Fréttablaðið


Fréttablaðið - 20.07.2004, Qupperneq 14

Fréttablaðið - 20.07.2004, Qupperneq 14
Streita er alvarlegt nútímavandamál og því ættu sem flestir að reyna að draga úr henni. Eyddu hálftíma á hverjum degi í það að gera eitthvað sem þér finnst gaman eins og að liggja í baði, lesa, hlusta á tónlist, heimsækja vin eða leika þér við hundinn þinn. Það minnkar streitu og gerir þig glaða/n. • Úr hreinum jurtum og jurtaolíum • Engin tilbúin rotvarnar- eða ilmefni • Lífræn ræktun með “demeter” vottun • Hjálpa þér að öðlast heilbrigðari húð Dr.Hauschka Snyrtivörur Kárastíg 1, 101 Reykjavík Sími 562 4082 Úr hreinum jurtum og jurtaolíum Engin tilbúin rotvarnar- eða ilmefni Lífræn ræktun með „gæða-vottun“ Hjálpa þér að öðlast heilbrigðari húð CAMBRIDGE KÚRINN. Nýtt á Íslandi! Bæði til megrunar og uppbyggingar. Hefur öll vítamín að geyma sem líkaminn þarfnast. Verndar innri líffæri og vöðva Óskum eftir sölufólki um land allt Viltu vita meira ? Heimsæktu þá heimasíðu okkar www.vaxtamotun.is eða í síma 894 1505 Karolína. eða 894 1507 Þóranna „Ég las mikið sem barn og þar á meðal Prins Valíant, ef til vill það hafi haft einhvern áhrif en mér hefur alltaf þótt skylmingar rosalega spennandi,“ segir Þorbjörg Ágústsdóttir, Norðurlanda- og Íslands- meistari kvenna í skylmingum. „Miklar hefðir fylgja þessari íþrótt og til að mynda þarf maður að sýna dómaranum sérstaka kurteisi og við upphaf leiks heilsar maður andstæð- ingi sínum og dómara með virktum,“ segir Þorbjörg, sem hefur stundað skylmingar í ein tíu ár. Ekki hef- ur verið mikið um kvenfólk í þessari íþrótt og er það í fyrsta sinn í sumar sem konur keppa í skylmingum með höggsverði á Ólympíuleikunum og sjálf segist Þorbjörg vilja taka stefnuna þangað eftir fjögur ár. Ásamt því að æfa sjálf skylmingar er hún að þjálfa og kenna hjá Skylmingafélagi Reykjavíkur og stundar fullt nám í jarðeðlisfræði við Háskóla Íslands. Hún hefur meira en nóg fyrir stafni en lífið hjá Þorbjörgu snýst að mestu leyti um skylmingar og fer hún út að meðaltali átta sinnum á ári til að keppa. „Ég bjó í París í eitt ár og þar komst ég í kynni við mjög góðan skylmingaklúbb þar sem ég æfði og keppti. Franski landsliðsþjálfarinn var einn af þjálf- urunum þar og bauð hann mér að æfa og keppa með landsliðinu og gekk mér bara ágætlega. En það er mjög mikilvægt að komast í meira fjölmenni og fá nýja andstæðinga því maður lærir fljótlega inn á andstæðinginn og hann á þig,“ segir Þorbjörg, sem hefur nýverið fengið þjálfarastyrk frá ÍSÍ og með haustinu hyggst hún halda aftur til Frakklands. „Alþjóðaskylmingasambandið styrkir litlar þjóðir eins og Ísland sem eru að reyna sitt besta þannig að góðir styrkir virka eins og gulrót á mann til að halda áfram. Við fórum til að mynda þrjú saman úr lands- liðinu á styrk til Kúbu í æfingabúðir á undan heims- meistaramótinu en það var alveg frábær reynsla. Reyndar var svo heitt þar að það leið næstum yfir mig á æfingum fyrsta daginn. Samt sem áður var það mjög gaman og Kúbverjar eru mjög góðir í skylmingum en þeir komast bara aldrei neitt til að keppa,“ segir Þorbjörg. „Mikill tími fer í alla þjálfun og ég æfi fimm sinn- um í viku, auk þess sem ég hleyp og lyfti lóðum. Þetta er mjög líkamlega erfið íþrótt og fótavinnan er gríðarleg og erfið og mikilvægt að leggja mikið upp úr henni og snöggum handahreyfingum. Þetta snýst allt um mýkt og snerpu og og fjarlægðarskyn og því þarf maður að leggja mikla áherslu á tæknivinnuna,“ segir Þorbjörg sem hefur tekið íþróttina föstum tökum frá upphafi og má segja að hún hafi fengið hana á heilann. „Mig dreymir þetta á nóttunni og stundum vakna ég við það ég lyfti hendinni upp í stöðu, tilbúin að skylmast,“ segir Þorbjörg hlæjandi. kristineva@frettabladid.is Sportið mitt: Skylmast í svefni Þorbjörg Ágústsdóttir fékk skylmingar á heilann eftir að hún prófaði að mæta á æfingu og ætlar sér nú stóra hluti. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA Allir vilja hugsa vel um heilsuna og er fólk sífellt meðvitaðra um hvað það lætur ofan í sig. Margir stökkva til og henda öllu því í sem hefur yfirbragð heilsufæðis en átta sig kannski ekki alltaf á því hvað er nákvæmlega svona hollt við vöruna sem það kaupir. Við höfum lært að lesa kaloríur, fitumagn og kolvetnismagn á upplýsingamiðum utan á pakkning- um matvæla en einnig rekum við augun í miða sem segja okkur að engan viðbættan sykur sé að finna eða að varan innihaldi hitt og þetta sem þykir eftir- sóknarvert eins og til að mynda soja. Ingibjörg Óskarsdóttir, verslunarstjóri Heilsu- hússins í Kringlunni, segir að vinsældir á sojavörum hafa aukist verulega og þá sérstaklega á þeim vörum sem koma í stað venjulegra mjólkurafurða en soja sé hollt fyrir alla og sé það alþekkt að það sé sérstak- lega gott fyrir konur. Soja inniheldur plöntuprótín, nauðsynlegar fitu- sýrur og mikilvæg efni eins og járn og sink sem jafnframt finnst í kjöti og er tofu sem unnið er úr soja kjörið fyrir þá sem vilja minnka við sig eða hætta kjötneyslu þar sem sojaprótín inniheldur litla sem enga fitu. Hægt er að fá kalkbætta sojamjólk og má nota hana alveg í stað kúamjólkur bæði til drykkjar og í mat, bakstur og eftirrétti. Hentar það vel þeim sem hafa greinst með mjólkurofnæmi eða hverjum þeim sem vill draga úr neyslu á mjólkur- afurðum. ■ Sojavörur: Draga úr hættunni á of háu kólesteróli

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.