Fréttablaðið - 28.06.2004, Side 8
8 28. júní 2004 MÁNUDAGUR
LONDON, AP Iyad Allawi, forsætis-
ráðherra bráðabirgðastjórnar
Íraks, segir vel hugsanlegt að
Saddam Hussein verði framseld-
ur í hendur hinnar nýju stjórnar
landsins innan tveggja vikna.
Hann segir að nú sé verið að
setja saman lagareglur, bæði af
hálfu hernámsliðsins og nýju
stjórnarinnar, um framsal Sadd-
ams og annarra íraskra fanga sem
handteknir hafa verið frá því inn-
rásin var gerð.
Nýja stjórnin á að taka við af
hernámsstjórninni á morgun, 30.
júní. Meiningin er að íraskur sér-
dómstóll, sem stofnaður var fyrir
hálfu ári, haldi réttarhöld yfir
Saddam. ■
Flestir telja að
Siv ætti að víkja
Þriðjungur telur að Siv ætti að víkja sem ráðherra þegar Framsóknar-
flokkurinn missir eitt ráðherraembætti í haust. Formaður flokksins og
verðandi forsætisráðherra næstoftast nefndur.
ENN BAK VIÐ LÁS OG SLÁ
Einn ríkasti maður jarðarinnar, rússneski
olíubaróninn Mikhail Khodorkovsky, stend-
ur hljóður meðan réttað er í máli hans fyr-
ir rússneskum dómstól. Hefur lögfræðing-
um hans verið gefinn frestur til 12. júlí til
málsvarnar.
Sauðfjárbændur:
Lambakjötið
selst vel
LANDBÚNAÐUR Aðalfundur Lands-
samtaka sauðfjárbænda var settur
að Eiðum í gær og lýkur síðdegis í
dag. Meðal umræðuefna á fundinum
er sauðfjársamningurinn sem gildir
til ársins 2007 og talsverð óánægja
er með innan stéttarinnar. Sauðfjár-
bændur hafa í hyggju að koma á fót
nefnd sem ætlað er að undirbúa
komandi samningaviðræður við rík-
ið og vilja þeir hafa tímann fyrir sig
til verksins. Að öðru leyti ríkir nokk-
ur bjartsýni meðal fundarmanna
þar sem söluaukning á lambakjöti
nam 1,1% á síðasta ári þrátt fyrir
erfiðar markaðsaðstæður og 7%
aukning hefur orðið á sölunni það
sem af er þessu ári. 42 fulltrúar sitja
fundinn ásamt stjórn samtakanna. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
SVONA ERUM VIÐ
TILGANGUR NETNOTKUNAR
EINSTAKLINGA
– hefur þú séð DV í dag?
Geðveiki
Litháinn býr í
Borgarnesi
Siv Friðleifsdóttir:
Skiljanleg
afstaða
„Það er svo sem ekki við öðru að bú-
ast, umhverfisráðuneytið er að fær-
ast til Sjálfstæðisflokksins og ég
ímynda mér að sumir telji að ákveð-
ið sé að ég víkji,“ segir Siv Friðleifs-
dóttir umhverfisráðherra um niður-
stöðurnar. „Formaður flokksins hef-
ur hins vegar sagt að um þetta verði
tekin sérstök ákvörðun og allir ráð-
herrarnir séu því jafn öruggir eða
jafn óöruggir.“ Siv ítrekar vilja sinn
til að vera áfram ráðherra en segist
trúa að formaðurinn leggi það til
sem hann telji sterkast fyrir flokk-
inn. Hún segir enn óljóst hvenær
greint verði frá hver framsóknar-
ráðherranna víki úr stjórninni og
neitar því að óþægilegt sé að búa við
óvissuna. „Ég hef búið við þetta í
meira en ár og er orðin vön þessu.“■
Margir vilja Halldór út:
Flokkurinn
er í lægð
„Þetta kemur nokkuð á óvart en lík-
legasta skýringin er sjálfsagt sú að
Framsóknarflokkurinn er í lægð og
það bitnar á formanninum,“ segir
Svanur Kristjánsson, prófessor í
stjórnmálafræði, um þá niðurstöðu
könnunarinnar að Halldór Ásgríms-
son sé annar á listanum yfir þá ráð-
herra Framsóknarflokksins sem
kjósendur vilja að hverfi úr ríkis-
stjórn í haust. „Viðbúið er að þetta
leiði til þess að flokkurinn, með for-
manninn í fararbroddi, marki sér
meiri sérstöðu í ríkisstjórninni
heldur en hann hefur gert.“ ■
Karlar Konur Alls
Tölvupóstur 89 88 91
Upplýsingar um
vörur og þjónustu 87 90 85
Dagblöð/tímarit 74 77 71
Upplýsingar frá
opinberum aðilum 68 73 63
Bankaviðskipti 65 68 63
Ferðatengd notkun 62 63 62
Heimild: Hagstofa Íslands
ÍRASKIR LÖGREGLUMENN MARSERA
Íraskir lögreglumenn búa sig undir að taka við veigameira hlutverki í löggæslu landsins
eftir morgundaginn.
M
YN
D
A
P
Bráðabirgðastjórn Íraks um Saddam Hussein:
Framseldur innan tveggja vikna
RÁÐHERRAR Um þriðjungur þeirra
sem afstöðu tók í könnun Frétta-
blaðsins taldi að Siv Friðleifsdótt-
ir umhverfisráðherra ætti að
víkja úr embætti þegar Fram-
sóknarflokkurinn missir einn ráð-
herrastól 15. september næst-
komandi. Um fimmtungur var á
þeirri skoðun að Halldór Ásgríms-
son, verðandi forsætisráðherra og
formaður Framsóknarflokksins,
ætti að víkja.
Samkvæmt samkomulagi
stjórnarflokkanna færist um-
hverfisráðuneyti yfir til Sjálf-
stæðisflokksins þegar Davíð
Oddsson lætur af embætti forsæt-
isráðherra í haust og Halldór
Ásgrímsson tekur við. Fækkar þá
ráðherrum Framsóknarflokksins
um einn en Sigríður Anna Þórðar-
dóttir verður sjöundi ráðherra
Sjálfstæðisflokksins og tekur við
umhverfisráðuneytinu.
Hlutfall óákveðinna og þeirra
sem ekki vildu svara var um 45
prósent og þeir sem afstöðu tóku
voru ekki endilega stuðnings-
menn Framsóknarflokksins.
Ekki var marktækur munur í
könnuninni á afstöðu karla og
kvenna að öðru leyti en því að
talsvert fleiri karlar en konur
vildu að Halldór Ásgrímsson
vikji sæti. Þá voru heldur fleiri
á landsbyggðinni en í þéttbýli sem
nefndu Siv Friðleifsdóttur.
Næstur á eftir Siv og Halldóri
kom Guðni Ágústsson landbúnað-
arráðherra og varaformaður
Framsóknarflokksins, en rúmlega
16 prósent vildu að hann missti
sæti í ríkisstjórninni. Þar á eftir
kom Jón Kristjánsson heilbrigðis-
ráðherra með rúm 11 prósent en
ekki var marktækur munur á þeim
Árna Magnússyni og Valgerði
Sverrisdóttur sem komu best út.
Könnunin var gerð síðastliðinn
þriðjudag. Hringt var í 800 manns
og spurt: „Hvaða ráðherra Fram-
sóknarflokksins finnst þér að eigi
að víkja úr embætti þegar flokk-
urinn missir eitt ráðherraembætti
15. september?“ og voru svar-
möguleikarnir núverandi ráðherr-
ar flokksins. ■
ÞJÓÐMINJASAFN Þjóðminjasafn Ís-
lands og Bakkavör Group hafa und-
irritað samstarfssamning til
þriggja ára. Samningurinn felur í
sér að Bakkavör Group sér safninu
fyrir öflugri margmiðlun og tölvu-
veri auk annarra þátta sem snúa að
nýjustu straumum í sýningar-
tækni. Í tilkynningu frá Þjóðminja-
safninu er samningurinn sagður
styrkja safnið í þeirri viðleitni að
gera safnið nútímalegt og fagnar
Þjóðminjasafnið því að fá Bakka-
vör í hóp sinna bakhjarla. ■
RÍKISSTJÓRNIN
Framsóknarflokkurinn missir eitt
ráðherraembætti 15. september.
Ekki liggur fyrir hver af ráðherrum
flokksins verður látinn víkja.
SIV
FRIÐLEIFSD.
HALLDÓR
ÁSGRÍMSSON
GUÐNI
ÁGÚSTSSON
JÓN
KRISTJÁNSSON
ÁRNI
MAGNÚSSON
VALGERÐUR
SVERRISD.
34,3%
21,3%
16,2%
11,2%
8,9% 8,0%
EINHVER ÞARF AÐ VÍKJA
Einn ráðherra Framsóknarflokksins missir
stól sinn í haust. Samkvæmt skoðana-
könnun Fréttablaðsins telja flestir að Siv
Friðleifsdóttir ætti að víkja.
ÁREKSTUR Smávægilegur árekst-
ur varð í umdæmi lögreglunnar á
Akureyri aðfaranótt laugardags.
Tvær bifreiðar skullu saman en
engan sakaði.
UNDIRRITUN SAMNINGA
Jóna Anna Pétursdóttir framkvæmdastjóri kynningarmála Bakkavör Group og Margrét
Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður.
Bakkavör Group:
Styrkir Þjóðminjasafnið
VINNUSLYS Í BAKARÍI Sauma
þurfti tólf spor í olnbogabót á
konu sem fest hafði hönd í
pökkunarvél í bakaríi í Skeif-
unni í Reykjavík um klukkan
sjö í gærmorgun. Hún var flutt
með sjúkrabíl á Landspítalann.
INNBROTSÞJÓFUR HANDTEKINN
Öryggisvörður kom að inn-
brotsþjófi inni í tölvufyrirtæki
í Skipholti um klukkan hálf-
fjögur í fyrrinótt. Maðurinn
sagðist einungis hafa átt leið
framhjá fyrirtækinu og séð að
hurðin væri opin og því ákveð-
ið að litast um. Engu að síður
var lögregla kölluð til og mað-
urinn var handtekinn. Hann
gisti fangageymslur en var
sleppt að yfirheyrslum loknum
í gærmorgun.
BRAUST INN Í BÍL Brotist var
inn í bíl við Skúlagötu í gær-
morgun og þaðan stolið mynda-
vél. Þjófurinn braut rúðu til að
komast inn í bifreiðina.
M
YN
D
A
P
UTANRÍKISRÁÐHERRAR
INDLANDS OG PAKISTANS
Hittust til að ræða Kasmírhérað, heitasta
deilumál landanna.
Pakistan og Indland:
Ræða saman
um Kasmír
INDLAND, AP Kjarnorkuveldin tvö,
Indland og Pakistan, hófu í gær við-
ræður um Kasmírhérað, sem hefur
verið bitbein þeirra áratugum sam-
an. Utanríkisráðherrar landanna,
þeir Riaz Khokhar frá Pakistan og
Shashank frá Indlandi, ætla að halda
áfram viðræðum sínum, og eru þetta
umfangsmestu viðræður landanna
um málið í sex ár.
„Það voru engin vandræði. Sam-
ræðurnar streymdu áfram,“ sagði
talsmaður pakistanska utanríkisráð-
herrans. ■
M
YN
D
A
P