Tíminn - 20.10.1972, Blaðsíða 1
GOÐI
ýyrir
góónn móJ
jOKtáffatWéfart. AjÍ
RAFTÆKJADEILD
Hafnarslræti 23
Símar 18395 & 86500
Þessa kápu bar Sigurbjörn Einarsson á vígsludegi, en siöast var hún
notuö á Skálholtshátiö. Timamynd: Gunnar.
Landssöfnunin - sjá 3. síðu
BISKUPSKÁPA JÓNS ARASONAR
HEIM EFTIR VANDAÐA VIÐGERÐ
— og verður ekki framar notuð við biskupsvígslu
— Þessi kápa, sem hér fylgir
mynd af, er talin vera úr
skrúöa þeim, sem Jón biskup
Arason keypti f Hóladóm-
kirkju, segir Þór Magnússon
þjóöminjavörður. Þaö er vitaö
aö Jón biskup keypti fullkom-
inn skrúða til kirkjunnar, en af
honum hefur ekki náö aö varö-
veitast annaö en þessi kápa og
svo einn hökull.
— Það er ástæða til þess að
vekja alveg sérstaka athygli á
kápunni, sagði Þór ennfrem-
ur, ekki aðeins fyrir það, aö
hún er eina biskupskápan,
sem við eigum hér i þjóð-
minjasafninu, heldur engu
siður vegna hins, að hún er til-
tölulega nýkomin heim frá
Sviþjóð, þar sem hún fékk
hina vönduðustu viðgerö. Hún
var orðin talsvert illa farin,
enda hafði hún lengi verið not-
uð við biskupsvigslur, jafnvel
alveg fram á siðustu ár. Þetta
sleit henni að sjálfsögðu mjög,
enda voru þræðirnir orönir
stökkir eftir svo langan tima,
og þarf að visu engan aö
undra.
En nú þykir ekki fært að
hreyfa hana héðan úr safninu,
svo að ekki spillist árangur
hinnar ágætu viðgerðar, sem
segja má, aö sé alveg frábær,
enda er kápan nú hin glæsileg-
asta á að lita, eins og menn
geta séð. Hér er saumað með
gullþræði og myndir af heilögu
fólki á börmunum.
Þessir tveir gripir, kápan og
hökullinn, sem Jón biskup
Arason bar á herðum sér, eru
sennilega báöir frá Hollandi,
sagði Þjóöminjavörður að lok-
um.
Tillaga Alfreðs Þorsteinssonar í borgarstjórn:
Éftirlitsskipin fái
ekki afareiðslu hér
A fundi borgarstjórnar I gær,
kvaddi Alfreð Þorsteinsson,
borgarfulltrúi Framsóknar-
flokksins, sér hljóö utan dag-
skrár og mælti fyrir eftirfarandi
tillögu:
„Borgarstjórn Reykjavikur
felur hafnarstjóra aösjásvoum,
að engum eftirlits- eða aðstoðar-
skipum þeirra fiskveiðiþjóöa,
sem ekki virða 50 milna landhelgi
Islands, skuli veitt þjónusta i
Reykjavikurhöfn. Þó skal
þessum skipum veitt leyfi til að
flytja sjúka og slasaða menn til
hafnar.
Borgarstjórn Reykjavikur
skorar jafnframt á önnur
sveitafélög, sem fara með stjórn
haína, aö beita sams konar aö-
gerðum”.
Alfreð sagði, að hinir alvarlegu
atburðir, sem gerzt hefðu siðustu
daga á Islandsmiðum, undirstrik-
uðu það, enda þótt reynt væri að
forðast árekstra, rikti nú hættu-
ástand á miðunum. Þó væri ljóst,
að nú þegar vetur fer i hönd,
verður næstum ógerlegt fyrir
hina erlendu veiðiþjófa að halda
áfram veiðum sinum hér viö
land, án þess að geta leitað
hafnar og aflað vista og notið að-
stoðar. Alfreð sagði, að með þetta
ihuga væri hverjum manni ljóst,
hversu alvarlegt það væri, að
eftirlitsskip fengju afgreiddar
vistir og oliu-Þau væru lifæöar
hinna erlendu landhelgisbrjóta,
sem mundu án þeirra neyðast til
að leita hafnar sjálfir. Alfreð
minnti einnig á afstöðu Fær-
eyinga, sem neitað hefðu
brezkum landhelgisbrjótum um
sömu aðstoð og nú hefði verið
látin i té i islenzkum höfnum.
A eftir ræðu Alfreðs var at-
kvæðagreiðslu um tillöguna
frestað að tillögu borgarstjóra.
Meðflutningsmenn
Alfreðs voru Björgvin Guð-
mundsson, Sigurjón Pétursson og
Steinunn Finnbogadóttir.
Hér má bæta þvi viö, að stjórn
Alþýöusambands tslands sam-
þykkti i gær tilmæli allra, sem
eru innan vébanda þess, að veita
eftirlitsskipunum ekki neina
fyrirgreiðslu, er þau vildu fá
vatn og vistir i islenzkum höfn-
um.
Færeyingar hröktu
Aldershot frá bryggju
Skáru á olíu- og vatnsleiðslur þegar afgreiða átti annan landhelgisbrjót
KJ—Reykjavík
Um kl. 9 i gærkvöldi
kom brezki landhelgis-
brjóturinn Aldershot
GÝ 612 til Þórshafnar i
Færeyjum, ásamt
öörum brezkum
togara, en þeir urðu
báðir að snúa frá,
vegna þess að hópur
Færeyinga hafði safn-
ast saman á brygg-
junni og kom i veg
fyrir, að hægt væri að
binda Aldershot og að
hinn togarinn fengi
vatn og oliu.
Á þriðja hundrað
Færeyingar, margir
ungir menn, höfðu
safnast saman á
bryggjunni þegar
Aldershot kom inn á
höfnina og gátu komið i
veg fyrir, að hægt væri
að binda togarann við
bryggju. Við höfnina
var likast umhorfs og
að grind væri komin
þangað inn, en kannski
hafa Færeyingarnir
enn verið i grindaham
þvi hvalavaða var
rekin þangað inn i
fyrradag.
Þegar skipstjórinn á
Aldershot sá að ekki
mundi takast að binda
togarann við bryggju
hélt hann frá, en skips-
menn köstuðu kar-
töflum og öðru lauslegu
á mannfjöldann og
eimpipur skipanna
voru þeyttar.
Togarinn, sem var i
fylgd með Aldershot,
hafði meðan á þessu
stóð, lagst við oliu-
bryggju, sem er á
öðrum stað i höfninni
og var ætlunin að fá þar
oliu og vatn. Þegar
Aldershot lagði frá
hélt hópurinn út á oliu-
bryggjuna og skar þar
sundur oliu- og vatns-
leiðslur og leystu land-
festar, svo að skip-
stjórnarmenn áttu
ekki annars úrkosta en
að halda frá lika.
í gærkvöldi var
haldið i Færeyjum, að
Aldershot mundi
freista þess, að leita
hafnar annars staðar
til að fá gert við rifuna,
sem kom á skips-
skrokkinn þegar tog-
arinn sigldi á Ægi.
Heimildarmaður
Timans i Þórshöfn,
sagði að epgin mót-
mælaspjöld hafi verið
uppi, en Færeyjingar
létu verkin tala.