Fréttablaðið - 20.07.2004, Page 2
2 20. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Varnarliðið svarar ekki ásökunum verkalýðshreyfingarinnar:
Boltinn hjá utanríkisráðuneytinu
KJARAMÁL Hvorki talsmenn né yf-
irmenn Varnarliðsins á Keflavík-
urflugvelli vilja tjá sig um um-
mæli Kristjáns Gunnarssonar,
formanns Verkalýðs- og sjó-
mannafélags Keflavíkur og ná-
grennis, um meint kjarasamn-
ingsbrot gagnvart íslenskum
starfsmönnum sínum. Félagið
hefur sent utanríkisráðuneytinu
stefnu eftir stefnu vegna málsins
en Kristján segir að starfsmenn
varnarliðsins hafi ekki fengið lög-
bundnar kjarabætur til jafns við
aðra landsmenn síðustu tvö árin.
Sérstök kaupskrárnefnd utan-
ríkisráðuneytisins ákveður ráðn-
ingarkjör og vinnuskilyrði starfs-
manna varnarliðsins og er því
ekki um það að ræða að semja
beint við varnarliðið eins og
verkalýðshreyfingin hefur óskað
eftir. Kaupskrárnefnd kemur
saman þegar þess gerist þörf og
niðurstöður hennar eru endan-
legar. Fyrir kemur að yfirmenn
varnarliðsins eru ósammála
nefndinni og það virðist hafa kom-
ið niður á hundruðum starfs-
manna á Keflavíkurflugvelli sem
nú leita réttar síns. ■
Faðir mannsins
meðal vitna
Þrír kafarar á vegum lögreglunnar í Reykjavík leituðu að Sri Rahmawati í sjónum
við bryggjuna á Geldinganesi í gær án árangurs. Faðir mannsins sem situr í gæslu-
varðhaldi er meðal vitna í málinu, en feðgarnir hafa búið saman í Stórholtinu.
MANNSHVARF Þrír kafarar, tveir frá
sérsveit ríkislögreglustjóra og
einn frá tæknideild lögreglunnar í
Reykjavík, leit-
uðu að Sri Rahma-
wati í sjónum við
bryggjuna á Geld-
inganesi í gærdag
án árangurs. Sri
hefur verið sakn-
að á þriðju viku
og er barnsfaðir
hennar og fyrrum
sambýlismaður
grunaður um að
eiga þátt í hvarfi
hennar.
Bílför eftir
jeppa sem hugs-
anlega voru talin
geta verið eftir jeppa mannsins
urðu til þess að leitað var við
bryggjuna á Geldinganesi. Að
sögn kafaranna var lélegt skyggni
fyrir framan bryggjuna vegna
leðju á botninum eða aðeins um
einn metri. Fjær bryggjunni var
um tveggja til þriggja metra
skyggni. Nálægt bryggjunni er
frekar lítill straumur en aftur
meiri þegar farið er lengra út á
flóann. Kafararnir voru í sjónum í
tvo klukkutíma og köfuðu á um
400 metra breiðum kafla með-
fram nesinu og tíu til tólf metra út
á sjóinn. Í sjónum fannst poki með
fuglshræjum sem virtust hafa
verið í sjónum í einhvern tíma án
þess að pokinn flyttist frá
bryggjunni.
Einn af þeim sem hefur verið
yfirheyrður vegna málsins er
aldraður faðir mannsins, sem
setið hefur í gæsluvarðhaldi í nær
tvær vikur. Faðir mannsins var
heima aðfaranótt sunnudagsins 4.
júlí en þá um morguninn spurðist
síðast til konunnar. Feðgarnir
hafa búið saman í íbúðinni við
Stórholt.
Niðurstöður DNA-rannsókna
eru væntanlegar frá Noregi í
þessari viku. Upphaflega var gert
ráð fyrir að niðurstöðurnar lægju
fyrir í síðustu viku. En þar sem
senda þurfti nýtt samanburðar-
sýni til Noregs til að bera saman
við lífsýnin sem fundust á vett-
vangi liggja niðurstöður ekki enn
fyrir. hrs@frettabladid.is
Sjómenn ríkisins:
Hafa ekki
samið
KJARAMÁL Ekki náðist samkomulag
milli Sjómannafélags Reykjavíkur
vegna háseta Hafrannsókna-
stofnunar og varðskipa og fjármála-
ráðuneytisins hjá ríkissáttasemjara
í gær.
Kjaraviðræðurnar stranda á sjó-
mannaafslætti sem sjómanna-
félagið vill tryggja í kjarasamningi
sem gera á til ársins 2008. Nýr fund-
ur og sá þriðji um deiluna hefur
verið boðaður á miðvikudag. Sam-
kvæmt Jónasi Garðarssyni, for-
manni sjómannafélagsins, óttast
sjómenn ríkisins að sjómanna-
afsláttur sem nemi allt að 273 þús-
undum á ári verði aflagður. ■
Hryðjuverkavarnir:
Leyndarmál
á glámbekk
LONDON, AP Leyniskýrslur um hugsan-
legar hryðjuverkaárásir á Heathrow-
flugvöll fyrir utan London fundust í
götukantinum nokkur hundruð metra
frá flugvellinum. Í skýrslunni eru
þeir staðir tilgreindir sem þykja
henta best til að skjóta flugskeytum
að flugvélum.
Breska dagblaðið The Sun greindi
frá þessu í gærmorgun. Þar sagði að
ökumaður mótorhjóls hefði fundið
skjölin, sem voru tekin saman af lög-
reglu til að sporna gegn hryðju-
verkum, og komið þeim til blaðsins.
Lögreglan hóf þegar í stað rann-
sókn á því hvernig skjölin hefðu
getað týnst og fundist á opinberum
vettvangi. ■
DÆMDUR FYRIR BARNSMORÐ
Tyrkneskur karlmaður hefur verið
dæmdur í 36 ára fangelsi fyrir að
myrða tveggja ára pilt. Pilturinn lá
sofandi í kerru þegar skotbardagi
braust út í kringum hann. Eitt skot-
anna hæfði piltinn sem varð honum
að bana. Maðurinn viðurkenndi að
hafa orðið valdur að andláti piltsins
en hafnaði því að um morð væri að
ræða.
FLÓRÍDA ROLF KÆRIR Þýskur eftir-
launaþegi hefur höfðað mál á hend-
ur stjórnvöldum. Hann vill að þau
taki aftur til við að greiða húsa-
leiguna fyrir sig í Miami í Banda-
ríkjunum. Þangað flutti hann eftir
að hann komst á eftirlaun. Mál hans
vakti mikla athygli og hneykslun og
lauk með því að stjórnvöld breyttu
lögum til að þurfa ekki að greiða
húsaleigu mannsins.
DEILT UM ERFÐABREYTT MATVÆLI
Landbúnaðarráðherrar Evrópusam-
bandsins náðu ekki samkomulagi
um að leyfa sölu erfðabreyttra
matvæla til almennings. Matvælin
sem deilt er um eru framleidd af
Monsanto-fyrirtækinu bandaríska
og hafa þegar fengið heilbrigðis-
vottorð matvælaeftirlits ESB.
HVALVEIÐAR Ekki er víst að neitt
verði úr hvalveiðum í atvinnu-
skyni þrátt fyrir að um þann
möguleika sé rætt á fundi Alþjóða-
hvalveiðiráðsins í Sorrento á Ítal-
íu, segir Stefán Ásmundsson, for-
maður sendinefndar Íslands.
Hendrik Fischer, formaður Al-
þjóðahvalveiðiráðsins, lagði fram
skjal um mikilvægi atvinnuhval-
veiða fyrir trúverðugleika ráðsins
með sérstökum skilyrðum. „Það
eru aðeins þreifingar og afstaða
ríkja sem mun koma betur í ljós [í
dag],“ segir Stefán. Þá verði stóru
mál fundarins rædd.
Stefán segir ekki þurfa að
ákveða hversu marga hvali megi
veiða. Það liggi fyrir með reikni-
formúlu sem vísindaráðið hafi
lagt til fyrir meira en áratug síð-
an. Ræða þurfi hvernig hægt sé að
tryggja að hvalstofnar verði ekki
ofveiddir.
Stefán segir umræðuna hafa
staðið í hvalveiðiráðinu á annan
áratug. „Það sem hefur breyst
núna er að það hefur raunveruleg
vinna farið fram þar sem að mál-
um hefur þokað áfram og Gretti-
staki hefur verið lyft í að þoka
málunum áfram.“ ■
■ ÍRAK
■ EVRÓPA
,,Faðir
mannsins
var heima
aðfaranótt
sunnudags-
ins 4. júlí
en þá um
morguninn
spurðist
síðast til
konunnar.
„Það slekkur þær að minnsta kosti
ekki. “
Dr. Björn Karlsson er brunamálastjóri. Ný skýrsla
sýnir að eignartjón af völdum bruna var í fyrra
mun minna en meðaltal síðustu áratuga.
SPURNING DAGSINS
Björn, kveikir þetta vonir?
JIMMY CARTER
Berst gegn aftökum unglinga.
Ungir glæpamenn:
Barist gegn
aftökum
WASHINGTON, AP Fyrrum leiðtogar
Bandaríkjanna og Sovétríkjanna
heitinna, Læknasamtök Banda-
ríkjanna og 48 þjóðir eru meðal
þeirra sem hafa beitt sér fyrir því
að Hæstiréttur Bandaríkjanna
bindi endi á aftökur unglinga.
Hæstiréttur hefur tekið fyrir
mál frá Missouri þar sem hæsti-
réttur ríkisins úrskurðaði aftökur
unglinga ólöglegar. Rétturinn tók
þar með undir rök þeirra sem
vilja ekki láta lífláta glæpamenn
fyrir glæpi sem þeir fremja fyrir
átján ára aldur.
Jimmy Carter, fyrrum Banda-
ríkjaforseti, og Mikhail Gorba-
tsjov, síðasti leiðtogi Sovétríkj-
anna, hafa þrýst á Hæstarétt sem
og Evrópusambandið, Mexíkó og
Kanada auk fleiri ríkja. ■
Aðalmál alþjóðahvalveiðiráðsins rædd í dag:
Óvíst um hvalveiðar í atvinnuskyni
ATHAFNASVÆÐI VARNARLIÐSINS
Íslenskir starfsmenn eiga inni hundruð
þúsunda í vangoldin laun en
kjarasamningum hefur ekki
verið fylgt síðustu tvö árin.
FILIPPSEYINGAR KVEÐJA Síðustu
filippseysku hermennirnir yfir-
gáfu Írak í gær. Með þessu von-
ast stjórnvöld á Filippseyjum til
að bjarga lífi filippseysks manns
sem er gísl uppreisnarmanna.
BRETAR BORGA BÆTUR Bresk
stjórnvöld hafa greitt út bætur
vegna 120 atvika þar sem breskir
hermenn í Írak þykja hafa farið
rangt að eða gert alvarleg mis-
tök. Bætur hafa meðal annars
verið greiddar vegna láts
óbreyttra borgara eftir lok
bardaga, meiðsla og eignatjóns.
EGYPSKUM GÍSL SLEPPT Íraskir
uppreisnarmenn slepptu egypsk-
um gísl sínum úr haldi að sögn
sjónvarpsstöðvarinnar Al-Jaze-
era. Maðurinn var tekinn í gísl-
ingu fyrir nær tveimur vikum.
Honum var sleppt eftir að fyrir-
tækið sem hann vinnur hjá hætti
starfsemi í Írak.
HVALUR
Ræða á hvort rétt sé að veiða hvali í
atvinnuskyni til að auka trúverðugleika Al-
þjóðahvalveiðiráðsins á fundi þess í dag.
LEITAÐ Í SJÓNUM
Einn kafari frá tæknideild lögreglunnar í Reykjavík og tveir frá ríkislögreglustjóra leituðu að Sri Rahmawati í sjónum við bryggjuna
á Geldinganesi í gær. Stærstu regndropar sögunnar:
Risastórir
regndropar
REGNDROPAR Bandarískir vísinda-
menn hafa borið kennsl á stærstu
regndropa sögunnar samkvæmt BBC.
Talið er að regndroparnir hafi náð allt
að einum sentímetra að stærð. Regn-
droparnir féllu til jarðar yfir Brasilíu
og Marshalleyjum, sem er lítill eyja-
klasi í norðurhluta Kyrrahafsins.
Vísindamennirnir telja að miklir eld-
ar séu orsök risaregndropanna í
Brasilíu. „Þetta eru stærstu regn-
dropar sem ég hef séð á þrjátíu ára
ferli mínum,“ segir Peter Hobbes,
einn vísindamannanna. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/V
AL
LI