Tíminn - 13.12.1972, Page 1
KÆLISKÁPAR
Bdí RAFTORG
1^88»— SÍMI: 26660
ISMI r RAFIÐJAN SIMI. 19294 ★ * *
SO/tA Á/
RAFTÆKJADEILD
Hafnarslræti 23
Simar 18395 & 86500
Á Hveravöllum og Gjögrí værí
samanbarín fönnin 50-100 sm.
— ef hún lægi
jafnt yfir allt
— Á tveim veðurathugunarstöðv-
um, Hveravöllum og Gjögri, er nú
áætlaö, að jafnfallinn snjór myndi
vera einhvers staöar á bilinu frá
hálfum upp i einn metra, sagði
Páll Bergþórsson veðurfræðingur
við blaðið i gær. Og þá er miðað
við snjóinn siginn eins og hann er
nú. Á allmörgum stöðum er hann
áætlaður tuttugu og fimm til
fimmtfu sentimetrar — ég nefni
Nýjabæ á brún Eyjafjarðardals,
Ákureyri, Staðarhól i Aðaldal,
Grimsstaði á Fjöllum og Egils-
staði- '
Þessar tölur eru eðli sinu sam-
kvæmt harla ónákvæmar og
segja auk þess ekki glöggt til um
snjókomuna, þvi bæði hefur
snjórinn barizt saman i skafla og
sigið til mikilla muna, þar sem
frostleysa hefur verið annað
veifið eða jafnvel bleytt til i veru-
legra muna.
— Til samburðar má hafa, að um
helgina var nýr jafnfallinn snjór
hér i Reykjavik og annars staðar
við sunnan verðan Faxaflóa og
liklega allviða á Suðurlandi um
tiu til fimmtán sentimetrar, en
mun minni uppi i Borgarfirði, þar
sem nú er orðið langt til autt,
sagði Páll.
Mikið fannfergi á Norður-
Ströndum
Norðan lands og vestan hefur
snjókoma verið venju fremur
mikil i haust, og þó að þiðu gerði i
bili, er snjór yfirleitt með mesta
móti á þessum svæðum, og sums
staðar óskaplegt fannfergi.
Framhald á bls. 23
Vinningaskrá
Happdrættis
Háskóla ísl.
Sjá bls. 20-21
Það er eins og að likuiti lætur: menn: Þeir hafa tileinkaö sér um. En þeir eru ekki neitt upp á þræða á hjólatikum sfnum, heldur
Jólasveinarnir eru farnir að tæknina og koma brunandi á vél- þaö komnir að fylgja þessum fara þar, sem hugur býður.
flykkjast til byggða. Og viti sleðum ofan úr fjallheimum sin- troðningum, sem mannkertin Timamynd: Róbert.
Óskemmtilegt atvik í gistihúsi, þar sem margt íslendinga bjó:
Sprengingu hótað, öllum
skipað burt á svipstundu
KJ—Reykjavík
Það var heldur óskemmtileg
reynsla, sem hópur fslenzkra
ferðamanna varð fyrir i London
á þriðjudaginn i siöustu viku, þvi
að öllum gestum Kennedyhótels-
ins var skipað að yfirgefa hótel-
bygginguna á svipstundu vegna
sprengjuhótunar frá einhverjum
óþekktum manni.
Kennedy-hótelið er norðan við
miðhluta Lundúna, rétt við
Euston-járnbrautarstöðina, og
hefur fjöldi Islendinga gist þar á
undanförnum mánuðum. þegar
sprengjuhótunin barst stjórn-
endumhótelsins var meðal gesta
þar hópur fólks, sem fór utan til
að skoða Smithfield-land-
búnaðarsýninguna i sýningar-
höllinni i Earls Court. Sprengju-
hótunin barst um klukkan fimm,
og voru nokkrir Islendinganna þá
staddir á hótelinu, en aðrir ekki
komnir af sýningunni þann
daginn.
öllum gestunum var skipað að
Framhald á bls. 23
Framvinda mdla á allsherjarþinginu íslendingum í vil:
Tillaga um forréttindi strandríkja
sennilega samþykkt í fyrramálið
Trúlegt, að íslendingar hreppi sæti í umhverfisrdði, von um alþjóðarannsóknarstofnun á Islandi
A þvi er litill vafi, að tillaga sú
um rétt strandrikja til auðlinda
á landgrunninu og yfir þvi verð-
ur endanlega samþykkt á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóða i
þessari viku. Þá eru horfur á, að
íslendingar fái sæti i umhverfis-
ráði Sameinuðu þjóða, og loks
getur komið til greina, að ein
deild háskóla Sameinuðu þjóða,
sem samþykkt var i fyrradag,
að stofnaöur skuli, fái aðsetur
hérlendis.
Timinn átti i gærkvöldi simtal
við Hannes Pálsson, sendifull-
trúa á allsherjarþinginu, og
sagðiV hann svo frá, að at-
kvæðagreiðslan um rétt strand-
rikja færi fram fyrir hádegi á
morgun. Busch, ambassador
Bandarikjanna, hefur tjáð is-
lenzku sendinefndinni, að
Bandarikjamenn muni ekki
bera fram breytingartillögur og
sitja hjá við lokaatkvæða-
greiðsluna. Þá hafa þau Afriku-
riki, sem ekki eiga lönd að sjó og
sátu hjá við atkvæðagreiðsluna
á dögunum, ákveðið að veita til-
lögu Islendinga og Perúmanna
fylgi sitt. Hins vegar er ekki enn
fullráðið, hvort norrænu rikin
snúast á sveif með Islendingum
eða halda stefnu sinni óbreyttri.
— I fyrradaga var endanlega
samþykkt með 111 atkvæðum
gegn átta að stofna háskóla
Sameinuðu þjóðanna, sagði
Hannes i simtalinu, og hafa
Framhald á bls. 23