Fréttablaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 8
8 20. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR
Ógnaröld í Súdan:
Kerfis-
bundnar
nauðganir
KENYA, AP Súdanskir arabar nauðga
konum og börnum til að hrekja
afríska Súdana út úr vesturhluta
Darfur-héraðs í Súdan, að sögn
mannréttindasamtaka í landinu.
Tugir þúsunda hafa látið lífið í
átökum í Darfur-héraði og rúmlega
milljón manns hafa þurft að yfir-
gefa heimili sín, rúmlega sex millj-
ónir manna búa í héraðinu. Sumir
saka ríkisstjórn Súdans um að halda
hlífiskildi yfir vígamönnunum en
ríkisstjórnin vísar því á bug.
Samkvæmt Amnesty Inter-
national hafa vígamennirnir nauðg-
að konum og börnum allt niður í átta
ára að aldri, kerfisbundið til að
niðurlægja fjölskyldur þeirra og
ættbálka.
Oft er konum nauðgað í viðurvist
fjölskyldu sinnar og fyrir almenn-
ingi. Ódæðisverk á borð við þessi
jafnast á við verstu stríðsglæpi og
glæpi gegn mannkyni að sögn
mannréttindasamtaka.
Ríkisstjórn Súdans vinnur að
samningum um vopnahlé við súd-
anska uppreisnarmenn, skærur
þeirra við hirðingja í Darfur-héraði
hafa varað í hálft annað ár. ■
Hjálpartæki ástarlífsins
í Texas:
Hætt við
málsókn
TEXAS, AP Máli saksóknara gegn
konu í Bandaríkjunum hefur ver-
ið vísað frá dómi. Konan var kærð
fyrir að brjóta lög um siðgæði en
hún stóð fyrir sölu á kynlífsvarn-
ingi með því að skipuleggja fundi
í heimahúsum þar sem slíkar
vörur voru kynntar og seldar.
Samkvæmt lögum í Texas er
bannað að selja ýmis hjálpar-
tæki ástarlífsins. Í undirbúningi
er málshöfðun á hendur fylkinu
þar sem látið verði reyna á það
hvort lög gegn sölu kynlífstækja
standist stjórnarskrá Bandaríkj-
ríkjanna. ■
■ LÖGREGLUFRÉTTIR
SVONA ERUM VIÐ
STÖÐUGILDI HJÁ LEIKSKÓLUM
REYKJAVÍKUR ÁRIÐ 2002
Efling - stéttarfélag 831
Félag íslenskra leikskólakennara 408
Stéttarfélag sálfræðinga á Íslandi 4
Þroskaþjálfafélag Íslands 22
Starfsmannafélag Reykjavíkurborgar 193
Samtals 1.458
Heimild: Árskýrsla Leikskóla Reykjavíkur 2002
Framkvæmdastjóri NATO:
Varar
Serba við
BELGRAD, AP Framkvæmdastjóri
Atlantshafsbandalagsins, Jaap de
Hoop Scheffer, segir yfirvöld í
Serbíu/Svartfjallalandi verða að
sýna vilja í verki og handtaka og
framselja eftirlýsta stríðsglæpa-
menn vilji þau koma á traustum og
góðum tengslum við NATO.
Mjög er þrýst á Serba að hand-
taka og framselja Ratko Mladic,
sem grunaður er um stríðsglæpi
vegna aðildar sinnar að fjölda-
morðunum í þorpinu Srebrenica í
Bosníu árið 1995. Þar voru átta
þúsund fullorðnir múslimar og
drengir teknir af lífi. Fimmtán aðr-
ir Serbar eru eftirlýstir af Samein-
uðu þjóðunum fyrir stríðsglæpi. ■
BÍLVELTA Á SUÐURLANDSVEGI Mað-
ur slapp með minniháttar áverka
þegar bifreið hans valt á Suður-
landsvegi skömmu fyrir hádegi í
gær en bifreiðin er talin ónýt. Að
sögn lögreglunnar á Selfossi eru
tildrög slyssins ekki ljós að öðru
leyti en að maðurinn er talinn hafa
misst stjórn á bílnum.
FÍKNIEFNI Á EYRARBAKKA Lögregl-
an á Selfossi fann lítilsháttar magn
af kannabisefnum á manni á Eyrar-
bakka. Ekkert fannst við nánari
rannsókn. Maðurinn var færður til
yfirheyrslu og sagði efnið ætlað til
eigin neyslu. Málið telst upplýst.
FLÓTTAMENN Í DARFUR
Sameinuðu þjóðirnir hyggja að að minnsta kosti 30 þúsund manns hafi látið lífið
í skærum í héraðinu.
Þróun sem verður
ekki stöðvuð
Nærsvæði borgarinnar njóta góðs af þróun þar sem fyrirtæki færa starfsemi sína í auknum mæli
út í jaðar borgarbyggðarinnar. Íbúðaverð rýkur upp í nágrenni Reykjavíkur
og fólk sækir vinnu sína um lengri veg en áður.
Þróun í þá átt að höfuðborgin og
nærliggjandi byggðarlög séu að
verða eitt atvinnusvæði hafa stuðlað
að aukinni uppbyggingu og hækkun
húsnæðisverðs í jaðri svæðisins.
Merki þessa má glögglega sjá á Sel-
fossi og í Hveragerði, í Grindavík og
Reykjanesbæ og einnig á Akranesi.
Til samanburðar má geta þess að
þróun íbúðaverðs í Vestmannaeyjum
er allt önnur, en þær eru tæpast hluti
af atvinnu- og þjónustusvæði hinna
sveitarfélaganna.
Mesta hækkunin í Grindavík
Síðustu ár hefur íbúðarverð hækk-
að mest á Suðurnesjum. Í Grindavík
er meðalverð fermetra í fjölbýlishúsi
nú tæpum 67 prósentum hærra en
fyrir fimm árum síðan. Á sama tíma
hefur íbúðarverð í Vestmannaeyjum
staðið nokkurn veginn í stað síðustu
ár, ef undan er skilin hækkun sem átti
sér stað milli áranna 1999 og 2000.
Gísli Gíslason, bæjarstjóri Akra-
nesi, segir að ákveðin höfðuborgar-
lögmál séu farin að segja til sín á þrí-
hyrningi sem markist af Borgar-
byggð, Selfossi og Reykjanesbæ og
telur ljóst að sveitarfélög á þessu
svæði eigi eftir að taka upp nánara
samstarf í framtíðinni. Hann bendir
á að norðan Hvalfjarðar hafi þegar
verið stigin ákveðin skref í þessu
efni, til dæmis með aðkomu að Orku-
veitu Reykjavíkur og svo hafnar-
samlagi Reykjavíkur, Akraness,
Grundartanga og Borgarness, sem
verði að veruleika í byrjun næsta
árs. „Svo eru önnur mál sem eru til
skoðunar. Þar má nefna almennings-
samgöngur og slökkviliðsmál,“ segir
hann.
Viðmið fólks að breytast
Gísli vísaði til ráðstefnu sem fram
fór nýlega á vegum Aflvaka, atvinnu-
þróunarfélags Reykjavíkur, þar sem
fram kom að hugsa þyrfti hluti í at-
vinnuþróun á þessu svæði í stærra
samhengi en gert hafi verið áður. „Og
menn eru tilbúnir í það verkefni,“
sagði hann og benti jafnframt á að
spáð hafi verið að fyrirtæki eigi eftir
að leita í auknum mæli svæða fyrir
rekstur sinn utan hins harða kjarna
höfuðborgarinnar. „Þetta held ég að
sé að sýna sig að sé rétt mat og spurn-
ingin er bara hvernig sveitarfélögin
sem liggja að höfuðborgarsvæðinu
bregðast við, bæði í skipulagsmálum
og uppbyggingu á aðstöðu. En þróun-
in er farin af stað og verður ekki
stöðvuð,“ segir Gísli og telur að nær-
svæði borgarinnar eigi eftir að njóta
góðs af. „Þetta er orðið eitt atvinnu-
svæði og viðmið að breytast um hvað
fólki finnst langt og stutt í vinnu. Fólk
er líka greinilega í auknum mæli far-
ið að velja sér búsetu út frá mismun-
andi forsendum. Auðvitað verður
alltaf meginþunginn í höfuðborginni,
en fólk hefur líka möguleika á að vel-
ja sér búsetu rétt fyrir utan borgina,
hvort sem það er á Akranesi eða Sel-
fossi og njóta þá þeirra kosta sem
smærri samfélög hafa upp á að
bjóða.“
Samgöngur skipta máli
Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, for-
maður Sambands íslenskra sveitar-
félaga, segir þá þróun að sveitarfél-
ögin átta, á og í grennd við höfuðborg-
arsvæðið, séu smám saman að verða
eitt þjónustu- og atvinnusvæði sem
endurspeglist meðal annars í hækkun
íbúðaverðs. „Frá miðju þess er svona
klukkutímaakstur í allar áttir og al-
veg ljóst að bættar samgöngur, til
dæmis göngin undir Hvalfjörð og
bættar vegsamgöngur bæði til Suður-
nesja og Suðurlands, hafa haft þarna
verulega þýðingu. Við sjáum fyrir
okkur að þessi þróun haldi áfram,“
sagði hann og vísaði líka til hafnar-
samlagsins sem tekur gildi um ára-
mót og til þess hvernig Orkuveita
Reykjavíkur hefur teygt anga sína
bæði um Vestur- og Suðurland. „Öll
þessi þróun gerir að verkum að þessi
svæði eru að tengjast saman,“ segir
Vilhjálmur og bætir við að ein af-
leiðingin sé aukið samstarf þessara
sveitarfélaga. „Og það samstarf á enn
eftir að aukast.“
Gæðum misskipt
Vilhjálmur tekur fram að margir
ólíkir þættir geti haft áhrif á fast-
eignaverð, en atvinnumál séu vissu-
lega einn þeirra þátta. „Þannig má
líka segja að mikil uppbygging stór-
iðju hafi átt sinn þátt, rétt eins og má
nú glögglega sjá á Miðausturlandi,“
segir hann. Einn þeirra þátta sem
haft getur áhrif til hækkunar íbúðar-
verðs segir Vilhjálmur að sé lóðar-
skortur og telur slík áhrif hafa kom-
ið fram í Reykjavík. „En því er ekki
að heilsa í þessum sveitarfélögum,
hvorki á Akranesi, Selfossi, né á
Reykjanesi. Þar er enginn lóðaskort-
ur,“ segir Vilhjálmur. Hann sagði að
þótt þróunin væri jákvæð víða væri
ástæða til að hafa nokkrar áhyggjur
af öðrum stöðum á landinu þar sem
þróun atvinnumála og búsetu-
skilyrða hefur ekki verið jafn já-
kvæð. „Það er alveg ljóst að þau mál
þarf að skoða mjög alvarlega enda
staðan víða mjög erfið. Munurinn á
einstaka byggðasvæðum í landinu er
töluvert mikill.“ ■
ÞRÓUN FERMETRAVERÐS ÍBÚÐARHÚSNÆÐIS Á NOKKRUM
STÖÐUM Í NÁGRENNI REYKJAVÍKUR SL. 5 ÁR *
Hækkun
2000 2001 2002 2003 2004 frá 2000
Akranes 71.596 77.236 81.343 87.154 90.167 25,9%
Sveitarfélagið Árborg 81.429 88.634 100.698 100.044 106.247 30,5%
Hveragerði** 72.013 73.113 89.020 96.928 94.110 30,7%
Sveitarfélagið Ölfus 64.952 74.209 76.772 85.205 82.115 26,4%
Vestmannaeyjar 51.495 59.033 51.210 49.653 56.639 10,0%
Reykjanesbær 68.033 78.784 89.717 95.916 103.493 52,1%
Grindavík 53.646 76.746 63.050 70.154 89.407 66,7%
Mosfellsbær 106.586 114.588 117.062 130.603 142.343 33,5%
Reykjavík 110.857 119.507 123.014 130.332 139.252 25,6%
* Nafnverð, meðaltal krónuverðs á fermetra samkvæmt tölum Fasteignamats ríkisins.
**Verð á íbúðarhúsnæði í sérbýli.
MUNUR Á FERMETRAVERÐI Í
BÆJARFÉLÖGUM MIÐAÐ VIÐ
HÖFUÐBORGINA *
Mosfellsbær 102,2%
Reykjavík 100,0%
Árborg 76,3%
Reykjanesbær 74,3%
Hveragerði 67,6% **
Akranes 64,7%
Grindavík 64,2 %
Ölfus 59,%
Vestmannaeyjar 40,7%
* Nafnverð, meðaltal krónuverðs á fer-
metra í fjölbýlishúsi það sem af er ári
samkvæmt tölum Fasteignamats ríkisins.
** Fermetraverð í einbýli, ekki fjölbýli.
FJÖLBÝLISHÚS Í BYGGINGU
Íbúðaverð hefur hækkað í sveitarfélögum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins og þykir það
til marks um þá þróun að á suðvesturhorni landsins sé að verða til
eitt þjónustu- og atvinnusvæði.
– hefur þú séð DV í dag?
Einstæð móðir í
sex mánaða
fangelsi fyrir að
stela fötum á barnið
ÓLI KRISTJÁN ÁRMANNSSON,
BLAÐAMAÐUR
FRÉTTASKÝRING
ÞRÓUN ATVINNUMÁLA
OG BÚSETU Í NÁGRENNI
HÖFUÐBORGARINNAR