Tíminn - 13.12.1972, Síða 4
4
TÍMINN
Miðvikudagur 13. desember 1972
Ljósmyndatækni
Hvað býr nú i svip Monu Lisu;
hvað geta menn lesið úr yndis-
fögru auga hennar? Er það
vitneskjan um óléttu, eða ef til
vi 11 fósturlát. Já, þetta er
spurning dagsins. 1 alvöru
talað, þá er þetta ekki svo
alvarlegt. Myndirnar sýna
aðeins, hve ótrúlega hluti er
hægt að gera með ljósmynda-
vél. Hér er um að ræða sérstaka
speglatækni, og verður ekki
farið nánar út i þá sálma hér.
Taka þeir sig ekki vel út,
hundurinn „tvihausaði” og list-
málarinn heimsfrægi, sér-
vitringurinn Salvador Dali.
Veiðimennirnir þola
ekki ónæði
Veiðimenn við ár i Engl. hafa
rétt á þvi að hafa algjört næði
við veiðarnar, og það svo, að
valdi einhverjir þeim ónæði.má
dæma þá til þess að greiða sekt.
Veiðiklúbbur nokkur, sem tók á
leigu hluta Warfe árinnar i
Yorkshire árið 1965 og hefur
gefið félögum sinum kost á að
veiða við ána, höfðaði mál á
hendur Steven nokkrum Peters,
sem dag einn i sumar fór með
syni sina tvo i skemmtiferð á
snekkju sinni. Veiðimennirnir,
sem voru við veiðar dag þennan,
töldu sig hafa orðið fyrir miklu
ónæði vegna siglingar feðganna
um ána, og mál var höfðað á
hendur manninum. Fór svo, að
hann var dæmdur til þess að
borga hundrað krónur i sekt, og
niðurstaða dómsins var sú, að
mikið ónæði gæti stafað af
siglingum i ánni, ef menn væru
þar við veiðar. Lægi i augum
uppi, að fiskurinn ókyrrðist og
fældist frá, og þvi yrði veiðin
minni en efni stæðu til.
☆
Jörðin opnaðist
Húsmóðir ein, Glynis Stacey, i
Kibby-inAshfield i Englandi
ætlaði að kippa upp einhverri
Villijurt i garðinum hjá sér, en
um leið og hún náði jurtinni upp,
opnaðist jörðin fyrir framan
hana, og þar gapti við henni 17
feta djúp hola. Ástæðan var
talin sú, að mikið hafði verið um
sprengingar i nágrenninu dag-
ana á undan, og hafði þarna
myndazt jarðsig.
☆
6000 tonn af osti til
Japan
Norðmenn hafa samið um sölu á
6000 tonnum af Goudaosti til
Japan á þessu ári. Verður
gerður út leiðangur sölumanna
tilJapan á næstunni, til þess að
semja um sölu á svipuðu magni
af osti það ár. Osturinn er
fluttur i sérstökum frysti-eða
kælikössum, sem halda 2 til 4
stiga hita alla leiðina.
☆
1.5 milljón af minka-
skinnum á uppboði
1 fyrstu viku desember var
haldið uppboð á minkaskinnum
i Osló. Þar átti að selja um
350.00 minkaskinn, en reiknað
er með, að i vetur verði alls seld
á uppboði i Osló um 1.5
milljón skinna. Talið er, að
verð á minkaskinnum fari
heldur hækkandi i vetur, en
verðlag var lágt i fyrra.
☆
Eiiibýlishússeigandi lét setja
sjálfvirka hurð á bilskúrinn
vegna konu sinnar.
— Virkar þetta? spurði nágrann-
inn.
— Hvort það gerir. — Um leið og
konan min birtist á biinum, fýkur
hurðin upp af eintómri hræðslu.
— Er þetta hjá fyrirtækinu Smith,
Smith, Smith og Smith?
— Já, þaö er það.
— Gæti ég fengið að tala við hr.
Smith?-
— Þvi miður, hann er á fundi.
— En hr. Smith?
— Nei, hann er veikur.
— Nú en hr. Smith þá?
— Iiann er rétt farinn i mat.
— Jæja má ég tala við hr. Smith?
— Já, það er ég.
Mikið um erlent
verkafólk
20.300 útlendingar voru við
ýmis störf i Noregi 31. ágúst i
sumar, er könnun var gerð á
fjölda erlendra starfsmanna i
landinu. Hafði talan hækkað um
800 miðað við 31. ágúst i fyrra.
Útlendingarnir skiptast þannig
eftir þjóðernum: 4800 Danir,
2400 Bretar, 1800 Sviar, 1300
Bandarikjamenn, 1200
Pakistanar, 1200 Þjóðverjar,
bæði frá Vestur- og Austur-
Þýzkalandi, og 1000 Finnar.
☆
Senda hurðir til Þýzka-
lands
Bærums Verk i Sandvika i
Noregi hefur gert samning um
sölu á hurðum til Þýzkalands.
Samningurinn hljóðar upp á
210.000 hurðir, sem eru að verð-
mæti um 20 milljónir norskra
króna. Verða hurðirnar fluttar á
vöruflutningabilum til Þýzka-
lands, og munu þær fylla 350
flutningabila.
— Nei, þú skalt ekki álita þig rek-
inn. Við skulum kalla það fri i
óákveðinn tima, kauplaust.
— Það er til þin'.
Maður lifir bara einu sinni og ef
maður heldur rétt á spilunum, er
það eina skipti nóg.
Kennslukonan var að útskýra I
stórhátiðir ársins fyrir börnun-
um. Oll vissu þau, að jólin voru
föst hátið, en gekk heldur verr
með þær,sem færast til. — Dettur
ykkur ekkert i hug? spurði
kennslukonan eftir nokkra þögn.
— Jú, svaraði Kalli, sem var elzt-
ur af átta systkinum.
— Skirnarveizla!
— Jensen, það er síminn til þin!
DENNI
DÆMALAUSI
Þú verður að passa þig á að koma
ekki á sleðanum þinum á húsþak-
ið hans herra Wilson, hann yrði
alveg ofsalega reiður, þvi mál-
ingin gæti skemmzt.