Tíminn - 16.11.1972, Qupperneq 4
4
TÍMINN
Fimmtudagur 16. nóvember 1972
Fulltrúar samtakanna „Þjóö mcö þjóö” ásamt Jóni Sigurðssyni, stjórnanda lúörasveitarinnar Svans
(lengst til vinstri). Annar frá vinstri er framkvæmdastjóri samtakanna i Kaupmannahöfn, Jörgen
Dangard. Myndin átti aö birtast meö grein á bls. 15 i blaöinu i gær.
Hvernig leysast fjármálin?
Verða auglýsingar áloft-
belgnum eða ekki?
Stp—Keykjavik
Meðan nokkrir loftbelgsmanna
skruppu suöur á Keflavikurflug-
viill i gær til námskeiös i mcöferö
iiryggistækja loftbelgsins, voru
þeir nafnarnir Ágúst Gunnarsson,
Ijósamaöur iTónahæ, meö mciru,
og Agúst llaröarson, rótari
liljómsvcitarinnar lcccross, aö
sinna ýmsuin máluin loftbelgs-
fyrirtækisins. Var þaö fjármála-
liliöin. scin þeir voru aö striöa i,
cn bún ásemt binni opinbcru liliö
er uú þaö, er cinkum setur loft-
belgsferöinni limatakmörk.
Fréttamaður var i för með
þeim nöfnum i gær og fylgdist
með vafstri þeirra. Málin standa
þannig,að Varnarliðið hefur fyrir
sitt leyti samþykkt að lána marg-
nefnd öryggistæki, en þvi sam-
komulagi lylgir það skilyrði frá
þeirra hálfu, að engar aug-
lýsingar verði á loftbelgnum. Nú
er hins vegar svo komið, að fjöl-
mörg fyrirtæki hafa sýnt mjög
mikinn áhuga á að auglýsa sig á
honum.
Dessar auglýsingar myndu
vafalaust borga allan kostnað við
loftbelginn, sem orðinn er allhár,
og jafnvel meira en það. Það"
virðist þvi liggja nokkuð ljóst
fyrir, að ef þeir félagar geta
keypt nauðsynleg öryggistæki og
búnað eða fengið þau án áður-
nefndra skilmála annars staðar
en hjá Varnarliðinu, þá sé loft-
belgsfyrirtækinu borgið fjárhags-
lega. Nauðsynleg tæki, keypt
vestur i Bandarikjunum , munu
kosta um 170 þúsund isl. kr. Þá
skal tekið fram, að að sögn þeirra
nafna i gær, geta þeir fengið
mestan hluta tækjanna kostnað-
arlaust hérlendis.
Það er sem sagt ekki ljóst enn,
hvernig fjármálum loftbelgs-
fyrirtækisins verður háttað, hvort
þau verða leyst með að gefa
fyrirtækjum kost á að auglýsa á
belgnum eða annarra ráða verði
leitað. Nafnar sögðu i gær, að
plássið, sem auglýsendur gætu
fengið, væri að flatarmáli jafnt
stafnhlið Tónabæjar þeirri er
snýr út að Skaftahlið. óska þeir
þess, að fyrirtæki leggi fram
tilboð, svo að þeir sjái betur, hvar
þeir standa, ef að auglýsingum
yrði.
Það mun taka alllangan tima
að setja gasið á loftbelginn uppi á
Sandskeiði og ganga frá honum til
flugtaks. Þvi hafa loftfarar mjög
verið að svipast um eftir ein-
hverju skýli, er þeir gætu flutt
upp eftir og hafzt við i, meðan á
áfyllingu stendur. t gærkvöldi var
þessi vandi leystur, er samkomu-
lag náðist við heild- og umboðs-
verzlunina Gisla Jónsson og Co.
um að fá hjá þeim lánað hjólhýsi.
Loftfarar munu þvi geta haft það
nokkuð notalegt, er þar að kemur,
hitað sér kaffi og hlýjað sér.
AAikið
flogið
vestra
Iðnnemar á Selfossi
vilja sjá loftfarið
— þegar það kemst á loft á Sandskeiði
FréUir Timans um loftfariö og
samtöl þau viö piltana úr llamra-
hliöarskólanum. er birzt bafa á
siöum hans, liafa vakiö athygli
viða um land, og eru talsverð
brögð aö þvi, aö hringt sé til
blaösins til þess aö fá skjótar
fréttir uin framvindu þessa máls.
Eitt skemmtilegasta dæmið er
frá Selfossi. Þar var komið
kennslu i einum bekknum i iðn-
skólanum á Selfossi, að fjalla átti
um eðlisþyngd lofttegunda. Það
kveikti löngun nemendanna til
þess að vera nærstaddir, þegar
ÞÓ—Reykjavik
Varðskip kom að nokkrum tog-
bátum að veiðum suð-austur af
Ingólfshöfða i gærmorgun.
Reyndust 5. þeirra vera innan 6
milna fiskveiðimarkanna, og
voru þeir allt að tveim milum
fyrir innan.
Bátarnir, sem varðskipið tók
loftfarið fer á loft.
— Það var piltur héðan af Sel-
fossi, sem vakti máls á þessu,
sagði Guðmundur Ákason, eðlis-
fræðikennarinn og svo fékk hann
að fara i simann til þess að ná tali
af ykkur. Svona nýstárleg áform
vekja forvitni ungra manna og
reyndar fleiri , og það var fitjað
upp á þvi.að nemendur fengju fri
til þess að bregða sér upp á Sand-
skeið, ef unnt væri að fá nokkurn
veginn örugga vitneskju um,
hvenær yrði látið til skarar
skriða, ef af loftferðinni verður að
sinni.
innan fiskveiðimarkanna eru:
Haukafell SF 11 I , Jökull SH 77,
Kópanes RE 8, Hópsnes GK 77 og
Brynjólfur AR 4.
Varðskipið skipaði bátunum að
halda þegar til hafnar, og fór
hver til sinnar heimahafnar.
Verða mál skipstjóranna tekin
fyrir um leið og bátarnir koma
inn.
GS—tsafirði.
Það var mikið annriki hjá Herði
Guðmundssyni, flugmanni , á
mánudaginn- Dagurinn byrjaði
með þvi, að klukkan 10 fór hann
til Patreksfjarðar og sótti þangað
lækni og lyfsala,sem fluttir voru
til Þingeyrar. Að þvi loknu flaug
hann til tsafjarðar og fór siðan
inn i Reykjanes. Þegar Hörður
kom til baka á Piper Aztec vél-
inni, var ekki til setunnar boðið,
þvi nú þurfti að fljúga með póst og
farþega til Þingeyrar, Bildudals
og Patreksfjarðar. A Þingeyri
var tekinn sjúklingur, sem fluttur
var til Patreksfjarðar. Frá
Patreksfirði var haldið til tsa-
fjarðar og var þá farið að rökkva.
Þá barst beiðni um sjúkraflug frá
önundarfirði. Flaug Hörður
þangað og lenti á Holtsflugvelli i
önundarfirði. Þangað var
sjúklingurinn fluttur á báti frá
Flateyri, þar sem ófært var á bil-
um fyrir Onuridarfjörð. Siðan var
flogið i snarhasti til tsafjarðar,
þar sem sjúklingurinn var lagður
inn á sjúkrahúsið. —
Þegar hér var komið átti
Hörður eftir að fljúga til Bildu-
dals og tsafjarðar i tsafjarðar-
djúpi,en ekkert varð af þvi vegna
myrkurs.
Það er óhætt að fullyrða, að
erfitt er að halda uppi sjúkraflugi
svo að vel sé héðan frá tsafirði,
þvi að styrkir til sjúkraflugs hér
frá heilbrigðismálaráðuneytinu
eru ekki meiri en sem nemur
mismun á bensinverði hér og i
Reykjavik, en hér vestra er bens-
inlitrinn þrem krónum dýrari.
Alls staðar þykir sjálfsagt, að
hið opinbera eigi og reki sjúkra-
bifreiðar, en sjúkraflug virðist
mæta litlum skilningi.
Varðskip tók fimm
báta í landhelgi
Vélstjóranámskeið
á Höfn og ísafirði
Páll Þorsteinsson (F) mælti i
gær fyrir frumvarpi, sem hann
flytur ásamt Bjarna Guöbjörns-
syni (F) i efri deild.um breyt-
ingar á lögum um vélstjóranám
þess efnis, að námskeiö, sem vciti
þá fræðslu, sem þarf til að ljúka 1.
stigi vélstjóranáms, skuli haldiö á
Höfn f Hornafirði og ísafiröi til
viðbótar við þá staöi, þar sem slik
námskeið eru nú haldin.
t framsöguræðu sinni benti Páll
á, að þetta frumvarp hefði verið
flutt á siðasta þingi og þá verið
nálægt lokaafgreiðslu; þegar
verið afgreitt i annarri deildinni
og afgreitt úr nefnd i hinni. Hins
vegar hefði ekki unnizt timi til
þess á siðustu dögum þingsins að
afgreiða það endanlega, og væri
það þvi endurflutt nú. —EJ.
Viðaukagjöld til ríkissjóðs
Fjármálaráðherra mælti fyrir
stjórnarfrumvarpi um innheimtu
ýmissa gjalda með viðauka á
fundi neðri deildar i gær.
Frumvarpið felur i sér, að
rikisstjórninni sé heimilt aö inn-
heimta á árinu 1973 með viðauka
eftirtalin gjöld til rikissjóðs:
a. Með allt að 140% viðauka
stimpilgjald af öðru en afsölum
fyrir fasteignum og skipum,
leigusamningum um jaröir og
lóðir og af kaupmálum.
b. Meö allt að 140% viöauka
leyfisbréfagjöld, önnur en þau, er
um ræöir i aukatekjulögum nr.
104/1965.
Þetta þýðir, að heimilað verður
að innheimta þessi gjöld með
sömu viðaukum á árinu 1973 og
gert hefur verið á þessu ári.
Málin var visað til nefndar án
frekari umræðna. EJ
ÖRN SN0RRAS0N F0RMAÐUR
FRAMSÓKNARFÉLAGS ÍSAFJARÐAR
Aðalfundur Framsóknarfélags
isafjarðar var haldinn fyrir
skömmu. Theódór Nordquist,sem
verið héfur formaður félagsins,
baöst undan endurkjöri. i stjórn
voru kjörnir: Formaður örn
Snorrason, sem er 32ja ára, með-
stjórnendur Birna Einarsdóttir,
Fylkir Agústsson, Guömundur
Sveinsson og Ingibjörg Marinós-
dóttir. í varastjórn voru kjörnir
Eirikur Sigurðsson, Friögeir
llrólfsson og Maögdalena Sig-
urðardóttir.
A fundinum mættu alþingis-
mennirnir Steingrimur Her-
mannsson og Bjarni Guðbjörns-
son. Urðu ágætar umræður um
stjórnmálaviðhorfið, málefni
kjördæmisins, tsafjarðar, og
fleira.
Starfsemi félagsins mun verða
mikil. Fjölmenn framsóknarvist
hefur þegar verið haldin á siðasta
vetrardag. Ráðgert er að halda
þeirri starfsemi áfram, m.a. með
þremur framsóknarvistum, sem
hefjast eftir áramótin, á tsafirði
og ýmsum öðrum stöðum á
norðanverðum Vestfjörðum.
Örn Snorrason.
Verða veitt sérstök heiðursverð-
laun yfir allt svæðið, ferð til Mall-
orka fyrir 2 á vegum ferðaskrif-
stofunnar SUNNU. Einnig er ráð-
gert málfundanámskeið, liklega i
janúar, almennir fundir, o.fl.
Tómstundahöllinni lokað:
Sóðaskapur, fyllerí
og slælegt eftirlit
með unglingunum þar
Heilbrigðiseftirlitið og lögregl-
an lokuðu i gær Tómstundahöll-
inni við Nóatún. Astæðan fyrir að-
gerðinni er, að húsið og rekstur
þess fullnægði hvergi nærri þeim
kröfum, sem geröar eru til al-
mennra samkomuhúsa. Tóm-
stundahöllina sóttu nær eingöngu
unglingar.
Ekki er blaðinu kunnugt um,
hvort Tómstundahöllin verður
opnuð aftur eftir endurbætur og
loforð eigenda um strangara
eftirlit, en húsinu var lokað vegna
sóðaskapar, slælegs eftirlits
með gestum: drykkjuskapur
unglinganna keyrði fram úr hófi
án þess að starfsfólk hefðist að,
og þóttu þvi ærnar orsakir til þess
að loka samkomustaðnum.
Húsbyggjendur
Fáið föst verðtilboð I byggingarframkvæmdir yöar.
Sýningar- og söluþjónusta 28 fyrirtækja á sviði byggingar-
iðnaðarins.
Verktakar i: Ilúsasmiði, múrhúðun, pipulögnum,
málningu, dúk- og veggfóðrun.
Gerum föst verðtilboð.
IÐNVERK HF.
ALHLIÐA BYGGINGAWÓNUSTA
Engin álagning
Aðeins þjónusta
NORÐURVERI
v/Laugaveg & Nóatún
Pósthólf 5266
Símar: 25945 & 25930