Tíminn - 27.10.1972, Page 17
TÍMINN
17
Föstudagur 27. október 1972.
HVERJU SPA ÞEIR UM
EVRÓPUBIKARLEIKINA?
í kvöld, föstudagskvöld, fer
fram fyrri Evrópubikarleikur
Fram og danska liðsins Stadion.
Hefst hann klukkan 20.30 i
Laugardalshöllinni. Mikill áhugi
er á leiknum, svo og siðari leikn-
um, sem háður verður á sunnu-
dagskvöld.
Iþróttasiðan sneri sér til nokk-
urra kunnra iþróttaáhugamanna
og lagði fyrir þá eftirfarandi
spurningu:
Hvernig vegnar Fram i
Evrópubikarleikjunum?
Guðmundur Haraldsson, knatt-
spyrnudómari:
,,Ég spái þvi, að fyrri leiknum
ljúki með jafntefli, en Dönum tak
ist að sigra i siðari leiknum á
sinni alkunnu hörku og komist
þar með áfram i Evrópukeppn-
inni, — þvi miður.”
verði nokkurs konar leynivopn,
a.m.k. i fyrri leiknum.
Ég spái Fram sigri i fyrri leikn-
um 15:13, en liklega endar, siðari
leikurinn með jafntefli.”
keppninnar, en ég vil bæta þvi
við, að enda þótt Fram eigi gott
lið, hefði ég heldur viljað fá að sjá
Val leika i keppninni.”
Kóbert Agústsson, ljósmyndari.
,,Ég hef trú á þvi, að Fram
muni vegna vel i keppninni við
Danina og spái þvi, að liðið vinni
báða leikina. Hins vegar verða
þessir leikir enginn dans á rósum
fyrir Fram, þvi að danska liðið er
annálað fyrir hörku og má þvi bu-
ast við miklum átökum.”
örn Kiösson, iþróttafréttamaður:
,,Ég tel, að leikirnir verði afar
tvisýnir. Hjóðirnar standa á svip-
uðu stigi i iþróttinni, en það að
leikirnir eru báðir leiknir i
Keykjavik, gerir sigurvonir
Fram meiri. í>ó tel ég, að fyrri
leikurinn tapist með einu marki,
en Fram bæti um i siðari leiknum
og vinni með þriggja marka
mun.”
Forsala
aðgöngu-
miða hefst
klukkan 17
Forsala aðgöngumiða að
leik Fram og Stadion i kvöld
liefst kl. 17 i Laugardalshöll-
inui. Er fólki ráðlagt að
tryggja sér miða timanlega til
að forðast þrengsli.
Forsala aðgöngumiða að
siðari leiknum á sunnudag
liefst kl. 17 á sunnudag.
Gunnar Guðmannsson, fram-
kvæmdastjóri:
,,Ég hef ekki trú á þvi, að Fram
komist i 2. umferð keppninnar.
Svartsýni min stafar af þvi, að
mér l'innst Fram ekki hafa sýnt
nægilega góða leiki i Reykjavik-
urmótinu til þessa. En komist lið-
ið áfram verður gleðin þvi
meiri.”
Atli Steinarsson, blaðamaðbr á
Mbl:
,,Ég hef mikla trú á Fram, ekki
sizt vegna þess, að liðið leikur
sterkan varnarleik. Að minni
hyggju er vörnin sterkari hlið
liðsins, en Fram hefur einnig
góða skotmenn, Axel Axelsson og
Björgvin Björgvinsson, sem eru
sérfræðingar hvor á sinu sviði, ef
svo má segja. Annar er lang-
skytta, en hinn linumaður. Ég
held, að Danirnir meti Axel ekki
sem skyldi eftir að hafa séð hann
á Olympiuleikunum. Þess vegna
þykir mér ekki ótrúlegt, að hann
Birgir Lúðviksson, varaformaður
Fram:
„Þetta verða eflaust mjög tvi-
sýnir leikir. Ég hef trú á þvi að
Fram vinni fyrri leikinn með
tveggja marka mun, 17:15, en vil
engu spá um siðari leikinn.”
Birgir Viðar Halldórsson:
,,Ég spái þvi, að Fram vinni
fyrri leikinn með fjögurra marka
mun, 22:18, en siðari leiknum
lykti með jafntefli. Fram hefur
sýnt ágætan handknattleik og á
skilið að komast i 2. umferð
Búast við hörðum
leikjum gegn Fram
Leikmenn danska liðsins Stadion komutil Íslandsígær
„Likurnar eru mjög jafnar”
sögðu tveir kunnustu leikmenn
danska handknattleiksliðsins
Stadion, þeir Jörgen Frandsen og
Bent Jörgensen, þegar þeir voru
beðnir að spá um úrslit leikja
Fram og Stadion i Evrópubikar-
keppninni.
Danska handknattleiksliðið
kom til landsins i gær og hitti
blaðamaður Timans þá félaga á
Loftleiðahótelinu i gærkvöldi.
Aðspurðir sögðust þeir ekki
þekkja einstaka leikmenn Fram,
þvi að ekki hefði gefizt tækifæri til
að „stúdera” þá i Olympiu-
keppninni.
Jörgen Frandsen hefur marg
sinnis leikið hér á Islandi áður, en
aðeins tveir aðrir liðsmenn hafa
leikið hér áður.
Þeir félagar sögðu, að það væri
eingöngu af fjárhagslegum
ástæðum, sem Stadion hefði sam-
þykkt að leika báða leikina á Is-
iandi.
Um það, hvort þeir byggjust við
hörðum leikjum gegn Fram,
sögðu þeir að eflaust yröu
leikirnir harðir, en hins vegar
óttuðust þeir ekki hörkuna.
I gærkvöldi hvíldu leikmenn
Stadion sig eftir ferðalagið, en
núna fyrir hádegi, munu þeir fara
á létta æfingu i Laugardals-
höllinni, en leikurinn i kvöld hefst
kl. 20.30.
Bent Jörgensen og Jörgen Frandsen.
(Timamynd Róbert)
Haukar leggja mikla áherzlu
á fjölgun liða í 1. deild
- átelja einnig bæjarstjórnina í Hafnarfirði fyrir seinagang vegna afhendingu Haukahússins
Haukar hafa mikinn
áhuga á því að liðum í 1.
deild í handknattleik verði
fjölgað úr 7 í 8. Kemur
jjetta fram í fréttatilkynn-
ingu frá handknattleiks-
deild félagsins, en hún er
svohljóðandi:
Aðalfundur handknattleiks-
deildar Hauka, var haldinn hinn
22. október s.l.
Á fundinum, sem var fjölsóttur,
fóru fram auk venjulegra aðal-
fundarstarfa, fjörugar umræður
um málefni handknattleiks-
iþróttarinnar.
Nokkrar samþykktir voru gerð-
ar á fundinum m.a. þessar:
„Fundurinn samþykkir að skora
á bæjarstjórn Hafnarfjarðar, að
vinda bráðan bug að þvf, að
ganga frá samningum við stjórn
Knattspyrnufélagsins Hauka, um
afhendingu fiskverkunarhúss
Jóns Gislasonar, „Haukahúss-
ins”, og átelur harðlega þann
drátt, sem orðið hefur á af-
greiðslu málsins, iþróttalifi Hafn-
firðinga til mikils skaða”.
Fundurinn lýsir stuðningi sin-
um við tillögu HKRH til ársþings
HSl, um fjölgun liða i 1. deild i
átta, og lokun 2. deildar með
sama liðafjölda.
Telur fundurinn, að nauðsyn sé
á þvi að taka skipulagsmál hand-
knattleiksiþróttarinnar til endur-
skoöunar nú þegar, með út-
breiðslu hennar úti á landsbyggð-
inni efst i huga.
Álitur fundurinn, að handknatt-
leiksiþróttin muni dragast aftur
úr öðrum innanhúsiþróttagrein-
um, ef ekki verður strax gripið til
róttækra ráðstafanna.
Telur fundurinn, að skipulag 1.
og 2. deildar með átta liðum, sé
fyrsta skrefið i þessa átt, og felur
fulltrúum sinum á ársþinginu, að
styðja framkomna tillögu HKRH.