Tíminn - 01.10.1972, Síða 13
Sunnudagur 1. október 1972.
TÍMINN
13
Háskólabíó:
Sorg í
hjarta
Það er frönsk mynd, „Sorg i
hjarta” (Le souffle au coeur),
sem Háskólabió mun sýna næstu
mánudagskvöld.
Mynd þessi, sem náði mikium
vinsældum i Frakklandi og
raunar viðar, fjallar um 15 ára
dreng, sem gerir uppreisn gegn
föður sinum og þvi yfirstéttarum-
hverfi, sem hann hefur alizt upp i.
A hinn bóginn elskar hann móður
sina, sem er fögur, frjáislynd og
lifsglöð, ákaflega heitt. Það er af-
staða drengsins til hennar, um-
hverfis sins, bræðra sinna, sem
reyna að kúga hann, og kviknandi
áhugi hans á sviði kynlifsins, sem
Louis Malle — sem er i senn höf-
undur kvikmyndahandrits og
leikstjóri — segir frá i þessari
mynd.
Sjálfur hefur Malle komizt svo
að orði um myndina og efni
hennar, að hún „fjalli um reglur
og eðlileg atriði á sviði siðfræði og
stjórnmála, sem drengir hafa
áhuga á, þegar þeir eru að vakna
til vitundar um umhverfi sitt og
fara að gera sér grein fyrir þvi,
að ýmis verðmæti, sem þeim er
innrætt að virða, eru aðeins til-
búningur og hræsni”.
Þessi mynd hefur verið talin
djörf i meira lagi, þvi að i henni
gerist það, sem nær aldrei sézt á
hvita tjaldinu — blóðskömm. Um
brot sitt á þeirri bannhelgi, sem
rikt hefur i kvikmyndum á sliku
atviki i mannlegum samskiptum,
segir Malle: „Ég legg áherzlu á,
að móðurástin er að kalla af sama
tagi og hin „venjulega” ást. Ég
tel það mikilvægast i mynd
minni, að ég fjalla af hreinskilni
'um þetta atriði og án hræsni”.
En þrátt fyrir þetta er myndin
„Sorg i hjarta” gamanmynd og
sem slik hefur hún fengið mikið
lof. Hér er hægt að geta fáeinna
ummæla danskra blaða.
Aktuelt segir: „Hér sigrar hið
heilbrigða og eðlilega alls konar
afbakað yfirstéttarsiðgæði”.
Ekstra Bladet gaf myndinni 5
stjörnur og sagði: „Guðdómlega
skemmtileg gamanmynd um
kynþroskaaldurinn. Hún er i
sannleika sagt mjög lostafull og i
sannleika ótrúlega skemmtileg”.
Loks sagði danska útvarpið i
þætti um „kvikmynd vikunnar”:
„Það er óþarfi að óttast sjón-
varpið, þegar slik mynd er i
boði”.
Myndin verður sýnd næstu
mánudaga.
Ný kennslu-
bók i
íslenzku
Rikisútgáfa námsbóka hefur
gefið út nýja kennslubók i is-
lenzku handa gagnfræðaskólum.
Nefnist hún Mál og ritleikniog er
eftir Baldur Ragnarsson kenn-
ara. Fyrra heftið, sem einkum er
ætlað skyldunámsbekkjum gagn-
fræðastigsins, kom út á s.l. ári.
Siðara heftið er nú nýkomið. 1
þvi er leiðbeint um ritun máls
jafnframt þvi.sem frætt er um
málfræðileg og setningafræðileg
atriði, sem i hag koma. Fjallað er
um mismunandi gerðir máls-
greina og stilgildi þeirra og reynt
með ritdæmum að vekja athygli á
atriðum, sem betur mættu fara.
Skilgreiningar og likingar eru
einnig teknar til meðferðar. Vikið
er að greinarmerkjasetningu og
settar fram reglur, sem höfundur
telur viðhlitandi. Næg verkefni
eru i bókinni, sem einkum er ætl-
uð nemendum 3. bekkjar gagn-
fræðaskóla og annarra fram-
haldsskóla.
Einstakir kaflar eru m.a. þess-
ir: Samhengi málsgreina i efnis-
grein. — Frumlag. — Andlag. —
Sjálfstæðar setningar og ósjálf-
stæðar. — Röðun setninga. —
Skýrleikur málsgreina. — Efnis-
skipun ritgerða. — Ritgerð:
Hverja telur þú undirstöðu lifs-
hamingju?
Prentun bókarinnar annaðist
Prentsmiðja Jóns Helgasonar.
Verksmiðju-
■
Á morgun, mánudag,opnum við útsölu á lítið gölluðum
vörum frá verksmiðjum okkar í HAFNARSTRÆTI 23 Reykjavík.
Áklæði frá kr. 250 - pr. mtr. Herraskór frá kr. 485
Tweedefni 200 Kvenskór 290
Úlpuefni 250 Kventöfflur —— 290
Buxnaefni 100 Barnaskór 250
Terylene 390 Kvenkuldaskór 900
Dívanteppi 400 stk. Herraföt 1000
Kjólaefni ull 100 mtr. Kápur 500
Ullarband 10 hespa Jerseyefni 50
Áklæða-gluggatjalda-og fataefnisbútar.
EINSTAKT TÆKIFÆRI TIL AÐ KAUPA GÆÐAVÖRU Á GJAFVERÐI
Ullarverksmiðjan Skóverksmiðjan
GEFJUN IÐUNN
HAFNARSTRÆTI 23
REYKJAVÍK
Bílasýning 18.-25. okt.
Vikuferð á hina alþjóðlegu bilasýningu i
London.— Verð kr. 16.900.
Fáið bækling og nánari upplýsingar á
skrifstofunni.
ferðashriístofa bankastræti 7
símar 16400 12070
Hef flutt
lækningastofu mina i Læknastöðina,
Álfheimum 74.
Viðtalstimi samkvæmt pöntun.
Halldór Steinsen
læknir — sérgrein lyflækningar
NyttmO)
og enn betm
W
ilmsterkt og bragðgott
Fundin hefur veriS upp ný og fullkomn-
ari aðferð við framleiðsluna á Nescafé
sem gerir kaffið enn bragðbelra og
hreinna en áður hefur þekkzt. Ilmur og
keimur þeirra úrvalsbauna sem not-
aðar eru í Nescafé er nú geymdur i
kaffibrúnum kornum sem leysast upp
á stundinni f „ektafínt kaffi" eins og
þeir segja sem reynt hafa. Kaupiðglas
af nýja Neskaffinu strax í dag.
Nescafé Luxus — stórkornótta kaffið
i glösunum með gyllta lokinu verður
auðvitað til áfram, þvi þeir sem hafa
vanizt þvi geta að sjálfsögðu ekki hætt.
I. BRYNIOLFSSON & KVflRflN
Hafnarstræti 9