Tíminn - 17.12.1972, Page 24
Gamli tíminn:
GRUNDIN GLYMUR UNDIR
Sá timi er undarlega fjarri, þótt
ekki séu margir áratugir umliðn-
ir, er menn settust á hverfistein-
inn til þess að leggja spikina sina
á, og gengu siðan á teiginn með
orfið, þar sem þeir stóðu siðan
snöggklæddir og skáruðu grund-
ina, stundum með sokkana utan
yfir buxnaskálmunum og náttúr-
lega með axlabönd, af þvi að belti
voru ekki komin i tizku.
Frá þeim tima er þessi skag-
firzka mynd, likiega tekin svona
1920 eða um það bil, áreiðanlega
hjá einhverjum heyjabónda, þvi
að sjálfsögðu hafa það verið
drjúgar spildur, sem fjórir menn
gátu slegið á greiðfæru landi.
En hvaðan er þessi mynd, og
herjir eru mennirnir? Það væri
nógu'að fá vitneskju um það.
Grjótið frá Kristnesi
verndar Grímseyjarhöfn
„Þetta er gott grjót, en bara ekki komið nándarnærri nóg af því”
Stórgrýtið, sem notað var til
þess að styrkja hafnarmannvirk-
in i Grimsey og gera þar garða,
sem liklegir cru til þcss að veita
briminu viðnám, var ekki sótt
ncinn smáspöl, heldur alla leið
inn undir Kristnes i Eyjafirði.
Þaðan var það flutt til hafnar á
Akureyri og sett I lestir skipa,
sem fóru með þaö til Grimseyjar.
— Það var litið búið að losa af
grjóti, þegar til átti að taka i sum-
ar, sagði Guðmundur Jónsson,
fréttaritari Timans i Grimsey, og
framkvæmdir drógust á langinn
von úr viti. Þeir eru nýfarnir héð-
an núna, og það var alveg ein-
stakt happ, hve hægviðrasamt
var fram eftir öllu. Samt er ekki
enn komið nándarnærri nóg af
stórgrýti, hafnarmannvirkjunum
til styrktar, og það er gott grjót,
hvað komið er — bara allt of litið
af þvi. Það hefur að visu ekkert
haggast fram að þessu, en það
hefur ekki heldur gert neitt stór-
brim i haust.
Það urðu ekki nema tvær ferð-
ir, sem Arvakur kom hingað með
þetta Kristnesgrjót, en svo var
Suðri tekinn á leigu, og hann kom
hingað með þrjá eða fjóra farma.
Alls var fjárveitingin til
hafnarinnar fjórtán milljónir
króna, þar af sex milljónir i kerin,
en þegar til kom, mun það, sem
gert var, hafa kostað mun meira.
Þó eru varnargarðarnir alls ekki
orðnir nógu traustir, eins og ég er
búinn að segja, og ekkert hefur
enn verið gert innan hafnar, sagði
Guðmundur að lokum.
1 1
^Sunnudagur 17. desember 1972J
Stokkseyringar
seldu fyrir
80 milljónir
HS-Stokkseyri
Þritugasti aðalfundur Hrað-
frystihúss Stokkseyrar var hald-
inn annan des. s.l. Hraðfrystihús-
ið er hlutafélag, rekið af hreppn-
um að hálfu og einstaklingum og
félögum að hálfu. Frystihúsið
gerir út f jóra báta og hinn fimmta
að hluta.
A siðasta ári seldi Hraðfrysti-
hús Stokkseyrar afurðir fyrir 79,3
milljónir króna og greiddi 47,6
millj. i vinnulaun. Nokkrar
endurbætur hafa verið gerðar á
frystihúsinu s.l. ár, m.a. byggður
frystiklefi, sem rúmar um 900
lestir og bætt við frystitækjum og
isvél.
Tveir bátar stunda nú linuveið-
ar frá Stokkseyri, en gæftir eru
tregar.
Uppörvun fyrir
ungan listamann
Klp-Reykjavik.
Á laugardaginn var opnaði ung-
ur maður, Valgarður Stefánsson,
málverkasýningu i Landsbanka-
salnum á Akureyri. Fyrstu tvo
dagana skoðuðu um þrjú hundruð
manns sýninguna og helmingur
myndanna seldust. Er þetta
óvenju góð aðsó kn og sala hjá
ungum og svo til óþekktum lista-
manni á ekki fjölmennari stað en
Akureyri er.
Nýtt rafmagns-
verkstæði og
raftækjabúð
í Hveragerði
Fyrir skömmu tók til starfa
nýtt fyrirtæki við Reykjamörk i
Hveragerði en raunar er sú gata
gamli þjóðvegurinn. Fyrirtæki
þetta heitir Rafmagnsverkstæði
Suðurl-ands, og er i senn verk-
stæði og verzlun. Eigendur fyrir-
tækisins eru Sigurður Frimanns-
son og bræðurnir Kjartan og
Jónas iBjörnssynir.
Eigendur fyrirtækisins keyptu
þarna hundrað fermetra hús-
rými, sem þeir innréttuðu að ein-
um þriðja sem verzlun, og er
þetta eina búðin i Hveragerði, þar
sem eingöngu eru seld rafmagns-
tæki. í hinum hluta hússins er við-
gerðastofa og verkstæði, en að
auki tekur fyrirtækið að sér raf-
lagnir.
GULLI
STOLIÐ
Ró hefur nú færzt yfir húsbrjóta
og var brotizt inn aðeins á þrem
stöðum i Reykjavik aðfaranótt
laugardags, sem verður að telja
hófsamt, miðað við helgina á und-
an, en þá náðist hámark fram að
þessu i innbrotum og skemmdum
á húsum og husmunum af völd-
um innbrota.
Upp úr miðnætti var tilkynnt
innbrot i húsið i Bankastræti, sem
áður var Bókabúð Kron. Þar eru
nú eingöngu útstillingargluggar
fyrir Dómus. Var einhverju af út-
stillingarvörum stolið, en
þjófarnir, tveir ungir menn náð-
ust fljótlega.
Þegar Bárður Jóhannesson
kom til vinnu i verzlun sinni
Email i Hafnarstræti á laugar-
dagsmorgun, sá hann, að óboðnir
gestir höfðu verið á ferð um nótt-
ina. Voru horfin gullarmbönd og
hringar að samanlögðu verðmæti
um 100 þús. kr.
Einnig var brotizt inn i verzlun
Sláturfélags Suðurlands við Aðal-
stræti. Ekki er að sjá, að neitt hafi
horfið úr verzluninni.
Úr Hafnarfirði eru þær fréttir
helztar, að enginn maður gisti
fangageymslu lögreglunnar að-
faranótt laugardags og hefur likt
vart gerzt i mannaminnum siðan
sá siður hófst, að hefja helgar-
drykkjuskap á föstudagskvöld-
um.
Stokkseyrarsýn-
ingunni lýkur
á miðnætti
Málverkasýningu Steingrims
Sigurössonar i Gimli á Stokkseyri
lýkurá miðnætti i kvöld. Þetta er
fyrsta málverkasýning, sem
haldin hefur verið á Stokkseyri,
og bauð Steingrimur öllum
Stokkseyringum á hana.
— Þetta hefur gengið ágætlega,
sagði Steingrimur i gær —
llér sjáum við tvo smiði við mótauppslátt á hinni nýju vöruskemmu Flugfélags islands á Reykjavlkur-
flugvelli. TimamyndGE.
Flugfélagið byggir nýja vöruskemmu:
3100 lestir hafa verið fluttar
á innanlandsleiðum á árinu
Þó—Reykjavik.
Nýlega var hafin bygging á
nýrri vöruskemmu fyrir Flug-
félag islands á Reykjavikurflug-
velli, en sem kunnugt er hefur
vöruafgreiðsla félagsins verið til
þessa i tveim gömlum hermanna-
bröggum, og voru þeir orðnir
alltof litlir fyrir mörgum árum og
öll starfsaðstaða þar erfið.
Nýja vöruskemman er 800 fer-
metrar að stærð, og stendur hún á
milli farþegaafgreiðslunnar og
flugskýlisins. 1 upphafi var
ákveðið, að helmingur vöru-
skemmunnar yrði tilbúinn i þess-
um mánuði, en þar sem það dróst
að fá leyfi fyrir byggingunni gat
ekki orðið af þvi og nú er ákveðið
að byggja skemmuna i einum
áfanga, og á hún að vera tilbúin
að vori komanda. Vestan við
skemmuna verður byggt stórt
plan og verða allar vörur teknar
inn i gegnum vesturgaflinn, siðan
verða vörurnar teknar út i
gegnum austurgaflinn, þegar þær
verða settar um borð i flug-
vélarnar. Um leið og vöru-
skemman verður tilbúin, verður
girt fyrir bilaumferð út á sjálfan
flugvöllinn en bilaumferð fyrir
framan vöruafgreiðsluna hefur
oft og tiðum verið mikið vanda-
mál.
Þessi nýja vöruskemma er ekki
fyrirhuguð sem framtiðarvöru-
skemma fyrir Flugfélagið, heldur
erhér um bráðabirgðahúsnæði að
ræða. Það sem stendur i veginum
fyrir þvtað ekki er byggt fram-
tiðarhúsnæði, er, að ekki er enn
búið að skipuleggja bygginga-
svæði við Reykjavikurflugvöll.
S veinn Sæmundsson, blaðafull-
trúi Flugfélagsins, tjáði okkur, að
fyrstu 10 mánuði þessa árs hefðu
Flugfélagsvélarnar flutt 3100
lestir af vörum á flugleiðum
innanlands, og er það 5% aukning
frá þvi i fyrra. t nóvember og það
sem af er desember hefur
aukningin orðið enn meiri, og iðu-
lega eru fluttar rúmlega 30 lestir
af vörum á dag.
Endurmat á fast-
eignum og vélum
á næsta landbunaðarframtali
Stjórn Búnaðarfélags tslands
liefur sótt nm heimild til endur-
mats á vélum og fasteignum á
næsta landbúnaðarframtali fyrir
hönd allra bænda, sem eru i
hreppabúnaðarfélögunum á Iand-
inu.
Þetta er gert samkvæmt
ákvæði i reglugerð, þar sem svo
er fyrir lagt, að slikt verði að til-
kynna viðkomandi skattstjóra
fyrir 31. desember 1972. Þar eð
mörgum bændum mun ekki kunn-
ugt um þetta ákvæði, sizt um
heimildina til endurmats á véla-
kosti, þótti skylt, að Búnaðarfélag
tslands léti þetta til sin t'aka.
Af þessu leiðir, að bændur þurfa
ekki sjálfir að skrifa skattstjóra
fyrir áramót, þótt þeir ætli að
nota sér heimildina, svo fremi
sem þeir eru i búnaðarfélagi, og
nægir að láta endurmat fylgja
næsta landbúnaðarframtali.
Leiðbeiningar um það, hvernig
vélar skuli endurmetnar, verða
birtar i næsta febrúarblaði Freys.
En i stuttu máli sagt gitda þær
reglur um endurmat á vélum, að
kaupverð véla, sem keyptar voru
á árunum 1969-1966, má hækka
um fimmta hluta, en þá hækkun
má afskrifa á fimm árum.