Tíminn - 21.12.1972, Blaðsíða 17
Kimmtudagur 21. desember 1!)72
TÍMINN
17
Bobby og Boris í liilll U II11|'!| |i!!l|! 1' 1! Hílilljli ! i! | ií I i 1 !il!i';É lÍsÍÍIIlSíl lliiBfP mm
lceland Review iiS m , lu iálumL, NCUNGA-^
Komið er út áramótahefti tima-
ritsins Iceland Review og er það
að hluta helgað þeim viðburði á
fslandi, sem einna mesta athygli
vakti úti i heimi á þessu ári:
Heimsmeistaramótinu i skák.
Undir fyrirsögninni Bobby &
Boris — Battle of the Brains in
Reykjavik, eru helztu atriði
mótsins rakin, sviptingar — árás-
ir og gagnárásir, og fjöldi mynda
fylgir frásögninni, flestar fengnar
frá Chester Fox, teknar af Kristni
Benediktssyni. Greinina skrifaði
Gisli Sigurðsson, blaðamaður. Þá
er stutt viðtal við Halldór Péturs-
son, listmálara, ásamt sýnishorni
af teikningum hans, sem frægar
eru orðnar — og jafnframt birtist
hér hin margumtalaða grein
bandariska dálkahöfundarins Art
Buchwald „Calling Bobby
Fischer”, en það er simtal Nix
ons forseta við Fischer, sem
,,gæti hafa átt sér stað”.
Af öðru efni i þessu hefti Ice-
land Review mætti nefna grein
um heimsókn i Kerlingarfjöll eft-
ir Magnús Sigurðsson, blaða-
mann, með litmyndum eftir
Gunnar Hannesson. Stutt frásögn
af Listahátið með athyglisverð-
um ljósmyndum Guðmundar
Ingólfssonar og grein um islenzka
jólasiði á fyrri tið, eftir Árna
Björnsson, þjóðháttafræðing.
Það siðasta frá íslandi, ljós-
myndir Kristjáns Magnússonar
af islenzkum tizkufatnaði úr ull
og gærum, sem hvað mest er nú
selt af til útlanda — og loks má
nefna grein um Vestfirði, eftir rit-
stjórann, Harald J. Hamar, með
fjölmörgum skemmtilegum ljós-
myndum, m.a. eftir Hjálmar R.
Bárðarson og Gunnar Hannesson.
f þessu hefti birtist ennfremur
Winnipeg-bréf, stuttur þáttur,
sem Caroline Gunnarson, ritstjóri
Lögbergs Heimskringlu, mun
annast i framtiðinni.
Að vanda fylgir ritinu litið
fréttablað með frásögn af helztu
viðburðum islenzkum siðustu
mánuðina.
PIPULAGNIR
Stilli hitakerfi —
Lagfæri gömul hita-
kerfi
Set upp hreinlætis-
tæki — Ilitaveitu-
tengingar
Skipti hita — Set á
kerfið I)anfoss-ofn-
ventla
SÍMI 36498
Ódýr náttföt
Herra, poplin kr. 395/-
Drengja, poplin kr. 295/-
Telpnanáttföt frá kr. 200/-
1 átliskógur
Snorrabraut 22. simi 25044
Tilvalin jólagjöf
RICHARD WURMBRAND
Neðan-
jarðar
kirkjan
Séra
Magnús Runólfsson
þýddi
Bók, sem vekur athygli og umtal. Bók, sem hefur komió
út i mörgum útgáfum i yfir 30 löndum. og vióa verió met-
sölubok. Bók, sem f jallar um hatur, þjáningu og vald hins
illa i heiminum. Bók, sem svarar meóal annars eftir-
farandi spurningum: Hver er Jesús? Hvaó er kirkja?
Tiðkast trúarofsóknir á 20. öld.Bókin er kröftugur
vitnisburóur manns, sem var fangi kommúnista í 14 ár.
Ichthys bókafélagid/ pósthólf 330, Akureyri
FASTEIGNAVAL
SkólavörBustíg 3A. II. hœB.
Sfmar 22911 — 19283.
FASTEIGNAKAUPENDUR
Vantl yður fastelgn, þá hafiS
samband viS skrifstofu vora.
Fasteignir af öllum stœrðum
og gerðum fullbúnar og í
ismíðum.'
FASTEIGNASELÍENDUR
Vinsamlegast látiB skrá fast-
eignir yðar hjá okkur.
Áherzla lögð á góða og ör-
ugga þjónustu. Leitið uppl.
um verð og skilmála. Maka-
skiptasamn. oft mögulegir.
Önnumst hvera konar samn-
lngagerB fyrlr yBur.
Jón Arason, hdl.
Málflutnlngur . fastelgnaaala
Kersten Thorvall:
PÉTUIt OG SÓLEY
Aiina Valdimarsdóttir
þýddi
Útgefandi Iðunn.
Þessi snotra og skilrika
barnabök á hrós skilið. Sagan af
Pétri og Sóleyju er skrifuð af
höfundi, sem þekkir börn og veit
um vandamál, sem þau eiga við
að etja i samlifi sinu og viðhorfi
til fullorðinna, og hann beitir
sögunni af vilja og getu til að
leysa flækjur og hnúta, sem hann
hefur orðið var við, liklega i
skólastarfi. Markmiðið er
beinlinis að leysa hömlur af
börnum.
Viðfangselnið er þau sálrænu
vandkvæði. sem verða, þegar ung
börn skynja að foreldrar þeirra,
heimili eða aðrir aðstandendur,
sem ást þeirra og lifstraust er
bundið við, falla með einhverjum
hætti ekki inn i ramma viðtekinna
siðalögmála, eru öðruvisi en
nágrannarnir, hafa annað lifs-
mat eða laga sig ekki alveg að
lifsformi þvi, sem talið er
einboðið, og vekja þvi forvitni,
umtal eða jafnvel hneykslun
félaga barnanna. Þetta getur til
að mynda sprottið af þvi, að
Trúlofunar-
HRimm
Fljót afgreiðsla n%
Sent i póstkröfu
GUDMUNDUR
ÞORSTEINSSON <<g
gullsmiöur />d
Sf Bankastræti 12
Hnnit
pappírs
HANDÞURRKUR
á alla vinnustaði
A. A. PÁLMASON
Simi 11517
Þeir sem eru
á ve! negldum
snjódekkjum
komast leiðar sinnar.
GUMMIVINNUSTOFAN
SKIPHOLTI 35, SÍMI 31055, REYKJAVÍK.
i$* -*/•*'*/■*
H
F.
foreldrar eru ekki giftir, þótt þeir
búisamansemhjón. Einnig miðar
sagan að þvi að eyða lordómum
barna vegna kynsmunar og koma
á eðlilegri umgengni telpna og
drengja i leik og starfi.
Sagan er lipurlega sögð af
skilningi á hugarheimi barna.
Þetta er jákvæð og þörf bók.
Þýðingin er vel gerð. málið skýrt
og eðlilegt, hvérgi ieitazt við að
gera það barnalegt.
Útlit og brot er sérlega fallegt.
Teikningar eru i bókinni eltir
höfundinn. -A.K.
Mariette Vanhalewijn:
JONNI OG KISA
Önióllur Thorlacius
Ilókaútgáia Iðunnar.
1 fyrra hóf Iðunn útgáfu á
hollenzkum barnabókum i stóru
broti, þar sem saraan voru
felldar stutt saga og stórar lit-
myndir. Bækurnar eru við hæfi 5-
6ára barna, sem eru að byr ja að
njóta bóka, og árangur samvinnu
tveggja hölunda. Nú er kominn
út hjá Iðunni þnðja bókin i
þessum flokki og kallast Nonni
og kisa. Bókin ergefin út i sam-
vinnu við erl- útgálu og prentuð
þar. Sögur bókanna eru einfaldar
og liðlegar, en megingildi þeirra
er samt i myndunum, sem eru
stórfallegar og tala skýru máli til
barnanna. Þá er þess að gela, að
pappir og prentáferð er sérstak-
lega gerð til þess að þola nokkurt
volk i höndum barna, án þess að
láta á sjá. Er það ekki litill
kostur. Yzta kápa á spjöldum
virðist ekki vera eins sterk, en
þyrfti að vera það. Þýðing
órnólfs er lipur og vönduð.-A K.
Dr. Seuss:
KÖTTU RIN N MEÐ
HÖTTINN
Loftur Guömundsson þýddi
Bókaútgafan örn og
örlygur.
í fyrra kom út einkar skemmti-
ieg visna- og myndabók með
þessu nalni og hlaut vinsældir
ungra lesenda. Nú kemur fram-
haldsbók. bar sem saut er frá
nýjum uppáta'kjum kattarins
með höttinn og viðskiptum hans
við börnin. Þetta visnamál er
lausrimað, en fellt i nokkrar
stuðlaskorður. Loftur skilar sög-
unni á hressilegu og einföldu
mali, en hvergi útþynnlu.
Þetta er stafaleikur til þess fa 11-
inn að hjálpa börnum tii þess að
muna bokstaíi. Textinn er þægi-
legur til lesa'finga með hæfilegri
hjálp.og rimið hjálpar hörnum til
að muna og þekkja orðin i sam-
hengi og iesa hann eftir nokkrar
æfingar reiprennandi, þótl þau
séu.ekki læs á orðin ein sér i iiðru
og lausara sámhengi. Við lestrar-
nám er gott að hlanda saman
aðlerðum lil fjölbreytni og
áhugaverndar. Þarna eru orða-
og stafaaðferðir látnar vinna
saman. Myndirnar eru for-
kunnargóðar. — AK.
ef þér ætlið
að gefa yður
sjálfri
gjöf...
Farið þd eftir
reynslu þeirra, sem
hafa fengið sófa-
borð og
innskotsborð fró
okkur.
GÆÐIN HAFA
SITTAÐSEGJA
VALHÚSGÖGN Ármúla 4 simi 82275 85375