sem halda suður-
kóreskum gísl föngnum hótuðu í
gær að hálshöggva hann en stjórn-
völd í Seúl, sem ætla að senda
mörg þúsund hermenn til Íraks til
viðbótar herafla sínum þar, lýstu
því yfir í gær að þau mundu halda
fast við fyrirætlun sína, þrátt
fyrir gíslatökuna.
Tveir íraskir hermenn úr ný-
stofnuðum öryggissveitum féllu í
sprengjuárás í Bagdad og fimm
Írakar, starfsmenn verktakafyrir-
tækis, féllu í sprengjuárás
skammt frá borginni Mosul í
norðurhluta landsins.
Atburðir gærdagsins þykja
sýna að ástand öryggismála í Írak
sé enn mjög bágborið, rúmri viku
áður en ný stjórn í Írak tekur við
stjórn landsins af Bandaríkja-
mönnum og Bretum. Ástandið í
Súnní-þríhyrningnum svokallaða
er sérstaklega slæmt en Ramadi,
þar sem bandarísku fótgöngulið-
arnir voru drepnir, er á mörkum
hans. Þá er talið að flest þau
mannrán sem framin hafa verið í
Írak síðustu tvo mánuði hafi átt
sér stað í Súnní-þríhyrningnum.
Þann 30. júní næstkomandi
tekur nýkjörin ríkisstjórn Íraks
formlega við völdum í landinu. ■
Á TÆPASTA VAÐI Hestamannafélagið Sleipnir á Selfossi hélt í sína árlegu vorferð í blíðviðrinu í gær. Riðið var um Rangárþing og á
móts við bæinn Bakka var farið á vaði yfir Þverá. Davíð Guðmundsson reið á vaðið með þrjá hesta en á miðri leið fipaðist einn hestanna
með þeim afleiðingum að Davíð féll af baki í ískalt vatnið. Mátti litlu muna að illa færi en allt fór þó vel að lokum.
Upplausnarástand í
aðdraganda valdaskipta
Fjórir bandarískir hermenn féllu í launsátursárás í Írak í gær. Skæruliðar hótuðu að hálshöggva
suður-kóreskan gísl ef stjórnvöld í Suður-Kóreu hættu ekki við fyrirhugaða liðsflutninga til Írak.
Upplausnarástand í öryggismálum varpar skugga á komandi valdaskipti.
● kappaksturshetjur á ferð og flugi
Sverrir Bergmann:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Ekki gaman í
fótbolta
● heilsa
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
EM í fótbolta:
● englendingar áfram
Góðviðrisdagur:
Hlýjast í gær
VEÐUR Hitinn náði 20,3 gráðum í
Reykjavík í gær, sem er mesti hiti
í borginni í tvö ár.
Þann 11. júní árið 2002 fór hit-
inn í 22,4 gráð-
ur sem var
hitamet í
R e y k j a v í k ,
segir Haraldur
Eiríksson, veð-
urfræðingur
hjá Veðurstofu
Íslands.
Léttskýjað
var á öllu land-
inu í gær. Hit-
inn var hæstur
á suðvestur-
hluta landsins,
um 19-21 gráða. Á Akureyri náði
hitinn 14 stigum klukkan 18.
Búist er við svipuðu veðri á
landinu í dag. Þó verður örlítið
kaldara, segir Haraldur.
Sjá myndir úr sumarblíðunni
á síðu 14.
Hækkanir í Kauphöllinni:
Vísitalan yfir
2.900 stig
MARKAÐUR Úrvalsvísitala aðall-
ista Kauphallar Íslands endaði
yfir 2.900 stigum í gær, í tæp-
lega 2.926 stigum. Vísitalan fór
tímabundið yfir áfangann á
föstudag en endaði undir 2.900
stigum.
Ekkert lát er á hækkunum á
hlutabréfamarkaði. Síðustu tólf
mánuði hefur vísitalan ríflega
tvöfaldast. Hækkunin hefur ver-
ið leidd af hækkun Actavis á
fyrri hluta tímabilsins, en KB
banki hefur leitt hækkanir að
undanförnu. Bankarnir og Acta-
vis bera höfuð og herðar yfir
önnur fyrirtæki í Kauphöllinni
og vega mjög þungt í útreikningi
vísitölunnar. ■
AÐ KVÆNAST TIL FJÁR
Kvæntir eru með hærri laun en ókvæntir.
Rooney með
tvö mörk
DREPNIR ÚR LAUNSÁTRI
Bandarísku hermennirnir sem drepnir voru í
Ramadi í gær voru ekki í skotheldum vest-
um, eins og skylt er á ófriðarsvæðum í Írak.
▲
SÍÐA 23