Tíminn - 15.11.1972, Blaðsíða 1
IGNIS
KÆLISKÁPAR
RAFTORG
SÉMI: 26660
RAFIÐJAN
SIMI: 19294
2>A<i<te/U»cfa/t á/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarslræti 23
Simar 18395 & 86500
-
Loftfararnir að máta faUhlífar á Keflavikurflugvelli. — Timamynd Gunnar.
Nú veltur allt á Loftferðaeftirlitinu:
Veiti þeir samþykki sitt í dag
gæti flugtak orðið á morgun
Stp—Reykjavik.
— Við hittum Sigurð Jónsson,
forstjóra Loftferðaeftirlitsins, að
máli i morgun varðandi flugfar-
leyfið.og tók hann okkur mjög vel.
Sagðist hann hafa áhuga á hug-
mynd okkar og myndi reyna allt
sem hann gæti, til þess að við
Litlu munaði í
Hvalnesskriðum
GA—Breiðdalsvik 14/11
Minnstu munaði i dag, að bill
frá Hornafirði færi fram af
veginum i Hvalnesskriðum, en
þar er hátt niður og snarbratt.
Lenti billinn I hálku og rann til og
tókstbilstjóranum, sem var einn
i bilnum, aö stööva hann á brún-
inni, en þá héngu framhjólin i
lausu lofti. Var billinn á suðurleið
austan af fjörðum.
Hér er fremur rólegt um þessar
mundir eftir sláturtiðina. Veður
er bjart en kalt og dálitill snjór.
Vegir munu að mestu færir i allar
áttir.
fengjum leyfi til flugs. Þó tók
hann fram, að hann teldi okkur
hafa valiö óhentugan árstima.
Hann sagöi, að ef við kæmum
með skýrslur um loftbelginn og
allan hans búnað til Loftferða-
eftirlitsins, myndu þeir að öllum
likingum gefa út takmarkað
flugleyfi, sem notað væri i til-
fellum eins og þessum, flugi á
loftbelgjum, girókoptum og þess
háttar, sem ekki er flogið nema
endrum og eins.
Þetta höföu loftbelgssmiðirnir
að segja fréttamanni, er hann
hitti þá að máli i gærkvöldi.
Eftir hádegi i gær fóru þeir
félagar suður á Keflavikurflug-
völl til þess að hitta kunningja
sina og hjálparmenn þar, sem
verið hafa einkar áhugasamir frá
upphafi þessa máls. Erindið var
annars að ganga frá samkomu-
lagi við Varnarliðið varðandi
öryggismálin, um að Varnarliðið
láti þeim i té ýmis öryggistæki,
svo sem búninga, fallhlifar,
hjálma, björgunartæki og sendi-
tæki. Og einnig samkomulagi um,
að Varnarliöið verði til taks, ef
eitthvað kemur fyrir á fluginu og
hafi eftirlit meö þeim.
Suöur á Velli i gær prófuðu hinir
væntanlegu loftbelgsflugmenn
þessi tæki, settu á sig
fallhlifarnar (sem eru 20-25 pund)
með miklum tilburðum og fóru i
búningana, en það eru vatnsþéttir
flugmannabúningar og má geta
þess, að Holberg, Der FQhrer, á
einmitt slikan búning og hefur
synt i honum bæði i sjó og ám.
Þeir, sem mest höfðu með
málið að gera á Keflavikurflug-
velli, voru Commander Pile, sem
sá einkum um útvegun á öllum
tækjum, og Burn, sem er lög-
fræðilegur ráðunautur Varnar-
liðsins. Þá sýndi Marshall
Thayer, blaðafulltrúi Varnar-
liðsins.mikinn áhuga á allri fram-
kvæmdinni. Má geta þess, að loft-
belgsmenn hafa boöið þessum
mönnum og fleirum, er hjálplegir
hafa verið, að vera viöstaddir, er
loftbelgurinn fer á loft frá Sand-
skeiði.
1 dag ráðgera þeir félagar að
fara aftur suður á Völl og taka þá
Frh. á bls. 15
Öræfingar á dans
leik á Klaustri
— voru aðeins tvo tíma hvora leið
ÞÓ—Reykjavik.
Það mun vera nýlunda, að
öræfingar fari vestur yfir
Skeiðarársand á dansleik. Þetta
gerðist þó siðastliðinn laugardag,
en þá héldu 14 ungir öræfingar
vestur yfir sandana og fóru á
dansleik á Kirkjubæjarklaustri
um kvöldiö. Siðan var gist á
Klaustri ,um nóttina og haldið
heim i býti á sunnudagsmorgun,
og gekk feröin austur ágætlega.
Einn þeirra, sem sótti dansleik-
inn á Kirkjubæjarklaustri, er Ari
Magnússon frá Hofi i öræfum.
Hann sagði, er við ræddum við
hann, að þetta væri vist i fyrsta
skipti, sem öræfingar hefðu farið
i slika skemmtiferð vestur yfir
sandana. Yfirleitt væri farið i
öðrum erindagjörðum, og þá
kannski nauðsynlegri.
Fjórtánmenningarnir lögðu af
stað eftir hádegi á laugardag á
tveim Land Rover-jeppum og
sóttist ferðin að óskum.
Vatnið i Skeiðará var ekki
meira en svo að vaöa mátti yfir
ána með herkjum i klofháum
stigvélum, og þykir það ekki mik-
ið vatn fyrir jeppa til aö svamla
yfir. Helzti tálminn á leiðinni var,
þegar þurfti að brjóta isskör yfir
árnar, en það var þó fljótlegt
Frh. á bls. 15
Gáfu gróðann
Þessi frlði hópur ungmenna er úr 2. bekk A i Réttarholtsskólanum I
Reykjavik. Hann gerði sér ferð i bæinn I gær til að afhenda Jóni
Asgeirssyni, framkvæmdarstjóra landhelgissöfnunarinnar, peninga-
upphæö, sem nam kr. 22.051.50, en peninganna höföu unglingarnir aflaö
meö ýmsum hætti til að gefa i landhelgissöfnunina. Héldu þau m.a.
dansleik i skólanum, sem þau sögöu sjálf,aö heföi veriö bezta ballið,
sem þar heföi veriö haldiö, og einnig gáfu þau hluta af vasapeningum
sinum. Þetta er fyrsti skólabekkurinn, sem gefur I söfnunina, sem nú
nemur um 20.2 milljónum króna, og væri ánægjulegt ef fleiri unglingar
sýndu þessu máli jafn mikinn áhuga og þessi hópur úr 2. bekk A I
Kéttarholtsskóla. (Tímamynd GE)
Uppreisnarblað gefíð út
af Verzlunarskólanemum
,,Kæru, upprennandi
okrarar!!” er letraö stórum
stöfum fremst I skólablaöi
Verzlunarskólans I Reykjavlk,
Viljann: „Farþegar! Stöndum
saman aö uppreisn á hinum
miglekandi Mammonsdalli”.
Siðan er haldið áfram:
„Nýjum farþegum (svonefnd-
um busum) vil ég óska til
hamingju með inngöngu sina
um borð, um leið og ég vona,
að þeir verði okkur hinum
þrælunum til stuðnings við að
troða upp i rifurnar, sem
myndazt hafa undir aga skip-
stjórnar”.
Á næstu siðu er þvi lýst,
hvernig stjórn skólans er
skipuð. „V.I. er sjálfseignar-
stofnun undir stjórn
verzlunarráðs Islands. Þetta
ráð kýs svo árlega fimm
manna nefnd — svokallaða
„skólanefnd... En hverjir
skipa svo þessa „nefnd”?
(Samkvæmt forskriftinni
koma ekki aðrir til greina en
stórbissnismenn og fyrr-
verandi nemendur og
„velunnarar skólans”
A baksiðu ellefu er mynd af
fjórum nemendum, núverandi
og fyrrverandi trúnaðar-
mönnum félagssamtaka i
skólanum, þar sem þeir
standa álútir með hendur á
baki likt og fangar, sem látnir
eru grúfa sig við múr. Yfir-
skriftin er: „Veslingar”, en
undir stendur „Stöndum sam-
einuð”.
Þetta er aðeins litið sýnis-
horn þess, sem þetta skólablað
flytur, og hefði slikt einhvern
tima þótt tíðindi til næsta
bæjar. Verður ekki önnur
ályktun dregin en uppreisnar-
ástand riki I skólanum, enda
er hvað eftir annað hrópað há-
stöfum á byltingu I blaðinu:
„Þið útsofnu, magafullu ves-
lingar! Vaknið og hristið af
ykkur slénið. „Byltingin er
hafin”. Hinir kúguðu risa
gegn hinum gráklæddu
herrum I hvituskyrtunummeö
svörtu bindin”.
Upphaf greinar, sem heitir
„Lausnin”, er á þessa leiö:
„Að svo komnu máli sjáum
við aðeins eina lausn á vanda
þeim, sem skólinn „okkar” er
kominn i. Sú lausn er þjóö-
nýting skólans (þaö er.að rikið
taki við rekstri og stjórn
skólans)”. Um einkafram-
takið segir i þessu sama blaöi:
„Það sem gerir hið „frjálsa
framtak” aðeins aö óraun-
hæfum orðum, er aömjögfljót-
lega ná „hinir sterkari” ein-
okunaraðstæðum, sem svo
útilokar alla samkeppnis-
möguleika fyrir hina
„veikari”. A næstu siðu fær
svo „kökubotnahugsunar-
háttur” kommúnistalanda
sinn afmælda skammt.
Þess má geta, að búið var að
bjóða blaðamönnum á
nemendafund i gærkvöldi, en
það var siðan afturkallað.