Tíminn - 16.09.1972, Page 3
Laugardagur 16. september 1972
TÍMINN
3
Arásin á Artúnshöfða:
Mönnunum
tveim sleppt
Þjónar og framkvæmdastjóri Veitingahússins í Glæsibæ. f.v. Róbert Kristjánsson, Jón íngi Baldursson,
Páll Stefánsson, ómar Hallsson og Halldór Júllusson. (Tímamynd Gunnar)
Veitingahúsið
í Glæsibæ opið
þrisvar í viku
Veitingahúsið i Glæsibæ hefur
nú fengið vinveitingaleyfi, og
verður það opið fyrir almenning á
föstudögum, laugardögum og
sunnudögum, en á föstudögum og
sunnudögum verða salirnir öðru
hverju leigðir út fyrir einkasam-
kvæmi.
Veitingahúsið i Glæsibæ er á
neðstu hæð verzlunarhússins, og
þar einn aðalsalur, og auk þessi
minni salur. Um fimm hundruð
manns rúmast i báðum sölunum.
Tveir barir eru i veitingahús-
inu. og gott dansgólf.
í veitingahúsinu i Glæsibæ
verður framreiddur matur þau
kvöld. sem opið er.
Haukur Mortens og hljómsveit
leika fyrir dansi, en hljómsveit-
ina skipa 7 menn.
Framkvæmdastjóri er Halldór
Júliusson veitingamaður, en yfir-
þjónn Jón Ingi Baldursson.
Klp-Roykjavik
Monnúinum tveim. sem úr-
skuröaöir voru i 60 daga gæzlu-
varöhald nú i vikunni cftir kæru
konunnar, sein varö fyrir árás-
inni á Ártúnshöföa aöfaranótt s.l.
þriöjudags. hcfur nú veriö sleppt.
Fulltriii Sakadóinara dómtók
máliö i gær og slcppti þeim siöan
kl. 15,00. Að sögn lögreglunnar
veröur rannsókn málsins haldið
áfram, en enn vantar bifreiðar-
stjórann, sem ók konunni upp á
Ártúnshöföa, til aö bera vitni
Eins og áöur hcfur komiö fram i
fréttum, vaknaöi konan inn i
gripaflutningabil á þriöjudags-
inorguninn og var þá mjög illa
leikin, bæöi kjálkabrotin, nefbrot-
in og skorin um allan likama.
Kæröi luin þegar tvo menn fyrir
likamsárás og þeir voru siðan
handteknir og úrskuröaöir i 60
daga gæzluvaröhald. Hafa þeir
alla tiö neitaö aö hafa gcrt kon-
unni nokkuö til miska og hefur
þeim nú vcrið sleppt.
Kunnur banda-
rískur rithöfundur
í heimsókn
Hinn kunni bandariski rithöf-
undur. James Michener, er vænt-
anlegur til islands á laugardag.
Mun hann dvelja hér fram á
þriðjudag og meðal annars koma
á fund með félögum i Rithöfunda-
sambandi islands.
Michener er 65 ára að aldri, en
hóf ekki ritstörf fyrr en fyrir 25
árum, er bók hans Tales of the
South Pacific kom út. Hlaut hann
fyrir hana Pulitzerverðlaunin og
varð heimsfrægur fyrir þessa
einu bók. Á henni var byggður
söngleikur þeirra Rogers og
Hammerstein, sem nefnist South
Pacific og siðar gerð eftir henni
samnefnd kvikmynd. Siðan hafa
komiðút eftir hann tuttugu og ein
bók. Meðal kunnra skáldsagna
eftir hann má nefna Sayonara,
Hawaii, the Source og The
Bridges at Toko Ri.
Nýjasta bók Micheners er The
Drifters, sem fjallar um lif og
háttu æskufólks nútimans, sem
lætur reka undan straumum og
hefur misst tengsl við foreldra
sina og lif þeirra.
James Michener er menntaður
við Swarthmore og Colorado há-
skóla. Að námi loknu gerðist
hann kennari og siðar prófessor,
þar til hann helgaði sig ritstörf-
um.
Kona Micheners, Mari Yoriko,
er af japönskum ættum og er hún
með honum á ferð hans.
Michener kemur hingað frá
Norðurlöndum og fer héðan til
Spánar.
Ökuníðingar á ferð
um Reykjanesbraut
Kasta jafnvel stórslösuðum dýrum
út fyrir vegkantinn
Klp-Reykjavik
Um siðustu helgi var ekið á
tvær kindur á Reykjanesbraut, en
slikt telst nú varla orðið i frásögu
færandi þar. 1 báðum þessum til-
vikum mun samt ökumaðurinn
hafa látið viðkomandi yfirvald
vita, en að sögn lögreglunnar i
Hafnarfirði er það ekki alltaf^sem
það er gert.
Lögreglan segir það oft koma
fyrir, að kindum sé hreinlega
hent út fyrir vegkantinn — og það
stundum stórslösuðum. Þar
veröa svo dýrin að kveljast, þar
til einhver miskunnsamur veg-
farandi kemur að.
Þeir ökumenn, sem hverfa á
brott frá slikum ákeyrslum, eru
sjálfsagt að reyna að losna við að
greiða sektir. Sjálfsábyrgðin á
bifreiðum er 7500 krónur, en kind-
in er metin á um 2000 til 5000
krónur.
Benedikt Kristjánsson hjá
Samvinnutryggingum, sagði okk-
ur, að kindin væri metin sam-
kvæmt ákvörðun Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins. óbornar
ær. svo og geldfé- annað en hrút-
ar, er metið á 5500 krónur hver.
Gemlingar á 3800 krónur, ein-
lembingar á 2710 krónur og tvi-
lembingar á 2230 krónur. Ef
lambið er grátt bætast 200 krónur
við, en ef það er hrútur af ein-
hverju góðu kyni, er sérstakt mat
látið fara fram.
Pétur Sveinbjarnarson hjá Um-
ferðarráöi tjáði Timanum, að
tekin hefði verið saman skýrsla
um öll umferðaróhöpp á Reykja-
nesbraut á árunum 1968 til 1970.
Sú skýrsla sýndi, að á þessum
tima hefði verið ekið á 37 kindur á
þessari leið. Athyglisvert væri, að
á flestar hefði verið ekið i næsta
nágrenni við fjárhús, sem væru
rétt við veginn, þ.e.a.s. við Lóna-
kot og rétt við Tollskýlið.
Þeir, sem ekið hafa um Reykja-
nesbraut að undanförnu, hafa
tekið eftir þvi, að óvenju mikið er
af kindum við veginn. Telja menn
að ástæðan sé sú, að við vegkant
inn hefur veriðsáð og þar er kom-
ið nokkuð mikið og gott gras.
Sækja kindurnar i það og eru si-
fellt að hlaupa yfir götuna til að
finna sér betri beit. Þarna aka
bifreiðir um á miklum hraða og
er það oft snarræði ökumanns að
þakka ,að honum tekst aö koma i
veg fyrir óhöpp þarna, en fjáreig-
endum suður með sjó mun þykja
nóg um samt.
Aukið samstarf leikhúsa
höfuðborgarinnar
- Helgi Skúlason hleypur í skarðið
hjó Þjóðleikhúsinu
Stp-Reykjavik
Á þessu nýbyrjaða leikári eru
sýningar hafnar á tveimur is-
lenzkum leikritum i leikhúsum
höfuðborgarinnar. Þjóðleikhúsið
sýnir Sjálfstætt fólk, en Leikfélag
Reykjavikur Dóminó. Nú vill svo
til, að Jón Laxdal Halldórsson
leikur i báðum þessum leikritum.
Hann leikur aðalhlutverkið i
Dóminó og hlutverk kennarans i
Sjálfstæðu fólki. Það var þvi
greinilegt, að þarna kæmi til
árekstra milli leikhúsanna varð-
andi sýningardaga á þessum leik-
ritum. Það varð þvi að samkomu-
lagi milli leikhúsanna, að Helgi
Skúlason léku hlutverk kennar-
ans i Sjálfstæðu fólki, en Helgi er
sem kunnugt er fastráðinn hjá
Leikfélagi Reykjavikur og leik-
stýrir þar um þessar mundir
Dóminó Jökuls Jakobssonar.
Helgi lék hjá Þjóðleikhúsinu i
ein tiu ár, eftir að hann lauk
námi, en hefur ekki leikið þar s.l.
tólf ár. Helgi er um þessar mund-
ir að æfa i nýju leikriti, sem sýna
á i októberbyrjun, en það er eftir
Ninu Björk Arnadóttur og heitir
Fótatak.
t viðtali sagði Helgi, að hann
hefði fyrst i gærkvöldi, fengið að
vita um, að hann ætti að taka
hlutverkið, og hefur þvi aðeins
tvo daga til að æfa það, en leikrit-
ið verður sýnt i kvöld. Helgi sagði
enn fremur, að hlutverkið væri
stutt, aðeins ein sena, svo engin
vandkvæði væru á þvi, að þetta
tækist. Oft hefðu leikarar haft
skemmri frest til að gripa inn i.
Hins vegar hefur hann aldrei fyrr
hlaupið i skarðið i Þjóðleikhúsinu.
,,Þetta er svolitið skritiö fyrir
mann, að gripa svona inn i, en ég
vona, að þetta sé upphafið að
meira samstarfi leikhúsanna”,
sagði Helgi.
Sýningar þessara tveggja leik-
rita rákust tvisvar á i vor, er
Listahátiðin stóð yfir. Þá var
málið leyst með þvi að sýna
Dóminó klukkan sex og Sjálfstætt
fólk seinna um kvöldið, þannig að
Jón Laxdal gat leikið i báðum
sýningunum. Ástæðu þess, að
sýningarnar rákust á nú, kvað
Helgi þá, að leikhúsin væru ekki
almennilega komin i gang ennþá,
og þetta hefði alveg farið fram
hjá mönnum fyrst , i stað. Þjóð-
leikhúsið byrjar einnig óvenju
snemma. Það hefur yfirleitt ekki
byrjað aö sýna fyrr en i byrjun
októbers, svo i mörg horn hefur
þurft að lita siðustu daga.
Hinn nýji leikhússtjóri i Iðnó,
Vigdis Finnbogadóttir, gagði, að
sér fyndist ósköp eðlilegt að leik-
húsin reyndu að hjálpa hvort
öðru, þegar nauðsyn krefði, og
þau Sveinn Einarsson, þjóðleik-
hússtjóri, væru sammála um, að
auka samstarf leikhúsanna og
skiptast á leikurum, ef svo ber
undir, en það væri samt stundum
erfitt, þar sem 3 til 4 sýningar eru
i gangi allan veturinn á báðum
stöðum. Væri auðveldara við að
fást, ef um heil leikár er að ræða.
Um verkefnaskrá Þjóðleik-
hússins sagði Sveinn, að hann
byggist við, að Sjálfstætt fólk yrði
sýnt fram eftir hausti, en alltaf
var fullt á leikritið I fyrra. Um
næstu mánaðamót verður farið að
sýna Túskildingsóperuna.
Frá Sauðfjárverndinni
Á s.l. vori sendi Sauðfjárvernd-
in frá sér áskorun til landsmanna
um að reyna að koma i veg fyrir
slys á sauðfé, með þvi m.a. að
fjarlægja gaddavirsflækjur og
annað drasl, sem hætta stafaði af,
og einnig að aka varlega á veg-
um. Vonandi hefur þessi áskorun
einhvern árangur borið, þótt ekk-
ert sé hægt að fullyrða um það.
Hitt er aftur á móti vitað, að
kindur hafa farizt af slysum i
sumar, bæði hefur verið ekið á
þær á vegum og þær farizt á ann-
an hátt. T.d. var sagt frá þvi i
dagblaði — og sýnd mynd af þvi —
að hrútur hafði fest hornin i
sláttuvélarhjóli og drepizt þar.
Þá gerðist það nýlega, að bóndi i
Grimsnesinu fann á flækta i girni
eins og laxveiðimenn nota, og
hafði girnið skorið fætur kindar-
innar svo illa, að lóga varð henni.
Siðastnefnda tilfellið ættu lax-
veiðimenn að hafa i huga, og
muna að fleygja ekki girni frá sér
á viðavangi. Og allir landsmenn
eru beðnir að reyna að koma i veg
fyrir slys á sauðfé, eftir þvi sem
unnt er. Meðal slysavalda, sem
lita þarf eftir eru hús og kofar,
bæði i byggð og óbyggðum, þvi
það hefur komið fyrir — þvi mið-
ur — að kindur hafi lokast inni i
slikum húsum og soltið i hel.
Nú hefjast göngur og réttir og
jafnframt sauðfjárslátrun. Sauð-
fjáreigendur, farið vel með féö i
öllu fjárragi, sérstaklega dilkana,
sem fluttir eru til slátrunar, þvi
það er bæði mannúðarmál og
fjárhagsspursmál.
Og að siðustu. Rýið við fyrstu
hentugleika kindur, sem eru i
tveimur reifum, og hafið þær i
húsi fyrstu dagana á eftir, ef illa
viðrar. Sauðfjárverndin.
Mikilvægur sigur
Framsóknarflokksins
i forustugrein Dags 13. þ.m.
er rætt um byggðamálin og
segir þar m.a.:
„Frá þvi að Framsóknar-
flokkurinn var stofnaður af
bændum og samvinnumönn-
um, hefur hann unnið að
byggðajafnvægi i landinu,
enda oft verið nefndur dreif-
býlisflokkur. Eftir að Reykja-
vik og næsta nágrenni hennar
varð bústaður um helmings
þjóðarinnar, aðsetur lög-
gjafarvalds og fjármagns,
miðstöð mennta og visinda,
aðal innflutningshöfn o.s.frv.,
Iiallaði mjög á aðrar byggðir i
opinberri þjónustu. Fræöslu-
mál, heilsugæzla og sam-
göngumál hafa viða um land
veriðá þann veg, að fólk hefur
blátt áfram hrakizt frá dreif-
býli til þéttbýlis, og þá oftast
flutt til Reykjavikur eða
Suðurnesja, þrátt fyrir bar-
áttu flokksins.
Á allra siöustu timum hafa
mörg samvirk öfl, bæði inn-
lend og einnig erlend, opnaö
augu þjóðarinnar fyrir margs
konar ytri og innri Hfsverð-
mætum og auðlindum dreif-
býlis, og fleiri islcnzkir stjórn-
málaflokkar hafa séð til þess
ástæðu að feta i fótspor Fram-
sóknarflokksins f baráttu
dreifbýlisfólksins fyrir jafn-
rétti og nauðsynlegri fyrir-
greiðsiu hins opinbera. Þessu
ber að fagna, þótt menn verði
ætiö að greina á milli alvör-
unnar og pólitískra yfirboða,
og þaö ættu menn einnig að
hafa I huga, aö þessi stefnu-
breyting i islenzkum stjórn-
málum er mesti sigur Fram-
sóknarflokksins I áratuga bar-
áttu sinni fyrir bættum hag
hinna dreifðu byggða”.
Þáttaskil
Þá segir Dagur ennfremur:
,,! síöustu viku hélt Fram-
sóknarfiokkurinn árlegan
þingflokksfund sinn til undir-
búnings flokksstarfinu á kom-
andi Alþingi. En nú var sú ný-
breytni upp tekin og i fyrsta
sinn að halda þennan fund
utan Reykjavikur og var
fundarstaðurinn Akureyri.
Auðvitað eru þingflokksfundir
taldir lokaöir fundir. En hér
voru þeir þó opnir mörgum
utanþingsmönnum, og leiö-
togar atvinnu- og fjármálalifs
í bæ og nágrenni höfðu hér
tækifæri til milliliöalausra
viðræðna við komumenn. Auk
þess kynntu og sýndu heima-
menn ráöherrum og öðrum
þingmönnum, svo og fram-
kvæmdastjórn flokksins,
helztu miðstöðvar atvinnulifs-
ins, þeim til skilningsauka.
Koma þingflokks og fram-
kvæmdastjórnar til funda-
halda á Akureyri og siðan um
bæði norðlenzku kjördæmin,
hefur vakiö mikla athygli og
ánægju Norðlendinga.
Megi fundahöld þessi enn
tákna þáttaskil i störfum þess
stjórnmálaflokks, sem fyrr og
siðar hefur verið sverð og
skjöldur hinna dreifðu
byggða”.
Þ.Þ.
Puttemans setti
heimsmet í 3 km.
Belgiumaðurinn Emile Putte-
mans, sem hlaut silfurverblaunin
i 10 km hlaupi á OL i Miinchen,
setti nýtt heimsmet i 3 km hlaupi
á móti i Arósum á fimmtudags-
kvöldið. Timi hans var 7:37,6 min.
Millitimar hans voru — 1000 m.
2:33,0 min. — 1500 m. 3:48,0 min.
og 2000 m. 5:05,0 min.