Tíminn - 20.10.1972, Qupperneq 4

Tíminn - 20.10.1972, Qupperneq 4
4 TÍMINN Föstudagur 20. október 1972. W Menntamálaráðuneytið Þýzkalandi Styrkir til að sækja þýzkunámskeið i Sambandslýðveldinu Þýzka sendiráðið i Reykjavik hefur til- kynnt islenzkum stjórnvöldum, að boðnir séu fram nokkrir styrkir handa islenzkum stúdentum til að sækja tveggja mánaða þýzkunámskeið i Sam- bandslýðveldinu Þýzkalandi á vegum Goethe-stofnunarinnar á timabilinu júni-október 1973. Styrkirnir taka til dvalarkostnaðar og kennslugjalda, auk 600 marka ferðastyrks. Umsækjendur skulu vera á aldrinum 19-32 ára og hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi. beir skulu hafa til að bera góða undir- stöðukunnáttu i þýzkri tungu. Umsóknum um styrki þessa skal komið til mennta- málaráðuneytisins, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 20. .nóvember n.k. Sérstök umsóknareyðublöð fást i ráðu- neytinu. 17. október 1972. Styrkir til háskólanáms i Sambandslýð- veldinu Þýzkalandi Þýzka sendiráðið i Reykjavik hefur til- kynnt islenzkum stjórnvöldum, að boðnir séu fram þrir styrkir handa is- lenzkum námsmönnum til háskólanáms i Sambandslýðveldinu Þýzkalandi há- skólaárið 1973-74. Styrkirnir nema 500 þýzkum mörkum á mánuði hið lægsta, auk 400 marka greiðslu við upphaf styrktima- bils og 100 marka á námsmisseri til bókakaupa, en auk þess eru styrkþegar undanþegnir skólagjöldum og fá feröakostnað greiddan að nokkru. Styrktimabilið er 10 mánuöir frá 1. október 1973 að telja, en framlenging kemur til greina að fullnægöum ákveðnum skilyrðum. Umsækjendur skulu eigi vera eldri en 32 ára. beir skulu hafa lokið a.m.k. tveggja ára háskólanámi. Umsóknir, ásamt tilskildum fylgigögnum, skulu hafa borizt menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6, Reykjavik, fyrir 20. nóvember n.k. — Sérstök um- sóknareyðublöð fást i ráðuneytinu. 17. október 1972. Dömur Hárgreiðslustofan Pirola er flutt að Njálsgötu 49, simi 14787. Iiansina Traustadóttir „Mer sýnist flugvélin heita Iceland, og mér datt I hug, að þetta kynni aö vera sama vélin og gefin var eftir hjálparstarfið I Lima i Perú”, segir Hildur I bréfinu sinu. Hún sendir okkur úrklippu úr Madras- blaðinu Thc Hindu af flugvél, sem Rauðikrossinn notaöi til þess að flytja sjúka menn er Indveriar oc Pakistanar höfðu fangaskipti. (SLENZK KVEÐJfl FRA MADRAS Fæstir munu gera þvi skóna, að Austurlandabúar viti um tilveru tslands, og nokkurn veginn sjálf- gefið virðist, að þeir, sem ein- hvern tima hafa heyrt þessarar úthafseyjar okkar getiö, hafi um hana næsta óljósa hugmynd, svo fjarlæg sem hún er, smá og fámenn á mælikvaröa fólks i löndum, sem mannmergðin er jafnvel þúsund föld eða þaðan af meira. begar til kastanna kemur, er þo furðu viða fólk, sem veit meira en okkur grunar, og stundum gerast þeir atburðir, sem beina að okkur athygli undramargra, meira að segja i fjarlægustu löndum. ,,bað var fylgzt vel með skák- einvigi aldarinnar,, og voru frétt- ir um það á hverjum degi i dag- blöðunum hér”, segir i bréfi, sem Hildur Mariasdóttir skrifar Halfnað er verk þá hafið er sparnaður skapar verðmati Samvinnubankinn SANDVIK snjónaglar SANDVÍK SNJÖNAGLAR veita öryggi í snjó og hálku. Látið okkur athuga gömlu hjólbarðana yðar og negla þá upp. Skerum snjómunstur í slitna hjólbarða. Verkstæðið opið alla daga kl. 7.30 til kl. 22, GÚMMIVNNUSTOFAN HF. SKIPHOLTI 35 REYKJAVlK SlMI 31055 BARNALEIKTÆKI * ÍÞRÓTTATÆKI V4l«v»rktt»8l BERNHARDS HANNESS., Su8orland«br«ut IZ Shni 35810. PÍPULAGNIR STELLI HITAKERFI Lagfæri gömul hitakerfi. Set upp hreinlætistæki. Hitaveitutengingar. Skipti hita. Set á kerfið Danfoss ofnventla. Sfml 17041. Timanum frá Madras á Indlandi. ,,bað slæddust alltaf með ein- hverjar fréttir um Island, og þá daga, sem ekki var teflt, voru birt viðtöl við einhverja af skáksnill- ingunum eða forráðamenn móts- ins. begar Indverjar heyrðu, að ég var islenzk, var hvar sem ég kom farið að tala um skákmótið og „Reyggjavik”, eins 'og þeir segja hér. Flestir vonuðu, að Spasski ynni, einkum vegna framkomu Fischers. Ég verð að halda vel utan að þeim skákfrimerkjum, sem ég hef fengið að heiman, þvi að margir reyna að snikja þau af mér”. Hildur skrifaði bréf sitt 5. októ- ber, og daginn áður var afmælis- dagur Mahatma Gandhis. Og likt og indversku blöðin fræddu lesendur sína um Island i sumar, bregður hún upp ofurlitilli mynd frá Madras i bréfi sinu: „Hófust þá vikulöng hátiðahöld með sýningu i Friðargarði Gandhís”, segir hún, ,,og var þar lýst lifi hans og starfi. Stytta af Gandhi stendur við eina aðalgötu borgarinnar. 1 gær var búið að smiða tröppur, lagöar rauðum dregli, upp að styttunni, svo að ungir og gamlir gætu vottað „föð- ur þjóðarinnar” virðingu sina. barna sá ég nokkra drengi á aldrinum fimm til átta ára, auð- sýnilega úr einhverju fátækra- hverfinu, ganga prúða og settlega upp tröppurnar, krjúpa á kné og kyssa fætur Gandhis, standa sið- an upp og heilsa honum að ind- verskum sið — leggja saman lófa og hneigja höfuðið. Einnig létu margir stóra, ilm- andi blómakransa um háls Gandhis, svo að hann var orðinn þakinn blómum undir kvöldið”. Já, fimm til átta ára gamlir drengir úr fátækrahverfunum i Madras, þar sem örbirgðin er svo yfirþyrmandi, að við getum ekki gert okkur annað eins i hugar- lund. Hér i velmeguninni og mitt i menningargortinu, fær blóm- sveigurinn við styttu Jóns Sig- urðssonar á Austurvelli, ekki að vera i friði kvöldlangt á þjóð- hátiðardaginn, nema lögreglu- vörður komi til, fyrir skemmdar- vörgum, uppkomnu, eða langt uppkomnu fólki, sem fátt skortir nema siðprýði og mannslund.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.