Tíminn - 01.10.1972, Qupperneq 2

Tíminn - 01.10.1972, Qupperneq 2
2 TÍMINN Sunnudagur 1. október 1972. tu ADAX rafmagnsþllofnarnlr hafa fenglS æðstu verðlaun, sem veitt W'tyfkmi&ijír eru Innan norsks IðnaSar Húsbyggjendur! Kynnið yður fyrst og síðast ADAX rafmagnsþilofnana. — Þeir standa fremst, hvað varðar útlit, öryggi og sparneytni. Tvöfalt thermostat. Auðveldir í uppsetningu. Létt þrif. Margar stærðir og gerðir. 3 ÁRA ÁBYRGÐ SjáiS þér hjá okkur Einar Farestveit & co. hf raftækjaverzlun Bergstaðastræti 10A. Sími 16995 HVAÐ VILDI GRUNDTVIG! í þessum mánuði, sem hefur hlotið hryllingsheitið „Svarti september”, eru hundrað ár frá þvi einn af helztu trúar- og menningarleiðtogum Norður- landa lézt á háum aldri. Hann fæddist 8. september 1783, svo að óðum nálgast tvær aldir frá fæðingu hans. Þetta stórmenni kirkjunnar er Grundtvig. Segja mætti, að hann hafi stofnað nýja kirkjudeild i Dan- mörku, lifandi flokk leitandi sálna, sem lögðu aðaláherzlu á það, sem kallað var hinn lifandi kristindómur, sem ekki skyldi þrælbundinn formum og bókstaf. Eitt af þvi, sem af þessu spratt og mun halda nafni Grundtvigs lengst i vitund manna, voru lýð- háskólarnir, sem hófu starfsemi sina i Danmörku, en náðu bráð- lega sem andleg hugsjón um öll Norðurlönd. En það er samt fyrst nú, og vert er að ihuga það, á þessari hundrað ára ártið höfundar, að þeir hefja göngu sina hér með starfrækslu lýðháskólans i Skál- holti, sem nú tekur til starfa. — bað er þvi ekki alveg út i bláinn að minnast á Nicolai Frederik Sverin Grundtvig i einum kirkju- þætti. WILJIRÐU GOTT Reykjavik... lappa af í næ3i, eSa þá hitta í setustofu, veitingasal eða þá er að leita til Hótel Esju. angað er auðvelt að komast aka erfiðar umferðargötur, og tisvagna er rétt við hótelið. _ Iþróttahöllin í Laugardal, skemmtistaðir af ýmsu tagi nágrenni. Næsta heimsókn iinn verður skemmtileg tilbreyting og góð hvíld. VELKQMIN Á HÓTEL ESJU U RAUT 2 — SÍMI 82200 Hann var bæði prestur og skáld, rithöfundur og trúarleið- togi. Ekki var þó æviför hans nein sigurför né dans á rósum. Hann taldi trúarjátninguna og hið lif- andi orð, nefnilega predikunina og sálusorgun, hornsteina og grunn kristinnar boðunar, fremur en trúfræði og helgisiði. Ekki likaði það öllum, sem völdin höfðu og töldu guðfræðingana — hina lærðu — eiga að skera úr um það, hvað telja ætti aðalatriöi kristins dóms. Grundtvig var þvi settur undir eins konar opinbert eftirlit og allt, sem hann sendi frá sér, dæmt til ritskoðunar alla hans ævi og hann i háar sektir. Hann hefði lika vafalaust verið dæmdur frá kjóli og kalli.Enþar hafði hann sjálfur séð við lekanum og lagt niður embætti sitt 1826 i mótmælaskyni við þvi, að bannað var að syngja sálma hans, sem hann hafði ort fyrir þúsund ára afmæli dönsku kirkjunnar það ár. Nokkru siðar, eða um 1836 hóf hann lýðskóla- hugsjón sina til framkvæmda i þeirri vissu, og samkvæmt þeim fullyrðingum sinum, að æskan, unga fólkið, væri langmóttæki- legast allra aldursflokka fyrir hinn glaða, lifandi kristindóm. Gildi Grundtvigs og hugsjóna hans er talið þriþætt: Skáld, einkum sálmaskáld, æskulýðs- leiðtogi, upphafsmaður lýðskóla- starfs þjóðlegur og kirkjulegur vakningar- og hugsjóna- frömuður. Stefna hans i kirkjumálum er nefnd Gruntvigsstefna.Hún setur hið sögulega ofar hinu fræðilega og telur guðfræði og trúfræði oft hafa skyggt á hinn sanna lifandi Bókarfregn Út er komin bók, sem heitir Afengisvarnir. í undirtitli segir: „Sögulegt yfirlit og tillögur um skipan áfengisvarna á íslandi.” Jónas Guðmundsson hefur tek- ið saman efni bókarinnar og ritar hann einnig formála. Bókin skipt- ist i marga kafla og má meðal annars nefna þessa: Afengis- varnir, Tillögur um skipan áfengisvarna, Afengissýki og misnotkun áfengis, Skipulag áfengisvarna i Noregi, Misnotkun vistheimiia og sjúkrahjálpar, Frumvarp til laga um meðferð ölvaðra manna og drykkjusjúkl- inga 1960, Vistheimili Bláa bands- ins i Viðinesi. Innan þess kafla er meðal annars fjallað um dularfull fyrirbrigði, sem þó eru reyndar ekki af neinum yfirnáttúrlegum toga spunnin. Þar er einnig rætt um stofnun og starfshætti vist- heimilisins, skipuiagsskrá þess, og aö lokum birtur bæði efnahags- og rekstursreikningur vistheimil- isins fyrir árið 1970. Ennfremur má nefna, að birt er vigsluræða Asmundar heitins Guðmundssonar, fyrrverandi biskups, sem hann flutti viö opn- un Vistheimilis Bláa bandsins í Víðinesi. Bókin, Afengisvarnir,er 164 bls. bundin i blátt alshirtingsband og öll hin vandaöasta að frágangi. HAÐ ER TEKIÐ EFTIR AUGLÝSINGU Í TIMANUM! kristindóm. Fræðsla og frelsi — einkum fræðsla á þjóðlegum grunni — eru hin lýsandi tákn við framtiðarvegu kirkjunnar, að áliti Grundtvigs. Sjá má af mörgu, að hugsjónir hans eignast breiðari farveg eftir þvi sem timar liða. Hinn frjálsi glaði kristindómur á sifellt erindi við sálir mannanna sem lifsins lind við hraðbrautir nútimans, þar sem tæknin fjötrar og hraðinn tryllir. Hér á Islandi má segja, að Matthias Jochumsson hafi verið likur persónuleiki og Grundtvig, einkum i hugsun og að ýmsu leyti i skáldskap, viðsýnn, djarfur, þjóðlegur. Honum er maðurinn — mannveran — aðalatriðið. öll form og kenningar, sem ekki ná til hjartans, ekki megna að fegra lifið og bæta.eru fremur fjötrar og hindranir á vegi lifs, sem Kristur boðar, að hans áliti. Himnaríki Grundtvigs er fyrst og fremst hér á jörðu — ekki i einhverri utanheims firrð himn- anna. Það tilheyrir sálum og samfélagi manna, eins og bænirnar af munni Krists benda til: „Komi riki þitt, verði vilji þinn á jörðu”. Hann gerir þvi fremur gys að þeim kenningum, sem hoppa yfir hið mannlega með alls konar raka- lausri mærð um óhlutkenndar hugmyndir, þótt þær svo heiti freslsun og friðþæging — „dýrð handa mér”, hvernig sem annars fer um alla hina leppalúðana” — og enda oft i sjálfsdýrkun og hroka. Kristinn dómurinn er til mannsins vegna, en maðurinn ekki vegna kristindómsins. Viða, bæði i menningarlifi og löggjöf Dana, koma áhrif Grundtvigs i ljós. Hugsanir hans standa vörð um frelsi og hugrækt i mennt og kirkjukenningum. Ein helzta og stærsta kirkja Dan- merkur byggð af alþjóð á þessum siðari áratugum, er við hann kennd og honum til heiðurs reist, Grundtvigskirkjan i Kaupmanna- höfn. Þar er hátt til lofts og vitt til veggja. Grundtvig var þrikvæntur og átti mjög hamingjurikt heimilis- lif, þrátt fyrir harma og mótlæti. Einhver frægasti og fegursti sálmur hans er brúðkaupssalmur um öll Norðurlönd: „Hve gott og fagurt og indælt er”, i þýðingu Matthisar Jochumssonar. En hann hefur nú á þessari 100 ára ártið höfundar sins verið felldur brott úr islenzku sálmabókinni!! — mörgum til mikillar furðu. Lýðskólinn ris en sálmurinn fellur á sama ári. En lengi lifi hugsjón Grundtvigs um hinn glaða, lifandi kristindóm. A.N HELLESENS HLAÐIÐ ORKU.....

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.