Tíminn - 01.10.1972, Side 5

Tíminn - 01.10.1972, Side 5
Sunnudagur 1. október 1972. TÍMINN 5 Dr. Jónas Bjarnason reynir bjargast sem bezt hann getur viö þaö, er tiltækilegt er. Það var einn morguninn núna fyrir skemmstu. Dr. Jónas Bjarnason var að kenna efna- fræði i háskólanum, og nemendur hans voru nýstúdentar i lækna- deild, tannlæknadeild og lyfja- fræðideild. Þetta var i hátiðasal háskólans, þvi að stofnunin á ekki ráð á neinni annarri vistar- veru, sem rúmar hátt i annað hundrað manns. Uppi á sviðinu, hægra megin við kennarann, er beinagrind, sem horfir tómum tóftum framan i hina verðandi vökumenn heil- brigðinnar á Islandi, og á veggnum bak við það er svört tafla, sem biður kritar sinnar eins og alla aðrar skóla- töflur veraldarinnar. Kennarinn er ungur, geðfellur maður, sem á langa og stranga námsbraut að baki, og hér á hann að miðla nýrri kýnslóð einhverju af þeirri þekk- ingu, sem hann hefur sjálfur aflað sér. Þennan morguninn eru nem- endur eitthvað 145 til 150. Allmarga þeirra, sem hér ættu þó að vera, vantar þennan morgun — i stærsta salinn, sem háskólinn hefur ráð á. En þaö eru nógu margir samt. Margir hafa að visu bæði sæti og borð, en sumir hafa lika aðeins sæti og verða að láta tösku sina og minnisblöð liggja á hnjám. Þeir eru þó ekki verst settir, þvi að innan um og saman við eru þeir, sem hvorki hafa sæti né borð. Þeir húka á hnjám sér á gólfinu eða sitja þar flötum beinum við háskólanámið. Auðvitað er enginn kominn til þess að segja, að þeim sækist námið verr en öðrum. Leið vizku og þekkingar liggur hvorki gegnum stól né borð. En einhvern veginn er þetta stólleysi i tals- verðu ósamræmi við þær hug- myndir, er menn munu almennt hafa um æðstu menntastofnun Efnafræöitimi i hátföasal háskólans — Ljósmyndir Timinn — Gunnar þjóðarinnar. Það minnir meira á viðleitni örsnauðra þjóða, sem i örbirgð sinni eru að reyna að kenna hrafli af börnum að þekkja stafina við frumstæðustu skilyrði, svo að þau fari ekki með öllu á mis við það sem á bókum verður lesið. Minnir á myndir, sem við sjáum i sjónvarpinu, teknum i Afriku eða i Vietnam, þar sem skólabyggingarnar hafa verið skotnar i rúst eða brenndar til grunna i helregni flugdreka. Og eftir á að hyggja: Það er ekki fyriraðra en þá, sem vel eru skyggnir að sitja aftast i hátiöa- salnum, jafnvel þótt kennarinn hafi stafi og merki, sem hann dregur á töfluna i stærra lagi, og gæti þess, að allt se' áem skýrast. Þvi að þeir eiga langt til að sjá. Gamanlaust sagt,y enda ekki neitt gamanmál: Haákólinn er i húsnæðishraki og verður ekki fram úr ráðiö á einum degi. Gamlar áætlanir um fjölgun háskólanema hafa reynzt fánýtt Þrír nemendur: Einn hefur borö og sæti, annar aðeins sæti, þriöji húkir á gólfinu. pappirsgagn, og nýbyggingar hans hafa ekki verið i neinu sam- ræmi við þörfina, þótt vissulega hafi nokkuö verið byggt. En bara ekki nándarnærri nóg. Þess vegna er komið sem komiö er. Morgunstund í háskólanum v-i , J- -*** *, 1 S ‘ / & 1 ' ] ' m 'f' i*P| pT 1 íi í ifB j * 1 d * 1 ' -1 " x v ,|8 ' K: 1 iijyj Varðeldur skóta við Austurbæjarskólann Tvö skátafélaganna i Reykja- vik, Landnemar og Dalbúar hefja vetrarstarfið formlega á sunnu- daginn (1. okt.) Dalbúar, sem er stærsta skáta- félag landsins með um 400 með- limi, hafa starfssvæði i Klepps- holtinu, Laugarásnum og að nokkru leyti i Vogunum og aðset- ur i Barnaheimilinu við Dalbraut. Starfssvæði Landnema er gamli Austurbærinn, frá Lækjar- götu, Norðurmýrin og Holtin þar upp af, allt að Nóatúni og aðsetur þeirra er i Austurbæjarskólanum. Landnemar eru m.a. þekktir fyrir sin árlegu Landnemamót, en það siðasta var haldiö i Viðey i sumar og þótti takast vel. Á sunnudaginn munu Dalbúar reisa tjaldbúð á tjaldsvæðinu i Laugardal, en Landnemar aðra á blettinum við Austurbæjarskól- ann. Á þessum tjaldbúðarsvæð- um munu fara fram ýmis skáta- störf og leikir og gefst öllum almenningi kostur á að taka þátt i þeirri dagskrá. Þar verða veittar ýmsar upplýsingar um skáta- hreyfinguna og skátastörf — og siðast en ekki sizt innritaðir nýir félagar i Dalbúa og Landnema, ylfingar og ljósálfar 9-11 ára og skátar 11 ára og eldri. A sunnudagskvöldiðkl. 20 bjóða landnemar svo til varöelds við Austurbæjarskólann og eru allir velkomnir þangað, skátar og all- ur almenningur.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.