Fréttablaðið - 20.07.2004, Qupperneq 11
11ÞRIÐJUDAGUR 20. júlí 2004
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
25
35
2
0
7/
20
04
Nýbýlavegi 2 • 200 Kópavogi • S. 570 5300 • www.yamaha.is
Opið
mánudaga til föstudaga kl. 9.00 - 18.00
TÆTUM OG TRYLLUM
Stórútsala á
mótorhjólafatnaði
Mótorhjólagallar
Jakkar, úlpur, hjálmar
og margt fleira
Motocross og Enduro
fatnaður og
fylgihlutir.
götuhjóladekk á
kynningarverði
Allt að 35% afsl.
Allt að 35% afsl.
25% a
fsl.
15 - 35% afsl.
SEATTLE, AP Tölvufyrirtæki og
fyrirtæki sem reka vefsíður hafa
nú áhyggjur af því að nýjasta ör-
yggisuppfærsla Windows-stýri-
kerfisins geri það að verkum að
breyta þurfi fjölmörgum forrit-
um og vefsíðum svo hægt sé að
notast við þau óhindrað.
Öryggisbrestir í Windows-
stýrikerfum hafa valdið truflun á
tölvunotkun víða um heim enda
eru veikleikarnir nýttir til þess að
dreifa tölvuveirum og ormum auk
þess sem hætta er á að viðkvæm-
um og mikilvægum upplýsingum
sé stolið. Sérfræðingar segja já-
kvætt að Microsoft bregðist við
hættunni af hörku en gagnrýna að
stýrikerfið hafi farið á markað
áður en öryggismálin voru leyst.
Meðal breytinga sem ný
öryggisuppfærsla hefur í för með
sér að settur er upp svokallaður
eldveggur á hverri tölvu. Eld-
veggir takmarka samskipti við
netið.
Notendur munu í auknum mæli
geta fylgst með því hvort tölvan
þeirra sækir forrit á netinu
óumbeðið og þurfa oftar að svara
sjálfvirkum tilkynningum um
hvort menn vilji heimila tilteknar
aðgerðir þegar þeir heimsækja
vefsíður. ■
Ný öryggisuppfærsla hjá Microsoft:
Gæti valdið vanda á netinu
KÓNGURINN Í HONG KONG
Knattspyrnukappinn Eric Cantona, sem
gerði garðinn frægan með Manchester
United fyrir nokkrum árum, var staddur í
Hong Kong í gær til að kynna
knattspyrnuskóla félagsins.
ÖRYGGIÐ KOSTAR SITT
Til að tryggja betur öryggi á netinu þarf að
fórna hluta af þeim einfaldleika
sem þar ríkir.
Eftirlit með fram-
kvæmdum:
Tilboðum
hafnað
FJARÐABYGGÐ Tvö tilboð bárust í
eftirlit með framkvæmdum við
álvershöfn að Hrauni í Reyðar-
firði. Annað tilboðanna var frá
Hnit hf. að upphæð rúmlega 33,5
milljónir króna, sem er 146,5 % af
kostnaðaráætlun og hitt frá VSB
ehf. fyrir tæplega 52,8 mlljónir
króna, sem er 226,5 % af kostnað-
aráætlun. Kostnaðaráætlun nam
22,9 milljónum króna.
Hafnarnefnd Fjarðabyggðar
samþykkti í gær að hafna tilboð-
um og leggur til að gengið verði
til samninga við Hnit ehf. á grund-
velli kostnaðaráætlunar. ■