Fréttablaðið - 15.07.2004, Blaðsíða 45

Fréttablaðið - 15.07.2004, Blaðsíða 45
K O R T E R . I S FIMMTUDAGUR 15. júlí 2004 Benedikt Reynisson, konungur undirdjúpanna og umsjónar- maður Karate, X-ið 977 „Ég hef verið að hlusta mikið á disk með íslenska tónlistarmanninum Dirty Mood Booster. Diskurinn hans heitir Narcoleptic Dreams og hefur lítið sem ekk- ert fyrir honum farið. Umslagið er útsaum- aður gallabuxnavasi og þ.a.l. er upplagið ekki mjög stórt. Aðdáendur Elliot Smith, Sebadoh, Red House Painters o.fl. ættu að fíla þetta mjög vel. Ég hlakka til að heyra meira efni frá þessum ein- læga og hæfileikaríka tónlistarmanni.“ Gísli Galdur Þorgeirsson, tónlistarmaður og plötusnúður „Tékkið á plötunni Madvillainy með Madvillian. Hér eru á ferðinni þeir Madlib og Mf Doom. Madlib hefur verið ótrúlega frjór í því að taka upp, rappa, pródúsera og gefa út síðastliðin ár. Það sama má segja um rapparann Mf Doom en ég held eimmitt að árið 2003 hafi hann gefið út 6 eða 7 plötur. Þessi plata er bráðskemmtileg; skrítin samsuða af öðruvísi rappi sem að Mf Doom gerir frábærlega og tónlist Mad- libs. Þú veist aldrei hvað kemur næst.“ Ólafur Páll Gunnarsson, Rás 2 „Fyrir Rokklandið hef ég verið að hlusta á síðustu David Bowie plötu, Reality og nýjustu plötu Jesse Malin. Svo hef ég verið að hlusta mikið á nýju Wilco plöt- una, sem heitir A Ghost a Born og hún er alveg frá- bær. Það er vegna þess að hún hljómar eins og Neil Young. Alveg í þessari Ameríkana hefð. Á nýjasta Uncut diskinn, sem fylgdi með blaðinu, og þar er fullt af góðu stöffi eins og American Music Club, Papa M, Sunk- ill Moon, Giant Sands og fleira.“ Róbert Aron Magnússon, doktor í rappfræðum „Þessa dagana hef ég verið að hlusta á gamla dótið með NAS, bæði Illmatic, sem er að margra mati ein af betri rappplötum sem gefin hefur verið út og It Was Written sem einnig er geðveik. Þetta tímabil, 1993-1996, var al- gjör snilld og er að mínu mati eitt skemmtilegasta tímabilið í rappsögunni. Mæli eindreg- ið með báðum þessum diskum.“ | Á HVAÐ ERU GRÚSKARARNIR AÐ HLUSTA? | The Flavors: Go Your Own The Flavors - Go Your Own Way „Go Your Own Way er áreynslulaus poppplata með sína kosti en hefur því miður ekkert nýtt fram að færa. Bragðdauft er kannski besta orðið yfir hana. Kaldhæðnislegt en engu að síður staðreynd.“ FB !!!: Louden Up Now „Það er skylda að hlusta á þessa plötu á fullum styrk og þó þið þurfið að leggja töluvert á ykkur til þess að finna þessa plötu, látið þá verða af því. Louden Up Now verður án efa ein af plötum árs- ins, !!! er bylting.“ BÖS Velvet Revolver: Contraband „Velvet Revolver kemur bara nokkuð á óvart, átti allt eins von á að þetta væri aum tilraun gamalla rokkara til að ná sér í smá aur enda hefur útkom- an af svoleiðis ævintýrum verið allt önnur en góð hingað til. Contraband er hins vegar ágætis frum- raun frá Velvet Revolver sem er vonandi komin til að vera.“ SJ Fear Factory: Archetype „Archetype er ekkert meistaraverk, lumar bara á sprettum hér og þar, en er mér þó meira að skapi en fyrri verk hljómsveitarinnar.“ SJ The Cure: The Cure „Þetta er reiða hliðin á The Cure sem hefur fengið að fljóta með í nokkrum lögum áður, en sem hef- ur aldrei verið splæst á heila plötu. Þetta er hug- rökk plata og tilraunir Ross Robinson ganga upp. Besta og heilsteyptasta plata The Cure frá því að Disintigration kom út árið 1989.“ BÖS Janet Jackson: Damita Jo „Óumdeilanlega hefur einlægnin verið víðs fjarri þegar þessi plata, Damita Jo, var unnin. Maður sér fljótlega í gegnum þunnan undirtón plötunnar og sígild en dauðþreytt formúlan að selja Janet sem kynlífstákn. Janet Jackson er fær í flest, sungið get- ur hún, en hér gerir hún allrækilega í buxurnar.“ SJ Sonic Youth: Sonic Nurse „Á meðan Sonic Youth heldur áfram að hjakka í sama farinu þá verður ást mín á sveitinni að vera eins og til fjarskyldra frænda hjá mér í stað elsken- da, þannig er það nú bara. Fín plata, lítið meira en það. Tími til þess að senda sveitina á rokkspítalann.“ BÖS Method Man: Tical 0 - The Prequel „Þrátt fyrir nokkrar hlustanir er ekkert lag sem kveikir af einhverju viti í mér, undirspilið er þunnt og maður gerir ekki öflugt hip-hop á rappinu einu saman, grunnurinn verður að vera góður. Og þegar hvort tveggja bregst þá er fokið í flest skjól.“ SJ Keane: Hopes and Fears „Góður flutningur, góður söngur, góður hljómur og ágætar útsetningar. Það er samt ekkert sem fangar athyglina. Ullin er bara eins og á hinum kindunum, augnaráðið jafn tómt og laust við alla dulspeki. Að sama skapi er hún gjörsamlega laus við tilgerð og óþarfa töffarastæla.“ BÖS Beastie Boys: To the 5 Boroughs „Þetta er því blygðunarlaust afturhvarf í gamla starfshætti. Þessi gamli hljómur er yfir allri plöt- unni, þannig að fyrir vikið virkar hún góð sem heild. Þetta er þó frekar erfið plata þegar allt kem- ur til alls, og krefjandi.“ BÖS Shai Hulud: That Within Blood Ill-Tempered „Oft hafa aðrar hljómsveitir þreytt sams konar stíl og útkoman oftar en ekki orðið frekar grautkennd. Shai Hulud nær hins vegar að bjóða upp á breiða flóru í lagasmíðum sínum án þess að þreyta hlust- andann, eitthvað sem er greinilega ekki á allra færi. Tónlist Shai Hulud er ævintýri líkust.“ SJ Graham Coxon: Happiness in Magazines „Ég held barasta að við þurfum ekki að hafa neinar áhyggjur af gleraugnagláminum honum Graham. Að minnsta kosti gefa lokaorð plötunnar það í skyn að hann hafi það bara fínt. Þar syngur hann af einlægni við fallegt og einfalt píanóstef og gítarspil; „Life, I Love You“. Fallegur endir á góðri plötu.“ BÖS Slipknot: Vol. 3 (The Sublim- inal Verses) „Það sem stendur upp úr er tilraunamennska Slip- knot á Vol. 3, eitthvað sem sveitin hefur ekki leyft sér áður. Slipknot nær ekki að fullkomna stíl sinn á þessari plötu en Vol. 3 lofar þó góðu fyrir það sem koma skal.“ SJ Mike Pollock: World Citizen „Pollock hittir mun betur í mark með kassagítarinn í hendi. Þar eru bestu lög Great Spirit, Lost & Found og Dreaming. Ekki má heldur gleyma enskri útgáfu hans á gamla Megasarlaginu Lóa Lóa þar sem saxófónninn fær að njóta sín á skemmtilegan hátt. Rolling Stones-lagið No Expectations kemur einnig vel út í flutningi Pollocks. Plötunni lýkur síð- an með kórsöng á trúarlegu nótunum, sem er fínn endahnykkur á ágætis plötu.“ FB Sufjan Stevens: Seven Swans „Ef það er heitt úti, logn, fuglarnir að syngja og ekkert annað hægt að gera en að liggja í sólinni og vera latur... þá er þetta hárrétt plata til þess að henda í gin geislaspilarans. Svo sá ég tvo svani elskast á tjörninni um daginn... þó það hafi bara tekið þá um 20 sekúndur að njóta hvor annars, þá var það falleg sjón. Við hæfi hefði verið að hafa þessa tónlist í eyrunum þá.“ BÖS Birgir Örn Steinarsson Freyr Bjarnason Smári Jósepsson [ SMS ] UM NÝJUSTU PLÖTURNAR Umsjón: BIRGIR ÖRN STEINARSSON. biggi@frettabladid.is PLATA VIKUNNAR Önnur breiðskífa !!! er ein mesta stuðplata ársins. Louden Up Now heitir hún og er skyldueign samkvæmt gagnrýnendum Fréttablaðsins. PLATA VIKUNNAR Smáauglýsingasíminn er 550 5000 auglysingar@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.