Tíminn - 16.05.1973, Blaðsíða 1

Tíminn - 16.05.1973, Blaðsíða 1
Hálfnað er verk þá hafið er I I I sparnaður skapar verðmæti Samvinnubankinn Malecela , utanrikisráðherra Tanzaniu, (fyrir miðju), á fundi meö fréttamönnum. T.v.: ritstjóri útbreiddasta dagblaðs Tanzaniu, en t.h-: yfirmaöur Vestur-Evrópudeildar utanrikisráðuneytis Tanzaniu. (Timamynd : Gunnar) Utanríkisráðherra Tanzaníu: Styðjum ykkur í landhelgismálinu — Stjórnmálasamband íslands og Tanzaníu á næsta leiti ET, Reykjavik. Malecela, utan- rikisráðherra Tanzaniu, sem staddur er hér á landi i opinberri heimsókn, hélt i gær fund með fréttamönnum. Á fundinum kom m.a. fram, að Tanzaniustjórn hefur áhuga á að fá islenzka sér- fræðinga til að leiðbeina Tanzaniubúum um fiskveiðar. I upphafi kvaðst Malecela þakklátur islenzkum stjórn- völdum fyrir frábærar móttökur. — Ég dáist mjög að þjóðinni og landinu, sagði ráðherrann, — Ég hef reyndar haft i hyggju að heimsækja tsland s.l. 1-2 ár, en vegna anna hefur ekkert orðið úr þvi, fyrr en nú. Utanrikisráðherran sagðist hafa átt vinsamlegar viðræður við Einar Agústsson, utanrikis- ráðherra, og aðra ráðamenn. Ráðherrann taldi þær viðræður hafa verið mjög gagnlegar og eflaust liði ekki á löngu, þar til rikin tvö tækju upp stjórnmála- samband. Malecela lagði sérstaka áherzlu á baráttuna gegn ný- lendukúgun i viðræðum við islenzka ráðamenn — Við Tanzaniubúar teljum, að þessi barátta eigi ekki að miðast við Afriku eina, heldur sé hér um vandamál alls mannkyns að ræða. Við viljum kynna Islend- ingum og öðrum þjóðum sjónar- mið okkar, þvi við álitum stuðn- ing rikja utan Afriku mjög mikil- vægt innlegg i baráttuna gegn nýlendustefnu. Þá kvaðst utanrikisráðherrann vilja þakka stuðning tslands við ýmsar tillögur Afrikurikja ' á vettvangi Sameinuðu þjóðanna. — Við höfum ætiðtrúnaðá mál- stað Islands i landhelgismálinu, Framhald á bls. 15. íslendingur stjórnar stór- fyrirtæki í Tanzaníu AFRIKURIKIÐ Tanzania er i fréttum hér um þessar mundir vegna komu utanrikisráðherra rikisins, Malecele, og fleira þarlends fólks hingað. 1 þvi til- efni er ekki úr vegi að geta tslendings eins, sem búsettur er og starfandi i Tanzaniu. Hann heitir Ingi Þorsteinsson og er aðalforstjóri (general manager) geysistórs vefnaðarvörufyrir- tækis, NATEX (National Textile Industries Corporation Limited), sem hefur höfuðstöðvar i höfuð- borg Tanzaniu, Dar es Salaam. A vegum Natex starfa i dag um 10.000 manns. Það er þvi næsta trúlegt, að Ingi stjórni stærra fyrirtæki en nokkur annar tslend- ingur. Margir munu kannast við Inga Þorsteinsson. Hann er viðskipta- fræðingur að mennt, nú um fertugt, að aldri og var þekktur hér heima sem iþróttamaður, en hann setti m.a. tslandsmet i grindahlaupi. Ingi var forstjóri sokkaverksmiðjunnar Evu um skeiðhér heima, en hann fór utan 1969 og hóf að starfa hjá þekktu og stóru brezku fyrirtæki. Starfaði hann i „kvörtunardeild” (After- sale-service) þessa fyrirtækis, deild sem hefur með að gera kvartanir, er berast fyrirtækinu frá viðskiptavinum þess. Verzlaði fyrirtækið m.a. með vélar til vefnaðar. t þessu starfi ferðaðist Ingi um allan heim. Við þetta brezka fyrirtæki starfaði Ingi i ár eða svo, eða þar til hann var ráðinn sem aðal- framkvæmdastjóri Natex, en það varstofnaðvorið 1970.Natex var. m.a. ætlað það hlutverk að hafa umsjón með öllum innflutningi á vefnaðarvarningi til Tanzaniu, að koma á verð- og gæðaeftirliti Framhald á bls. 15. Þessi mynd er tekin úr Natex Staff News og sýnir hún Paui Bomani, viðskipta- og iðnaðarráðherra Tanzaniu, halda ræðu við opnun sölu- miðstöðvar Natex i Iringa. Sitjandi frá vinstri eru Ingi Þorsteinsson, aðalframkvæmdastjóri Natex, og A.S.M. Janguo, aðalskipulagsstjóri Þróunarstofnunar Tanzaniu. Standandi eru Jaffer, sölustjóri Natex, C; Mackeja ráðamaður hjá Natex, og Dossajee, yfirumsjónarmaður Sölu- miðstöðvarinnar i Iringa. Skemmdarverk brezkra togara ó alfrfðuðu svæði Brezkir togaraskipstjórar viröasttelja þaðskyldu sfna að gera sem mestan skaða á við- kvæmustu uppeldisstövum fiskjarins við tsland. Nær allur brezki togaraflotinn hér við land hnappaðist saman á alfriðuðu svæði norður af Rifs- tanga i fyrradag og skarkaði þar i smáfiskinum. Varðskipin Týr og Þór komu á staðinn um kvöldið og tóku þá allir togararnir upp veiðarfærin, en einbeittu sér að þvi, að sigla á varðskipin. Togararnir Machbeth og Northen Jewel gerðu svo grófar aáiglingartilraunir að send voru tvö kúluskot fráTý, sem skotið var framan við togarana. Ekki tókst Bretun- um að sigla á varðskipin, en héldu sig áframá friðaða svæðinu, en höfðust ekki að. Auk Bretanna voru tveir færeyskir togarar þarna að veiðum, en þeir tóku þegar upp veiðarfærin þegar varð- skipin komu; og sögðust skiþ- stjórar þeirra ekki hafa vitað að svæðið er friðað. A svæðinu norður af Rifs- tanga og norð-austur af Langanesi er mikilvægt uppeldissvæði og eru allar veiðar þar bannaðar frá 1. april til 1. júni. Samkvæmt þeim rannsóknum sem Haf- rannsóknarstofnunin hefur gert undanfarin ár eru 60% þess afla, sem þarna fiskast á þessum árstima 50 sm fiskur eða minni. Það er tveggja til þriggja ára gamall fiskur. Er þvi ekki annað en gófasta rán- yrkja að veiða þarna og ögrun við tslendinga. Samtök brezkra togara- eigenda gáfu út tilkynningu þess efnis i gær, að það væri ekki annað en uppspuni Land- heigisgæzlunnar, að brezkir togarar hefðu verið að veiðum á friðlýsta svæðinu. r Einar Agústsson fer utan í dag til Strassborgar, Póllands og Tékkóslóvakíu TK, Reykjavik — Einar Agústs- son, utanrikisráðherra, heldur i dag til Strassborgar til að sitja þing Evrópuráðsins. A morgun 17. mai heldur hann ræðu á þing- inu og mun dvelja þar til 20. mai er hann heldur til Póllands. Þar dvelur Einar Agústsson i 4 daga i opinberri heimsókn. Frá Póllandi heldur Einar 25. mai til Tékkó- slóvakiu en þar dvelur hann i opinberri heimsókn i 2 daga en heim heldur ráðherrann þann 28. mai. ------------► Einar Agústsson. Dollar lækkaði alltað 2% miðað við Evrópumynt t gærmorgun urðu tals- verðar hækkanir á flestum Evrópugjaldeyri miðað við dollar. Þar sem islenzka krónan fylgir dollarnum þýðir þetta að evrópskur gjaldeyrir hækkar nokkuð i verði, yfir- leitt um sem svarar 2%. Gullverðið hefur hækkað mjög, sem þýðir að dollarinn lækkar gagnvart þvi, en „fljótandi myntir” hækka sem þvi svarar. Svanbjörn Frimannsson seðlabankastjóri, sagði i gær, að samkvæmt lögum væri Seðlabankinn bundinn við að skrá islenzku krónuna eftir gengi dollarans. Heimild er til að fara 2,25% yfir eða undir skráð gengi dollarans. Nú er skráningin svo til neðst i þessum skala, svo að ekki er hægt að hreyfa skráninguna gagnvart dollar lengra niður, en alit að 4,5% upp á við. Nokkuð er misjafnt hverjar breytingar hafa orðið á ýmsum gjaldeyri Evrópu- landa. Danska drónan lækkaði nokkuð. I gærmorgun var skráð gengi dönsku krónunnar kl. 14.96 en um há’degi lækkaði hún i kr. 14.90. Norska krónan hækkaði i 15.91- og sænska krónan hækkað* svipað. Finnska markið stóð i stað. Franskir frankar, sviss- neskir frankar, gyllini og vestur-þýzk mörk hækkuðu i gær og nemur hækkunin tæp- lega og aðeins yfir 2%. Sterlingspund hækkaði i gær- morgun úr kr. 230.50 i 234.70, eða um tæp 2%.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.