Tíminn - 23.02.1973, Síða 6
6
TÍMINN
Föstudagur 23. febr. 1973.
Umsjón og ábyrgð: Samband ungra framsóknarmanna
Fyrsta ráðstefnan um byggðastefnu SUF var haldin
á Akureyri s. I. sunnudag. Ráðstefnan var f alla
staði hin glæsilegasta. Áhenni fóru fram ítarlegar
og málefnalegar umræður um vandamál lands
byggðarinnar.
„I byggðastefnu SUF er
tekizt á við kjarna vanda-
málsins á raunhæfan hátt"
sagði Bjarni Einarsson, bæjarstjóri, á ráðstefnunni á Akureyri
Bjarni Einarsson
— Uppbygging lands-
byggðarinnar ætti fyrst
og fremst að gera
þjóðfélagið sem heild
hagkvæmara —
Eggert Jóhannesson
— Þótt ungir fram-
sóknarmenn séu litt
kallaðir til ákvarðana i
þessum efnum mun
framtiðin vinna með
þeim —
staðráðnir að berjast fyrir fram-
kvæmd þeirra. Þó i dag séu ungir
framsóknarmenn litt kallaðir til
ákvarðanna i þessum efnum sem
öðrum, eru þeir fullvissir um, að
framtiðin mun vinna með þeim i
þessum málum.
Jóhann Antonsson,
stjórnarmaður SUF,
flutti annað framsöguerindið á
ráðstefnunni og gerði grein fyrir
atvinnumálaþættinum i byggða-
stefnu SUF. Benti hann á, að hið
fjölbreytta atvinnulif á höfuð-
borgarsvæðinu væri ein helzta or-
sök fyrir þvi, að ungt fólk, sér-
staklega sérmenntað ungt fólk,
tæki sér búsetu á höfuðborgar-
svæðinu. Hið einhæfa atvinnulif
landsbyggðarinnar skapaði litla
möguleika fyrir ungt menntafólk
i dreifbýlinu. Ræddi Jóhann
siðan mismunandi hlutverk hinna
ýmsu atvinnugreina i þjóðarbú-
skapnum. Arstiðabundið atvinnu-
leysi væri eitt helzta vandamál
margra héraða lands-
byggðarinnar og ræddi hann ýmis
atriði i stefnu SUF, sem miðuð
eru við, að ráða bót á þessu
vandamáli. Þvi næst gerði
hann itarlega grein fyrir stefnu
SUF ’i iðnaðaruppbyggingu lands-
byggðarinnar og lagði sérstak-
lega áherzlu á það, að sveitar-
félögum yrði auðveldað að byggja
iðngarða, sem þau gætu
siðan^ leigt til iðnrekstrar. A
hinurti minni stööum, þar sem
ekki er grundvöllur fyrir stór-
rekstri, veröi sérstök áherzla lögð
á iðnað, sem reka má i smáum
einingum.
Ólafur Ilagnar Grims-
son stjórnarmaður i
SUF,
ræddi i upphafi um byggða-
málin frá sjónarhóli is-
Elias Snæland Jónsson
— Þessi ráðstefna sýnir
að timi er til kominn að
hefja sókn í byggða-
málum.-
lenzkrar stjórnmálaþróunar
siðustu áratugi og rökstuddi
hvers vegna byggðamálin væru
þegar orðin og yrðu enn frekar i
næstu framtið eitt helzta við-
fangsfeni islenzkra stjórnmála.
Gerði hann siðan grein fyrir þrem
meginþáttum i byggðastefnu
SUF. Ifyrsta lagi að vandamálin
væru skoðuð frá heildarsjónar-
miði, en ekki með áherzlu á af-
markaðar aðgeröir, eins og gert
hefur verið til þessa. Þess vegna
vill SUF að mótuð sé heildará-
ætlun um byggðamál á Islandi,
a.m.k. 10 ár fram i timann. Mark-
mið þessarar áætlunar ætti að
vera sköpun byggðajafnvægis
með stöðvun fólksflóttans frá
landsbyggðinni til þéttbýlissvæða
suðvesturlands að meginmark-
miði, ennfremur skipuleg nýting
landsins og gæða þess. 1 öðru lagi
gerði Ólafur grein fyrir mennta-
og menningarmálakaflanum i
byggðastefnu SUF og lagði rika
áherzlu á, hve mikilvægt væri að
hindra skiptingu þjóðarinnar upp
i tvær menningarheildir, en
byggðaröskunin virtist vera að
leiða til slikrar skiptingar. Nauð-
synlegt væri, að þær menningar-
stofnanir, sem væru eign
þjóðarinnar allrar störfuðu
annars staðar en i Reykjavik,
þannig að allir landsmenn hefðu
kostá aðnjóta hins bezta, sem is-
lenzk menning hefði upp á að
bjóða. í þriöja lagi gerði Ólafur
grein fyrir samgönguþættinum i’
byggðastefnu SUF, en hann
miðast fyrst og fremst við eflingu
samgangna milli landshlutanna
beint og innan þeirra. Samgöngu
kerfi Islands nú væri miðað ein-
göngu við Reykjavik. Ef mið-
stöðvar landshiutanna ættu að
geta eflzt til móts við Reykjavik,
yrði að gerbreyta grundvelli
samgöngukerfisins. Að lokum
lagði hann áherzlu á, að hinar
Áskell Einarsson
— Margt er mjög vel til
fundið i byggðastefnu
SUF,-
viðtæku aðgerðir i byggðamálum,
sem stefna SUF miðaðist við,
fælu óhjákvæmilega i sér þörf á
gifurlega miklu fjármagni, mun
meira fjármagni, en hingað til
hefur verið varið til byggðamála.
Þess vegna legði SUF til, að frá
og með árinu 1974 yrði sem sam-
svaraöi 3% aT þjóðartekjum látið
renna i byggðasjóð. Þess fjár yrði
einkum að afla með framlögum
frá þeim, sem bezt eru settir
byggðalaga séð, þ.e.a.s. ibúum
suðvestursvæðisins enda hafa
þeir fyrst og fremst notið þeirra
forréttinda, sem nútima Island
hefur getað boðið upp á undan-
farna áratugi. Að siðustu benti
Ólafur á þá áréttingu i byggða-
stefnu SUF, að þeir sem færu með
stjórn landsins, þyrftu af, hafa
pólitiskan styrk og þor til aö gripa
til þeirra ráða, sem duga til að
snúa byggðarþróuninni við.
Bjarni Einarsson,
bæjarstjóri íysti ánægju -
sinni með byggðastefnu SUF. I
henni kæmi fram mikið af góðum
hugmyndum. Tekizt væri á við
kjarna vandamálsins á raun-
hæfan hátt. Slikar stefnuskrár
þyrftu þó að þróast ár frá ári.
Bjarni ræddi siðan nokkuð um
áætlanagerð, einkum um nauðsyn
þess að hún væri i senn tengd
vandamálum liðandi stundar og
markmiðum framtiðarinnar.
Uppbygging landsbyggðarinnar
ætti fyrst og fremst að miðast við
að gera þjóðfélagið sem heild
hagkvæmara. Dýrara væri að
koma einum manni fyrir á
Reykjavikursvæðinu, heldur en
úti á landi. Fjármagnsstraumur
til landsbyggðarinnar mundi þvi
til'lengdarspara peninga og leiða
til hagkvæmara þjóðfélags.
Rigurinn milli landshlutanna
hefði dregið úr pólitiskum styrk
Jónas Jónsson
— Ýmsum eldri fram-
sóknarmönnum brá við,
þegar SUF tók byggða-
málin upp —
Hér fer á eftir úrdráttur úr umræðum, sem urðu um
byggðastefnu SUF og vandamál landsbyggðarinnar
á ráðstefnu, sem SUF og FUF á Akureyri efndu til
s.l. sunnudag. Ráðstefnan var fjölsótt.
Elias Snæland Jónsson,
formaður SUF, setti
ráðstefnuna. Hann
minnti á, að stjórnmálabarátta
SUF hefði á undanförnum árum
fyrst og fremst beinzt að um-
sköpun islenzk þjóðfélags i anda
hugsjóna, jafnaðar, samvinnu og
lýðræðis. Sú byggðastefna, sem
stjórn SUF hefði nú markað, bæri
greinilegt svipmót þessara hug-
sjóna. Jöfnuður allra lands-
manna, samvinna milli þeirra og
aukið lyðræði væru helztu kjarna
atriði þessarar stefnu. A siðasta
þingi SUF hefði verið talið nauð-
synlegt að beita sér fyrir stefnu-
mótum i byggðamálum, sem leitt
gæti til raunhæfari aðgerða á
þessu sviði en sézt hefðu til þessa.
Lýsti Elias siðan á hverh hátt
byggðastefna SUF hefði verið
mótuð. 1 mótun hennar heföu
tekið þátt fjölmargir aðilar viða
um land. Að svo mæltu fól Elias
Ingvari Baldurssyni, formanni
FUF á Akureyri, stjórn ráð-
stefnunnar.
Eggert Jóhannesson,
varaformaður SUF,
greindi i upphafi ræðu sinnar frá
þvi, að SUF væri með þessari
ráðstefnu 0g þeim ráðstefnum,
sem haldnar yrðu i næstu viku að
leggja byggðastefnu sina fram til
umræðu og óska þar með eftir
ábendingum um endurbætur á
henni, sem siðan gætu leitt til
endurskoöunar stefnunnar.
Eggert ræddi siðan þróun
sveitastjórnarmála á tslandi
siðustu áratugi, sérstaklega hina
miklu aukningu miðstjórnar-
valdsins. Eitt mikilvægasta atriði
varðandi byggðamálin væri
dreifing valdsins til fólksins
sjálfs, þar sem það byggi. 1 þessu
skyni legði SUF til, að staða sam-
taka sveitafélaga yrði fest i
lögum. Þannig yrðu efldar sam
stæðar heildir um alla lands-
byggðina, sem væru nægilega
sterkar til að geta tekið að sér
ýmiss þau verkefni, sem nú væru
i höndum rikisvaldsins i Reykja-
vik . Siðan ræddi hann um
húsnæðismálin. Þau væru <;itt
helzta vandamál lands-
byggðarinnar. Eggert gerði grein
fyrir hinni itarlegu stefnu SUF i
þeim málum, sem einkum
einkenndist af hagkvæmari
lánum til húsbygginga úti á landi.
Ennfremur ræddi hann nauðsyn
aukinnar verkmenntunar, sér-
staklega iðnaðarmenntunar, ef
öflug iðnvæðing ætti að geta átt
sér stað úti um landsbyggðina. 1
lok framsöguerindis sins dró
Eggert saman nokkur megin-
atriði i byggðastefnu SUF. Þau
væru: 1) Að beina fjármagni
þjóðarinnar til þess að byggja
landið allt innan ramma heildar-
áætlunar um æskilega þróun
byggðarinnan 2) Að dreifa
valdinu i þjóðfélaginu, færa það
nær fólkinu og gera það þannig
virkt og ábyrgt um stjórn eigin
mála. 3) Að fyrirbyggja skiptingu
þjóðarinnar eftir menntun og lifs-
afkomu.
Ungir framsóknarmenn gera
sér ljóst, að eitt og annað á eftir
að torvelda framkvæmd
þessara markmiða, en þeir eru