Tíminn - 23.12.1972, Blaðsíða 1

Tíminn - 23.12.1972, Blaðsíða 1
IGNIS KÆLISKÁPAR v. RAFTORG SÍMI: 26660 RAFIOJAN SÍMI: 19294 295. tölublað — Laugardagur 23. desember—56. árgangur i Xi/MjóbbtcL/xAAéXxx/i, A/ RAFTÆKJADEILD Hafnarslræti 23 Simar 18395 & 86500 2 Tugmilljónatjón vofir yfir í álverinu í Straumsvík Stálvirki hjá Hömrum í Grímsnesi sligaðist og valt um koll og línan yfir Hvítá slitnaði Verstu aflciðingar fárviðrisins, sem gekk yfir landið i fyrrakvöld og fyrrinótt, eru skemmdir þær, sem urðu á raflinunni frá Búr- fellsvirkjun, og sá slóði, er raf- niagnsskorturinn dregur á eftir sér. Getur svo farið, að tug milljónatjón verði i álverinu i Straumsvik, þar sem ekki hefur fcngizt nóg rafmagn til þess að halda bræðslukerjum heitum. Fyrirsjáanlegt cr, að- rafmagns- skortur verður á orkuveitusvæð- inu sunnan lands og suðvestan næstu daga. Undanfarna daga hafa hvað eftir annað orðið rafmagns- truflanir af völdum illveðurs og eldinga, svo sem kunnugt er. Þó syrti fyrst i álinn á milli klukkan tiu og ellefu i fyrrakvöld, er stál- virki á vestri bakka Hvitár i Ár- nessýslu brast og lagðist út af. Við það rofnaði rafstraumurinn að austan með öllu, þar sem hin fyrirhugða varalina er ekki kom- in i gagnið. STALVIRKI A IILIÐ- INNI — ANNAÐ LASKAÐ Raflinan lá yfir Hvitá rétt hjá Hömrum i Grimsnesi, og var þar sjö hundruð og þrjátiu metra haf stálvirkja á milli. Þegar stálvirk- ið á vestri bakkanum lagðist út af, slitnuðu þrir rafstrengir og féllu niður i ána. — Ég brá mér upp eftir, sagði fréttaritari Timans i ölfusi, Páll Þorláksson á Sandhóli. Stálvirk- ið, sem var sextiu metra hátt, liggur alveg á hliðinni, beyglað og brotið, og næsta virki við það er einnig laskað, stoðir svignaðar og fleira gengið úr skorðum. ÞYRLUR TIL AÐSTOÐAR — Viðgerðamenn eru komnir austur með efni og tæki til við- gerða, sagði Halldór Jónatans- son, aðstoðarframkvæmdastjóri Landsvirkjunar, þegar blaðið átti tal við hann i gær. En bráða- birgðaviðgerð tekur áreiðanlega nokkra daga, svo að draga verður mjög úr rafmagnsnotkun. Það er niu hundruð metra haf, er tengja verður, og það verður ekki neinn leikur, sizt ef veðrið verður rysjótt næstu daga eins og viðbúið er. Reyna átti að fara með grannan streng yfir ána á gúmbát með utanborðsvél og draga siðan gildari strengi yfir. En allsendis óvist var, að það tækist. Einnig var talað um að fá þyrlu landhelgisgæzlunnar til að- stoðar, sem og þyrlu af Kefla- vikurflugvelli, ef veður leyfði. NÆSTU TVEIR SÓLAR- HRINGAR SKERA ÚR — Ef rafmagn verður ekki komið að fullu innan tveggja sólarhringa, verður tugmilljóna- tjón hér i Straumsvik, sagði Ragnar Halldórsson, forstjóri Is- lenzka álfélagsins, er við spurð- um hann um horfurnar i álverinu. Hins vegar held ég, að tjónið verði varla meira en nokkrar milljónir króna, ef við fáum nóg rafmagn áður en tveir sólar- hringar eru liðnir. Rafmagnslaust varð i álverinu um klukkan tiu i fyrrakvöld, og siðan hafa aðeins 108 ker af 192 verið i gangi. — Það eru þvi áttatiu og fjögur ker úr leik, sagði Ragnar enn fremur, og i hverju þeirra eru sex smálestir af áli, samtals fimm hundruð lestir, 25 milljón króna verðmæti. Ef við fáum ekki raf- magn, storknar álið i kerjunum. Við það geta kerin «yðilagzt með ófyrirsjáanlegum afleiðingum. VARAAFLSTÖDIN LAMAÐIST LÍKA Ragnar sagði, að álverið þyrfti 140megavatta orku að meðaltali, Framhald á bls. 19 Þcssi inynd var tckin i einum kerjaskálanum i Straumsvfk. Ef full rafmagnsorka kemst ekki i álveriö innan tæpra tveggja sólarhringa, þá verður þar að öllum likindum tugmilljóna króna tjón. Belgískur togari í háska Björgunarsveitir biðu tilbúnar á Skipaskaga Belgiskur togari var liætt kom- inn út af Skaga i ofsaveörinu aö- fararnótt föstudags. Slitnaöi hann aftur úr öðrum togara og rak stjórnlaus i særótinu, þegar veör- iö gekk niöur aftur, cins og skrúf- aö heföi veriö fyrir það, og var þá liægt aö koma taug í togarann aft- ur og draga til Reykjavikur. B jörgunars veit Slysavarnar- félagsins á Akranesi var ræst út og voru hjörgunarmenn tilbúnir I Buröarvirkiö mikla hjá Hömrum i Grímsnesi, sem féll niöur i fyrrakvöld. Annaö, sem byrjaö er aö gefa sig, sést skammt frá, og hiö þriöja handan Hvitár. Ljósmynd: Páll Þorláksson. fjörunum i margar klukkustund- ir, til aö ná áhöfninni á land, cf togarinn strandaði. Margir is- lenzkir bátar voru á miöunum þegar veöriöskall á, en þeir héldu sjó meöan þaö gekk yfir og uröu engir skaðar. Kl. 4,30 um nóttina tilkynnti vakthafandi hafnsögumaður i Reykjavik Slysavarnarfélaginu, að Magni væri farinn út úr Reykjavikurhöfn til aðstoðar bel- giskum togara, sem hafði fengið trollið i skrúfuna, og annar bel- giskur togari, sem var að draga hann til Reykjavikur réði nú ekki viö neitt lengur og hafði dráttar- taugin slitnað þrisvar sinnum. Þegar beðið var um aðstoð voru togararnir um þrjár milur út af Sklpaskaga. Hannes Tiafstetn, fulltrúi hjá Slysavarnafélaginu, sagði blaðinu, að ofsaveður hafi veriðúti á Faxaflóa á þessu tima- bili og mikill sjór. Sóttist Magna ferðin seint. Arvakur var nýlagzt- ur að bryggju i Reykjavik og var hann sendur á eftir Magna til vonar og vara. Björgunarsveitin á Akranesi var kölluð út og var tilbúinn i fjörunum með fluglinutæki og linubyssur ef á þyrfti að halda. Um það leyti sem Magni kom að togaranum, var veðrið að lægja og tókst hinum belgiska togaranum að koma linu á milli. Gekk drátturinn til Reykjavikur vel og fór togarinn i slipp i gær. Þegar sýnt var að veðrið var að ganga niður og að takast mundi að bjarga togaranum frá að lenda i grjótinu á Skaga, voru Framhald á bls. 19

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.