Tíminn - 27.10.1972, Blaðsíða 11
Föstudagur 27. október 1!)72.
TÍMINN
11
Krystihdsiö sér algjörlega um
þvolt á vinnufatnaði fólksins. Hér
getur að lita inn i þvottaliúsið.
útflutningsverðmætisins héðan
undanfarin ár.Árið 1971 var okkur
mjög óhagstætt, þar sem bruninn
tafði mjög fyrir rekstri á gamla
frystihúsinu. Það ár fluttum við
út frystar sjávarafurðir fyrir 114
milljónir króna, en nú reiknum
við með að flytja út sjávarafurðir
fyrir 220 — 250 milljónir króna á
ári, og þetta er að sjáifsögðu
miðað við núverandi verðlag.
— En hvað með bátaflotann.er
hann nógu stór til að sjá nýja
frystihúsinu fyrir hráefni?
— Við teljum að svo sé. Héðan
róa að staðaldri sex bátar og
hefur svo verið um nokkrun tima.
Nú erum við búnir að stokka
nokkurn fiskiskipin.
Seldum gömlu skipin og keyptum
ný og stærri skip. Með tilkomu
þeirra reiknum við með að róðra-
fjöldi hvers báts geti aukizt úr 70
róðrum i 90 á vetrarvertið og við
það ætti aflamagnið að aukast, þó
að við gerum ráð fyrir eitthvað
minnkandi veiði.
— Þú talaðir um útflutnings-
verðmæti á sjávarafurðum fyrir
220-250 milljónir króna. Hvað
reiknið þið þá með að bátarnir
ykkar fiski yfir árið?
— Sem stendur myndi það þýða
i kringum 8 þúsund lestir, en
vitaskuld breytist þetta alltaf
með verðlaginu.
Hér á snyrtimennskan
að ráða rikjum
Páll Þórðarson, heitir verk-
stjórinn i frystihúsinu nýja. Hann
er búinn að vinna við fiskvinnsl-
una hjá Freyju siðan 1961, en áður
var hann skipstjóri á bátum frá
Suðureyri.
Við fengum Pál til að ganga
með okkur i gegnum nýja frysti-
húsið. Fyrst litum við á fiskmót-
tökuna. 1 móttökunni eru þrjú
stór kör, og er ávallt haft klór-
blandað vatn i þeim. Þetta gerir
það m.a. að verkum, að fiskurinn
geymist miklu betur i köldu
vatninu og einnig verður fiskur-
inn fyrir miklu minna hnjaskij
þegar honum er sturtað i vatnið
en á sjálft steingólfið. Til þess að
halda enn meiri kulda á fiskinum
er vatnið blandað skelis, og er þá
hægðarleikur að geyma óslægðan
fisk i þessum körum yfir nætur-
tima, án þess að fiskurinn
skemmist hið minnsta. Einnig
er hitastiginu i móttökunni haldið
neðarlega, eða 0-2 gráður.
Slægingin fer fram i næsta sal
frystihússins, en þar er komið
fyrir nýju slægingarkerfi, sem
Sigmund Jóhannsson i Vest-
mannaeyjum hefur fundið upp.
Með þessu kerfi sér sami maður-
inn um að rista á og slita innan úr
fisknum, en samkvæmt gamla
hefðbundna kerfinu, sem notað
hefur verið i áraraðir á Islandi,
hafði hver og einn sitt ákveðna
handtak. Mannshöndin kemur
ekkert nálægt þvi, að koma fiski
frá móttökunni yfir i slægi!!gar.
salinn. Páll segir, að rennandi
vatn og íæriband sjái um að flytja
fiskinn á milli. Það þurfi ekki
annað en að ýta á einn rofa, ef fisk
vanti á slægingarborðið. Á
þessari leið þvæst fiskurinn i
vatninu, en það er ekki minna
atriði að þvo fiskinn áður en hann
er slægður en eftir. Þegar búið er
að slægja fiskinn er hann settur i
kassa, sem hann er svo geymdur i,
þangað til hann fer fram i
flökunasalinn. Og til þess að
fiskurinn rotni ekki i slægingar-
salnum er i hitinn hafður 0-2
gráður.
Páll segir okkur, að þessi hluti
hússins sé eiginlega sjálfstæð
álma. Þeir, sem vinna við að-
gerðina, eiga ekkert samneyti að
hafa við það fólk, sem vinnur i
flökunar- og pökkunarsal. Þess-
vegna hafa aðgerðarmennirnir
sér innganga, sér kaffistofu og
sér snyrtingu. Ástæðan fyrir þvi,
að aðgerðarmönnum er haldið sér
er m.a. sú,að þeir eru ekki eins
háðir fatabúnaði og annað starfs-
fólk hússins.
Ilotnun má ekki eiga sér
staö.
Flökunarsalurinn er alveg skil-
inn frá aðgerðarsalnum, með eld-
föstum vegg og sömu sögu er að
segja um hurðina, aðeins er haft
smáop á veggnum fyrir færi-
bandið, sem flytur fiskinn á milli.
Flökunarsalurinn er búinn full-
komnum flökunarvélum af gerð-
inni Baader 188, sem erfyrir smá
fisk og Baader 99 sem gerð er
fyrir stóran fisk, og að auki eru
þarna fjórar roðfletningarvélar.
Þarna i flökunarsalnum er einnig
að auki aðstaða fyrir átta hand-
flakara, en aðeins er gerð ráð
fyrir handflatningu, þegar um
flatfisk er að ræða. Þó er ekki
ætlunin að flaka grálúðuna i
þessu húsi. Það er hugmyndin að
flaka hana i gamla húsinu.
Ástæðan fyrir þvi er sú, að grá-
lúðan er mjög fitumikil og vill
fitan fara um allt hús. Af þessu
stafar mikill óþrifnaður og þess-
vegna varð það ofan á að flaka
grálúðuna i gamla brunahúsinu.
Inn af flökunarsalnum er kæli-
geymsla, og við spyrjum Pál til
hvers þessi geymsla verði notuð.
Páll segir, að i þessa geymslu
verði flökin sett, ef svo vill til að
ekki hafist undan í vinnslu-
salnum . Þetta er gert til þess að
hafa sem minnst áhrif á vélarnar,
þ.e. að fá sem mesta nýtingu út úr
vélunum. Hann segir ennfremur,
iskiðjunnar Freyju h.f.
ISiimbrjólurinn á Suðureyri er viða mjög illa íarinn^og ibúar staðarins eru bræddir um að hann hverfi
einn góðan veðurdag eins og hliafnargarðurinn i Griinsey.
að þeir hafi lagt höfuð — áherzlu
á að gerlamyndun gæti ekki átt
sér stað i húsinu, eftir að fiskur-
inn væri kominn inn i það, þegar
þeir hófu byggingu þessa húss.
Vinnslusalurinn eða pökkunar-
salurinn, eins og hann er oft
kallaður, er teiknaður af Sigmundj
og er þar um margar nýungar að
ræða. T.d. standa öll borð á einum
fæti, fram til þessa hafa
tiðkazt fjórir fætur á borðunum.
Þetta auðveldar m.a. allan
þrifnað. Þá ganga pönnu-
grindurnar inn i borðin,þegar þær
eru ekki i notkun. Öll lýsing er
framúrskarandi góð, og sömu-
leiðis löftræstikerfið. Þá hefur
verið komið fyrir hátölurum yfir
öllum borðum, þannig að starfs
fólkið getur hlustað á létta tónlist,
sömuleiðis verða hátalarnir
notaðir sem kallkerfi fyrir allt
húsið.
Þegar full vinna er i frystihús-
inu, er áætlað að 60 stúlkur vinni
við pökkun i salnum. en alls
munu 80 manns koma að ein-
hverju leyti nálægt pökkuninni.
Inni af pökkunarsalnum eru
frystitækin og þar fyrir innan
frystiklefinn. Fiskkassarnir
verða allir geymdir á pöllum i
frystikleíanum, þannig að lyftari
selur þá á bil, þegar skipað
verður út, og pallarnir siðan
tæmdir um borð i skipunum.
S0 nianna matsalur.
Það er ekki eingöngu
skipulagning frystihússins, sem
vekur athygli heldur lika allur
Irágangur. Sjálft húsið er stál
grindahús, sem siðan var hlaðið
innan i með hleðslusteini frá Jóni
Lol'tsyni. Á veggjum og i góll'i er
„terrosoplasl” frá Sjöln á Ákur-
eyri. En það er húðunarefni, sem
er einstaklega gott að þrifa og
hægt að fá i mörgum litum. Þetta
elni kemur i stað flisa. i frysti-
húsinu er matsalur, sem tekur 80
marins. Inn af honum er mjög
fullkomið eldhús. Hvoru tveggja
er mjög vandað, og eru l.d. teppa-
flisar á gólfi matsalarins. Þá er
anddyrið stórt og bjart, með fata-
hengjum fyrir starfsfólkið. 1
þessu nýja frystihúsi verður
fyrirkomulagið þannig, að enginn
starfsmaður fær að fara út úr
húsinu i vinnufötunum. Sérstök
kona verður ráðin til að sjá um að
taka við fötum fólksins og halda
anddyrinu hreinu. Hún mun
einnig sjá um að þvo vinnufötin
og til þess eru tvær sjálívirkar
þvottavélar i húsinu. Inn af and-
dyrinu er einnig snyrting fyrir
karla og konur og sérstakur
sjúkraklefi er i húsinu.
Framhald á bls. 19
Páll Þórftarson i pökkunarsalnum
Kaffisalurinn er allur teppalagftur eins og á góftum veitingastað.