Tíminn - 20.10.1972, Qupperneq 17

Tíminn - 20.10.1972, Qupperneq 17
Föstudagur 20. október 1972. TÍMINN 17 Reykjavíkurmótið f handknattleik: Meistaraliðin máttu þola töp á miðvikudagskvöldið - Víkingur sigraði Islandsmeistarana Fram og KR Reykjavíkurmeistarana Val. Ármann og Þróttur gerðu jafntefli Það var greinilegt að áhorfendur, sem komu til að sjá leikina f Reykjavikurmótinu i handknattleik á miðvikudagskvöidið, voru mjög ánægðir að sjá hin óvæntu úrsiit, sem áttu sér stað þá. í fyrsta leik kvöldsins, leiknum, sem dómararnir léku aðalhlutverkin í, sigraði Vikingsliðið islandsmeistarana Fram í leik, sem var mjög spennandi undir lokin, — t.d. var 15. sek bætt við leikinn vegna tafa og var þá staðan 13:12 fyrir Viking og Fram hafði knöttinn. Ingóifur fékk knött- inn, fyrir framan punktalinu og var að senda hann i mannlaust markið — þegar honum var skellt í gólfið og skot hans hafnaði fram hjá. i þessu tilefni hefði átt að dæma vitakast, en dómararnir voru farnir á „tauginni” i látunum og iokuðu augunum fyrir brotinu. Þá urðu óvænt úrslit i siðasta leik kvöldsins, þegar baráttuglaðir KR-ingar, undir stjórn Vaismannsins Stefáns Sandhoits, sigruðu Reykjavikur — meistarana Val, á mjög útsjónarsömum leik 13:9. Vikingar náðu strax for- skoti, sem Framarar réðu ekki við Vikingsliðið byrjaði leikinn gegn Islandsmeisturunum Fram, mjög vel — leikmenn liðsins, skoruðu fjögur fyrstu mörk leiksins: Fyrst Einar Magnússon, með góðu langskoti, þá skoraði Sigfús Guðmundsson, af linu og Einar bætti þriðja marki Vikings, við á 5. min. með góðu langskoti og tveimur min. siðar skorar Guðjón Magnússon, einnig úr langskoti. Stefán Þórðarson, kom Framliðinu á blað, á 8. min., með laglegu marki, eftir gegnumbrot. Jón Sigurðsson, svaraði fyrir Viking af linu og siðan koma tvö mörk frá Fram: Axel Axelsson, úr langskoti á 13. min. og Sigurður Einarsson, á 15. min. Staðan var þá orðin 6:4 fyrir Viking, en Framarar virtust vera að sækja i sig veðrið. Einar Magnússon, skoraði sjöunda mark Vikings og stuttu siðar misnotaði Axel vitakast. Þegar 30. sek. voru til leikshlé, kom fyrir atvik, sem gaf smjörþefinn af þvi, sem átti eftir að gerast siðar i leiknum. Annar dómari leiksins, Magnús Pétursson, hljóp að skiptimannabekk Fram og gaf öllum fimm leikmönnum, sem sátu þar, áminningu — óskiljan legur dómur, fyrir undirritaðan, sem sat fyrir aftan Framarana. Einar Magnússon skoraði fyrsta mark siðari hálfleiks, sem Axel svaraði fyrir Fram, með tveimur mörkum. Magnús Sigurðsson bætti svo við niunda marki Vikings — 9:6. Framarar söxuðu á forskot Vikings, með mörkum frá Axel og Sigurði Einarssyni. Mikil spenna var að færast i leikinn og virtust sumir leikmenn vera orðnir mjög æstir. Sigfús skoraði 10:8 og stuttu siðar var dæmt mjög vafasamt vita- kast á Vikingsliðið, sem Axel DÓMARAR Á VILUGÖTUM Það sást greinilega á mið- vikudagskvöldið, að dómarar eru komnir á villigötur — óneitanlega sannaðist það, að isienzkir handknattieiksdóm- arar geta hreinlega ráðið gangi og úrslitum leikja og þar með jafnvel móta. Þegar spennan var mest i leik Vik- ings og Fram, brugðust dóm- arar leiksins, Magnús Péturs- son og Helgi Þorvaidsson, al- gjöriega hlutverki sinu. Þeir hreinlega biluðust á taugum og leikurinn endaði með ósköpum og það lá við slags- málum eftir ieikinn. Þetta byrjaði allt saman á þvi, að dómararnir fóru að dæma vitaköst á smávægi- leg brot og svo slepptu þeir stærri brotum og voru þeir Magnús og Helgi ósammála i sumum dómum sinum. — Það kom fyrir að annar dómarinn sá ekki brot, sem skeði við nefið á honum — brot, sem all- ir áhorfendur og hinn dómar- inn gátu ekki lokað augunum fyrir. Þetta skapaði það að bendingar dómaranna, voru mjög ólikar og þar af leiðandi flautuðu þeir hvor i kapp við annan. Eftir að hafa séð þessi ósköp, vaknaði upp sú gamla spurning: Er ekki kominn timi til að fara að rannsaka ástand dómaranna á Islandi. Dómar- ar eru svo hryllilega ósam- mála og litt sjálfum sér sam- kvæmir. — Það er greinilegt, að þeir túlka lögin hver eftir sinu höfði og verða dómar þeirra stundum einn hræri- grautur, sem engin mandla er finnandi i. Að lokum vil ég benda yfir- mönnum handknattleiksmála á Islandi, á þá kröfu hand- knattleiksmanna, er æfa allt árið — að rannsókn verði gerð á dómaramálum, og aðeins hæfir dómarar fái að fara með fiautuna inn á völlinn. SOS. Hitt og þetta um handknattleik Hér ætlum við að segja frá nyjustu frettum úr handknatt- leiknum i stuttu máli og byrjum við að sjálfsögðu á stöðunni i Reykjavikurmótinu: Staðan Fram 5 4 0 1 72:51 8 Vik. 4 3 1 0 53:41 7 KR 5 3 0 2 56:54 6 Valur 3 2 0 1 36:27 4 Arm. 4 1 1 2 50:44 3 Þrótt. 4 0 2 2 44:49 2 IR 3 1 0 2 35:42 2 Fylkir 4 0 0 4 26:64 0 Markhæstu menn Axel Axelsson, Fram 31 (15) Einar Magnúss, Vik. 19 (17) Björn Péturss. KR 16 (3) Vilberg Sigtryggss. Á 14 (7) Björn Jóh.s. Arm. 13 (5). Blómaleikur Þeir Bergur Guðnason og Jón Breiðfjörð, báðir leikmenn með Val, fengu afhenta blómavendi, áður en leikur Vals og KR hófst á miðvikudagskvöldið. Blóm- vendina fengu þeir út á það, að Bergur lék sinn 250 leik með meistaraflokki Vals og Jón lék sinn 200 leik. Axel Axelsson, lék aðalhlutverkið hjá Fram gegn Viking, hann skoraði 9 mörk, en þau dugðu ekki til sigurs. skoraði örugglega úr. Þegar vita- kastið var dæmt, missti einn leik- maður Vikings stjórn á skapi sinu og hljóp út af leikvelli og sagði ,,Þið megið eiga þetta pakk” — þess skal getið, að fljótlega rann af leikmanninum reiðin og hann birtist aftur á leikvelli. Einar skoraði 11:9 fyrir Vlking úr viti, en Axel minnkaði aftur muninn með góðu langskoti. Þá skoraði Olafur Friðriksson af linu og enn minnkaði Axel muninn nú úr viti og staðan varð 12:11, þegar Einar skoraði þréttánda mark Vikings úr viti. Þá kom Axel með enn eitt markið úr langskoti og spennan varð geysileg, aðeins 2. min. til leiksloka og Vikingur i sókn — Sigurbergur Sigsteinsson, komst inn i sendingu, en ónákvæm sending hans fram völlinn, lenti i hönduum Vikinga. Nú færðist mikið fjör i leikinn og þegar örfáar sek. voru til leiksloka, var dæmd töf á Ölaf Friðriksson og Fram dæmdur knötturinn, en Ölafur hélt knett- inum þar til að tímavörður flautaði leikinn af. Dómarar gerðu athugasemd við timavörð og ákváðu að bæta 15 sek. við leiktimann. Sigurbergur fékk knöttinn út i horni og henti sér inn i vitateig, en hitti ekki markið. Framarar fengu knöttinn fljótlega aftur og hann barst til Ingólfs og skeði þá það, sem sagt er frá i upphafi. Þróttur náði jafntefli við Ármann Leikmenn Þróttar náðu óvæntu jafntefli gegn Ármannsl. sem hefur komið mest á óvart i Reykjavikurmótinu fyrir góðan handknattleik. Smátt og smátt söxuðu hinir keppnisgiöðu Þróttarar á forskot Ármanns, og þegar I. min. var til ieiksioka jöfnuðu þeir og fengu einnig góðan möguleika á að sigra — þeir voru með knöttinn þegar flautað var af. Leikur liðanna var frekar jafn til að byrja með, en undir lok fyrri hálfleiks, breyttu Armenningar stöðunni úr 5:4 i 8:4, með góðum leikkafla, siðasta orðið fyrir hlé, kom frá Þrótti, er Trausti Þorgrimsson, lagaði stöðuna i 8:5. I siðari hálfleik, söxuðu Þróttarar smám saman á forustu Ármanns og þegar 4. min. voru til leiksloka, þá skoraði Jóhann Fri- mannsson, tólfta mark Þróttar og staðan varþá 13:12fyrir Armann. Björn Jóhannesson, bætti marki við fyrir Ármann úr langskoti, en það dugði ekki til sigurs, þvi að Þróttarar skoruðu tvö siðustu mörk leiksins: Fyrst Guðmundur Jóhannsson, með langskoti og jöfriunarmarkið 14:14, skoraði Trausti úr vitakasti. KR-ingar svæfðu Vals- menn og veltu þeim svo við i svefninum Þeir láta ekki að sér hæða, KR- ingarnir, þegar þeir taka sig til að leika hnitmiðaðan og útsjónar- saman handknattleik. Með þolin- mæði og skotum á réttu augna- bliki, voru þeir hinir öruggu sigurvegarar gegn örvæntinga- fullu Valsliði. Gunnsteinn Skúlason, fyrirliði Vals, skoraði fyrsta mark leiksins, með þvi að kringla inn úr horni, en það mark dugði ekki lengi, þvi að Björn Pétursson læddi knettinum i netið hjá Val með lúmsku langskoti. Þessu svaraði Stefán Gunnarsson, einnig með langskoti, eftir skemmtilega leikfléttu Vals- manna. Þorbjörn Guðmundsson, skoraði svo þriðja mark Vals úr hraðupphlaupi og var staðan þá 3:1. En nú fóru KR-ingar að taka við sér og stöppuðu þeir stálinu i hvern annan, með hvatningar- hrópum — þetta virtist duga. Hinn ungi fyrirliði KR-liðsins, Haukur Ottesen (19 ára), riður á vaðið og jafnaði með tveimur skemmtilegum mörkum og á 15. min. kom Bjarni Kristinsson KR- liðinu yfir. Það bætti ekki úr skák fyrir KR, að ívar Gissurason, varði vitakast frá Bergi Guðna- syni. En tvar ver samt ekki allt. Langskot frá Stefáni Gunnars- 1 syni, söng i netinu fyrir aftan hann á 16. min. Björn kom KR aftur yfir en Þorbjörn jafnaði úr vitakasti, 5:5. Siðan komu tvö mörk fra Birni Blöndal og staðan var 5:7 fyrir KR — Jón Karlsson, skoraði siðasta mark hálfleiksins og lagaði stöðuna i 6:7. Þorbjörn jafnaði i siðari hálf- leik, en Steinar kom KR-ingum aftur yfir, en það dugði ekki iengi, þvi að Olafur Jónsson, jafnaði 8:8. Nú tóku KR-ingar mikinn fjörkipp og skoruöu fjögur mörk i röð, án þess að Valsmenn gætu svarað fyrir sig. Mörkunum skiptu Björn og Þorvarður Guðmundsson, bróðurlega á milli sin. Staðan var orðin 8:12, þegar Ólafur skoraði mark fyrir Val úr vitakasti. Siðasta mark leiksins, skoraði svo Þorvarður og inn- siglaði þar með kærkominn sigur KR, 8:13. Sem sagt, þrir leikir i Reykja- vikurmótinu á miðvikudags- kvöldið og allt óvænt úrslit, nú er Vikingsliðið, eina liðið i mótinu, sem er taplaust. SOS J Settur út.. Það vakti athygli, að landsliðsmarkvörðurinn úr Val, OlafurBenediktss.lék ekki með liði sinu gegnKR. Astæðan fyrir þvi, mun vera sú að hann hefur ekki getað mætt a tvær æfingar æfingar — vegna þess að hann hefur verið að lesa undir próf. Það er strangt tekið á æfingasókn hjá Val! ..kemur inn.. Miklar likur eru á þvi, að Þórarinn Tyrfingsson, leiki með 1R gegn Armanni á sunnudaginn. Þórarinn, hefur verið út á landi i sumar sem læknir og hefur þess vegna ekki getað æft með IR-lið- inu. En þegar hann mætti á sina fyrstu æfingu, varð hann fyrir þvi óhappi, að togna á öxl — en er nú búinn að ná sér. Verður þvi gaman að sjá hvort Þórarinn, breytir sóknarleik IR-liðsins til batnaðar. ...lék ekki með. Erlingur Sigurðsson, hinn gamalkunni leikmaður úr Þrótti, lék' ekki með liði sinu gegn Ar- manni á miðvikudaginn og veikti það Þróttarliðið nokkuð. Fjögur Loftleiðalið Enn eitt 1. deildarliðið I hand- knattleik er farið að bera auglýs- ingu frá Loftleiðum — hið unga 1 og efnilega Armannslið lék með Loftleiðaauglýsingu á peysum sinum á miðvikudagskvöldið. Hin Loftleiðaliðin eru Fram, IR og Vfkingur. Aðalfundur Aðalfundur handknattleiks- deildar Vikings, verður fimmtu- daginn 26. október n.k. kl. 20.00 Venjuleg aðalfundastörf. SinniSinn fyrsta leik.. Eftirtaldir leikmenn léku sinn 1 fyrsta leik i Reykjavikurmótinu i handknattleik á miðvikudags- kvöldið. Jón Hermannsson og Pétur Emilsson, Armanni, Jón Karlsson, Val og Andres Bridde, Fram. Netto-leikir 2. deildarlið Þróttar i handknatt | leik, leikur með auglýsingu frá t Netto, sem er hjólbarðaauglýs- ; ing, á dekkjum frá Japan. j Næstu leikir 4 A sunnudagskvöldið fara fram / þrir leikir i meistaraflokki karla i J Reykjavikurmótinu. Liðin sem i mætast þá, eru þessi: Valur-Vik- i ingur, IR-Ármann og KR-Fylkir. ; Það má búast við spennandi 1 leikjum. SOS.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.