Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.07.2004, Qupperneq 12

Fréttablaðið - 20.07.2004, Qupperneq 12
Þingmenn sem þegja Eitt furðulegasta fyrirbærið á Alþingi Íslendinga eru þingmenn sem þegja – hafa sig lítt eða ekkert í frammi í þinginu og heyrast sjaldan eða aldrei í ræðustól. Von er að menn spyrji til hvers þetta blessaða fólk hafi verið að gefa kost á sér til þingstarfa. Ekki nóg með að það þegi á vinnustað sínum heldur sjást sjaldan eftir það blaðagreinar eða pistlar á netinu. Al- þingismenn njóta ýmissa fríðinda, til dæmis fá þeir ókeypis tölvur og farsíma og þingið greiðir kostnað við að halda úti vefsíðum þeirra sem það kjósa. Ef marka má lista yfir heimasíður alþingismanna á vefsíðu Alþingis (althingi.is) hafa aðeins 25 af 63 þingmönnum sýnt því áhuga að hasla sér völl á netinu. En ekki tekur betra við þegar farið er að smella á tenglana inn á þessar 25 vefsíður. Þá kemur í ljós að þær eru flestar óvirkar og óuppfærðar mánuðum og jafnvel árum saman. Þorri þingmanna, sem heldur úti vefsíðu, virð- ist með öðrum orðum fátt hafa að segja við kjósendur sína sem vafra um á netinu. Má í því sambandi minna á að allur þorri íslenskra heimila er nettengdur. Ögmundur sækir á Björn Lofsverðar undant- ekningar eru frá þess- ari þögn þing- manna á netinu. Fremstur í flokki er, eins og alþjóð veit, Björn Bjarnason ráðherra (bjorn.is), en á undanförnum mánuðum hefur hann fengið harða samkeppni frá Ögmundi Jónassyni, þingflokksformanni Vinstri grænna, sem heldur úti líflegri vef- síðu (ogmundur.is). Aðrir þingmenn sem uppfæra reglulega eru helst Ágúst Ólafur Ágústsson, Björgvin Sigurðsson, Helgi Hjörvar og Jóhanna Sigurðardóttir úr Samfylkingu og Hjálmar Árnason úr Fram- sóknarflokki. Þá sýnir Einar K. Guðfinns- son, þingflokksformaður sjálf- stæðismanna, viðleitni til að halda vefsíðu sinni lifandi. Flestir aðrir alþingismenn haga sér gagnvart netinu eins og þreyttir og syfjaðir emb- ættismenn. Er skömm að því. Hvorugt orðið stjórnviska eða stjórnkænska koma manni í hug þessa dagana. Maður vonar þó sannarlega að formenn ríkis- stjórnarflokkanna hafi haldið að útspilið í fjölmiðlamálinu hafi verið mikil stjórnkænska því ómögulegt er að fá mig til að trúa því að þeir hafi látið sér detta í hug að í þeirri gjörð fælist mikil stjórnviska. Í Stóru tilvitnanabók- inni er haft eftir Trygve Lie, Norðmanninum, sem var fram- kvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna fyrir margt löngu: „Sönn stjórnkænska er að skera nág- ranna sinn á háls án þess að nág- ranninn taki eftir því“. Það var líklega eitthvað svoleiðis bragð sem átti að leika, en það tókst nú ekki sérlega vel. Á fallegu sumri logar allt í umræðum, ekki um fjölmiðlafrumvarpið því það skiptir litlu sem engu máli lengur, heldur um stjórnarskrána og stjórnskipunina. Þó það skipti vissulega miklu máli hvernig lög eru sett um fjölmiðla, því slík lög snerta tjáningarfrelsi og prent- frelsi sem eru grunnréttindi okk- ar, þá er umgengni valdhafanna við stjórnarskrána og stjórnskip- unina ennþá mikilvægari. Á dönsku heitir stjórnarskráin „Grundloven“, sem er miklu betra heiti jafnvel fyrir Íslendinga, því orðið skýrir sig sjálft. Stjórnar- skráin er nefnilega grunnurinn undir öll önnur lög sem sett eru og hún segir fyrir um hvernig valdhafarnir eiga að haga sér við hinar ólíku aðstæður. Hún segir m.a. fyrir um hvernig leysa má forsetann frá embætti áður en kjörtíma hans líkur og hún segir hvað skal gera ef forsetinn synjar lögum samþykkis. Hvorugri þess- ari fyrirsögn eða greinum stjórn- arskrárinnar verður breytt nema með samþykki þjóðarinnar. Í stjórnarskránni stendur að hægt sé að leysa forseta frá störfum „ef það er samþykkt með meiri hluta atkvæða við þjóðaratkvæða- greiðslu, sem til er stofnað að kröfu Alþingis, enda hafi hún hlotið fylgi 3/4 hluta þingmanna“ (11. gr). Valdhafarnir geta ekki ákveðið að það þurfi einungis meiri hluta alþingismanna til að stofna til slíkrar atkvæða- greiðslu, á sama hátt geta þeir ekki ákveðið að halda ekki þjóðar- atkvæðagreiðslu þegar forsetinn hefur synjað lögum samþykkis, því það stendur skýrt í 26. grein þessa mikilvæga plaggs að svo- leiðis eigi það að vera. Hvorug greinin hefur verið notuð í þau sextíu ár sem stjórnarskráin hef- ur verið í gildi, þær eru engu að síður enn í gildi og þær gilda eins og þær voru skrifaðar og ekki öðruvísi. Væntanlega hefði þjóðin fallist á að fjölmiðlafrumvarpið yrði einfaldlega dregið til baka og alvöru vinna hafin við nýja frum- varpssmíð um fjölmiðla í haust, en nú virðast valdhafarnir líka búnir að klúðra því. Það breytir engu þó ungir þingmenn tali um að Ólafur Ragnar reyni valdarán eða ungir fréttamenn spyrji gesti sína hvort þeir séu ekki orðnir „þreyttir“ á þessu máli. Frétta- mennirnir fá einfaldlega þau svör að almenningur sé ekki þreyttur, en hafi aðra skoðun en vald- hafarnir og ég tek eftir því að ungir þingmenn sem ég hef aldrei heyrt tala um Davíð heldur alltaf forsætisráðherrann, skeyta skapi sínu á Ólafi Ragnari. Ég er nú orð- in svo miðaldra að mér finnst alltaf kúnstugt þegar ráðherrarn- ir eru ekki nefndir með nafni, en á sama hátt var ég líka vön því að talað væri um Herra forsetann og Herra Biskupinn. Ég velti því fyrir mér hvernig getur staðið á því að stjórnendur landsins hafa slitnað svo úr sam- bandi við umbjóðendur sína. Það er eins og þeir hvorki sjái né heyri. Framsóknarþingmaður sagðist bara hafa lesið um óróleika í Fram- sóknarflokknum í Fréttablaðinu, það er væntanlega vegna þess að á Morgunblaðinu hefur forgangsröð- un frétta verið venjufremur ná- kvæm upp á síðkastið og konan hefur líklega hvorki aðgang að út- varpi né sjónvarpi. Í öllu vand- ræðaástandi má hins vegar finna einhverja glætu. Það moldviðri sem ríkisstjórnin hefur kallað yfir okkur verður væntanlega og von- andi til þess að stjórnarskráin verður endurskoðuð og þá sérstak- lega litið til þess hvernig fólk getur haft meiri og beinni áhrif á stjórn landsins en það hefur nú. Fólk í ólíkum stjórnmálaflokkum er margt sammála um nauðsyn þess. Þess vegna er mér nánast óskiljan- legt hvernig álitsgjafar sem alltaf hafa talað fyrir frelsi og auknu lýð- ræði skuli óskapast svo sem raun ber vitni yfir því að forsetinn leyfi þjóðinni að kjósa um fjölmiðlalög- in, jafnvel svo að þeir leyfa að snú- ið sé út úr stjórnarskránni. ■ E f ríkisstjórninni tekst að leysa þann hnút sem hún hefur hnýtt áfjölmiðlamálið og endurreisa frið í samfélaginu munu ráðherrarog þingmenn örugglega verða fegnir hvíldinni frá argaþrasi undanfarinna mánaða – eins og reyndar þjóðin öll. Vilji ríkisstjórnarinn- ar til að reka þetta mál áfram í andstöðu við meginþorra almennings, hagsmunahópa, sérfræðinga, eigin flokksmenn – svo til alla fyrir utan þröngan hóp í kringum forystumenn flokkanna – hefur ýft upp svo viða- miklar deilur og harðvítugar að leita þarf langt aftur til að finna saman- burð. Og allir virðast sammála um að tilefni þess máls – lagasetning um eignarhald á fjölmiðlum – sé hvorki svo mikilvægt né tímabært að það réttlæti allan þennan ófrið. Ýmist segja menn að hægt sé að skapa víð- tækari sátt um slíkar reglur en ríkisstjórninni hefur auðnast eða þá að þörfin fyrir þessar reglur sé stórlega ofmetin og geti aldrei orðið annað en hluti af víðtækari endurskoðun á lagaumhverfi fjölmiðla sem tæki þá á samfélagslegu hlutverki þeirra; réttindum og skyldum. En hvað svo sem er hæft í slíku mati þá er ljóst að fjölmiðlamálið hefur spilast illa í höndum ráðherranna og vafið svo upp á sig að nauðsynlegt er að staldra við og endurmeta málið sjálft en ekki síður þau álitamál sem ákvörðun forseta Íslands að synja lögunum frá í vor staðfestingar hefur þyrlað upp. Þau álitamál snúa að stjórnskipan landsins, stjórnarskrá og vald- mörkum forseta, Alþingis og ráðherra. Þetta er stór mál og mikilvæg – og reyndar einnig tímabær – en ekki þess eðlis að þau verði leyst í snöggu áhlaupi og allra síst sem afleiðing eða lausn af einstökum dæg- urmálum. Eins og önnur mannanna verk þarfnast stjórnarskrá reglu- legra viðgerða og endurbóta. En þar sem stjórnarskrá heldur utan um grundvallarreglur samfélagsins er nauðsynlegt að breytingar á henni verði ræddar ítarlega og opið, að sem flestir kostir verði kannaðir og að breið samstaða náist um endanlega niðurstöðu. Þótt fjölmiðlamálið hafi dregið fram þessi álitamál um stjórnar- skrána er hins vegar ekki hægt að mæla með því að stjórnvöld enda- sendi sér í þessa endurskoðun strax. Ef vanda á vinnuna er þvert á móti þörf á að láta einhvern tíma líða og leyfa mestu ófriðaröldunum að lægja. Auk þess hafa ýmiss önnur stór mál og brýn legið óleyst vegna fyrirferðar fjölmiðlamálsins og sem ekki er síður aðkallandi að taka á en endurskoðun stjórnarskrár. Þar á meðal má nefna boðaðar skatta- lækkanir og tilheyrandi tiltekt í ríkisrekstrinum til að mæta þeim. Af- nám virðisaukaskatts á matvæli myndi auka gæði þess að búa á Íslandi en hátt matarverð er mesti ágallinn við okkar ágæta samfélag. Aukið frelsi í innflutningi á landbúnaðarvörum hefði sambærileg áhrif til góðs. Átak til betri rekstrar hjá ríkinu myndi ekki aðeins spara fjármuni heldur bæta þá þjónustu sem ríkið hefur tekið að sér að veita almenn- ingi. Síðan má selja Símann, endurskoða stjórnkerfi lífeyrissjóðanna (sem er það fyrirbrigði sem á endanum mun eignast Ísland), leita lausna á varnarmálum þjóðarinnar, endurmeta og styrkja velferðarkerfi í heilbrigðis-, félags- og menntamálum og marka stefnu í skólamálum. Þegar þetta undarlega sumar er hálfnað gæti fólk talið að Íslending- ar væru illa settir og í mikilli hættu. En staðan er þvert á móti góð og framtíðin á að geta borið með sér óteljandi spennandi tækifæri og ánægjuleg úrlausnarefni. Þetta samfélag okkar er auðugt og þjóðin ekki svo vitlaus og býr yfir vilja, þori og kjarki til stórra verka. Það er kom- inn tími til að efla þessa eiginleika samfélagsins og hvíla þrasgirnina og stríðlyndið. ■ 20. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR MÍN SKOÐUN GUNNAR SMÁRI EGILSSON Það er mikilvægt að ríkisstjórninni auðnist að endur- vekja frið í samfélaginu og hvetja fólk til góðra verka. Önnur mál á dagskrá Hvorki stjórnviska né stjórnkænska ORÐRÉTT Síamstvíburar Davíð Oddsson og Halldór Ás- grímsson eru pólitískir síamství- burar og enginn teljandi munur á þeirri pólitík sem þeir aðhyll- ast. Helst vilja þeir gera upp málin sín á milli án þess að blanda öðrum inn í það mál. Birgir Hermannsson stjórnmála- fræðingur. DV 19. júlí. Lög þýðingarlaus Það er ekki hægt að setja not- hæfar reglur eða lög um sam- skipti eigenda, ritstjóra og al- mennra blaðamanna. [...] Varla getur það samræmst atvinnu- frelsisákvæði stjórnarskrár að mynda verndarhjúp um ritstjóra eða fréttamenn þannig að eig- endur ráði engu og beri enga ábyrgð. Þorkell Sigurlaugsson stjórnarfor- maður útgáfufélags Viðskiptablaðs- ins og fleiri fjölmiðla. Morgunblaðið 19. júlí. Þar fauk síðasta hálmstráið... Frjálsræði í viðskiptalífinu hefur sem betur fer stóraukist en það er rangt að halda að frelsið hafi komið með Davíð Oddssyni. Ágúst Ólafur Ágústsson alþingismað- ur Samfylkingarinnar. Morgunblaðið 19. júlí. Tóbak og sykur Mannslíkaminn er ekki gerður fyrir sykur. Blóðið fer á ringul- reið og boðefnaskipti heilans einnig, Verst er að sykur er fíkniefni. Mikil notkun kallar á enn meiri notkun. Menn verða háðir honum eins og tóbakið. Jónas Kristjánsson. DV 19. júlí. Engin takmörk Maður spyr sig, ætla þeir næst að fara að nota blint fólk og fatl- að fólk eða fólk með ungabörn? Jóhann R. Benediktsson, sýslumaður á Keflavíkurflugvelli, um „burðar- dýr“ með fíkniefni. DV 19. júlí. FRÁ DEGI TIL DAGS ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Gunnar Smári Egilsson FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson RITSTJÓRNARFULLTRÚAR: Steinunn Stefánsdóttir og Jón Kaldal AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 550 5006 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is VEFFANG: visir.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablað- inu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar, 1.100 krónur á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 Í DAG STJÓRNARSKRÁIN VALGERÐUR BJARNADÓTTIR VIÐSKIPTAFRÆÐINGUR Stjórnarskráin er nefnilega grunnurinn undir öll önnur lög sem sett eru og hún segir fyrir um hvernig valdhafarnir eiga að haga sér við hinar ólíku aðstæður. ,, degitildags@frettabladid.is

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.