Fréttablaðið - 20.07.2004, Síða 1
● skoraði sigurmarkið gegn fylki
Landsbankadeild karla:
▲
SÍÐA 17
Emil sendi FH
á toppinn
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
ÞRIÐJUDAGUR
VIÐEYJARSIGLING Í kvöld verður
farið í siglingu umhverfis Viðey í stað
venjubundinnar gönguferðar um eyna.
Lagt verður upp frá Sundahöfn kl. 19.30.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÞURRT Í BORGINNI Dálítil súld eða
rigning við norður- og austurströndina.
Bjart með köflum sunnan og vestan til og
hlýjast þar. Sjá síðu 6.
20. júlí 2004 – 196. tölublað – 4. árgangur
FAÐIRINN VITNI Þrír kafarar á vegum
lögreglunnar leituðu að Sri Rahmawati í sjón-
um við bryggjuna á Geldinganesi í gær án
árangurs. Faðir mannsins, sem situr í gæslu-
varðhaldi er meðal vitna í málinu. Sjá síðu 2
ÁSAKANIR UM „GERVIKAUP“ For-
maður Sjómannasambandsins segir Samherja
fara í kringum lög með „gervikaupum“ á
togara. Forstjóri Samherja vísar gagnrýni á
bug og segir hana ómálefnalega. Sjávar-
útvegsráðuneyti sér ekkert athugavert við
kaupin. Sjá síðu 6
ÓSTÖÐVANDI ÞRÓUN Nærsvæði borg-
arinnar njóta góðs af þróun þar sem fyrirtæki
færa starfsemi sína í auknum mæli út í jaðar
borgarbyggðarinnar. Íbúðaverð rýkur upp í
nágrenni Reykjavíkur og fólk sækir vinnu sína
um lengri veg en áður. Sjá síðu 8
MÓTMÆLTU STÓRVIRKJUNUM Um
þrír tugir manna mótmæltu náttúruspjöllum
vegna virkjanaframkvæmda við stjórnstöð
Landsvirkjunar á degi hálendisins. Fólkið er
ósátt við stjórnvöld. Sjá síðu 10
36%50%
Kvikmyndir 18
Tónlist 18
Leikhús 18
Myndlist 18
Íþróttir 16
Sjónvarp 21
María Heba Þorkelsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Fann sig í
dansinum
● heilsa
Róbert Stefánsson:
▲
SÍÐA 18
Einn fárra sem stunda
kraftdrekaíþróttina
● ólýsanleg tilfinning
María Þórðardóttir:
▲
SÍÐA 22
Verður með
í Harlem
● djasssöngleikur byggður á lögum dukes ellington
VIÐSKIPTI Bykofjölskyldan hefur
bæst í hluthafahóp Íslandsbanka.
Mikil viðskipti voru með bréf í ban-
kanum á föstudag þegar viðskipti
voru með bréf í bankanum fyrir 1,4
milljarða króna á genginu níu.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins mun eignarhaldsfélag í
eigu Steinunnar Jónsdóttur, dóttur
Jóns Helga Guðmundssonar, eig-
anda Byko, vera kaupandi að bréf-
um í bankanum. Jón Helgi er sjálfur
í bankaráði KB banka í krafti ríf-
lega fjögurra prósenta eignarhlutar
í bankanum.
Fjölskyldan hefur lengi haft
sterka stöðu í íslensku viðskiptalífi
og hefur sú staða eflst að undan-
förnu með kaupum á matvöru-
keðjunni Kaupási og ráðandi hlut í
Flugleiðum.
Samkvæmt heimildum Frétta-
blaðsins annast Íslandsbanki kaup í
sjálfum sér fyrir eignahaldsfélag
Steinunnar fyrir tæp fimm prósent í
bankanum sem gengið er frá með
framvirkum samningi. Miðað við
gengið í viðskiptum á föstudag er
um hátt í fimm milljarða fjár-
festingu að ræða.
Auk eignar í Kaupási, Flugleið-
um og KB banka hefur fjölskyldan
náð góðum árangri í öðrum fjár-
festingum. Félag í eigu Jóns Helga
átti hlut í Straumi fjárfestingar-
banka sem seldur var skömmu fyrir
stórfelldar breytingar á eignarhaldi
Eimskipafélagsins og tengdra
félaga. Með kaupunum í Íslands-
banka styrkist staða fjölskyldunnar
enn frekar. Samkvæmt heimildum
er ekki um skammtímafjárfestingu
að ræða.
Stærstu eigendur bankans hafa
verið með eignarhluti sína í fram-
virkum samningum við fjármála-
fyrirtæki. Orri Vigfússon hefur
gengið frá sínum samningum og á
félag sem hann veitir forystu nú 5,4
prósent í bankanum. Miðað við nú-
verandi gengi er markaðsverð Ís-
landsbanka um 90 milljarðar króna
og hafa stærstu eigendur hagnast á
framvirkum samningum í bankan-
um sem gerðir voru undir nú-
verandi gengi.
haflidi@frettabladid.is
HALLDÓR ÁSGRÍMSSON AÐ LOKNUM FUNDI MEÐ DAVÍÐ ODDSSYNI Í STJÓRNARRÁÐINU Í GÆR
Gjörbreytt fjölmiðlafrumvarp verður kynnt á ríkisstjórnarfundi í dag. Engin takmörk verða á eignarhaldi fjölmiðla og fjölmiðlalögin sem
forseti synjaði staðfestingar verða felld niður. Hluti af niðurstöðu málsins er að stofnuð verði nefnd um breytingu á stjórnarskrá.
Veldu
ódýrt
bensín
Bykofjölskyldan í Íslandsbanka
Bykofjölskyldan bætist í hóp stærstu eigenda Íslandsbanka. Félag í eigu Steinunn-
ar Jónsdóttur hefur tryggt sér hlut fyrir á fimmta milljarð króna í bankanum.
Engin fjölmiðlalög
Öll takmarkandi ákvæði er varða fjölmiðla hafa verið tekin út úr breyttu frumvarpi er kynnt verður á
ríkisstjórnarfundi í dag. Einungis verða ákvæði um brottfall fyrri laga og breytingu á skipun útvarps-
réttarnefndar. Samkomulag Davíðs og Halldórs kveður á um að völd forseta verði einungis formleg.
FJÖLMIÐLALÖG Engin lög um tak-
mörkun á eignarhaldi fjölmiðla
verða sett að þessu sinni. Davíð
Oddsson forsætisráðherra mun
kynna ríkisstjórninni í dag gjör-
breytt fjölmiðlafrumvarp.
Í því hafa öll takmarkandi ákvæði
er varða fjölmiðlafyrirtæki verið tek-
in út. Eftir standa tvö ákvæði. Annars
vegar að fjölmiðlalögin sem forseti
synjaði staðfestingar 2. júní falli
brott og hins vegar breytingu á skip-
an útvarpsréttarnefndar, samkvæmt
heimildum innan þingflokks Sjálf-
stæðisflokksins. Framsóknarmenn
fengust ekki til að tjá sig um málið.
Hluti af niðurstöðum viðræðna
Halldórs og Davíðs er að stofnuð
verði nefnd um málefni stjórnar-
skrárinnar. Stefnt verður að því að
festa í stjórnarskrá þá framkvæmda-
hefð sem verið hefur á Íslandi frá
stofnun lýðveldisins, það er að segja
að forseti framkvæmi einungis vald
ráðherra. Forsetinn yrði eftir því
valdalaus og málskotsréttur hans til
þjóðarinnar, eins og honum var beitt
2. júní, væntanlega afnuminn.
Fjölmiðlanefndin mun taka til
starfa að nýju í haust og eins og fram
hefur komið mun stjórnarandstaðan
taka þátt í starfi hennar.
Búist er við því að stjórnar-
flokkarnir haldi þingflokksfundi
strax að loknum ríkisstjórnarfundi
sem haldinn verður kl. 9.30, þar sem
hið breytta frumvarp verður kynnt.
Fundur allsherjarnefndar hefur
verið boðaður klukkan 14.
„Við erum algjörlega sammála
um þá niðurstöðu sem liggur fyrir,“
sagði Davíð að loknum fundi hans og
Halldórs í gær. Af sama tilefni tók
Halldór fyrir það að Framsóknar-
flokkurinn hefði sett fram úrslita-
kosti í málinu.
sda@frettabladid.is
Sjá nánar á síðu 4.
Japanar ásakaðir:
Kaupa sér
stuðning
ÍTALÍA, AP Hvalfriðunarsinnar saka
Japana um að nota þróunaraðstoð til
að kaupa fátækar þjóðir til stuðnings
við málstað hvalveiðiþjóða í Alþjóða
hvalveiðiráðinu. Japanar svöruðu
þeim ásökunum með því að þjóðir
sem þeir ættu samstarf við skildu
málstað sinn oft betur en aðrar þjóð-
ir. Þeim þjóðum sem styðja hvalveið-
ar hefur fjölgað úr níu í 27 á þremur
árum.
Japanar hótuðu því við upphaf
ársþings hvalveiðiráðsins að þeir
kynnu að segja sig úr ráðinu ef banni
við hvalveiðum í atvinnuskyni yrði
ekki hnekkt á þinginu en tóku fram
að úrsögn úr ráðinu yrði neyðar-
ráðstöfun. ■
HVALVEIÐUM MÓTMÆLT
Grænfriðungar efndu til mótmæla við
fundarstað.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA