Tíminn - 31.12.1972, Blaðsíða 21
Sumiudagur :il. desember 1!)72
TÍMINN
21
Hvernig mætum
við dauðanum?
Hvernig skyldi það vera að
deyja skyndilegum dauðdaga og
vera sér þess meðvitandi, að
næsta augnablik er það siöasta.
Fólki, sem hefur verið mjög
nálægt þvi að upplifa slikt, ber
saman um að augnabliks
skelfingin, sem fyrst gripur
manninn viki fljótt fyrir rósemi
uppgjafarinnar. Sá sem fellur út
af fjóðru hæð i húsi, svo eitt dæmi
sé tekið, snertir götuna i hugar-
ástandi, sem einna helst er hægt
að nefna sjálfssefjun. Hann hefur
sætt sig við örlög sin og er ákveð-
inn að njóta velliðunar framar
öllu öðru.
Bandariskur sálkönnuður dr.
Robert Noyes við háskólann i
Iowas hefur rannsakað fjölda
skýrslna, frá fólki, sem hafði upp-
lifað það, sem það hélt vera sitt
siðasta. Þar á meðal eru 30
skýrslur eftir jafnmarga fjall-
göngumenn, sem höfðu hrapað i
Olpunum. Hugarástandi þess,
sem telur sig vera deyjandi virð-
ist mega skipta i þrjú stig. A
fyrsta stiginu ber mest á örvænt-
ingu vegna hinnar aösteðjandi
hættu, og samtimis gerist áleitin
freistingin að gefa sig dauöanum
á vald. Jafnskjótt og viðkomandi
gerir sér ljóst, aö nú er stundin
komin hverfur óttinn. Þetta tekur
vitaskuld lengri tima hjá drukkn-
andi manni, en þeim, sem er að
hrapa.
A næsta stigi telur maðurinn sig
vera að deyja og öll hugsun hans
snýst um það sem honum þótti
mest vert i lifinu. Jarðfræðingur
nokkur, sem var að hrapa, fannst
hann vera mitt á meðal systra
sinna og aldraðrar móður og sá
sjálfan sig sjö ára gamlan á leið i
skólann. Nitján ára gamall fall-
hlifarstökkvari, sem var á leið til
jarðar með lokaða fallhlif, sá
fyrir hugskotsjónum sinum i fall-
inu, móður sina, alla staðina, þar
sem hann hafði búið, herskólann,
sem hann stundaði nám i, og and-
lit vina sinna. Þessi þyrping
skýrra og ánægjulegra endur-
minninga á slikum augnablikum
er gjarna skýrð sem andsvar
hugans við hinni áleitnu hugsun:
,,Nú er það búið”. Þetta andsvar
birtist stundum i öðru og óvæntu
formi, t.d. hafði stúdent nokkur,
sem kastaðist út úr bil mestar
áhyggjur af þvi, að nýi frakkinn
hans kynni að eyðileggjast.
Hið dularfulla vitundarástand,
sem er einkennandi fyrir þriðja
stigið verður e.t.v. bezt útskýrt
meö þvi að taka dæmi af
hjúkrunakonu nokkurri, sem var
að dauða komin af ofnæmi. Hún
var altekin af sefjunarástandi,
sem lýsti sér á þann veg, að henni
þótti hún vera að grandskoða
gamla indverska styttu, sem hún
haföi einhvern tima séð. Og jarð-
fræðingurinn, sem áður var
minnzt á, fylltist djúpum og göf-
ugum hugsunum og heyrði
himneska tónlist. Þaö er nærtækt
að likja þessu við hin dularfullu
áhrif ofskynjanalyfsins LSD.
Sálkönnuðir segja, sumir hverjir,
að ef menn vilja kynnast þvi
hvernig það er að standa
andspænis dauðanum, þá skuli
menn reyna að athuga eiturlyfja-
neytendur á „ferð”.
JGK
Flugeldamarkaður
Op/ð kl. 10-4 í dag
Toyota-umboðið óskar öllum landsmönnum
gleðilegs árs
og þakkar viðskiptavinum góð viðskipti á liðnu ári
Toyota-umboðið h.f.
Höfðatúni 2
ORÐSENDING
FRÁ
RAFMAGNSVEITU
REYKJAVÍKUR
Ef straumlaust verður eru notendur beðnir að slökkva
ó eldavélum og öðrum tœkjum í eldhúsi, til þess að flýta
fyrir þvi oð straumur komist ó að nýju.
RAFMAGNSVEITA
REYKJAVÍKUR
VIPPU - BltSKÚRSHURÐIN
Lagerstaerðir miðað við múrop:
Hæð: 210 sm x breidd: '240 sm
210 - x - 270sm
Adrar slærðir smítJaðar eítir beiðnL
GLUGGASMIÐJAN
S'ðufnúla 12 - Símí 38220
Skýrsluvélastörf
Skýrsluvélar rikisins og Reykjavikur-
borgar þurfa að mæta auknum þörfum
opinberra aðila fyrir skýrsluvélaþjónustu.
Þvi auglýsir stofnunin nú eftir umsóknum
um störf i kerfisfræðum frá ungu og vel
menntuðu fólki.
Æskileg menntun er próf i viðskiptafræði eða annað há-
skólapróf. Til álita kemur þó að ráöa fólk með stúdents-
próf úr stærðfræðideild eða sambærilega menntun.
Æskilegt er, að umsækjendur hafi starfsreynslu á við-
skiptasviðinu eða i störfum hjá opinberum stofnunum.
Nám og þjálfun i kerfisfræðum fer framá vegum stofnun-
arinnar eftir ráðningu.
Upplýsingar um starfið verða veittar á skrifstofu vorri,
Háaleitisbraut 9.
Skýrsluvélar rikisins og
Reykjavikurborgar