Tíminn - 27.10.1972, Qupperneq 7
Föstudagur 27. október 1972.
TÍMINN
7
Leikaraástir
Ursula Andress skildi við Bel-
mondo i aprilmánuði s.l. Siðan
hefur hún búið ein i stóru vill-
unnisinni. En undanfarið hefur
ameriski leikarinn Ryan O’Neill
sem þekktur er úr Love Story,
verið tiður gestur hjá Ursulu.
Hann er 31 árs að aldri, en á
samt tvö hjónabönd að baki.
Áður en hann fór að heimsækja
Ursulu var hann tiður gestur
heima hjá Barböru Streisand.
Bókmenntasmekkur
Mario Puzo, höfundur „Guð-
föðursins” er farinn að efast um
bók menn tasmekk lesenda
sinna. Hann er orðinn marg-
faldur milljónamæringur á bók
sinni um guðföðurinn og á kvik-
myndinni, sem gerð var eftir\
bókinni. Hann hefur áður
skrifað tvær bækur, sem gefnar
voru út. Puzo segir, að þær
bækur séu báðar betri en met-
sölubókin, en þær hafi enga at-
hygli vakið og fékk hann sárakil
ritlaun fyrir þær.
Og Onassis flýtti sér heim
Hvaða glæsimenni er þetta sem
situr við hliðina á Jackie
Onassis, þar sem hún situr
fáklædd i sólinni á Scorpios?
Kjaftadálkar blaðanna spyrja
en fá ekkert svar, maðurinn er
óþekktur. Þegar myndin var
tekin, auðvitað af Ijósmyndara,
sem var að sniglast með sterkar
aðdráttarlinsur i námunda við
heimili Onassishjónanna á
Scorpios, voru börn Jackie i
Bandarikjunum og Onassis i
Aþenu . Þegar myndin birtist i
blöðunum, flaug Ari strax til
Scorpios, þvi að hann langar
ekki siður en aðra til að vita
hver herrann er. Hvort hann
komst að þvi eða ekki er fjöl-
skylduleyndarmál.
Nýr elskhugi
Gina Lollobrigida er nú 44 ára
gömui, og ekki dauð úr öllum
æðum. Hún leikur enn i kvik-
myndum og skiptir um
elskhuga þegar henni býður svo
við að horfa. Elskhugi hennar
þessa dagana er franski
leikarinn Renaud Verley, sem
er helmingi yngri en Gina.
— Gerið mér þann greiða að lýsa
yður sekan. Ég er nefnilega að
fara i sumarfri á morgun.
— Sjáðu strákinn. Hann er alveg
taugalaus að sofa bara á meðan
þú ert við stýrið.
— Ég veit vel að þetta er hlægi-
legt, en þetta er eina leiðin til að
hafa hann heima á kvöldin.
☆
— Nei, þarna er einkaritarinn
minn.
DENNI
DÆMALAUSI
11uii er að minnsta kosti sjötug en
þó litur hún ekki út fyrir að vera
degi eldri cn 22 ára. Denni, hvar
náðirðu eiginlega i þessi blöð.