Tíminn - 20.03.1973, Side 7
Þriöjudagur 20. marz. 1973
TÍMINN
7
Q Malbik
2) Undirbyggingu gatna.
3) Lagningu malbiks, hvort
malbik væri lagt i veðráttu, sem
væri óæskileg og s. frv.
4) Áhrif negldra hjólbarða á
malbiksgöturnar.
5) Saltið.
Ræðumaður rakti allitarlega
alla ofangreinda liði og sýndi
fram á, að i rauninni benti margt
til þess, að með tilliti til aöstæðna,
væri ekki ávallt gætt hygginda i
lagningu malbiks. Þannig væri
oft unnið að malbikunarfram-
kvæmdum í regni, en hjá því hefði
ekki verið talið að hægt væri að
komast, þegar tið væri rysjótt.
Þá taldi ræðumaður, að setja
þyrftistrangari reglur um notkun
negldra snjóhjólbarða, sem
margir teldu að spændu upp
göturnar. Það væri nauðsynlegt
að takmarka þann árstima, sem
leyfilegt væri að nota slika hjól-
barða, en þess væru dæmi, að
sumar bifreiðar ækju að sumar-
lagi á negldum hjólbörðum.
Saltið á götunum —
athyglisverðar
upplýsingar
Að lokum vék Kristján
Benediktsson, borgarfulltrúi að
saltinu á götunum. Minnti hann á
tillögu, er hann flutti um þetta
efni i okt. 1971. Var þá ákveðiö aö
dregið skyldi úr notkun saltsins,
en dró i efa að dregið hefði úr
saltburðinum.
Ræðumaður benti á, að
bifreiðaeigendur yrðu fyrir stór-
felldu tjóni á bifreiðum slnum af
völdum saltsins. Ryðskemmdir
væru miklar og aðrar skemmdir
á lakki og öðru næmu miklum
upphæðum. Saltið væri hins vegar
borið á göturnar til aö minnka
slysahættuna i umferðinni. Kvað
hann þó að margir efðust stór-
lega um gildi saltburðar i þessu
efni. Vitnaði ræðuríiaður I erlend
blaðaskrif og álit um þetta efni og
las upp orðrétt ummæli úr sænsku
blaöi:
Jólaumferðin i Sviþjóð var 27
manns að bana og þetta hefur
orðið til þess að nú er rætt þar og
deilt um umferðarmálin af hálfu
meira kappi en nokkru sinni fyrr.
Það verður að lækka hámarks-
hraðann segja sumir, það veröur
að stórauka eftirlit segja aðrir,
það þarf bættan ljósabúnað, til
þess að koma í veg fyrir að þessi
saga endurtaki sig segir Lars
Skjöld, sem er aðalritari eða
framkvæmdarstjóri i umferðar-
öryggisstofnun Stokkhólms-
borgar.
Vegna þessara ummæla Lars
Skjöld hefur Iþróttablaðið sænska
gengizt fyrir tilraun, en niður-
stöðurnar af henni benda til að
það sé saltið, sem I rauninni er
hinn mikli banavaldur i
umferðinni. Ljósabúnaðurinn er
eins og hann getur orðið full-
komnastur segir i blaðinu, þar
sem skýrt er frá tilrauninni, en
eftir að ekið hefur verið nokkra
km áleiðis til Stokkhólms þá voru
hlifðarglerin á ljósunum þakin
ryklagi svo þéttu, að geislinn
komst þar naumast I gegn. Hin
fullkomnu ökuljós voru þar með
orðin harla ófullkomin ökuljós og
orsök þessa er vegasaltið og
barðanaglarnir. Þeir bilstjórar
eru alltof margir, sem aka á
negldum hjólbörðum um saltað
malbik. Þetta verður til þess að
losa um mikið rykmagn og þyrla
þvi upp með þeim afleiðingum
að ljósabúnaðurinn verður þvi
sem næstónothæfur og enn segir i
blaðinu: Hvemörg eru ekki þau
banaslys,sem saltið á vegunum á
sök á. Næst liggur að álykta, að
flest banaslysin hafi orðið af þvi,
að bilstjórinn hafi ekki neinn
möguleika til að greina göngu-
menn vegna óhreinindahna á
framrúðunni og ljósaglerjunum.
Veröi bflstjórinn svo að auki
blindaður af hemlaljósum sér
hann ekki neitt. Hemlaljósin eiga
að sjálfsögðu aö vera þannig
gerð, að þau geti ekki valdið
glýju, en það hefur viðkomandi
eftirlit ekki tekið með i reikning-
inn. Og i niðurlagi greinarinnar
segir enn: saltið er hinn mikli
banavaldur, þá staðreynd
verða viðkomandi yfirvöld aö
viðurkenna og það tafarlaust.
Það er þýðingarlaust að fara i
kring um hana, eins og köttur
kring um heitan graut. Og þar
með lýkur þessari athyglisverðu
grein”. *
Svar meirihluta
borgarstjórnar
Er Kristján
hafði lokið máli
slnu, kvaddi sér
hljóðs Olafur B.
Thors, borgar-
fulltrúi (Sjálf-
stfl.) Hann
kvaðst taka
undir flest af
þvi, sem fulltrúi
Framsóknar-
flokksins hefði
sagt. Þetta væri mikið vandamál,
en hins vegar vildi hann ekki taka
undir það, að óljóst væri, hvers
vegna malbiksgöturnar færu svo,
sem raun bæri vitni á vetrum.
Það stafaði einfaldlega af tiðar-
farinu, og margar af eldri
götum væru ekki byggðar fyrir
þann gifurlega umferðarþunga,
sem á þeim ekur i dag. Taldi hann
þvi erlenda rannsókn óþarfa og
vildi láta borgarstjórn annast
könnun á vandanum i viökomandi
stofnunum borgarinnar.
Saltburður i sam-
ræmi við athugun FIB?
Ennfremur dró hann I efa, að
saltið ætti sök á slysum og taldi
saltburðinn vera i samræmi við
könnun, sem FIB hefði gert á
málinu. Hins vegar væri borgin
að vinna að öflun tækja til að gera
saltburðinn betri, þannig að ná
mætti meiri árangri með minna
magni, en nú væri.
Ræða Ölafs B. Thors virtist vel
undirbúin og málefnaleg i alla
staði, enda þótt flokkur hans hefði
ekki einurð til að láta gera fræði-
lega úttekt, sem liklegt væri að
litið yrði á sem algjört vantraúst
á Sjálfstæðisflokkinn i gatna-
gerðarmálum, þvi auðvitað hefur
flokkur hans boriö alla ábyrgð á
þessum málum frá upphafi.
Malbikið enn á
vangaveltustiginu
1 svarræðu sinni harmaði
Kristján Benediktsson, að Sjálf-
stæðismeirihlutinn vildi ekki láta
rannsaka málið fræðilega, til að
fá það á raunhæfarii grundvöll.
Hann kvað þetta vera stórmál.
Mál, sem kostaði borgina offjár á
hverju ári. Hann kvað nauðsyn-
legt að leita erlendrar aðstoöar og
dró i efa að þeir, sem um þessi
mál fjölluðu fyrir borgina með
fyrrgreindum afleiöingum væru
rétti aðilinn til að rannsaka þessi
mál.
Ólafur B. Thors tók aftur til
máls og ræddi um virðingu sina
fyrir þeim embættismönnum,
sem um þetta mál myndu fjalla
og kvaðst viss um að málið hlyti
málefnalega afgreiðu þar.
Að lokum tók Kristján
Benediktsson aftur til máls, þar
sem hann itrekaði skoðun minni-
hlutaflokkanna, en þar eð tillagan
myndi ekki fá samþykki, teldi
hann eftir atvikum rétt, að sam-
þykkja að borgarráði yrði falið að
rannsaka óeðlilegt slit á malbiks-
götunum og var tillagan
samþykkt samhljóða.
Ennfremur tók til máls um
tillögu þessa Sigurjón Pétursson
(Alþbandal) og tók mjög I sama
streng og framsögumaöur, en þvi
miður er ekki unnt að rekja efni
ræðu hans hér.
—JG
700
hvalir
NÚ UM miðjan marzmánuð fór
fram i Noregi i Færeyjum mesta
grindadráp, sem dæmi eru um I
mörg ár. Skopunarbáturinn
Harðaberg kom að mikilli grinda-
vöðu vestan viö Tröllhöföa, og
töldu skipverjar, að á að gizka
þi-jú þúsund hvalir hefðu verið i
vöðunni.
Skopunarmönnum tókst að
skilja um sjö hundruð hvali frá
meginvöðunni og reka þá inn á
Miðvog, þar sem fjaraði undan
þeim, áður en til þess kæmi, að
reynt væri að reka þá á land.
Þrir menn slösuðust i að-
ganginum, er varð, þegar gengið
var á milli bols og höfuðs á
hvölunum — einn þeirra alvar-
lega, er stór krókur gekk inn i
fótinn á honum.
Lýsistrata í 30. sinn
Hinn sigildi gamanleikur Lýsis-
trata veröur sýndur i 30-skipti i
Þjóðleikhúsinu n.k. föstudag
þann 23. marz. Mjög góð aðsókn
hefur verið á þennan 2000 ára
gamla gamanleik og undirtek.tir
Ieikhúsgesta frábærar. Sýningin
á föstudaginn verður jafnframt
150. sýningin I Þjóðleikhúsinu á
þessu leikári. Leikstjóri er sem
kunnugt er Brynja Benedikts-
dóttir og er þetta I þriðja skipti,
sem hún sviösetur Lysiströtu.
Aður hafði hún sett leikritið á sviö
hjá Menntaskólanum I Reykjavik
og hjá Leikfélagi Akureyrar.
Myndin er af Þóru Friðriksdóttur
og Erlingi Gislasyni i hlutverkum
sinum.
DRAGNOTAVEIÐ-
AR í FAXAFLÓA
Borgarstjórn ræðir soðfisksöflun
TILLAGA frá borgarfulltrúum borgarstjórn Reykjavikur skori á
Sjálfstæðisflokksins um að Alþingi að samþykkja nú á þessu
77 skip með
yfir 1000 lestir
A MIÐNÆTTI s.l. laugardags-
kvölds var heildaraflinn á yfir-
standandi loðnuvertið samtals
345.008 lestir. A sama tima I fyrra
var heildaraflinn 276.547 lestir og
þá höfðu 58 skip fengið einhvern
afla.Nú er vitað um 77 skip, sem
hafa fengið 1000 lestir eða meir,
og eru aflahæstu skipin Guð-
mundur RE, Eldborg RE og
Loflur Baldvinsson EA.
Annars er hér skrá yfir þau
skip, sem hafa fengið 1000 lestir
eða meir á þessari miklu loðnu-
vertið:
AlbertGK 4901
Alftafell SU 4988
Arinbjörn RE 1920
Árni Magnússon SU 4235
ArsællSigurðssonGK 2718
Asberg RE 6257
Asgeir RE 5909
Asver VE 2333
BergurVE 2602
Bjarni Ölafsson AK 4880
Björg NK 1277
Börkur NK 5446
Eldborg GK 11331
Dagfari ÞH 5230
Esjar RE 4501
Faxi GK 2496
Fifill GK 7885
Gisli Arni RE 8173
Gissur Hviti SF 2617
Gjafar KE 1374
Grindvikingur GK 7829
GrimseyingurGK 3081
Guðmundur RE 12966
Guðrún GK 1237
Gullberg VE 1896
Gullberg NS 1592
Gunnar Jónsson VE 1584
Halkion VE 3178
Haraldur AK 1529
Harpa RE 4528
Héðinn ÞH 7253
Heimir SU 7707
Heimaey VE 1156
Helga RE 2873
Framhald á bls. 19
þingi meginstefnu frumvarps til
laga um breytingu á lögum um
bann við botnvörpuveiöum, sem
flutt er af nokkrum þingmönnum,
en þar er ráðherra skylt að veita
leyfi til að veiða neyzlufisk fyrir
ibúa höfuðborgarsvæðisins, meö
vissum takmörkunum.
Nokkrar umræður urðu I
borgarstjórn um mál þetta.
Kristján Bene-
diktsson gagn-
rýndi tillöguna
ekki sem heild,
heldur einstök
atriði frum-
varpsins, eins
og t.d. báta-
fjölda, sem
stunda á veið-
arnar, og enn-
fremur svæðið,
sem afmarkaö verður, ef
frumvarp þetta veröur að lögum.
Alls munu flutningsmenn hafa
hugsað sér að 13 bátar megi
stunda dragnótaveiðar 1 Faxaflóa
og „skal ráðherra veita leyfi”.
Ennfremur segir I frumvarpinu
að ráðherra skuli setja ákvæði
um „meðferð afgangsfisks”.
Þetta kvað Kristján vera of rúma
heimild, með tilliti til friðunarað-
gerða, og taldi varhugavert fyrir
borgarstjórn að samþykkja þessi
ákvæði laganna, þótt hann hins
vegar gæti fallizt á það sjónarmið
að rétt væri að afla neyzlufiskjar i
Faxaflóa. Var siðan breytingatil-
laga, framborin . af borgar-
stjóra, þar sem vægara var farið i
sakirnar, „aö rétt sé að leyfa til-
teknum fjölda báta veiðar á
neyzlufiski i Faxaflóa, með
dragnót og botnvörpu”. Með
þessari oröalagsbreytingu var
tillagan samþykkt með 10
samhljóða atkvæðum.
—JG
i
Vökva
stýri
Vökyastýri
MF dráttarvélanna
eykurgildi þeirra
SUÐURLANDSBRAUT 32 • REYKJAVlK • SlMI 86500 • SlMNEFNI ICETRACTORS