Tíminn - 05.11.1972, Side 14

Tíminn - 05.11.1972, Side 14
14 TÍMINN Sunnudagur 5. nóvember 1972 „Takið eins litið og þið komizt af með,” skaut Paterson inn i, ,,en takið með ykkur hlý föt, ef þið eigiö þau til. Næturnar eru kaldar á þessum árstima, og á daginn er alltaf hægt að fækka fötum, ef veður verður of heitt.” Frú Portman brosti vingjarnlega til Patersons og saup siðan á glasinu. Hún kærði sig ekki um að tala meira við Connie og gramdist, að hún, sem hafði átt svo lengi heima i þessu loftslagi, skyldi þurfa að fá svar hjá honum við heimskulegri spurningu um klæðnað. Paterson fann, hvernig kampavinið hitaði honum. Blóðið streymdi þægilega fram i andlitið, og vinið hafði þau áhrif, að hann leit mildari augum á mannskapinn kringum borðið, hann fann jafnvel hvöt hjá sér til að vera vingjarnlegur við þau. Hann langaði óneitanlega til að drekka sig fullan, en við það biði traust þessa fólks á honum of mikinn hnekki. Það var kenning Portmans viðvikjandi drykkjuskap. Einnig gæti það leitt til vandræða og gauragangs, það var Bettesons-kenning. Samt fann Paterson meö vaxandi ánægju, hvernig góðmennska hans náði smám saman yfirhöndinni. Sifellt varð styttra og styttra milli sop- anna. Hann naut þeirrar hitatilfinningar, sem kampavinið veitti. Að lokum komst hann að þeirri niðurstöðu, að þegar öll kurl væru komin til grafar, væri þetta fólk liklega ekki sem verst. Betteson, sem hann fyr- irleit venjulega ennþá meira en hann fyririeit Portman, frú McNuirn greindari og þar af leiðandi hættulegri andstæðingur en frú Portman, og að lokum vesalings frú Betteson, sem sennilega var alls ekki eins skrýtin og menn héldu. Hvað Connie viðvék var hann svo vinsamlegur, að nálgaðist viðkvæmari tilfinningar. Með siðasta kjúklingsbitann i munninum fannst honum þó, að þau gætu tæplega átt allan þennan veljvilja skilinn. 1 þessu ljósi sæi hann þau vafalaust aldrei framar. Tuesday var fremur lengi að koma isréttinum á boröið, og Paterson reis upp og fór að hella i glösin. „Nei þökk”, sagði frú McNairn. „Nei kærar þakkir”. Hún hélt hend- inni yfir glasinu sinu. „Ég býstekki við, að Connie vilji meira heldur” „Við Connie komumst að þvi i sameiningu”, svaraði Paterson. „Það eru tvær flöskur i isskápnum ennþá”. Þetta var likt honum, hugsaði Portman og það ekki i fyrsta skipti. Hann sat þráðbeinn i stólnum, virðulegur og dálitið stór upp á sig. Hann hafði ekki i hyggju að gefa Paterson færi á sér. Paterson fyllti glasið hans. Siðan sagði Paterson eins og hann sneri sér einungis til Portmans: „Við ættum að fara yfir áætlunina frá upphafi til enda til þess að allir séu vissir um, hvernig þetta verður, hvernig, hvenær og svo framveg- is”. „Ég vona að minnsta kosti, að við getum orðið sammála um að leggja öll al' stað i einu”, sagði frú McNairn. „Já, þar hafið þér rétt íyrir yður”. Tuesday kom inn með fallega skreyttan isréttinn. Það varð þögn við borðið, meðan hann bauð isinn hringinn i kringum borðið, rólega og hávaðalaust. Portman datt i hug, að Paterson vildi biða með framhald- ið þar til drengurinn væri farinn. Paterson fyllti glösin úr annarri kampavinsflöskunni. Frú Portman sat aftur heilluð og starði á Paterson. Hrollur fór um hana við þá tilhugsun, að hann hygðist hella þau öll full. „Það er aðeins ein leið, sem við getum notað, og það er vegurinn norður”, sagði Paterson. „Rétt”, samsinnti Betteson. „Jú, loftleiðin”, mótmælti Portman. „Við höfum tvo bila, minn og Portmans. Ég á tengivagn á minn". Frú Betteson hafði ekki augun af Tuesday, sem stóð úti i horni og brosti sinu breiðasta brosi. Það var eitthvað yfirnáttúrlegt.við þetta bros, þótt það hyríi, leið aldrei á löngu þar til það birtist aftur, og frú Betteson, sem fannst þetta dásamlegt bros, reyndu árangurslaust að vekja athygli Joes á þvi. Betteson var upptekinn við að fylgjast með Paterson, sem hélt um glasið sitt báðum höndum. Það færi ekki hjá þvi, áleit Betteson, að þetta yrði einn helvitis gauragangur. „Ég gæti trúað, að okkur tækist að búa til tengivagn á bílinn hans Portmans. Heppnist það, getum við haft bensinið i öðrum vagninum og vistir og vatn i hinum. Portmanhjónin og frú McNairn og Connie eiga að vera i Portmans bil. Frú McNairn fékk sting i hjartað við að heyra Paterson nefna Connie með fornafni, en hún bjóst við að mega þola þess háttar smekkleysi, þegar hún neyddist til að umgangast Paterson. Hann var bæði smekk- laus og kumpánlegur i senn. Siðan verða ég, Bettesonhjónin og majór Brain I hinum bilnum”. „Meðal annarra orða”. greip frú'Portman inn I, „hvar er majór Brain?” „Ég fékk skilaboð frá honum þess efnis, að hann hefði farið á sjúkrahúsið. Það litur út fyrir, að ungfrú Alison fari lika”. Einmitt það, hugsaði Connie, leynileg samtök milli Brain majórs, blendings hjúkrunarkonunnar og Patersons. Hún fann til nýrrar auðmýkingar við þetta. Mjor Brain var mjög geðþekkur maður og Connie hafði eytt með honum mörgum stundum. Þannig lá þá i þvi. Brain hafði þá allan timann verið i vitorði með Paterson. Það var þokkalegt eða hitt þó heldur að vita þetta fyrst núna. „Hversu mörg verðum við þá samtals?” sagði Betteson eins og við sjálfan sig. „Fari ungfrú Alison með, verðum viöellefu”, svaraði Paterson. „Ellefu?” sagði Portman, „hvernig má það vera?” Betteson dýfði isvöfflu i kampavinið og athugaði hana gaumgæfilega, áður en hann stakk henni upp i sig. „Mér reiknast til, að viö verðum niu”, sagði ungfrú McNairn. „Þér gleymið drengnum og systur hans”, svaraði Paterson. „Guð varðveiti okkur”, muldraði Portman. Athugasemd hans kafnaði i orðaflaumnum, sem hófst, þegar allir fóru að tala. Það var óhugsandi að greina, hvað hver sagði, þar til Paterson sagði, hærra en venjulega: „Kærið ykkur ekki um það, það geta auðveldlega verið sjö i buikkn- um”. „Það er ekki einungis það, sem um er að ræða”, svaraði Portman. Hann þagði litla stund þvi þetta snerti hann illa, og hann vissi ekki vel, hvað hann ætti að segja. „Úr þvi að við tökum tvo innfædda með, þvi þá ekki að taka tiu eða tuttugu? Hvað segðuð þér, ef við kæmum drösl- andi með þjóninn okkar?” „Komið bara með hann, við finnum áreiðanlega stað handa honum”. „Hversu margar systur á hann?” sagði Betteson hlæjandi, hann stóð i þeirri meiningu, að hann hefði verið fyndinn, en enginn hló með hon- um. Ungfrú McNairn var brugðið. Hún var algerlega orðlaus. Hin sögðu ekkert heldur, og Paterson greip tækifærið og sagði: „Við skulum koma og fá okkur kaffisopa”. Hann er nú hálfgerð gunga lika, hugsaði ungfrú McNairn. Þau færðu sig inn i dagstofuna. Hún var i forsælu, og þar var þægilega svalt og skuggsýnteftir hitasvækjuna og birtuna i borðstofunni. Aftur leit Port- man á gluggatjaldalausa gluggana, og imyndaði sér þá með mynstruð- um silkitjöldum, sem hann gæti fengið i birgðageymslu hersins i Kalkútta. Frú Betteson sagði skrækri röddu: 1251 Lárétt 1) Borg,- 6) Litu,- 8) Hlemmur,- 10) Svik- 12) Burt.- 13) Leit - 14) Fæðu.- 16) Tók,- 17) Kveði við,- 19) Drang,- Lóðrétt 2) Ilát,- 3) Viðurnefni,- 4) Kona - 5) Draugs.- 7) Jökull - 9) Ýta fram,- 11) Kona.- 15) Verkfæri- 16) Egg- 18) Jarm,- 18) Jarm.- Ráðning á gátu No. 1250 Lárétt 1) Glápa.- 6) Úða,- 8) Los.- 10) Rós,- 11) Dr.- 12) Mó,- 13) Uml,-16) Kam,-17) Áka,- 19) öskra,- Lóðrétt 2) Lús.- 3) Áð.- 4) Par,- 5) Eldur - 7) ósómi - 9) Orm,- 11) Öma.- 15) Lás,- 16) Kar - 18) KK,- Rólegur 'lGetum við ) Hvað um það fursti / treyst nenni ^okkur að mark- inu. eftir þetta yHöldum áfram með verkefni okkar. hún kom D R E K I Þeir dauðu risa ekki upp Þeir dauðu koma ekki til baka 1 iiiiill SUNNUDAGUR 5. nóvember 17.00 Kndiirtekið efni. Afreksmemi á iild hraða. Bandarisk mynd um hraðakstur og tilraunir manna. til að setja hraða- met i akstri bifreiða. Þýðandi og þulur Ellert Sigurbjörnsson. Aður á dag- skrá 30. ágúst s.I. 18.00 Stundin okkar. Fyrst koma Glámur og Skrámur i héimsókn. en að þvi búnu verður flutt barnasaga með myndum. Þá syngur skáta- kór nokkur lög og loks verður sýndur þáttur úr myndaflokki samska sjón- varpsins um Linu Langsokk. Umsjónarmenn Ragnheiður (íestsdóttir og Björn Þór Sigurbjörnsson. 18.15 Knska knattspyrnan. 20.00 Fréttir 20.20 Veður og auglýsingar 20.25 Kldstiiðvar i jöklum. Þýzk mynd um jarðfræði fs- lands og jöklarannsóknir. I myndinni greinir frá rann- sóknarleiðangri. sem farinn var vorið 1971 til Grimsvatna og Kverkfjalla. Þýðandi K r i s t j á n Sæmundsson, jarðfr. Þulur Jóhann Pálsson. 21.00 Klisabet 1. Framhaldsleikrit frá BBC. 5. þáttur. .Þýðandi Jón Thor Haraldsson. Efni 4. þáttar: 22.30 Að kvöld dags.Séra Árni Pálsson flvtur "hugvekju. 22.40 Dngskrái'lok. MaNUDAGUR 6. nóvember 20.00 Krétlir 20.25 Veður og auglýsingar 2 0.3 0 B o k a k y n n i n g . Eirikur Hreinn Finnboga- son, borgarbókavörður, getur nokkurra nýútkom- inna bóka. 20.40 Fra mboösflokkurinn. Heimildarkvikmynd, gerð af Þorsteini Jónssyni, um hlut flokksmanna Fram- boðsf lokksins i siðustu Alþingiskosningum. 21.05 Vineent van Gogb. Brezk mvnd um hollenzka málarann van Gogh, ævi hans og list. Brjálaði Hollendingurinn. eins og hann er stundum kallaður, fæddist árið 1853. Hann byrjaði ungur að mála. og eftir hann liggur mikið magn málverka. en veru- legri viðurkenningu eða hylli hafði hann ekki náð. er hann lézt. ta'plega l'ertugur að aldri. i þessari mynd er ævi hans rakin og leikin atriði úr lili hans siðustu árin. Með aðalhlutverkið fer Michael Gough. Þýðandi Höskuldur Þráinsson. 22.05 Tonlistin byggir brú. Mvnd fra Sameinuðu þjóðunum. Vehudi Menuhin og Muir Mathieson ræöast við og bera saman tónlist Austurlanda og Vestur- landa. Þýðandi óskar Ingimarsson. 22.30 Dagskrárlok. lllll lllÍÍfi Sunnudagur 5. nóvember 8.00 Morgunandakt. Séra Pét- ur Sigurgeirsson vigslu- biskup flytur ritningarorð og bæn. 8.10 Fréttir og veðurfregnir. 8.15 Létt morgunlög. Hljóm- sveitin Nýja Philharmonia leikur franska óperufor- leiki, Richard Bonynge stj. Hljómsveit Hans Carstes leikur vinsæl tónverk. 9.00 Fréttir. útdráttur úr for- ustugreinúm dagblaðanna. 9.15 Morguntónleikar. (10.10 veðurfregnir). Þrjú tónverk eftir Bach: 11.00 Messa i Skálholtskirkju. (Hljóðr. 1. f.m.) Prestur: Séra Jón Guðjónsson

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.