Fréttablaðið - 20.07.2004, Blaðsíða 20
FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
Feimin stúlka í sumarblíðu.
SJÓNARHORN
Ormur Karlsson er fulltrúi lögfræðings.
Í hverju felst starfið?
Ég skrifa stefnur og innheimtubréf og sinni almennum skrifstofustörfum. Ég
þjónusta lögfræðinginn, fer yfir þrotabú og ýmislegt fleira.
Hvenær vaknarðu á morgnana?
Stundvíslega klukkan korter yfir átta.
Hversu lengi vinnurðu?
Starfinu lýkur klukkan fimm en stundum er það aðeins rúmlega.
Hvað er skemmtilegast við starfið?
Það er mjög fjölbreytt. Það er alltaf eitthvað nýtt sem gerist. Svo er líka gam-
an að kynnast nýjum hliðum á lífinu sjálfu.
En erfiðast?
Gjaldþrot hjá einstaklingum, það er mjög sorglegt.
Hvað gerirðu eftir vinnu?
Ég fer heim og í sturtu.
Hvað gerirðu um kvöldið?
Þá reyni ég að slappa af.
ORMUR KARLSSON ER FULLTRÚI LÖGFRÆÐINGS.
HVUNNDAGURINN
20. júlí 2004 ÞRIÐJUDAGUR8
Blómið:
Hvítmaðra
Hvítmaðra vex í vallendi um landið
allt, í móum, mosaþembum og
grýttum jarðvegi. Hún blómgast í
júní og sveigir sig upp í 5–20 cm
hæð en stundum liggur hún líka
niður við jörð. Blöðin eru í kransi
sjö til átta saman, aflöng og óreglu-
leg. Engar spurnir höfum við af nýt-
ingu hvítmöðru að fornu né nýju.
Heimild: Ágúst H. Bjarnason. Íslensk
flóra. Iðunn 1983.
SVIPMYND
DALVÍK: KAUPSTAÐUR VIÐ SAMNEFNDA VÍK YST VIÐ VESTANVERÐAN EYJAFJÖRÐ
SAGAN: Dalvík fór að byggjast um 1881 og varð löggiltur verslunarstaður
1909. Þar var þriðja stærsta síldarsöltunarhöfn landsins um tíma.
ÍBÚAFJÖLDI: 1500.
FORNMINJAR: 14 kuml fundust þar frá víkingatímanum árið 1908.
ÖRLAGAATBURÐUR: Einn harðasti jarðskjálfti í byggð á Íslandi varð á Dalvík
1934. Talinn hafa verið 6,2 á Richter. Um 200 manns urðu heimilislausir.
MANNVIRKI: Sundlaugin á Dalvík þykir sérlega flott. Hún er teiknuð af
Fanneyju Hauksdóttur arkitekt.