Tíminn - 04.10.1972, Blaðsíða 4

Tíminn - 04.10.1972, Blaðsíða 4
4 TÍMINN Miftvikudagur 1. október 1972. Hagkvæmt er heimanám Bréfaskóli SÍS og ASÍ býöur yður kennslu í 40 námsgreinum. Eftir- farandi greinargerð ber fjölbreytninni vitni. I. ATVINNULÍFIÐ 1. Landbúnaður. Búvélar. 6 bréf. Kennari Gunnar Gunnarsson búfræðikandídat. Náms- gjald kr. 900.00. Búreikningar. Kennari Guðmundur Sigþórsson búnaðarhagfræðingur. Námsgjald kr. 900,00. 2. Sjávarútvegur. Siglingafræði. 4 bréf. Kennari Jónas Sigurðsson skólastjóri. Námsgjald kr. 1200,00. Mótorfræði I. 6. bréf. Um benzínvélar. Kennari Andrés Guðjónsson skólastjóri. Námsgjald kr. 1200,00. Mótorfræði II. 6 bréf. Um dieselvélar. Kennari Andrés Guðjónsson skólastjóri. Námsgjald kr. 1200,00. 3. Viðskipti og verzlun. Bókfærsla I. 7 bréf. Kennari Þorleifur Þórðarson forstj. F.R. Færslu- bækur og eyðublöð fylgja. Námsgjald kr. 1200,00. Bókfærsla II. 6 bréf. Kennari Þorleifur Þórðarson forstj. F.R. Færslu- bækur og eyðublöð fylgja. Námsgjald kr. 1500,00. Auglýsingateikning. 4 bréf ásamt nauðsynlegum áhöldum. Kennari Hörður Haraldsson viðskiptafræðingur. Námsgjald kr. 600,00. Almenn búðarstörf. Kennslubók ásamt 5 spurningabréfum. Kennari Höskuldur Goði Karlsson frkvstj. Námsgjald kr. 700,00. Kjörbúðin. 4 bréf. Kcnnari Húnbogi Þorstcinsson. Námsgj. kr. 600,00. Betri verzlunarstjórn I og II. 8 bréf í hvorum flokki. Kennari Hún- bogi Þorsteinsson. Námsgjald kr. 1100,00 í hvorum flokki. Skipulag og starfshættir samvinnufélaga. 5 bréf. Kcnnari Eiríkur Pálsson lögfræðingur. Námsgjald kr. 500,00. II. ERLEND MÁL Danska I. 5 bréf og Litla dönskubókin. Kennari Ágúst Sigurðsson cand. mag. Námsgjald kr. 900,00. Danska II. 8 bréf og Kennslubók í dönsku I. Sami kennari. Náms- gjald kr. 1100,00. Danska III. 7 bréf og Kennslubók í dönsku III., lesbók, orðabók og stílahcfti. Sami kennari. Námsgjald kr. 1200,00. Enska I. og II. 7 bréf í hvorum flokki og lesbækur, orðabók og mál- fræði. Kcnnari Eystcinn Sigurðsson cand. mag. Námsgjald kr. 1200,00 í hvorum flokki. . Ensk verzlunarbréf. 8 bréf. Kennari Snorri Þorsteinsson yfirkennari. Nokkur enskukunnátta nauðsynleg. Námsgjald kr. 1200,00. Þýzka. 5 bréf. Kennari Ingvar G. Brynjólfsson yfirkennari. Náms- gjald kr. 1200.00. Franska. 10 bréf. Kennari Magnús G. Jónsson dósent. Námsgjald kr. 1200,00. Spænska. 10 bréf. Kennari Magnús G. Jónsson dósent. Námsgjald kr. 1200,00. Sagnahefti fylgir. Esperanto. 8 bréf, lesbók og framburðarhefti. Kennari Ólafur S. Magnússon. Orðabækur fyrirliggjandi. Framburðarkennsla er gegnum ríkisútvarpið yfir vetrarmánuðina í öllum erlendu málunum. Náms- gjald kr. 700,00. III. ALMENN FRÆÐI Eðlisfræði. 6 bréf og kennslubók J. Á. B. Kennari Sigurður Ingi- mundnrson efnafræðingur. Námsgjald kr. 900,00. íslenzk málfræði. 6 bréf og kennslubók H. H. Kennari Heimir Páls- son cand. mag. Námsgjald kr. 1200,00. íslcnzk bragfræði. 3 bréf og kennslubók. Kennari Sveinbjörn Sigur- jónsson mag. art. Námsgjald kr. 600,00. íslenzk réttritun. 6 bréf. Kennari Sveinbjörn Sigurjónsson mag art Námsgjald kr. 1200.00. Reikningur. 10 bréf. Kennari Þorleifur Þórðarson forstjóri F.R. Má skipta í tvö námskeið. Námsgjald kr. 1200,00. Algebra. 5 bréf. Kennari Þóroddur Oddsson yfirkennari. Námsgjald kr. 1000,00. Starfsfræðsla. Bókin „Starfsval" með eyðublöðum. Ólafur Gunnars- son sálfræðingur svarar spurningum og leiðbeinir um stöðuval. — Gjald kr. 500,00. IV. FÉLAGSFRÆÐI Sálar- og uppeldisfræði. 4 bréf. Kennari Þuríður Kristjánsdóttir upp- eldisfræðingur. Námsgjald kr. 700,00. Saga samvinnuhreyfingarinnar. 8 bréf og þrjár fræðslubækur. Kenn- ari Guðmundur Sveinsson skólastjóri. Námsgjald kr. 800,00. Áfengismál I. 3 bréf um áfengismál frá fræðilegu sjónarmiði. Kenn- ari Baldur Johnsen læknir. Námsgjald kr. 500,00. Fundarstjórn og fundarreglur. 3 bréf. Kennari Eiríkur Pálsson lög- fræðingur. Námsgjald kr. 700,00. Bókhald verkalýðsfélaga. 4 bréf ásamt færslubókum og eyðublöðum. Kennari Guðmundur Ágústsson hagfræðingur. Námsgj. kr. 600,00. Staða kvenna í heimili og þjóðfélagi. 4 bréf. Kennari Sigríður Thorla- cius ritstjóri. Námsgjald kr. 700,00. Lærið á réttan hátt. 4 bréf um námstækni. Kennari Hrafn Magnús- son. Námsgjald kr. 700,00. Hagræðing og vinnurannsóknir. 4 bréf að minnsta kosti. Hagræðingar- deild ASÍ leiðbeinir. Námsgjald kr. 700.00. Lcshringurinn. 3 bréf. Kennari Guðmundur Sveinsson skólastjóri og fleiri. Námsgjald kr. 800,00. V. TÓMSTUNDASTÖRF Skák I. 5 bréf. Kennari Sveinn Kristinsson skákmeistari. Námsgjald kr. 700,00. Skák II. 4 bréf. Kennari Sveinn Kristinsson skákmeistari. Námsgjald kr. 700,00. Gítarskólinn. 8 bréf og lög á nótum. Kennari Ólafur Gaukur hljóm- listarmaður. Námsgjald kr. 800,00. TAKIÐ EFTIR: Bréfaskóli SÍS og ASÍ veitir öllum tækifæri til að afla sér í frístundum fróðleiks, sem allir hafa gagn af. Með bréfa- skólanámi getið þér aukið á möguleika yðar til að komast áfram f lífinu og m. a. búið yður undir nám við aðra skóla. Þér getið gerzt nemandi hvenær sem er og ráðið námshraða að mestu leyti sjálf. Skólinn starfar allt árið. Bréfaskóli SÍS og ASÍ býður yður velkomin. Undirritaður óskar að gerast nemandi í eftirt. námsgr.: □ Vinsaml. sendið gegn póstkröfu. □ Greiðsla hjálögð kr.............. (Nafn) (Heimilisfang) Klippið auglýsinguna úr blaðinu og geymið. Bréfaskóli SÍS & ASÍ ÁRMÚLA 3, REYKJAVÍK T Verkamenn i óskast Hafnarfjarðarbær óskar að ráða nokkra verkamenn til ýmissa úti-starfa. Nánari upplýsingar hjá yfirverkstjóra, áhaldahúsinu við Vesturgötu. — Simi 5-34- 45. Ileykjavikurmót i handknattleik Fyrstu leikir i kvöld kl. 20,15 i Laugardals- höll: Fram—ÍR Fylkir—Valur Klt—Þróttur Handknattleiksráð Reykjavikur Atvinna Afgreiðslustúlku vantar á Nýju sendibila- stöðina. Vaktavinna. Upplýsingar á skrif- stofunni kl. 13-14 næstu daga. Sjúkraliðanám Sjúkraliðaskóli verður starfræktur i Landspitalanum. Námstiminn er 1 ár og hefst 22. janúar 1973. Umsækjendur skulu hafa lokið prófi skyldunámsstigsins og vera fullra 18 ára. Upplýsingar gefnar og umsóknareyðublöð afhent á skrif- stofu forstöðukonu kl. 12—13 og kl. 17—18. Umsóknir skulu hafa borizt forstöðukonu Landspitalans fyrir 21. október n.k. Reykjavik, 3. október 1972 Skrifstofa rikisspitalanna. Orðu- veitingar Forseti Islands hefur i dag sæmt eftirtalda lslendinga heiðursmerki hinnar islenzku fálkaorðu: Ásmund Sveinsson. mynd- höggvara, stórriddarakrossi. fyr- ir höggmyndalist. Sigurjón Sigurðsson. lögreglu- stjóra. stórriddarakrossi, fyrir embættisstörf. Sóra Kinar Guðnason. prófast. riddarakrossi. fyrir störf að kirkju- og menningarmálum. Franz Siemsen. ræðismann Is- lands i Ltibeck, riddarakrossi. fyrir ra'ðismannsstörf. Kristbjörn Tryggvason. yfir- lækni, riddarakrossi. fyrir emb- ættisstörf. Tómas Vigfússon. húsasmiða- meistara, riddarakrossi, fyrir störf að félagsmálum. 2 farnir á reknet ÞÓ-Reykjavik Vélskipið Skinney frá Hornafirði er búið að vera á reknetaveiðum i eina viku. Báturinn er nú búinn að landa 5 sinnum,alls um 300 tunnur. í fyrstu ferðunum fékk Skinney agætan afla, en siðan hefur aflinn farið minnkandi og ástæðan er m.a. sú, að smástraumur er um þessar mundir, og að auki hefur sunnanátt verið rikja'ndi, en hún þykir aldrei góð til sjósóknar. Skinney hefur verið með 50 net i sjó og hefur báturinn lagt þau i kringum Hrollaugseyjar. Annar Hornafjaröarbátur, Akurey, býr sig nú undir róðra með reknetum. Þá mun einn Eski- fjarðarbátur vera kominn á miðin við Hrollaugseyjar með reknet. Hugur mun vera i nokkrum útgerðarmönnum að senda báta sina á reknetaveiðar. En það er reknetaveiðunum til foráttu, sem stendur, að langt er siðan þær hafa verið stundaðar, og þvi erfitt að fá reknet og tæki til veiðanna. Vertíðin afleit í Grindavík í sumar Stp-Reykjavik. — Á föstudagskvöld var illsku- veður og mikið brim i Grindavik. Ekki varð þó neitt tjón, eins og varð tvisvar á siðasta ári. Enda tjáði Guðsteinn Einarsson, hreppstjóri i Grindavik fréttam. að mikið hefði verið gert að þvi i sumar að treysta varnir hafnar- innar. Hresst var upp á varnar- garða báðum megin við innsigl- inguna og mikið flutt af stórgrýti i þá, en talið er að einstakir steinar hafi komizt upp i 20 tonn. Venju- lega er mest hætta á flóðum um miðjan vetur, ef gerir mikið veður af hafi. — Fiskeri hefur mátt heita steindautt i Grindavik i sumar og haust. Um 15 bátar voru gerðir út frá Grindavik i sumar, flestir á humar, og var afli sáratregur. Brást humarveiðin t.d. alveg i ágúst. Þá hafa ógæftir verið mikl- ar, tiðin ákaflega leiðinleg, ein- tómir stormar og mest af hafi. Sagði Guðsteinn, að þetta væri liklega versta sumarvertiðin i mörg ár. Ný frímerkja- handbók ísafoldarprentsmiðja hefur gefið út nýja handbók handa frimerkjasöfnurum, tslenzk fri- merki 1973 eftir Sigurð H. Þor- steinsson. Þetta er 140 blaðsiðna bók með myndum af öllum íslenzkum fri- merkjum fram á árið 1972 ásamt hvers konar vitneskju um fri- merki, póststimpla, posthús og annað, sem frimerkjasöfnurum getur komið að haldi, upplag til- greint og verðgildi frimerkja, stimplaðra og óstimplaðra.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.