Tíminn - 24.03.1973, Qupperneq 28

Tíminn - 24.03.1973, Qupperneq 28
-----------------------------' Laugardagur 24. marz 1973. - MERKID.SEM GLEÐUR Htttumst i kaupfélaginu Gistió á góóum kjörum =iqjri a\ 1—■it-JIMIU nl SGOÐI J fyi’ii' fjóöun nmi $ KJÖTIDNADARSTÖÐ SAMBANDSINS Vonir um frið á Iríandi brugðust NTB—Belfast. — Róttæki arrour trska lýöveldishersins visaöi i gær á bug innihaldi hvitu bókar- innar um framtíö N-trlands, og skýrt var frá þvi, að haldiö yröi áfram baráttu i landinu. Þar meö eru vonir úti um bráða lausn deiluinálanna i þetta skiptiö. I tilkynningu frá Dublin segir, að hvita bókin geri það að verk- um, að Lýðveldisherinn eigi ekk- ert val annað en að halda áfram baráttunni með vopnavaldi. Hins vegar er ekki ljóst hvort róttæki armur hersins muni þegar i stað hefja hryðjuverk á ný eða muni biða átekta. Lýðveldisherinn hafðist ekki að meðan hvita bókin var i athugun. Paddy Devlin, talsmaður sósialdemókratiska verka- mannaflokksins, stærsta flokks kaþólskra i fyrrverandi stjórn N- Irlands, sagði, að þessi ákvörðun sýndi, að róttækir félagar i Lýðveldishernum væru, helteknir af geðveikislegri starfsemi sinni”. Formaður flokksins, Gerry Fitt, sem hefur látið i ljósi jákvæða afstöðu gagnvart hvitu bókinni, harmaði afstöðu Lýð- veldishersins. — Ég er viss um, að meirihluti ibúa N-Irlands er mér sammála, sagði Fitt. Akvörðun Lýðveidishersins felur i sér, að þessi hörmulega deila heldur áfram. — I tilkynningu Irska lýðveldishersins kemur fram, að hann samþykkir aðeins vopnahlé ef stjórn Bretlands leyf- ir Sinn Fein, sem er stjórnmála- legur armur Lýðveldishersins, að starfa að vild. Sinn Fein flokkur- inn er ólöglegur. Lýðveldisherinn vill, að Sinn Fein takí þátt i kosningum til nýs þings i landinu, en það á samkvæmt hvitu bókinni að koma saman eins fljótt og unnt er. Slysið varð á Röðli MAÐURINN, sem slasaðist i höndum dyravarða um siðustu helgi og hefur kært þá, meiddist á veitingahúsinu Röðli, en ekki i Þórscafé, eins og sagt var rang- lega i gær hér i blaðinu. Lýsing á staðnum, sem lýst er i fréttinni, kemur ekki heldur heim og saman við húsakynni Þórscafés eða útgönguleiðir þaðan, eins og kunnugir munu hafa séð. Stafar þetta brengl af missögn heimildarmanna, og eru viðkom- andi beðnir velvirðingar á rugl- ingi nafna á veitingahúsi ogdans- húsi. Oó. Fulltrúar í MENNTAMALARAÐUNEYTIÐ hefur skipaö ólaf Jónsson rit- stjóra og Véstein óiason mag.art. fulltrúa af islenzkri hálfu i dóm- nefnd um bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs til næstu þriggja ára, eða þar til veiting verðiaunanna árið 1976 hefur farið fram. Andrcs Björnsson útvarpsstjóri hefur verið skipaður varafulltrúi f dómnefndinni sama timabil. Fyrsti togarinn, Júpiter, fór út upp úr tvö i gær, þótt um hádegiö væri auglýst eftir tveim mönnum á skipiö. ^ Togarar Tryggva Ofeigssonar farnir til veiða, hinir bundnir TOGARARNIR liggja cnn við bryggju þrátt fyrir að verkfalli yfirmanna sé lokið, að undan- skildum togurum Tryggva Ófeigssonar, sem farnir eru til veiða eða veriðeraö undirbúa þá. Togaraeigendur segjast ekki geta látið skipin hefja veiöar, fyrr en allsherjarlausn er fengin á rekstrargrundvelli togaranna, og segjast ekki hafa peninga tii að koma skipunum út. Samkvæmt fjárlögum er gert ráð fyrir 20 milljón króna aðstoð við togaraútgerðina, en það erum við raunverulega búnir að nota, sagði Þorsteinn Arnalds, fram- kvæmdastjóri Bæjarútgerðar Reykjavikur i gær, og þarf togaraútvegurinn mun meira fé til að mæta fyrirsjáanlegum hallarekstri á þessu ári. Rikisstjórnin hefur skipað viöræðunefnd til að ræða við útgerðarmenn, og er þeim viðræðum ekki lokið. Flestir togarasjómenn eru farnir að starfa á öðrum skipum eða i landi, en útgerðarmenn telja, að ekki verði vandræði með að fá mannskap ef skipin halda til veiða. Ingimar Einarsson, fram- kvæmdastjóri Félags islenzkra botnvörpuskipaeigenda, sagði, að það væri ekki ákvörðun FIB, að skipin fari ekki út og ekki samtök meðal togaraeigenda, en þeir hefðu ekki fjárhagslegt bolmagn til að halda skipunum úti. Tryggvi ófeigsson er ekki meðlimur i Félagi islenzkra botnvörpuskipaeigenda. Markús Guðmundsson sá aflaskipstjóri gengur glaður til starfs að nýju. TimamyndirGE Blaðburðarbörn óskast Meðalholt, Stórholt. mmm simi 12323. AAyndlistarhúsið opnað \ dag með sýningu á verkum Kjarvals SJ-Reykjavik. — 1 dag, laugardag, verður Mynd- listarhúsið á Miklatúni opn- að. Húsið var reist i tilefni af áttræðisafmæli Jóhannesar S. Kjarvals 15. október 1965, og fyrsti listviðburðurinn þar er einmitt sýning á verkum hins látna listamanns. 184 myndir og málverk frá ýms- um timum eru á sýningunni, sem verður opin almenningi kl. 20-22 i kvöld, en siðan kl. 14-22 á sunnudögum og 16-22 þriöjudaga til laugardaga. Sýningin er ekki opin á mánudögum. Þessi hluti sýningarinnar eru myndir, sem Reykjavfkurborg á. Málverkiö til hægri er eitt það stærsta á sýningunni. Geta má að i fordyri eru Ijósmyndir af Kjarval eftir Kaldal. TimamyndGE.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.