Tíminn - 20.10.1972, Blaðsíða 7
Föstudagur 20. oktober 1972.
TÍMINN
Heimsfréttir
Söngkonan Petula Clark eign-
aðist nýlega son, sem skirður
hefur verið Patrick.
Læknar málgalla eftir
miðaldaaðferðum
Börn með málgalla eru send
frá öllum hinum arabiska heimi
til Hussein Kahadr i Karió, sem
náð hefur undraverðum árangri
að lækna mállýti. bað tekur
hann frá fimm minútum til
tveggja mánaða að kenna mál-
höltum börnum, og jafnvel full-
orðnum að tala skiljanlegt mál.
Ekki er vitað til, að hann hafi
þurft að láta neinn frá sér fara,
sem ekki hefur fengið einhverja
eða algjöra lækningu á kvilla
sinum.
Hussein Khadr var áður skrif-
stofustjóri i egypzka
menningarmálaráðuneytinu og
var jafnframt talkennari kvik-
myndaleikara. begar hann svo
eignaðist son, sem var svo illa
máli farinn, að hann gat ekki
mælt skiljanlegt orð þegar hann
var orðinn fjögurra ára fór hann
með drenginn frá einum sér-
fræðingi til annars, en enginn
gat hjálpað barninu. bá tók
faðirinn til eigin ráða. Hann
sagði stöðu sinni lausri og aflaði
sér allrar vitneskju, sem hann
komst yfir um vandamál mál-
haltra.
Hann komst yfir egypzka
lækningabók, sem skrifuð var á
miðöldum, um málhelti og las
hana spjaldanna á milli. Huss-
ein umskrifaði bókina og
hreinsaði úr henni augljósa
hjátrú og ýms hrollvekjandi
læknisráð, en hélt til haga öllum
upplýsingum, sem nútima
mönnum virðist mega koma að
gagni við lækningar. Eftir stóðu
ýmis undirstöðuatriði um
lækningu á málgöllum, sem
Hussein hefur notfært sér meö
mjög góðum árangri. Tækin
sem hann notar við tal-
kennsluna eru margs konar, svo
sem blöðrur, blýantar, glerrör
trompet, kertaljós, eldspýtur og
fleira. Er árangurinn svo giftu-
drjúgur að sjúklingarnir verða
að panta tima með löngum
fyrirvara.
— Og sonur hans er fyrir_
löngu orðinn altalandi.
Anita Ekberg segist taka til-
boði sænska sjónvarpsins um
viðtal, ef hún fái greiddar
milljón krónur fyrir vikið og
friar ferðir frá Italiu til Sviþjóð-
ar og til baka aftur.
Sammy Davis, er nú á
skemmtiferð um Evrópu ásamt
konu sinni, Altavisa, sem er 20
árum yngri en eiginmaðurinn.
Altavisa hefur góð áhrif á
Sammy Davis, þvi nú segist
hann vera hættur að reykja
marihuana, og drekkur ekki
önnur eins ósköp af áfengi og
hann gerði áður.
Ingrid Bergman hefur sézt
mikið með kvikmyndaframleið-
andanum John van Essen, og er
hann nú skilinn við konu sina.
Spurningin er, hvort hann verð-
ur fjórði eiginmaður Ingrid
Bergman.
Jackie Onassis hefur yngzt
um 10 ár i útliti. Frægur skurð-
læknir iNewYork gerði á henni
andlitslyftingu og tók aðgerðin
þrjár klukkustundir.
☆
Ilvor hefur meiri
kynþokka?
Um daginn var birt i
Speglinum mynd af kvenna-
gullinu Burt Reynolds, sem
tekin var úr hinu viðlesna
kvennablaði Cismopolitan og
náði myndin yfir nokkrar blaö-
siður I kvennamálgagnínu,
svipað og stóru stúlkurnar i
Playboy. Nú hafa þeir i
Ameriku bætt um betur og ný-
verið birti skopblað vestur þar,
mynd af Kissinger, ráðgjafa
Nixons i utanrikismálum, i
sömu stillingum og sama lát-
leysið i klæðaburði og Reynolds
i Cosmopolitan.
Varla þarf að taka fram, að á
myndinni af Kissinger er
höfuðið af honum sjálfum, en
einhver annar hefur lagt til
likamann.
Kissinger þykir kvensamur i
betra lagi og sést oft á opin-
berum stöðum með ungum og
fögrum konum.
DENNI
DÆMALAUSI
Jæja guö, ég vona aö þér hafi
gengiö betur þarna uppi i dag,
heldur en mér hérna niöri.