Tíminn - 04.10.1972, Side 15
MiAvikudagur 4. október 1972.
TÍMINN
15,
Framhald
af bls. 9.
— Þeir eru þá allir á einu máli
um aö lungnakrabbinn sé síga-
rettunni aö kenna?
— Ég held. að það séu ákaflega
fáir læknar. sem treysta sér til
þess að bera á móti þeirri kenn-
ingu. Það má reyndar segja. að
ekki sé enn fullkomlega vitað,
hvernig þetta gerist, en tiðni i
lungnakrabba hjá miklum reyk-
ingamönnum er svo margföld á
við hina, sem ekki reykja. að það
er ógerlegt að láta sér detta ann-
aö í hug. en að þar sé beint sam-
vand á milli. Hitt er ekki heldur
neinum efa undirorpið. aö reyk-
ingar valda mörgum fleiri sjúk-
dómum i lungum. svo sem
lungnaþembu og fleira.
— En hvaö um mengun af völd-
um bila og verksmiðja?
— Það hefur verið sýnt fram á,
að fólk sem býr i stórborgum, þar
sem loft er óhreint, hefur miklu
hærri tiðni lungnasjúkdóma
heldur en sveitafólk. Þar er
árciöanlega beint samband á
milli.
Gott er
að vera heima
— En hvernig finnst þér nú að
vera kominn heim?
— Það er ósköp hreint og tært
blessað loftið hérna hjá okkur. Og
þótt mikið hafi rignt hér á Suður-
og Suð- Vesturlandi i sumar, þá
kann maður nú samt alltaf bezt
við islenzku veðráttuna.
— En hvernig lizt þér á þig hér
sem lækni, i byrjun starfs?
— Nú, það þýðir auðvitað ekki
að gera sömu kröfur til tvö hundr-
uð þúsund manna þjóðar og rik-
ustu þjóðar heimsins. En ég verð
að segja, að mér finnst ástandið
alls ekkert slæmt, og ég held, að
það sé hægt að bæta það töluvert
með ekki alltof miklum tilkostn-
aði.
— Og það er gott að vera á
Vifilsstöðum, þeim fornfræga
stað?
— Já. Ég hef áreiðanlega
aldrei unnið á spitala með jafn-
góðu útsýni.
— Hvernig finnst þér við vera á
vegi staddir i baráttunni við
lungnasjúkdóma, svona al-
mennt?
— Mér dettur sérstaklega i hug
einn atvinnusjúkdómur, sem er
nokkuð algengur meðal bænda.
Það er heymæðin. Þessa sjúk-
dóms verður einkum vart i lönd-
um þar sem illa gengur að þurrka
hey og þau vilja mygla. Ég er
dauðhræddur um, að þeir
bændur, sem eru harðir af sér og
láta ekki heymæðina á sig fá,
eyðileggi sin lungu meira og
minna með timanum.
— Er ekki hægt að nota ein-
hvers konar grimur til varnar?
— Þetta hefur nú verið reynt
dálitið, en það hefur ekki gefið
sérlega góða raun. Fyrst og
fremst hafa þær ekki virzt koma
að sérlega miklu gagni, og auk
þess hefur bændum gengið heldur
illa að aðlaga sig þeim. Ég held,
að áhrifameira væri að reyna að
framleiða hey, sem ekki myglar,
þótt það gæti ef til vill orðið
þrautin þyngri i okkar islenzku
veðráttu.
— En hvernig lizt þér á tóbaks-
venjur þjóðarinnar, þegar þú nú
litur þær hálfgerðum gests-
augum?
— Ég held, að tslendingar
reyki alltof mikið. Það veitti
áreiðanlega ekki af þvi að taka
hér upp álika herferð og nú er
þegar hafin i Ameriku. Það er
með þetta eins og flest annað:
Það er fræðsla, fræðsla og aftur
fræðsla, sem gildir. Það blátt
áfram dugir ekki annað en að
koma fólki i skilning um skað-
semi tóbaksins.
Ert þú ekki eins og flestir ungir
menn, að þú alir með þér ein-
hverja drauma um framtíð sér-
greinar þinnar?
— Um þá hluti vil ég sem
minnst tala. Skýjaborgir hafa
mikla tilhneigingu til þess að
hrynja.
Þvi verður ekki neitað, að hér
er varfærnislega talað af ungum
vísindamanni. En þess er vert að
minnast, að ef einhver heföi spáð
þvi fyrir svo sem fjórum
áratugum, að við yrðum árið 1972
þar á vegi staddir, sem við erum
nú i baráttunni við berklana, þá
hefðu það verið kallaðar skýja-
borgir. En þær hafa ekki hrunið,
heldur staðið og það með miklum
sóma. —VS.
Vífilsstaðir
Arnc Nordheiin tónskáld, sem
mun flytja og skýra verk sin á
tónlcikum i Norræna húsinu i
kviild. (Timamynd GE)
Arne Nordheim
*
i
Norræna húsinu
Klp-Reykjavik
i kvöld kl 20.:il) mun norska tón-
skáldið Arnc Nordheim, sem er
citt þckktasta tónsáld Norður-
landa. flytja og skýra verk sin á
tónleikum, scm haldnir verða i
Norræna luisinu.
Arne Nordheim hlaut tónlista-
verðlaun Norðurlandaráðs fyrir
árið 1972 og tók hann við verð-
laununum i febrúar s.l. Hann er
þegar góðkunnur hér á landi fyrir
verk sin, sem m.a. eru mörg til á
hljómplötum. Hann hefur einnig
komið hér fram áður ásamt Trio
Mobile, sem hélt tónleika i
Norræna húsinu fyrir tveim árum
i tengslum við Musica Nova. Við
það tækifæri voru flutt eingöngu
verk eftir hann, ma. nokkrar
frægustu tónsmiðar hans eins og
t.d. Solitaire Partita II, þar sem
Ingolf Olsen lék á rafmagnsgitar,
Response, Pace, Signals og
Dinosauros, þar sem Mogens
Ellegaard lék á harmóniku.
Tónleikarnir i kvöld verða all
nýstárlegir að þvi leyti að nótur
(„partitur”) liggja frammi, og
geta þvi þeir sem vilja fylgzt með
flutningnum, enda mun tón-
skáldiðskýra og kynna tónsmiðar
sinar meðan a' tónleikunum
stendur.
Eins og fram hefur komið i
fréttum verður eitt verka Arne
Nordheim flutt á tónleikum Sin-
foniuhljómsveitarinnar á
morgun, fimmtudag, undir stjórn
landa hans Karsten Andersen.
íþróttir
Framhald
af bls. 11.
að æðferð sin við þjálfunina sé
undirstaða þess, hve hann
hefur náð sibatnandi árangri.
Æfingarnar eru mjög ein-
staklingsbundnar. Hann
reynir stöðugt eitthvað nýtt,
gerir tilraunir og byggir æf-
ingarnar á likamsástandi
sinu. Hann leggur mikla
áherzlu á að auka kraft hand-
leggjanna, styrkja vöðvana og
þroska hæfileikann til skyndi-
legrar átaksaukningar.
Margir tala um óvenjulega
likamlega hæfileika
Aleksejevs, en sjálfur segir
hann:
,,50% árangurs mins á ég að
þakka þolgæði, 40% erfiði,
10% hæfileikum. Hæfileikar
eru likt og gullæðdjúpt i jörðu.
Það þarf að grafa lengi og
kappsamlega til þess að finna
Fjölbreytt starfsemi MFA í vetur
- verður m.a. með helgarnámskeið úti á landsbyggðinni um helgar
ÞÓ—Reykjavik.
Fræðsluhópar Menningar- og
fræöslusambands alþýöu taka nú
senn til starfa á ný. A liönum
vetri var gerö tilraun meö þetta
fræösluform, sem tókst i alla
staöi vel, og á næstu dögum byrja
fimm fræösluhópar starfsemi
sina, en þessir hópar munu starfa
fram eftir vetri.
A blaöamannafundi i gær, meö
forráðamönnum MFA, sagði
Baldur Óskarsson fræðslustjóri
MFA, að um eftirgreind verkefni
yrði fjallaö fyrir áramót.
Trúnaðarmaðurinn og vinnu-
staðurinn, leiðbeinandi Ólafur
Hannibalsson, skrifstofustjóri
ASl. Haglýsing og atvinnulif,
leiðbeinandi Hjalti Kristgeirsson.
lslenzk stjórnmál, stofnanir og
valdakerfi, leiðbeinandi Ólafur
Ragnar Grimsson, lektor. Ræðu-
flutningur og fundastörf, leið-
beinandi Baldur Óskarsson
fræðslustjóri MFA. Leikhús-
kynning, leiðbeinandi Sigmundur
örn Arngrimsson leikari.
Þátttökugjald i þessum nám-
skeiðum er kr. 300 á mann, en
þátttöku þarf að tilkynna á skrif-
stofu MFA, i siðasta lagi mánu-
daginn 9. október.
Þá verður ennfremur bætt viö
þetta fræðsluhópastarf nýjum
greinum eftir áramótin. Verður
þá ma. fjallað um fjármál, bók-
hald og sjóði verkalýðsfélaga, fé-
lagsfræði, bókmenntir og fleira.
A blm. fundinum kom m.a.
fram, aö horfið verður nú frá
hinum löngu námskeiðum, en i
þess stað verður lögð áherzla á
starfshópa, og þá oft með helgar-
námskeiðum.
Þá hefur stjórn ASI og MFA
samþykkt að koma upp félags-
málaskóla, og hugmyndin er að
hann geti að fullu tekið til starfa á
næsta hausti. Sá skóli verður ekki
fullmótaður strax, en ætlunin er
aö hægt verði að flytja hann á
milli landshlutanna, og hefur
komið til tals, að nota hinar nýju
orlofsbyggingar verkalýðsfé-
laganna sem kennslumiöstöðvar.
Einnig vinnur MFA að þvi
þessa dagana, að koma út hand-
bók fyrir verkalýðsfél., en I bók
inni getur m.a. aö finna helztu
atriöin i félagsmálalöggjöf Is-
lendinga og ýmislegt annað, sem
vel kemur sér fyrir hvern alþýöu-
mann að vita.
1 haust og á komandi vetri
verður MFA meö helgarnám-
skeið úti á landsbyggöinni, og
fyrsta helgarnámskeiöiö verður
haldið á tsafirði 22.-25. október.
Þá verða haldin helgarnámskeið i
Keflavik og i Hafnarfirði fyrir
Flugfélagið: XvÍSV3r í
A sunnudaginn var farin fyrsta
flugferðin samkvæmt vetrar
áætlun til Þingeyrar, en i vetur
áætlar Flugfélag lslands að
fljúga þangað tvisvar i viku, eða á
sunnudögum og miðvikudögum.
Aður hefur aðeins verið áætlun
einu sinni i viku.
A s.l. sumri var sett vandað
yfirlag á flugvöllinn á Þingeyri og
farþegaskýlið sta>kkað að mun og
innréttað. Þá er verið að girða
flugvöllinn.
Almenn a'nægja er með þetta á
Þingeyri og er nú áætlunarflugið
Endanlegar tölur
N T H - K a ii p m a n n a li öf n
Nákva'm bráðabirgðatalning
atkvæða úr þjóðaratk væða-
greiðslunni i Danmörku, leiddi i
ljós, að 1.954.054 greiddu atkvæði
með aðild og 1.126.095 á móti. Eru
það þvi 63.44% atkvæða, sem
samþykktu, en 36.56% voru á
móti. Alls greiddu atkvæði
3.080.149 manns og var það 89.79%
kosningaþátttaka. Grænland er
ekki innifalið i þessum tölum, en
þar var mikill meirihluti
kjósenda andvigur aðild. Það
breytir þó svo til engu um hlut-
föllin.
áramót og i Neskaupstaö eftir
áramót.
14. október n.k. veröur Lista-
safn ASI og MFA meö lista- og
fræöslukvöld á Höfn i Hornafirði.
Er þetta þáttur i þeirri viöleitni
aö koma á meira samstarfi milli
MFA og Listasafns ASl.
Eftir áramót verður MFA meö
3 stefnumarkandi ráöstefnur,
sem haldnar eru i samvinnu viö
verkalýösfélögin. A þessum ráö-
stefnum veröa tekin fyrir ýmis
mál eins og t.d. húsnæöismálin og
afstaða verkalýðsfélaganna til
þeirra, tryggingarmálin og
fulloröinsfræðsla.
viku til Þingeyrar
farið i Fokker Friendship flug-
vélunum.
I fyrravetur var áætlunarflug
einu sinni i viku til Þingeyrar, en
flugið þangað reyndist þá erfið-
leikum bundið vegna þess aö þá
var völlurinn óofaniborinn og oft
erfiður af þeim sökum.
Fiskverðið
ÞO-Reykjavik
Verðlagsráð sjávarútvegsins
sat á funcli i allan gærdag og
ræddi um íiskverðiö. Engin niður
staða náðist a fundi ráðsms og
verður þvi annar fundur hjá
Verðlagsráðinu haldinn I dag.
Fiskverð átti að vera komið 1.
október. Ef Verðlagsráð nær ekki
samkomulagi um fiskverðið
verður að visa málinu til yfir-
nefndar og hún verður siðan að
skera úr um verðið.
Senda bretunum ffrau,ilíhlLd
heimskingja nema þér og lélagar
yðar sýni og sanni annað.
Og undir brélið ritar svo
William McDougll, talsmaöur
Skozka þjóðernissinna flokksins
á tslandi.
m rffAMh l BILAK
1972 Chervolet Chevelle 1971 Vauxhall Viva STI)
1971 Peugeot Station 204 1970 Vauxhall Viva GT
1970 Opel Ilekord 4ra dyra 1971 Opel Delvan
1908 Scout 800 1908 Opel Caravan 1900 L
190(1 Volksw. 1000 TL P'astback 4ra dyra, sjálfskiptur
1903 Taunus 12 M 1971 Opel Rekord 4ra dyra
1971 Opel Ascona Station 1971 Vauxhall Victor 1000
1970 Vauxhall Viva Station SL 1970 Opel Commodore Coupe
1970 Opel Rekord 2ja dyra 1970 Vauxhall Victor
1970 Moskvich 1970 Taunus 1700 S Stat. 4ra dyra
1970 Toyota Crown De Luxe 1909 Vauxhall Victor Station
1908 Taunus 17 M Station 1908 Opel Commodore, 4ra dyra
1907 Opel Caravan 1907 Chervrolet Impala Coupe
1900 Rambler American 1900 Buick Special
1907 Vauxhall Viva Deluxe 1970 Vauxhall Viva Deluxe
1971 Citröen Ami 8 1900 Chervrolet Nova
1972 Chervrolet Nova 1907 Chervrolet Malibu
1907 Ford Zephyr 1907 Pontiac Parsienne
r Ovenj u mikið úrval af notuðum bílum
Hagstæð greiðslukjör
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA
^ Véladeild ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMt 38900